Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 40

Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 40
r Síminn á afgreiðslunni er 83033 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1982 Mjög slæm staða viðskiptabankanna: Mikill samdráttur í út- lánum til atvinnuvega VÍST ER VORIÐ GENGIÐ í GARÐ Mynd Mbl. OI.K.M. Hámarkslán til einstaklinga verður 25 þús. kr. VEGNA mjög slæmrar stöðu viðskiptabankanna hafa þeir nú ákveðið, að draga verulega saman útlán sín næstu mánuðina, eða a.m.k. fram á haustið, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsjns, en í dag er staðan sú, að flestir bankanna eru með verulega neikvæða stöðu við Seðla- banka íslands og hefur staða þeirra ekki verið jafn slæm á þessum árstíma um langt árabil. Varðandi einstaklinga hafa bankarnir ákveðið að hámarkslán til þeirra í venjulegum tilfellum skuli ekki verða hærri en 25 þús- und krónur, en síðan geti sú upp- hæð hækkað eitthvað hafi viðkom- andi að baki löng og mikil inn- lánsviðskipti við viðkomandi banka. Þess ber hins vegar að geta, að útlán til einstaklinga nema ekki nema um fjórðungi af útlánum bankanna. Þrír fjórðu hlutar útlánanna fara til fyrirtækja og því er ljóst, að rekstrarfé fyrirtækja verður verulega skert á komandi mánuð- um, en sumarið er einmitt sá tími, sem hvað mest ásókn er í lánsfé af hendi einstaklinga og fyrirtækja, m.a. vegna húsbygginga og fleiri þátta. í sambandi við fyrirtækin má segja, að t.d. er lokað á yfirdrátt þeirra vegna söluskattsgreiðslna og fleiri slíkra þátta með þessum hertu útlánareglum, sem mun koma þungt niður á mörgum þeirra. Ástæður þessa mikla vanda bankanna eru einkum þrjár, aukin bindiskylda, hægara innstreymi fjár og loks mun meiri útlána- aukning, en nemur innlánaaukn- ingunni síðan um áramót. Sér- staklega var útlánaukningin mikil í aprílmánuði s.l. Bindiskylda bankanna er nú 40%, eða 28% í formi hinnar hefðbundnu bindiskyldu, 5% í sveigjanlegri bindiskyldu og 7% í formi skuldbindinga bankanna til að kaupa ríkistryggð skuldabréf. Þessu til viðbótar eru svo uppi hugmyndir hjá Seðalbanka Is- lands, að óska eftir því við ríkis- stjórnina, að hækka sveigjanlegu bindiskylduna upp í 8%. Hart deilt um réttmæti verkfallsaðgerða strax Byggingamenn hafa boðað eins dags verkfall 18. maí nk. MJÓG harðar deilur urðu á 72ja manna samninganefndarfundi ASI í gærdag um hvort rétt væri, að fara út i verkfallsaðgerðir mjög fljótlega eftir að samningar renna út 15. mai nk., en ekki náðist nein samstaða um málið. Hins vegar tilkynntu flest félög í Sambandi byggingarmanna, að þau myndu fara í eins dags verk- fall 18. maí nk. hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma og síðan tvisv- ar í dags verkfall í vikunni á eftir. Þeir tveir menn, sem mest höfðu sig í frammi og vildu fara í verkfall þegar eftir 15. maí voru Benedikt Davíðssson, formaður Sambands byggingarmanna, sem hefur reyndar boðað vinnustöðvanir og Sigurður Guðmundsson, formaður Félags starfsfólks í veitingahúsum. Hins vegar mæltu Sigfinnur Karlsson, formaður Alþýðusam- bands Austurlands og Þórður Ólafsson, formaður verkaíýðsfélags- ins í Hveragerði og Þorlákshöfn, hvað harðast gegn því, að farið yrði út í harðar verkfallsaðgerðir svo fljótt. Þeir félagar og fleiri töldu það alls ekki tímabært, að stefna í harð- ar aðgerðir. Sigfinnur Karlsson bendi m.a. á, að á land hefði borizt um þriðjungi minni afli en á sama árstíma í fyrra, sem gerði það að verkum, að fólkið væri alls ekki til- búið í harðar aðgerðir, án þess að láta reyna á samningaleiðina. Á 72ja manna-nefndarfundinum var ný kröfugerð Verkamannasam- bandsins kynnt, en hún felur m.a. í sér verulegar flokkatilfærslur og breytingar á aldurshækkunum, auk þess sem þess er krafizt, að ákvæði samninga um kauptryggingu verði endurskoðuð, en ASI hafði farið fram á 13% grunnkaupshækkun. Næsti samningafundur fulltrúa ASÍ og VSÍ hjá Sáttasemjara ríkis- ins vérður haldinn í dag og hefst hann klukkan 14.00. Magnús L. Sveinsson, sem sæti á í 72ja manna-nefndinni, sagði að- spurður um hina nýju kröfugerð Verkamannasambandsins, að hún myndi væntanlega draga samninga- viðræður á langinn, auk þess sem nú yrðu öll önnur félög að endurskoða sínar kröfur. Þau væru hreinlega nauðbeygð til þess. Ósk litla er ekki með minkinn á þessari mynd, heldur kisuna sina „Dúddu“. * Osk litla kom heim með lifandi mink í fanginu MÖNNUM varð heldur en ekki hverft við, þegar Ósk litla Þrast- ardóttir, þriggja ára gömul og býr á ísafirði, kom kjagandi heim til sin í fyrradag með spriklandi mink í fanginu. Ósk litla hélt sig vera með hund og lét vel að dýrinu. Afturhluti dýrs- ins var kraminn og hefur það lík- lega orðið fyrir bifreið. Mildi verður að teljast að minkurinn skuli ekki hafa bitið frá sér. Menn brugðu skjótt við og tóku minkinn úr fangi Óskar. Dýrinu var lógað og það afhent lögreglunni. ðsk er að líkind- um yngsti verðlaunahafi minkaskotts hér á landi, en hún fékk 140 krónur fyrir skottið. Maöur drukkn- aöi í hofninm 1 Grundarfiröi FULLORÐINN maður fannst lát- inn í höfninni i Grundarfirði á laugardagsmorgun. Maðurinn var aðkomumaður í Grundarfirði, skipverji á Haffara frá Grund- arfirði. Tildrög slyssins eru ókunn. Gunnar Thoroddsen á fréttamannafundi í útvarpinu: Styö auövitaö minn gamla flokk „Davíð Oddsson er mjög hæfur maður“ sagði forsætisráöherra AUÐVITAÐ styð ég Sjálfstæðis- flokkinn í sveitarstjórnakosning- um bæði í Reykjavík og annars staðar, sagði Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, á fréttamanna- fundi í tilefni af þinglausnum í út- varpinu síðdegis á laugardaginn. Lýsti forsætisráðherra þvi jafn- framt yfir, að hann teldi borgar- stjóraefni sjálfstæðismanna, Davíð Oddsson, „mjög hæfan mann". Fyrr á þessum fréttamannafundi hafði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagt, að hann gengi út frá því sem gefnu, að Gunnar Thoroddsen mundi styðja sjálfstæðismenri í borgarstjórnar- kosningunum og teldi það ekki út af fyrir sig til tíðinda, að sjálf- stæðismenn væru sameinaðir í kosningabaráttunni. Geir Hallgrímsson var spurður um stöðuna í Sjálfstæðisflokkn- um. Hann sagðist þeirrar skoðun- ar, að í vetur hefði samheldni sjálfstæðismanna styrkst í kjöl- far landsfundarins, þar sem þeir hafi allir orðið sammála um grundvallarstefnuna. Benti Geir á, að sjálfstæðismenn standa sameinaðir í sveitarstjórnakosn- ingunum um allt land og í Reykja- vík „ganga þeir einhuga í kosn- ingabaráttuna til þess að ná meirihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur og koma í veg fyrir það, að kommúnistar, Alþýðu- bandalagið, ráði ferðinni," sagði Geir Hallgrímsson. Var hann síð- an spurður um það, hvort hann væri til þess búinn að taka sæti á lista með Gunnari Thoroddsen fyrir næstu alþingiskosningar. Geir Hallgrímsson svaraði á þá Ieið, að það færi eftir ákvörðun Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hvernig framboðslisti til Alþingis yrði skipaður og hann hafi aldrei neitað að taka sæti á lista sjálfstæðismanna vegna þess að einhver annar skipaði þar einnig sæti. Síðar í þættinum var Gunnar Thoroddsen spurður þessarar spurningar: Forsætisráðherra, styður þú ekki framboðslista Sjálfstæðisflokksins í hönd far- andi borgarstjórnarkosningum? Og ráðherrann svaraði: „Það er óþarft að spyrja mig um stuðning minn við minn gamla flokk, sem ég hef verið í frá stofnun hans. Að því er Reykjavík varðar þá var ég nú borgarstjóri Reykjavíkur í nær 13 ár, alla tíð með meirihluta sjálfstæðismanna að baki í borg- arstjórn, siðast 10 af 15, og auð- vitað styð ég flokkinn í sveitar- stjórnarkosningum bæði í Reykjavík og annars staðar." Sagðist forsætisráðherra ekki eiga von á því, að ágreiningur sjálfstæðismanna um afstöðu til ríkisstjórnarinnar „hafi sérstök áhrif á úrslit sveitarstjórnakosn- inga“. Síðar var hann spurður, hvort það truflaði hann ekkert, að oddviti borgarstjórnarlista sjálfstæðismanna í Reykjavík „væri yfirlýstur Geirsmaður og leiftursóknarmaður hinn mesti". Gunnar Thoroddsen svaraði með því að segja: „Davíð Oddsson er mjög hæfur maður" og bætti við að gefnu tilefni, að í „Geirs- og leiftursóknarliði" væru margir mjög hæfir menn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.