Alþýðublaðið - 11.09.1920, Síða 2
ÁLÞYÖUBLAÐÍÖ
Æ.figr’eiHssIa,
bSaðsins er í Albýðuhúsmu við
(agólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
íða í Gutenberg í síðasta lagi ki.
íO, þann dag, sem þær eiga að
íorna í blaðið.
Hreystiverk.
3 unglingar bjarga 2 mönnum.
í apdl í fyrra fóru tveir menn
á báti úr Fiatey, til þess að sækja
mó til Hvalvatnsfjarðar. Lending
er afleit og skerjótt. í firðinum.
Mennirnir hlóðu bátihn og héldu
heimleiðis, en er skamt var kom-
ið frá landi, tók að hvessa af
norðri, svo sýnilegt var að ógern-
ingur var að halda áfram. Snéru
þeir því við, en er þeir ætluðu
að lenda tók báturinn niðri á rifi
skamt undan landi og hvolfdi.
Báðir ménnirnir komust á kjöl og
tóku að kalla á hjálp. Báturinn
sat fastur á rifinu.
Fólk í landi tók eftir hvernig
komið var, en af karlmönnum var
énginn heima, nema þrír unglings-
piltar, sá elsti um tvítugt, en hinir
um fermingu.
Bátur var i naustum niður við
sjóinn og settu piltarnir hann á
flot, en hann háiffylti, svo ekki
var árennilegt að leggja út á hon-
um og sýnileg lífshætta. En pilt-
arnir hugsuðu ekki um það, held-
ur um það eitt, að freista þess að
bjarga Iffi tveggja' nauðstaddra
manna. Þeir klöngruðust því á
bátnum hálffullum af sjó út að
þeim sem á hvolfi var og tókst
að bjarga báðum mönnunum og
komast heilu og höldnu í land.
Fyrir þ'etta hreystiverk hafa pilt-
arnir nú hlotið sín 30© kr. verð-
launin hver úr verðlaunasjóði Car-
negie. Þeir hétu: Bj'órn Bj'órnsson
og Jónatan og Júlíus Steýánssyn•
ir. Hafa þeir þannig hlotið nokk-
ura viðurkenningu fyrir ósérplægni
sfna.
■ Einnig hefir Sigurbj'org Sigurð-
ardóttir úr Suður-Múlasýslu hlotið
600 kr. verðlaun úr sjóðnum. Því
miður er oss eigi kunnugt um hver
afrck hún hefir urmið, ep þætti
vænt um ef einhver vildi fræða
oss á því.
200 prósent.
Standard Oil Co. — steinolíu-
hringur Rochefellers hefir borgað
hluthöfum sínum 200% ársgróða
fyrir árið sem leið, það er: 200
kr. í ársgróða af hverjum 100 kr.
Hið svo nefnda »íslenzka« stein-
olíufélag er einn anginn af stein-
olíuhringnum, og þar sem stein-
olía er dýrari hér en í öllum ná-
lægum löndum, má ganga út frá
því að »íslenzka« stenolxufélagið
hafi grætt langt yfir 200 prósentl
Það er ekki að furða þó kvartað
sé yfir að mótorbáta útgerðin beri
sig ekki altaf.
Tóveri.
Di dap 09 Yoginn.
Kreitja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl.
71/2 f kvöld.
Bíóin. Gamla Bio sýnir: »Kven-
tannlækniririn", gamanleik. Nýja
Bio sýnir: „Amerískt bluff", gam-
anleik. Aðalleikari Douglas Fair-
banks. Aukamynd: „Á flugi yfir
Washington".
Yeðrið í morgun.
Vestm.eyjar ... A, biti 6,1.
Reykjavík . .
ísafjörður . .
Akureyri . .
Grímsstaðir .
Seyðisíjörður
Þórsh., Færeyjar
A, hiti 7,6
logn, hiti 6,3
logn, hiti 4,o.
S, hiti 4,5.
logn, hiti 5,7.
logn, hiti 8,5.
Stóru stafirnir merkja áttina.
Loftvægisiægð fyrir suðvestan
land, loitvog ört fallandi á Suður-
landi, hvöss suðaustiæg átt, Útlit
fyrir norðaustlæga átt á Vestfjörð-
um, hvassa suðaustlæga átt ann-
arsstaðar.
Fólkinn er nú aftur farið að
fjölga stórum hér í bænum, má
þegar sjá það af götuumferðinni.
Fáir flytjast samt til bæjarins,
sem ekki voru hér heim ilisfastir
áður, enda væri slíkt lítt ráðlegt
á þessum húsnæðisleysis- og vand-
ræðatímum. Húsnæðisekla er fyrir-
sjáanlega miklu meiri en dæmi
eru til áður. Hvað ætla stjórnar-
völdin t. d. að gera við námsfólk
það, er hingað kemur í haustf
Þeim ber að minsta kosti siðferðis-
leg skylda tii þess, að sjá þeim
fyrir skjóli yfir höfuðið, fyrst öll-
um helztu skólum landsins er
komið hér fyrir. Að öðrum kosti
væri heppilegast, að loka þeim
öilum.
Lagarfoss kom í gærkvoldi
norðan um land frá útlöndum.
Hefir hann tekið stórum stakka-
skiftum. Loftskeytatæki eru á
honum, farþegarúm hefir verið
aukið og bætt, siglurnar hækkað-
ar og hann gerður upp af nýju
að miklu leyti. Fjöldi fólks kom
á skipinu, mest verkafólk úr síld
arvinnu.
Bifreiðarslys. í gær ók bifreið
á tvö stúlkubörn rétt á móts við
verzlun Jóns Þórðarsonar. Kom
bifreiðin ofan Bankastræti en börn-
in gengu jafn snemma út af gang-
stéttinni. Og vildi svo slysalega til,
&ð bifreiðarstjórinn gat ekki stöðv-
að vagninn nógu fljótt, svo önnur
telpan fékk höfuðhögg cg kast-
aðist til á götunni en hin varð
undir með fæturnar. Læknir var
þegar sóttur og kvað hann meiðsl-
in mjög Iítil á börnunum. Fór þar
betur en áhorfðist.
Alt of lítið eftirlit er haft með
framferði bifreiðarstjóra. Einn ó-
vatii, sem mjog^ er heimskulegur
er sá, að þeir aka reykjandi oft
og tíðum, einnig brennur það við,
að ekið er of hart og síðast og
jafnframt verst er það, að sumir
þeirra aka stundum drukknir um
göturnar. Þeir sem lausir eru við
þessa galla, ættu sjálfra sín vegna
að kæra þá, sem brotlegir verða.
Hjónahand. í dag verða gefin
saman í hjónaband á Akureyri,
þau: ungfrú Sigurlaug Sigurgeirs*
dóttir og Guðmundur Bergsson
póstmeistari.
Páll ísólfsson ætlar í kvöld
að halda hljómleik í dómkirkjunni.
MessaÖ. Síra Bjarni Jónsson
messar kl. 11 á morgun í Dóm-
kirkjunni. Engin messa í Fríkirkj-
unni.