Morgunblaðið - 25.07.1982, Side 2

Morgunblaðið - 25.07.1982, Side 2
3 g MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ1982 í leiðinni „Himneskt samband" heitir fyrirtæki nokkurt í Bandaríkjunum sem tekið hefur að sér að koma skilaboðum til látinna í himnaríki ... Wyatt Earp gat það ekki, en sex miðaldra kaupsýslu- menn í Morton Grove gátu það. Þeir ákváðu einn daginn á fundi í bæjarstjórninni að banna íbúum bæjarins að eiga skammbyssur! Þar með vissu öll Bandaríkin um þetta litla út- hverfi Chicagoborgar í Illinois- fylki, Morton Grove — fyrsti bærinn í Bandaríkjunum, þar sem bannað er að halda skammbyssur. Viðbrögðin voru misjöfn: Fjöl- margir smábæir hafa tekið mál- ið til umræðu, hundruð bæjaryf- irvöld víðs vegar um landið hafa beðið um eintak af nýju lögun- um, og Jane Byrne, borgarstjóri Chicago, hefur reynt að nota tækifærið til að hefta sölu á skammbyssum í borginni allri. Hins vegar eru félagar í Lands- sambandi skotvopnaeigenda uggandi og ekki sáttir við þessar aðgerðir. Þeir segja: Það eru ekki byssur sem drepa fólk — það er fólk sem drepur fólk! * Ibúar í Morton Grove standa á bak við bæjarstjórn sína og hverjir fjórir íbúar af fimm styðja bannið. En sumum líst ekki á blikuna. Hvað ef allir glæpamenn Chicago-borgar stefna í áttina til okícar, sagði kona nokkur í örvæntingartón: ég er viss um að það gerist um leið og þessi tíð- indi breiðast út! Önnur kona, sem slapp naum- lega við nauögun, sagði við fréttamenn: Ef ég hefði haft byssu í hand- tösku minni hefði ég sent þrjót- inn beina leið inn í eilífðina! Það eru semsé ýmsar blikur á lofti, þó þorri manna í Morton Grove styðji enn bæjarstjórn- armenn sína. Lögreglustjórinn í bænum kveðst ekki hafa nokkra hugmynd um fjölda skotvopna í einkaeign í Morton Grove og hann ætlar sér ekki að leita á heimilum manna að skotvopn- um. En finnist byssa i fórum manns á hann yfir höfði sér 250 dollara sekt og allt að 6 mánaða fangelsi. Það er hægur vandi aö verða sér úti um skammbyssur í Illinois. Raunar auðveldara en að kaupa sér hundaleyfi — og ódýrara í þokkabót: Sæmileg skammbyssa kostar einungis um tvo og hálfan dollar. Ibúar Morton Grove vísa til þeirrar óhugnanlegu stað- reyndar að nálægt 11 þúsund manns voru drepnir með skammbyssum í Bandaríkjunum á síðasta ári. Já, ellefu þúsund manns! Á meðan 42 Vestur- Þjóðverjar féllu fyrir skamm- byssukúlu á sama tíma — og var . það met í Evrópu ... w Ismábæ einum í Georgíu- fylki, Kennesaw, fylltust menn hryllingi þegar tíðindi bárust frá Morton Grove. Bæjar- yfirvöld hafa nú ákveðið að lög- leiða byssueign: Hver fullveðja maður í bænum er skyldur að halda skotvopn, ellegar á hann yfir höfði sér sekt og tugthús- vist! Þeir í Kennesaw segjast ekki kunna annað ráð við fjölgun innbrota og ofbeldisverka, en skjóta. Bandarískir koma gjarnanr fyrir skiltum á lóðum sínum, eins konar leiðbeiningum til óæskilegra gesta, þar sem oft er vakin athygli þeirra á sérlega grimmum hundi hússins, en skiltin í Kennesaw hljóða nú eitthvað á þessa leið: Gleymdu hundinum — Gættu þín á húsráðandanum! essi lagasetning hefur vak- ið mikla athygli víða um heim. Rétt eins og með Morton Grove, vita nú allmargir um til- vist Kennesaw, og jafnvel sjón- varpsmenn í Japan hafa heim- sótt Kennesaw-menn og frönsk útvarpsstöð átti langt samtal við bæjarstjórann. íbúar bæjarins standa einarðir með bæjar- stjórnarmönnum sínum, eins og fram kom nýverið í pistli blaða- manns hins enska Daily Mail. Hann hitti nokkra íbúana aö máli, meðal annarra Kattheel Rutledge, miðaldra húsmóður sem sagði um leið og hún hengdi þvott á snúrur: „Ég veit satt best að segja ekki, hvað við eigum margar byssur heima en ég ætla að vona að við eigum nægar! í mínum huga er jafn nauðsynlegt að halda skotvopn og læsa útidyr- unum.“ Kattheel kvaðst ætla að kenna börnum sínum að meðhöndla skotvopn, þegar þau næðu „rétt- um aldri, svona 15—16 ára*. Enski fréttamaðurinn hélt áfram göngu sinni um bæ- inn og mætti manni nokkrum, sem hafði hallað sér upp að grindverki og strauk byssuhólk sinn. Hann kvaðst nýverið hafa skotið stóran hund, sem réðst að honum, og hann myndi ekki hika við að skjóta mannlega veru, ef hann væri neyddur til þess. Villti maðurinn er alþekktur í Kennesaw. Það er auknefni sem Dent nokkur Myers hefur, en hann rekur vopnasölu bæjarins og gengur jafnan með tvær skammbyssur við beltið. Sá enski spurði hann varfærnislega, hvort hann væri með fleiri byss- ur á sér? Þá brosti Villti maður- inn kaldranalega, benti á stórt spjald í glugganum á verslun sinni og lét orðin, sem þar voru letruð, tala fyrir sig: Búðarþjófar verða skotnir — þeir sem lifa verða dregnir fyrir rétt! Skrifandi um byssur og morð, kemur upp í hugann fyrirtæki nokkurt í Kaliforníu, sem sér um að koma skilaboðum til annars heims. „Himneskt samband" heitir fyrirtækið og forstjóri þess er Gabe nokkur Gabor, og hefur hann þegar fjóra menn sér til aðstoðar, en fyrirtæki þetta er nýtt af nál- inni. Gabor segir að markaður- inn í þessum „bissness" sé geysi- stór og hann anni varla eftir- spurn. Siðan í desember síðast- liðnum, þegar fyrirtækið hóf starfsemina, hefur það komið um 600 skilaboðum til annars heims. Tíðast eru það látnir ætt- ingjar, sem fólk vill koma kveðj- um og ýmsum fréttum á fram- færi við og þá er bara að slá á þráðinn til „Himnesks sam- bands"! Gabor fékk hugmyndina að fyrirtækinu, þegar móðir hans lést árið 1978. Sex mánuðum síð- ar lést ein besta vinkona hennar úr svipuðum sjúkdómi og Gabor var henni til huggunar á dánar- beðinu ásamt dóttur sinni. Deyj- andi konan hafði þá að orði, að það væri leitt að móðir Gabors vissi ekki hversu yndislegt barnabarn hún ætti! Gabor bað hana fyrir alla muni að segja móður sinni, hversu yndislegt barnabarn hún ætti, og hversu mjög hann sjálfur hefði unnað móður sinni. Þegar hér var kom- ið brustu þau öll í grát! Sstarfsemin fer þannig fram, að fólk úti í bæ sendir Gab- or skilaboð, sem það óskar eftir að komist til náins ættingja eða kunningja. Gabor gengur með skilaboðin til tölvu sem hann hefur í þjónustu sinni og lætur hana vinna úr, hver sé heppi- legastur til að koma þessum til- teknu skilaboðum á framfæri — en Gabor fullyrðir að hæfustu sálfræðingar hafi lagt blessun sína á tölvuforskrift þá er hann noti, og hún gefi bestu niður- stöður. Töivan hefur á skrá nöfn geysimargra sjúklinga og til- nefnir „einn heppilegan" og Gab- or arkar þá af stað á fund sjúkl- ingsins (vonandi að hann sé ekki þegar dauður) og les upp fyrir honum skilaboðin, lætur hann svo kvitta fyrir og þakkar svo fyrir sig. Það er nauðsynlegt að „sjúklingurinn" kvitti að skila- boðin hafi verið lesin fyrir hann, svo viðskiptamenn gruni ekki Gabor um gæsku! Það er nægjanlegt að lesa skilaboðin einu sinni, segir Gab- or, sjúklingarnir leggja þau ekki á minnið. Þeir eru þegar komnir í návist við Himnaríki svo skila- boðin berast mjög greiðlega! essi þjónusta kostar skild- inginn allt upp í 100 doll- ara hver skilaboð. Gabor segir að fólk sendi mest ástarkveðjur til látinna ættingja, en einnig sé mikið um það, að fólk vilji koma á framfæri þakklæti til látinna stórmenna. Sumir biðja hina látnu að hafa samband við tæki- færi, en Gabor segir það ekki á sinni könnu að ábyrgjast um svör frá Himnaríki! Ein skila- boðin hljóðuðu svo: „Kæri Eddi. Þú hafðir á réttu að standa. Tommi kvæntist Siggu, kvend- inu því, hóf svo störf hjá tengda- föður sínum. Við höfum séð lítið af honum síðan. Söknum þín ákaflega, gamli skarfur. Klíkan (að frátöldum Tomma).“ Gabor segir að efasemdir manna muni smámsaman eyðast og fyrirtæki hans dafna. En skyldi hann ætla að færa út kví- arnar og senda kveðjur til Vítis? Nei, kemur ekki til mála, segir hann og hleypir brúnum: Himnaríki er opið öllum! Jakob F. Ásgeirsson mmi to msicnosirwwiríiTT íbúar í Morton Grove — einu úthverfa Chicagoborgar tóku sig til og bönnuðu eign á skammbyssum! íbúar í smábænum Kennesaw brugðu hins vegar á það ráð til að sporna við fjölgun glæpa og ofbeldisverka, að lögleiða byssu- eign! Hér situr Dent Myers í vopnabúri sínu í bænum, en hann gegnur jafnan með tvær byssur við beltið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.