Morgunblaðið - 25.07.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ1982
39
Enn eykst spennan á millisvæðamótinu
Skák
Margeir Pétursson
Þau undur og stórmerki gerðust
i níundu umferð millisvæðamóts-
ins í Las Palmas að Vassily Smysl-
ov, heimsmeistari i skák á árunum
1957—1958, 61 árs að aldri, tók
forystuna á mótinu einsamall og
skákar því sem stendur sér langt-
um yngri og stigahærri mönnum.
Engu skal spáð um hvort Smyslov
heldur forystunni en árangur hans
er hreint og beint ótrúlegur. í fjór-
um síðustu umferðunum teflir
hann við þá Browne, Pinter, Ribli
og Bouaziz og ætti því að eiga frá-
bæra möguleika á því að komast
áfram. Smyslov komst síðast I
áskorendakeppnina árið 1965.
Mjög hætt er við að níunda
umferðin verði örlagarík fyrir
tvo skákmenn sem verið hafa í
sviðsljósinu í Las Palmas. Vlad-
imir Tukmakov, tók snemma
forystuna í mótinu, en tapaði nú
fyrir hættulegasta keppinaut
sínum, Ungverjanum Ribli.
Þetta tap var enn sárara fyrir þá
sök, að í umferðinni á undan
hafði Tukmakov orðið að lúta í
lægra haldi fyrir landa Riblis,
alþjóðameistaranum Joszef
Pinter. Fyrirfram höfðu flestir
talið næsta öruggt að hinn litríki
stórmeistari, Jan Timman frá
Hollandi, kæmist loksins í
áskorendamót, en eftir tap fyrir
Rúmenanum Michael Suba í ní-
undu umferðinni, hefur Timman
hverfandi möguleika á því að
verða annar þeirra tveggja sem
komast áfram á mótinu í Las
Palmas.
Fleiri skákmenn en Timman
hafa valdið vonbrigðum. Lev
Psakhis, sem orðið hefur skák-
meistari Sovétríkjanna tvö ár í
röð, þrátt fyrir ungan aldur sinn,
en hann er 23ja ára, er nú í
botnbaráttunni og má þakka
fyrir að verða ekki neðstur.
Gömlu jaxlarnir, Petrosjan og
Larsen, hafa orðið fyrir skakka-
föllum, en hefur þó samt báðum
tekist að halda sér volgum í
toppbaráttunni. Hvort þeim
tekst að brúa bilið upp í toppinn
í þeim fjórum umferðum sem
eru eftir, kemur í ljós eftir helgi.
Enn sem komið er, hafa fáar
skákir frá Las Palmas-mótinu
rekið á fjörur mínar, en hér skal
þó birt hin óvænta tapskák Lar-
sens gegn Mestel. Danska stór-
meistaranum hefur að vísu oft
vegnað illa á móti hinum ungu
ensku meisturum, þannig að
þessi úrslit koma ekki stórlega á
óvart, heldur fremur það, að
Larsen hafði gert jafntefli í
fimm skákum í röð áður en hann
tapaði þessari.
Mörgum aðdáendum Larsens
hér á landi skal bent á það til
huggunar að við þetta tap virðist
hann hafa fengið „blod pá tand-
en“, eins og danskir segja við
slík tækifæri, því í næstu umferð
á eftir vann hann Sunye frá
Brazilíu og á þvi ennþá dágóða
möguleika á því að komast
áfram.
Skák þeirra Larsens og Mestel
var löng, en þó athyglisverð.
Daninn beitti uppáhaldsafbrigði
sínu, Kóngsindverskri vörn og
upp kom mjög lokuð staða, þar
sem hvítur virtist eiga sóknar-
færi á kóngsvæng. En Larsen
tókst ekki að nýta sér það og sá
sér siðan þann kost vænstan að
leggjast í vörn. Mestel flutti þá
auðvitað lið sitt yfir á drottn-
ingarvæng, þar sem kóngur
Larsens var staðsettur. Með 30.
Bxc5!? tók Larsen síðan af skarið
og lét af hendi biskupaparið til
að draga tennurnar úr svörtu
sókninni. Eftir það virtist staða
hans um tíma viðunandi, þar til
hann lék 46. f4? Þá opnaðist
staðan, svörtu biskuparnir vökn-
uðu til lifsins og Larsen fékk
ekki við neitt ráðið. E-peð svarts
tryggði Mestel síðan sigur.
llvítt: Bent Larsen
Svart: Jonathan Mestel
Kóngsindversk vörn
1. c4 — g6 2. Rc3 — Bg7 3. d4
— d6 4. e4 — Rf6 5. Rf3 — 0-0 6.
Be3 — Rbd7 7. h3 — e5 8. d5 —
Rc5 9. Rd2 - a5 10. g4 — Re8 11.
Dc2 — Bf6 12. Rf3 — Rg7 13.
0-0-0 — b6 14. Be2 — Be7 15.
Hdgl — Rd7 16. Hg2?! — Rf6 17.
Bd3 — h5! 18. g5 — Rd7 19. Ddl
— Rc5 20. Bc2 - Bd7 21. Kbl —
Dc8 22. Hg3 — I)a6 23. De2 — a4
24. Hcl — Hfb8 25. h4 — Re8 26.
Rd2 — Bf8 27. Kal — Bg7 28.
Hggl — c6 29. Hgcl — Rc7 30.
Bxc5!? — bxc5 31. Bd3 — a3 32.
b3 — Da5 33. Kbl — Ha7 34. Rfl
— Ra6 35. Re3 — Rb4 36. Dd2 —
Dd8 37. Be2 — cxd5 38. Rexd5 —
Rxd5 39. Dxd5 — Ha6 40. Rb5 —
Bc6 41. Dd3 — Hb7 42. De3 —
Hd7 43. Hd2 — f6 44. Hcdl —
fxg5 45. hxg5 — Bf8 46. f4? —
exf4 47. Dxf4 — Hf7 48. De3 —
De8! 49. e5 — Dxe5 50. Dxe5 —
dxe5 51. Hd8 — Kg7 52. Hc8 —
Be4+ 53. Bd3 — Bf3 54. Hel
e4! 55. Bc2 — Bg4 56. Hd8 — e3
57. He8 — Be7 58. Rc7 — Hc6 59.
Rd5 — Bxg5 60. Rxe3 — He6 61.
Hxe6 — Bxe6 62. Rd5 — Bg4 63.
Hgl — Kh6 64. Rc3 — Be3 65.
Hhl — Bf3 66. Hfl — h4 67. Re4
— Hf4 68. Rc3 — h3 69. Rd5 —
Bxd5 70. Hxf4 — Bxf4 71. cxd5 —
Kh5 72. Be4 — g5 73. Kc2 — g4
74. Kd3 — g3 75. Ke2 — Kh4 og
Larsen gafst upp.
Timinn: Hvítur: 2 klst, 13 mín.,
Svartur: 4 klsL 13 mín.
LA5 P/)LM/?5 1 z 3 V 5 0 7 2 10 11 12 11 n vm
1 BR0UJNE (BarMr) ö ^ 'A ’/t O i /z 0 /z 0 3+f'
1 PINTER. (Unyl) /x p 'k /í o /z i /z 0 3i + /1
3 R/BLI (UryttrjtJ. /z /z % /z /z i /z i 'fz 6
H HOUtZIZ (Túnis) 1 /t 0 m /z /z /z /z /z /z Hz
T SUOA (Rúrwxn',u) 0 1 /z /z w/r O 1 /z i i 5Í
6 KMLSS0Nfal>j;i) /l /l /z /z V/S/ \ 0 O /z 0 /z 3
? TUKMK0V (SovéL, i O 0 Mi /z i /z i /z 5i '
s PETR0STM(So±t, - /z /z i /z /z i Hz
LP\RSEti(0*rmiÁ i /z /z % /z /z O L /z Hí
i0 SWSL0V(So*éU) A i Q /z /z Wy '/Ya l i i /z (cí
n PSAtHIS&vitr.) '/z 0 /z /z ö /z 0 w/, /z 2i*1
ii mSTEL&ribrU) 'L /z /z 1 0 /z 1 0 I w
n SUNYE (tbraiilíu) % O % 0 /z •L /z 0 0 É 2i
1H TimfiNlHolloJt 1 i /x /z o 0 % /z /z W/, Hi
Einn merkasti íþróttaviðburður undanfarinna áratuga
Þeir sem ekki þekkja Manchester United er bent á næsta knattspyrnuáhugamann
Meðal leikmanna sem
koma, má nefna:
Gordon McQueen, skosKa landsliöiö.
Garry Birtles, enska landsliöiö.
Steve Coppell, enska landsliöiö.
Garry Bailey, enska landsiöiö undir
21 árs.
Brian Robson, enska landsliöiö.
Lov Macari, skoska landsliöiö.
Ray Wilkins, enska landsliöiö.
Martln Bucham, skoska landsliöiö.
Frank Stapleton, írska landsliðiö.
N. Jovanovic, jógóslavneska landsliöiö.
John Gidman, enska landsliöiö.
Arnold B. Murhei, hollenska landsliöiö.
Norman Whlteside N-írska landsliöiö,
yngsti knattspyrnumaöurinn sem
leiklö hefur til úrslita i
helmsmelstarakeppninnl nú á
Spáni '82.
MANCHESTER
mönnum Bretlandseyja.
UNITED
flagga í dag mörgum af dýrustu knattspyrnu-
MANCHESTER UNITED er með bestu miövallaspilara Englands í dag,
enda allir í landsliðinu.
MANCHESTER UNITED bókin kom út á íslandi 1981 og fæst í bóka-
verslunum — þar er sögð glæst saga þessa risafélags i máli og myndum. Nú er veriö aö
undirbúa gerð kvikmyndar um þetta fræga félag — í fyrsta sinn sem slíkur viðburöur og
viðurkenning á sér staö.
MANCHESTER UNITED hefur fengiö hæstu greiöslu sem um getur
fyrir auglýsingasamning í Englandi frá SHARP, en þetta fræga lið ber nú auglýsingar frá
þessu heimsþekkta fyrirtæki.
FORSALA HEFSTí Austurstræti næstkomandi fimmtudag, 29. júlí, þar verða einnig seldir Manchester United bolir.
HLJOMBÆR ■ a 1177II
HLJOM'HEIMILIS'SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGOTU 103
(D PIOMEER