Morgunblaðið - 25.07.1982, Side 6

Morgunblaðið - 25.07.1982, Side 6
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ1982 trúa á alþingi, sem þá var Jóhann Þ. Jósefsson. Frá því Samábyrgð íslands á fiskiskipum var stofnað 1909 hef- ur Bátaábyrgðarfélagið endur- tryggt áhættuna hjá félaginu. Hafa samskipti við Samábyrgðina ávallt verið félaginu til mikilla hagsbóta. Arið 1885 voru fæst skip í trygg- ingu, eða 6 að tölu, 1922 voru bát- arnir orðnir 53, 1942 81, 1959 104, 1972 68 og 1982 32, þar af 3 yfir 100 tonn. Þessar tölur segja sína sögu, en eftir 1960 fóru að koma stærri skip, sem félagið hafði ekki tök á að fá í viðskipti, enda lengi reglur þar um og ekki eru í skyldutrygg- ingu hjá félaginu skip yfir 100 tonn. Skipin sem stærri eru, hafa dreifst á stóru tryggingarfélögin, sem með miklum lánafyrirgreiðsl- um hafa getað náð í viðskipti þeirra. Þessa hefur félagið goldið og þannig misst mikil viðskipti margra ágætra fyrrverandi við- skiptamanna, sem endurnýjað hafa skip sín sl. 2 áratugi. Til þess að bæta sér þetta upp hefur félagið reynt að auka rekst- urinn á annan veg. Ekki hefur þó ennþá tekist að fá húsatryggingar í bænum, sem væri mjög æskilegt; að tryggja þannig að þeir miklu fjármunir, sem er um að ræða í tryggingargjöldum, væru ávaxtað- ir hér innanbæjar. Fyrir 5 árum tók félagið umboð fyrir alhliða tryggingar fyrir Tryggingarmið- stöðina, en félagið er með flest af bátum og skipum hér yfir 100 tonn og alla togarana í tryggingu. Hef- ur þessi umboðsstarfsemi gengið vel, t.d. varð um 120% aukning frá 1980—1981. öll innheimt iðgjöld eru ávöxtuð innanbæjar, og er það stefna félagsins að stuðla með því að auknu veltufjármagni á staðn- um. Á 120 ára starfsferli Báta- ábyrgðarfélagsins hefur það átt góðan þátt í ýmsum framfaramál- um byggðarlagsins og lagt fé til margra góðra mála. Má nefna kaupin á björgunarskipinu Þór, og siðan hefur félagið árlega veitt Björgunarfélaginu fjárstuðning til rekstrarins, lánað til hafnarfram- kvæmda. Þá átti félagið þátt í kaupum á dýpkunarskipinu og byggingu sundlaugarinnar, svo nokkuð sé nefnt. Þá hefur félagið í áratugi lagt fram nokkuð fé til Ekknasjóðsins og aldraðra og ein- stæðra, auk margra stórgjafa til ýmissa áhugamála bæjarbúa. Á spjöldum sögunnar ber að líta, að oft hefur syrt í álinn hjá Eyjabúum og mikil áföll dunið yf- ir, sá hluti sem metinn hefur verið til fjár, hefur verið allverulegur fyrir Bátaábyrgðarfélagið. Á fyrstu 76 árum vélbátaútgerðar fórust 67 bátar í tryggingu hjá fé- laginu, 6 sinnum munu 3 bátar hafa farizt á sama árinu. Sl. 3 ár hafa verið mikil slysaár, þar sem 9 sjómenn og 5 bátar hafa farizt. Þetta er áminning um að ekki má slaka á neinu sem lítur að ár- vekni og búnaði áhafna og báta þeirra og hefur stjórn félagsins m.a. ákveðið í tilefni þessara stór- merku tímamóta elzta tryggingar- félags landsins að stuðla að kynn- ingu á meðferð björgunartækja og búnaðar með björgunaræfingum og sýningum á afmælisárinu í samráði við þau öflugu félags- samtök er hér starfa að þessu göf- uga málefni. Stjórnarformaður Bátaábyrgð- arfélagsins er Björn Guðmunds- son og með honum í stjórn: Jón I. Sigurðsson, Haraldur Hannesson, Eyjólfur Martinsson og Ingólfur Matthíasson. Forstjóri Bátaábyrgðarfélags Vestmanna- eyja er Jóhann Friðfinnsson. — á.j. Ljósrit af fyrstu fundargerð Báta- ábyrgðarfélags Vestmannaeyja, en þar stendur m.a.: „Ár 1862 hinn 26. dag janúarmánaðar var eigendum hinna stóru skipa í Vestmannaeyjum haldinn fundur í þinghúsi sýslunnar, og hafði sýslumaður Eyjanna, herra B.E. Magnússon áður kvatt og boð- að þá á fund þenna, til þess að ræða um ýmis mikilvæg málefni skipseig- endum viðvíkjandi og þar á meðal að semja lög um ábyrgð stórskipa í Vestmannaeyjum gegn skaða, er þeim gæti hent og um hinn svo- nefnda skipsáróður. — Á fundi þess- um mættu flestir skipseigenda sem eftir að hafa rætt um hið framlagða nefndarálit í máli þessu, er þeir áður höfðu kynnt sér, komu sér saman um eftirfarandi lagagreinir:“ / i rfr /tó // >, >e 26.c/*y r>rrá/> aJa r 1/a-r 2/■/>?'< S&'f* /urra /í (o Kvfí/f cn /rtfí//ta cojfn ttc///■>•»/*', at rtt/a ,,,,, ýrnS r*>44C/t'*j mn/t/ii • /fiJtS- tujtru/,,!,, > !<j/> >>r/, t>j /irt-fá r»*J*/a/ /rj ,, > „ a/,fft]jJ s/íy*/C,f>aS tt, /'t.t/t ,,&>• „ tjt,p, sKn/tVf er/t/i >>> jr /, Á/„/t ,, >>„ />,, /TtV SiT,jSa-crtt,<< _ ,>>//. ýn ,,>>■>i onr/f,, j//ts/'-t JX/Jif/tj/tiJ*, r>>, fj>/>t a/rt> J/>>-*„ tý> >t/,r ftf// f tr>a/> f/t.~U<, / f /’/i-r ti/,,f /t>J//. *,}>>>,/. /tf t At,, >f, S/r ftifnn/ *,->„ fj> /ii- /vfw r Ji f >>/r (Á }9 j'J"r >a tt/,frtj/ftrr^/'/aj ti//mari, tft£y/il. -t /Vrr> ft /,j rtf <t,/SC jia, Sprengisandur - Kjölur Ferðafólk Höfum byrjað ferðir okkar um Sprengisand og Kjöl. Ferðin tekur 1 dag (um 14 klst.) hvor leiö. Farið er frá Umferðarmiöstööinni í Reykjavík, mánudaga og fimmtudaga kl. 08.00 norður Sprengisand og frá af- greiðslu Sérleyfisbifreiöa, Geislagötu 10, Akureyri suður Kjöl miðvikudaga og laugardaga kl. 08.30. Ferðir þessar seljast með fæði og leiðsögn og gefst fólki tækifæri á aö sjá og heyra um meginhluta miöhálendisins, jökla, sand, gróðurvinjar, jökulvötn, hveri, sumarskíðalönd og margt fleira í hinni litríku náttúru íslands. Hægt er að fara aöra leiðina eða báðar um hálendið eða aðra leiðina um hálendið og hina meö áætlun- arbílum okkar um byggð, og dvelja norðanlands eða sunnan aö vild, því enginn er bundinn, nema þann dag, sem feröin tekur. Nánari upplýsingar gefa BSl, Umferöarmiðstöðinni í Reykjavík, sími 22300 og Feröaskrifstofa Akureyrar við Ráöhústorg, Akureyri, sími 25000 og 24475 og viö. Norðurleið hf. sími 11145. n ISUZU Isuzu verksmiðjurnar eru heimsfrægar tyrir framleiðslu sína á pick-up bílum og þær njóta alþjóðlegrar viður- kenningar fyrir vinnuvéla- og vörubílagerð. Isuzu pick-up með drifi á öllum hjólum uppfyllir óskir hinna kröfuhörðustu og gerir enn betur. Isuzu pick-up hentar jafn vel sem flutningatæki og ferðabíll. Isuzu pick-up er laglegur, lipur og leggur lýgilega vel á. Isuzu pick-up hefur óhemju burðarþol og 4-hjóla drifið gerir honum alla vegi færa. Isuzu pick-up vönduð vinnubifreið með aksturseiginleika, útlit og þægindi fólksbifreiðar. Komið og kynnið ykkur hvers vegna Isuzu pick-up nýtur heimsfrægðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.