Morgunblaðið - 25.07.1982, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982
45
Nú finnst... 86% Frakka aö
allt sé í lagi þótt fólk sprangi um/ /
nakið a.m.k. á ákvðnum svæðumfc w
(Sjá: FRAKKLAND)
TRÚARBRÖGÐ
Eru tárin
ekki tú-
skildings
virði?
Kraftaverk eda ksnskubrögð?
Um það eru menn ekki á einu máli
en hitt er þó víst, að tárin, sem
hripuöu niður vanga „Meyjarinnar
grátandi" í Granada, drógu til sín
á annað hundrað þúsund trúaðra
manna hvaðanæva af Spáni.
Sagan hófst að morgni 13. maí
sl. þegar presturinn í Jóhannes-
arkirkjunni í Granada uppgötv-
aði, að um nóttina hafði Mærin
grátið og mátti enn sjá fjórar
blóðrauðar rákir eftir táraflóðið
í andliti hennar og í vasaklút,
sem af einhverjum ástæðum var
kominn í hendur henni. Frétt-
irnar bárust um allan Spán eins
og eldur í sinu og trúað fólk, sem
taldi að hér hefði átt sér stað
kraftaverk, flykktist til Granada
þúsundum saman.
Efasemdamenn gerðu góðlát-
legt grín að uppákomunni og
þegar ringulreiðin hafði varað í
heila viku skipaði erkibiskupinn
í Granada svo fyrir, að styttan
yrði flutt til Madrid í vísinda-
lega rannsókn. Af rannsókninni
hafa hins vegar engar fréttir
farið og það eina, sem eftir erki-
biskupnum er haft, bendir til, að
hinir trúuðu hafi látið blekkjast.
„Það er ekkert sem bendir til yf-
irnáttúrulegra hluta í þessu
sambandi," sagði hann.
„Maðurinn, sem gaf kirkjunni
styttuna af „Meynni grátandi"
fyrir um átta mánuðum, Mo-
desto Velasco, telur að einhver
bræðranna í reglu heilags Jó-
hannesar hafi sett kraftaverkið
á svið og vill ekki treysta þeim
lengur fyrir styttunni.
Erfitt er að átta sig á hvað býr
að baki. Var hér bara um sak-
laust grín að ræða eða var verið
að reyna að ýta undir hægrisinn-
aðar skoðanir í kosningunum,
sem fram áttu að fara eftir viku?
Hver sem ástæðan var er kirkj-
an í klípu. Hún hefur vísað
kraftaverkinu á bug en ef hún
skilar styttunni aftur hvitskúr-
aðri er hætt við að söfnuðinum
líki það ekki alltof vel.
I síðasta mánuði mátti raunar
sjá, að hinir trúuðu láta sig engu
skipta orð vísindamannanna.
Reyndar voru biðraðirnar ekki
jafn langar og áður, en þrátt
fyrir það var stöðugur straumur
miðaldra manna og kvenna inn í
kirkjuna og fólkið fór með bæn-
irnar sínar frammi fyrir auðum
en fagurlega skreyttum stallin-
um þar sem áður hafði staðið
styttan af „Meynni grátandi".
— ROBERTLOW
Rúmlega helmingur íbúa í Guat-
emala er af indíánakyni. Hér hlóð-
arsteikir ung kona einhverskonar
flatkökur.
konur og 25 börn, að þeir möl-
brutu á því höfuðið og ristu það
á kvið.
Öryggissveitir stjórnarinnar
eru samt sem áður langstórvirk-
astar í manndrápunum og
„refsa" öllum, sem þær gruna
um samúð með skæruliðum. Inn-
an þessara sveita hafa verið
stofnaðar dauðadeildir, sem
kallast ýmsum nöfnum eins og
t.d. „Hvíta höndin", „Auga fyrir
auga“ og „Andkommúníski her-
inn“. Stundum er það nóg, að
einhver „Ladino", maður með
spánskt blóð í æðum, segist hafa
komið auga á „undirróðurs-
menn“ í einhverju indíánaþorp-
inu og þá er herinn óðara farinn
af stað í enn eina morðförina. I
annan tíma er ráðist á þorp
vegna þess, að skæruliðar hafa
þingað þar eða í hefndarskyni
fyrir árás á herflutningalest.
„Refsingar" hersins eru ekki
bara fólgnar í því að brenna hús-
in ofan af fólki og spilla matnum
heldur er búfénaðurinn og fólkið
sjálft drepið þar sem til þess
næst. Þegar herinn réðst á þorp-
in í grennd við Chiche í maí sl.
hélt bóndi nokkur og þrír vinnu-
menn hans áfram vinnu sinni á
akrinum og töldu að þeim yrði
ekkert rhein gert. Þeir féllu allir
í skothríð hermannanna.
Ef marka má afstöðu her-
stjórnarinnar í Guatemala „er
ólíklegt að þessu þjóðarmorði á
saklausum indíánum linni í
bráð“ svo vitnað sé í eitt dag-
blaðið í landinu.
„Hjá þjáningum óbreyttra
borgara verður ekki komist,"
segir Rios Montt, hinn sjálfskip-
aði forseti landsins.
- ANSON NG
Höfum opnað
verzlun fyrir dömur
ap
valentino
JDHN ANTHONY
hanson
imj
the monaco group
joel ma.i
ALFRED SUNG
DEBORA KUCHMÉ
JACK MULQUEEN
JOHN YANG
albert-maxmie Grassian
o
SCAA. oU JCL
Verzlunin Sér, Aðalstræti 8, sími 25260
BUCHTAL
Eigum nú fyrirliggj-
andi flestar gerðir af
hinum viöurkenndu
v-þýzku vegg- og
gólfflísum, fyrsta
flokks vara á viðráð-
anlegu verði.
•
Ath. aö Buchtal-
flísarnar eru bæöi
frostheldar og eld-
fastar.
., .1 *
í - ' ■ó//> ( f
1100 9010 9020 1400 2120 9130
PORTO-Antik No 947 Abrasion qroup iV
9066 1600 1610
Ótrúlega hagstæðir
greiðsluskilmálar, allt
niður í 20% útborgun
og eftirstöðvar til allt
aö sex mánaöa.
Opiö mánud.—fimmtud.
9—18 föstudaga 8—19
Ath. að inngangur er
frá Sólvallagötu