Morgunblaðið - 25.07.1982, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.07.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982 47 Fyrstu kandídatarnir brautskráðust frá framhaidsdeildinni á Hvanneyri vorid 1949. Hér eru þeir ásamt þremur aðalkennurum sínum. Frá vinstri: Stefán Jónsson, kennari, Guðmundur Jónsson, skólastjóri, Haukur Jörundarson, kennari. Sitjandi fremst: Sigurjón Steinsson frá Bakka í Olafsfirði, Skafti Benediktsson frá Garði í Aðaldal, Egill Bjarnason frá Uppsölum, Akrahreppi, Grímur Jónsson frá Ærlækjarseli, Axarfirði, Hjálmar Jónsson frá Húsey, Skagafirði, Þorsteinn Valgeirsson frá Auðbrekku, Hörgárdal, Bjarni Arason frá Grýtubakka, Höfðahverfi, Aðalbjörn Benediktsson frá Aðalbóli í Miðfírði. Hvanneyri. starfinu á Hólum um veturinn. Mér leist ekkert á það í fyrstunni og fannst þar að auki að Jósef Björnsson, gamall kennari minn á Hólum, væri hæfari til starfans. Ég tókst þetta nú samt sem áður á hendur og með reynslu og góðvild Jósefs mér við hlið gekk þessi vet- ur, 1925—’26, á skólastjórastóli á Hólum slysalaust fyrir sig. Sumarið 1926 var ég svo við mælingar í Húnavatnssýslu, en um haustið fór ég til Búnaðarfé- lagsins í Reykjavík, þar sem Sig- urður Sigurðsson útvegaði mér aukastarf. Raunar var ekki um margt að velja fyrir búfræði- kandidata á þeim árum. Pálmi Einarsson, seinna landnámsstjóri hafði útskrifast tveimur árum áð- ur en ég og fékk fullt starf hjá búnaðarfélaginu, en fyrir mig var eiginlega ekkert starf á lausu. Svo var það árið 1928, að Halldór Vilhjálmsson réði mig sem kenn- ara á Hvanneyri, þegar Stein- grímur Steinþórsson gerðist skólastjóri að Hólum. Ég kenndi verklegar greinar á Hvanneyri og samkennarar mínir voru auk Halldórs skólastjóra, sem kenndi mikið, Þórir Guð- mundsson og Þorgils Guðmunds- son, sem kenndi smíðar og leik- fimi. Afbragðs menn og farsælir í starfi. Ég var skikkaður til að kenna íslensku á Hvanneyri og féll það illa í fyrstu. Ég taldi mig ekki mikinn íslenskufræðing, en allt hafðist þetta nú samt og seinna varð ég því feginn að hafa gerst íslenskukennari. Tilfinningin fyrir tungunni jókst svo mjög. Ég fór brátt að kenna jarðræktarfræði og búreikninga, þegar áhuginn á þeim kviknaði fyrir alvöru. Á sumrum mældi ég jarðarbætur á Snæfellsnesi, í Dölum og Húna- vatnssýslum og náði með því lagi nokkurn veginn endum saman í fjárhagnum. Mælingastarfið varð mér strax mikils virði. Það var skemmtilegt starf og lærdómsríkt og ég hefði ekki fyrir nokkurn mun viljað missa af þeirri reynslu. Lengst var ég hjá Snæfellingum og Dala- mönnum og minnist þeirra hjart- anlega. Ég fór allt á hestum, hafði tvo til reiðar og kom á hvern bæ, þar sem ég fór yfir. Ég gaf mér góðan tíma og kom jafnan inn í bæ og spjallaði mikið við bændur. Það var jafnan tekið vel á móti mér og stundum kannski meira af gestrisni en getu. Á einum bæ, þar sem ég dvaldi næturlangt, sváfu allir í einni baðstofu og þar var eldavélin og þar var matast. í einu rúminu svaf húsfreyjan með börn- in, í öðru rúminu húsbóndinn, í þriðja rúminu gömul kona og ég svaf í rúmi á miðju gólfi. Þarna sofnaðist mér ákaflega vel. Þú ert sagður hafa unnið mikið brautryðjendastarf á Hvanneyri í sambandi við búreikninga? Já, segir Guðmundur, ég lagði í það, ungur maður, að búa út bú- reikningaform fyrir íslenskar að- stæður. Studdist ég þá nokkuð við norskt form, en ég lagði mest upp- úr sundurliðuðum formum, vinnu- skýrslu og tvöföldu bókhaldi. Þetta var erfitt í byrjun, en reynd- ist strax traust aðferð. Ég kynnti þetta fyrir bændum árið 1932 á vegum Búnaðarfélags íslands og tók að leiðbeina þeim. Þeir voru fyrst tíu sem héldu búreikninga, en fjölgaði brátt uppí fjörutíu. Bændur tóku þessari nýjung mjög vel og voru hinir heiðarlegustu í færslum sínum. Árið 1943 var sexmannanefnd skipuð á Alþingi. Hennar hlutverk var að ákveða verðlag á framleiðsluvörum bænda, svo að hagur þeirra yrði sambærilegur við aðrar stéttir og byggði hún álit sitt á þessum fjörutíu búreikning- um. Nefndarmönnum fannst það sumum ólíklegt, að 40 búreikn- ingar gætu gefið góðan þverskurð af búskap í landinu. En brátt kom á daginn, að búreikningarnir sýndu þar sama og hægt var að finna út eftir öðrum leiðum og flóknari — sem varð til þess að menn tóku að treysta búreikning- unum. Raunar er það furðulegt, hve fáa búreikninga þarf til að fá góða hugmynd um búskap manna yfirleitt. í skólastjóratíð Guðmundar Jónssonar á Hvanneyri var efnt þar til framhaldsmenntunar í búfræði. Mikil saga er á bak við framhald málsins, sem mæddi mjög á skólastjóranum. Þá var í tíð Guðmundar ráðist 1 nýbygg- ingu skóla á Hvanneyri, jafnframt sem tilraunastarfsemin var aukin og bryddað uppá ýmsum nýjung- um öðrum. Guðmundur Jónsson útskrifaði um 800 búfræðinga á skólastjóra- árum sínum 1947—1972, en í kenn- aratíð hans. allri á Hvanneyri, 1928—1972, voru útskrifaðir um 1400 búfræðingar. Þegar Guð- mundur lét af embætti skólastjóra flutti hann, sem fyrr segir, til Reykjavíkur og tók að gefa sig að fræðistörfum og bókargerð. Ég starfaði á Hvanneyri til sjö- tugs, segir hann. Sumir höfðu nú á orði, að ég hefði mátt hætta fyrr, en það varð nú ekki! Eftir að við hjónin fluttum í höfuðstaðinn, starfaði ég að ýmsu, til dæmis við matsgerðir, en tók svo að helga mig ritstörfum. Nei, það hafði ekkert blundað með mér í gegnum árin að skrifa. Ég hafði að vísu gefið út tímarit um nokkurt ára- bil. Það kom til tals á Hvanneyri að gefa út tímarit um búfræði, og eftir heilmikla umræðu nemenda og kennara árið 1930, tókum við Þórir heitinn Guðmundsson okkur til og hófum útgáfu fjölritaðs blaðs; Búfræðinginn. Við gáfum hann út á eigin kostnaö og seldum blaðið á 3 krónur, að mig minnir. Fjórir fyrstu árgangarnir komu út fjölritaðir og fjölritaði ég blaðið sjálfur heima á Hvanneyri. Bú- fræðingurinn þótti býsna gott tímarit á sinni tíð og sagði fréttir úr skólastarfinu á Hvanneyri og síðar einnig frá Hólum, greint var frá ýmsum nýjungum og svo feng- um við ýmsa kunnuga menn í lið með okkur að skrifa í ritið. Eftir lát Þóris sá ég einsamall um út- gáfuna, en þegar ég gerðist skóla- stjóri guggnaði ég. Búfræðingur- inn leið þá undir lok sautján ára gamall og fannst mér þar skarð fyrir skildi. Búfræðingurinn og búfræði- skýrslur þær sem ég tók saman árlega á meðan ég veitti forstöðu búreikningaskrifstofunni á Hvanneyri, voru mínar einu skriftir á árum áður. Þegar ég gerðist skólastjóri, gafst mér ekki tóm til skrifta, eins og ég hefði viljað, því ég hef í verunni alltaf haft gaman af því að skrifa. Svo blossaði þessi árátta upp í mér, þegar ég kvaddi Hvanneyri. Ég hef tekið saman á vegum Rannsóknarstofnunar landbúnað- arins, yfirlit landbúnaðartilrauna, sem gerðar hafa verið á íslandi frá upphafi til 1965, og kom það út árið 1979. Á annað þúsund til- rauna, er varða jarðrækt, búfjár- rækt og vélar, er getið í ritinu. Þá hef ég tekið saman búfræði- kandidatatal, sem út kom árið 1974. Fyrir 90 ára afmæli Hvanneyr- arskóla árið 1979, skrifaði ég svo sögu skólans og er það mikil bók. Einnig hef ég ritstýrt og skrifað að hluta tvö bindi í bókaflokknum Bóndi er bústólpi, sem Ægisút- gáfan hefur gefið út. Þá hef ég unnið fyrir Hvanneyr- arskólann að áframhaldi Ritgerð- artalsins, sem gefið var út árið 1965 — en ég hef tekið saman bókartitla sem út hafa komið á íslensku og varða landbúnað. Það eru hátt á annað hundrað titlar og má segja að þetta sé gömul hug- sjón, frá því ég byrjaði að kenna. Það kostaði oft mikinn tíma, að leita heimilda, þegar maður vildi skrifa um eitthvað tiltekið efni í landbúnaði. Ég raða bókunum niður eftir efni — og er mikið hag- ræði að bæði Ritgerðartalinu og þessu Bókatali, eins og gefur að skilja. Og þú hefur ekkert í hyggju, að leggja árar í bát? Nei, nei, ekki á meðan heilsan er í lagi. Ég hef næg verkefni; er að skrifa tvær bækur um þessar mundir. Væntanlega kemur þriðja bindi Bóndi er bústólpi út í haust, og svo vinn ég að öðru bindi Til- raunabókarinnar fyrir þá Keldna- menn. Mun ég þar segja af til- raunum í landbúnaði frá 1965 til 1980, en þær hafa aldrei verið fleiri eða fjölbreyttari en einmitt á þessu árabili. Þá hef ég verið beðinn að endurskrifa Islenska búfræðikandidata. Bókin er orðin gömul og reikna ég með að byrja á því verki strax á næsta ári — ef heilsan leyfir. En fleira er ég sem sagt ekki með í takinu, segir Guð- mundur Jónsson áttræður ungl- ingur. Texti: Jakob F. Ásgeirsson. Myndir: Kristján Örn Elíasson o.fl. .. FERÐA !l MIÐSTODIIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133 SER TIL BŒ) KAUPMANNAHÖFN — helgarferð í Tívolí Brottför alla föstudaga — heimkoma alla mánudaga. Verð frá 3.980,- barn með foreldrum i herbergi greiðir kr. 980,- DŒBEL DQKF Flug og bíll. Vikuferö, brottför alla sunnudaga. Verö frá kr. 3.496. FRANKFURT - vikuferðir — flug og bíll. Brottför alla fimmtudaga — Verð frá 3.046,- Helgarferðir — flug og bíll Verð frá 2.680,- Helgarferðir — flua og . ^ gisting Verð frá 4^53,- f- LON DON LONDON — vikuferðir — flug og bíll Brottför alla föstudaga Verð frá 4.235,- GLASGOW — vikuferðir — flug og blll Brottför alla föstudaga — Verð frá 3.706,- Allskonar sértilboð eru nú á boöstólum. Fáðu nánari upplýsingar: [^jFERDA 0S!!l MIDSTOOIN AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.