Morgunblaðið - 25.07.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982
49
Sýslunefnd Austur-
Barðastrandarsýslu:
Lög um bann
við selveiðum
á Breiðafirði
eru brotin
Miðhúsum, 23. júlí.
AÐALFUNDUR sýslunefndar
Austur-Barðastrandarsýslu var hald-
inn 22. og 23. júlí í Hótel Bjarka-
lundi og voru mættir allir sýslu-
nefndarmenn. Fundi stjórnaði Jó-
hannes Árnason, sýslumaður, Pat-
reksfirði, en þetta er síðasti sýslu-
fundurinn er hann stjórnar, en hann
tekur við sýslumannsembætti I
Stykkishólmi um miðjan næsta mán-
uð. Jóhannes hefur verið vel látinn
embættismaður og fylgja honum
hlýjar kveðjur úr héraði.
Á aðalfundinum voru afgreidd
mörg mál og skal þriggja tillagna
er afgreiddar voru getið. Sýslu-
nefnd Austur-Barðastrandarsýslu
lýsir óánægju með aðgerðir til
fækkunar sela í kjölfar ákvörðun-
ar hringormanefndar um verðlaun
í því skyni, þar sem meðal annars
er vitað að lög númer 30 frá 1925
um bann við selveiðum á Breiða-
firði hafa verið brotin. Það er
skoðun sýslunefndarinnar að
verðlaun sem þessi ættu einungis
að vera bundin við landeigendur
og ábúendur bújarða og verka
þannig hvetjandi til hefðbundinn-
ar nýtingar á selnum til þess að
halda honum í jafnvægi. Enn-
fremur beinir sýslunefnd því til
landbúnaðarráðuneytisins að
vinna að kynningu á því, að kópa-
veiði sé nauðsynleg hér á norður-
slóðum til þess að halda lífríkinu í
jafnvægi og að selskinnspelsar séu
flíkur, sem heiður sé að klæðast.
Sýslunefnd Austur-Barða-
strandarsýslu lýsir yfir fullum
stuðningi við stjórn og fulltrúaráð
dvalarheimilisins á Reykhólum og
samþykkir að veita 30.000 krónur
á þessu ári til starfseminnar og
hvetur stjórn og fulltrúaráð til
aukinnar sóknar í málefnum aldr-
aðra í sýslunni í náinni framtíð.
Sýslunefnd
Austur-Barðastrandarsýslu hvet-
ur öll félög í sýslunni, sem að
menningarmálum vinna, til að
efla skógrækt og beinir því til
skógræktarstjóra ríkisins, að
koma hingað vestur og skipu-
leggja það starf. Jafnframt bendir
sýslunefnd á þessi svæði sem
heppileg til skógræktar í
Reykhólasveit; 1. Barmahlíð, 2.
Skógar í Þorskafirði; í Gufu-
dalssveit, 1. Hallsteinsnes, 2.
Gufudalur, 3. Eyrarland. í Múla-
sveit eru víða ákjósanleg skilyrði
sem þurfa athugunar við, en þar
er landrými nóg og auðvelt að
friða það fyrir ágangi búfjár.
Sveinn
ÞUFMNUR
AJANHEMNN
IHOLMNDI
Það er nánast sama hvers þú leitar - þú finnur allar útgáfurnar í Amsterdam!
Fólk,verslun, tíska, menning, listir, veitingahús, skemmtistaðir, kaffihús,
-Amsterdam á þetta allt - alls staðar að úr heiminum.
Arnarflug flýgur til Amsterdam alla sunnudaga og miðvikudaga. Hafðu samband við
söluskrifstofuna - Amsterdamflugið opnar þér ótal leiðir til styttri eða lengri ferða um Amsterdam,
Holland eða Evrópu - sprengfullra af spennandi dægradvöl fyrir þig og þína.
/4msterdam áœtlunin - frábœr ferdamöguleiki
Hafið samband við söluskrifstofu Arnaflugs eða ferðaskrifstofurnar.
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477
VBGNA GÆÐANNA
AMPEX TAKK! £&»