Morgunblaðið - 25.07.1982, Síða 22
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1982
Ásakanir raktar til
falsaðs leyniskjals
Komaborg, 23. júií. AF.
LKYNIKKJAL, sem innhélt ásakanir
Bandaríkjamanna á hendur NATO
vegna dularfullra (lugslysa yfir Tyrr-
enahafi, á milli Sardinínu og ftalíu,
hefur við rannsókn reynst vera fals-
að, að því er talsmaður bandaríska
sendiráðsins i Róm sagði.
Sagði hann þetta vera dæmigert
fyrir þær aðferðir, sem Sovétm-
enn beittu, til að skapa óeiningu
og sundrungu á meðal andstæð-
inga sinna. „Tilgangur þessa
skjals er augsýnilega sá, að grafa
undan NATO,“ sagði talsmaður-
inn.
Afrit af þessu umrædda skjali
barst í hendur tveimur ítölskum
fréttastofum í vikunni. Sagði þar
m.a., að svo virtist sem heræf-
ingar NATO á þessu svæði gerðu
það að verkum að flug- og skipa-
umferð væri ekki óhætt á sama
svæði á meðan.
I skjalinu er vitnað til tveggja
atvika sem sögð eru eiga rót sína
að rekja til æfinga NATO. Fyrra
atvikið var þegar DC 9-þota í inn-
anlandsflugi fórst og með henni 81
maður í júní 1980. I síðara tilvik-
inu er um að ræða að flugmaður
vélar í innanlandsflugi skýrði frá
því, 15. maí á þessu ári, að loft-
skeyti hefði sprungið skammt frá
vél hans.
Enn hefur ekki verið hægt að
útskýra slysið þegar 81 maður
fórst en fulltrúar NATO hafa
skýrt frá því að engum flugskeyt-
um hafi verið skotið þá daga, sem
umrædd atvik gerðust. Það, sem
leiddi menn á sporið í rannsókn
skjalsins, var fjöldi máivilla, sem
sumar hverjar voru nánast barna-
legar.
Saka Breta um áframhald-
andi óvild í sinn garð
Buenos Aires, 23. júlí. AP.
ARGENTÍNUMENN ásökuöu Breta í dag um áframhaldandi óvild í þeirra
garð og í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu argentínska, sem birt var í dag
sagði að enn gætti mikillar tortryggni og óvildar í þeirra garð á Falk-
landseyjum.
Yfirlýsing utanríkisráðuneytis-
ins kom í kjölfar þeirrar ákvörð-
unar Breta að aflétta hafn- og
flugbanni því sem gilt hefur 200
mílur út frá Falklandseyjum frá
því 30. apríl. I tilkynningu Breta
er þess ennfremur látið getið að
Argentínumenn haldi sig áfram í
150 mílna fjarlægð frá eyjunum og
sæki um leyfi áður en kaup- og
birgðaskip leggja upp til eyjanna.
Argentínumenn hafa lýst því
yfir að þeir sætti sig ekki við nein
boð og bönn af slíku tagi og muni
ekki láta meina sér aðgang að
ákveðnum svæðum. Þá sagði enn-
fremur í yfirlýsingunni, að ef til
árekstra kæmi mætti skrifa þá al-
farið á reikning Breta eða Falk-
lendinga.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORG UNBL AÐINU
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi öskast
Grafíkverkstæði
Óskum eftir að taka á leigu húsnæöi ca.
70—100 fm. Má þarfnast lagfæringar vin-
samlegast hringið í síma 22887 (Svala) eða
38453 (Sigurbjörn) eftir kl. 6 næstu daga.
Óskum eftir 3—5 herb.
íbúð til leigu í nokkra mánuði. Uppl. í síma
37207
Guðmundur Þorgeirsson, læknir
Þú sem óttast
aö fá leigjendur sem viröa ekki íbúðina sem
sína eigin, átt kost á hjónum með 13 ára
dóttur. Þeim getur þú treyst. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Verði ekki af leigu, er
þagmælsku heitið. Uppl. í síma 41888.
200—300 fm
iðnaðarhúsnæði
Óskum að taka á leigu 200—300 fm iönaö-
arhúsnæði undir snyrtilega matvælastarf-
semi. Vinsamlegast hringið í síma 16578 í
dag og næstu daga.
Verslunarhúsnæði
óskast á leigu í miðbænum.
Uppl. í síma 27510 og 31412.
Maður í framhaldsnámi
óskar eftir lítilli íbúð eða herb. Uppl. í síma
77550 eða 10358 milli kl. 7 og 8 á kvöldin.
Sendiráð f Reykjavík
vill taka á leigu hús eða stóra íbúð. Uppl. í
síma 29100 virka daga.
Nú komast atörmed
AKRABORG
Ivö skip í feróum
Ivöföld akrein yfir flóann
Nú hefur þjónusta í ferðum milli Akraness og
Reykjavíkur verið stóraukin yfir háannatímann.
Með tilkomu nýju Akraborgarinnar og fjölgun
ferða hefurflutningsgetan aukistúr40 í lOObíla.
Þetta þýðirað ferjurnarflytja um 900 fólksbíla og
vöruflutningabíla, stóra sem smáa, á dag.
Ferðin á milli tekur aðeins 55 mínútur. Á meðan
njótið þér sjávarloftsins á útsýnisþilfari og þjón-
ustunnarum borð, í farþega og veitingasölum.
Kynnið ykkur áætlun Akraborgar.
Góða ferð.
KALIAGRIMUR.
Akmbotv þiónusta milli flttfna 'Simar ^yk/avik 91-16050 ■ Símsvari 91-16420
J Akranes: 93-2275-Skrifslola: 93-1095