Morgunblaðið - 31.10.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
77
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
rr
Œ
Þessir hringdu . . .
Eins og aÖ bjóða
drukknandi manni
vatn að drekka
Elís Adolphsson hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
— Eg var að velta fyrir mér
þessum tilboðum sem talað hefur
verið um, í sambandi við hækkun
lána til húsnæðismála, þar sem
verið er að nefna allt að 80% af
verðmæti vísitöluíbúðar. Ýmsar
spurningar vakna þá óhjákvæmi-
lega: Hvað verða þetta há lán?
Einnig: Hver verður afborgunin af
þeim? Verða þetta ekki orðnar
nokkuð háar greiðslur, þegar af-
borganir a lífeyrissjóðslánum,
sem fólk þarf að standa skil á,
bætast svo við? Hvernig kemur
þetta heim og saman við launin,
sem nú eru yfirleitt á þeim nótum
að rétt duga fyrir brýnustu lífs-
nauðsynjum, og sifellt er verið að
skerða. Flutningsmenn þessara
tillagna á Alþingi ættu að sýna
almenningi þá vinsemd að upp-
lýsa, hvernig þetta dæmi á að
ganga upp. Eg tel þessi tilboð, að
öðru óbreyttu, jafnast á við að
bjóða drukknandi manni vatn að
drekka. En hvað segja tillögu-
mennirnir sjálfir?
*
Afram Tommi
Guðmunda Stefánsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Mig langaði bara að koma
því á framfæri, hvað mér finnst
Villti tryllti Villi góður staður
fyrir unglinga. Ég mæli með því
að Tommi haldi áfram á sömu
braut. Þetta var einmitt það sem
vantaði fyrir okkur unglingana,
staður þar sem ekki er drukkið. Ég
kem þangað alltaf á föstudögum
og skemmti mér ágætlega. Kærar
þakkir fyrir mig.
Fyrirspurn til
Hans Petersens
Tveir Ijósmyndaáhugamenn á Ak-
ureyri höfðu samband við þáttinn
og báðu fyrir eftirfarandi fyrir-
spurn til ljósmyndavörufyrirtæk-
isins Hans Petersens: Er mögulegt
að fyrirtækið setji dagsetningar
aftan á myndir sem framkallaðar
eru og kóperaðar hjá því?
Hef ekki orðið
vör við vöruskort
í Búlgaríu
Margrét Sigþórsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Vegna fréttar á forsíðu Mbl.
í dag (fimmtud. 28. okt.), af mat-
vælaskorti í Austur-Evrópu, lang-
ar mig til að bæta nokkrum orðum
við. Alþýðulýðveldið Búlgaría er
eitt af kommúnistaríkjum Aust-
ur-Evrópu. Á síðastliðnum fimm
árum hef ég dvalið nokkrar vikur í
einu í Búlgaríu að störfum fyrir
íslenska ferðaskrifstofu. Af eðli-
legum ástæðum vinn ég mikið með
þarlendu fólki og hef kynnst hög-
um þess. Ekki hef ég orðið vör við
þennan vöruskort í Búlgaríu, sem
talað er um í fréttinni. Vöruval í
verslunum eykst þvert á móti með
hverju árinu.
Vildum gjarna
fá
að sjá Utlagann
Nokkrar stelpur í 9. bekk höfðu
samband við Velvakanda og sögðu:
— Við vildum gjarna fá að sjá
kvikmyndina Útlagann ef mögu-
legt væri. Við erum að lesa Gísla
sögu Súrssonar í skólanum og eig-
um að gangast undir samræmt
próf í henni. Þar sem við misstum
af kvikmyndinni á sínum tíma
væri okkur mikill akkur í að fá að
líta hana augum nú. Ætli það sé
nokkur leið að koma því í kring?
Norðurlönd og hin Norðurlöndin
Fyrirmunun í málfari
H.L. skrifar:
„Orðafar einsog „hin Norður-
löndin", „önnur Norðurlönd" og
„öll Norðurlöndin" geingur fjöll-
um hærra í blöðum á þúngum
reynslutímum túngunnar einsog
þeim sem yfir standa. Mætti virð-
ast sem upphaldsmenn slíks mál-
fars væru sigldir svo um munar,
ekki aðeins fyrir Reykjanes einsog
þótti betra en ekkert hér fyrmeir,
heldur útúr kortinu í orðsins
fylsta skilníngi.
í „1. des. blaði stúdenta" í fyrra
var neyðarkall, sent út í greinar-
stúf til þessara snarríngluðu
manna, ef takast mætti að fá þá
til að gefa upp hvort þeir teldu sig
standa á Jan Mayen, Kólaskaga
eða Novaja Semlja, sem reyndar
eru „önnur“ Norðurlönd en þau
sem vér þekkjum.
í þessu sambandi var einnig
rifjuð upp þjóðsagan um aukatöð-
in sem rákust á epli og urðu svo
hugfángin af fegurð þessara
ávaxta að þau skírðu sjálf sig upp
og skrifuðu sig þaðanaf: „við Epl-
in“. Slík tilraun í heimildavillu
heitir á íslensku „svikaklófestíng".
Þetta er sá verknaður sem gerist
þegar við erum að kalla okkur
Skandínava og segjumst tilheyra
hinum eða öllum Norðurlöndun-
um. Einginn veit hvar eða á hvaða
Norðurlöndum slíkir menn eru
Sjá bls. 78
staddir. Því miður barst ekkert
svar frá þessum sjóhraustu ís-
iendíngum, sem segjast tilheyra
hinum Norðuriöndunum; gæti þó
stafað af því að gleymst hefði að
selja blaðið (slík gleymska kom
fyrir mig líka á þeim dögum sem
ég gaf út blað).
Mér þótti fyrir að lesa hjá svo
stílfærðum manni sem staksteina-
höfundj, þegar hann vitnar í ræðu
eftir Koivisto forseta á dögunum
þannig: „enda þótt Norðurlönd
hefðu farið ýmsar leiðir í utanrík-
ismálum, þá hefðu þau ávalt gætt
að því á hvern hátt ákvarðanir
þeirra hefðu áhrif á gáng mála á
öórum Norðurlöndum.“ (Annars-
staðar á Norðurlöndum, hefði ver-
ið skárri þýðing.)
Mörgum kynni að detta í hug
hvort ekki kæmi til greina að Ak-
ureyri gerði eitthvað eða segði í
málinu: fyrir alla muni missa ekki
forystu sem er í því fólgin að vera
höfuðstaður íslensks landsvæðis
sem heitir Norðurland, og margir
telja einna tignarlegast landpláss
hér á landi og búi þar höfðíngs-
fólk; og sé þar töluð einna fegurst
íslenska."
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Þessi mál báru á góma. Rétt væri: Þessi mál
bar á góma.
Ljósmynda-
námskeiðin
vinsælu
hefjast aftur í nóvember. Innritun og nán-
ari upplýsingar í verzlun okkar.
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
L AUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI85811
STJÚRNUN AR FRfEflSLA
Heimsins útbreiddasta
forrit á smátölvur
Leiöbemendur:
Pill Ge.ts.on
tlugumterö.r.tjóri
Stjórnunarfélagiö kennir þér aö nota
þetta frábæra verkfæri á þriggja daga
námskeiöi. Námskeiöiö byggist aö
mestu á æfingum á VisiCalc og Suþer-
Calc.
Notagildi forritanna er m.a. viö:
— áætlanagerð,
— eftirlikingar,
— flókna útreikninga,
— skoöun ólíkra valkosta,
— meöhöndlun magntalna jafnt og
krónutalna.
Námskeiöiö krefst ekki þekkingar á
tölvum. Kunnir þú aö skrifa getur þú
notaö VisiCalc.
Næsta námskeið veröur haldiö
15.—17. nóvember nk. kl.
13:30—17:30.
Valgeir Hallvarösaon
véltæknifræöingur
Ritvinnsla er annaö og
meira
en fullkomin ritvél
Námskeiöiö Ritvinnsla I býöur þér
þjálfun á fullkomið ritvinnslukerfi meö
raunhæfum æfingum á tölvum. f /
' . j
Ritvinnsla býður mikla hagræðingu við: «V2 r} ] *
— skýrslugerö, _J
— bréfaskriftir,
— samningu bóka og ritgeröa. -' - *—
Eftir námskeiöiö ertu fær um aö vinna sjálfstætt viö rit-
vinnslu og meta notagildi hennar fyrir þig.
Vertu meö frá byrjun og njóttu leiösagnar þjálfaöra kennara
Stjórnunarfélagsins.
Næsta námskeið veröur haldið 8.—12. nóvember nk. kl.
09:00—13:00.
Ath.: Fræðslusjóður Verslunarmannafélags Reykjavíkur
greiöir þátttökugjald félagsmanna sinna á þessu nám-
skeiöi og skal sækja um þaö til skrifstofu VR.
Þátttaka tílkynnist til
Stjórnunarfélagsins í síma 82930.
STJORNUNARFÉLAK
ISUNDS^H
SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930