Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
7
HUGVEKJA
eftir sr.
Hjalta Guðmundsson
Eitt af guðspjöllum þessa
sunnudags segir frá tveimur
kraftaverkum Jesú Krists.
Hann lífgaði dóttur forstöðu-
manns og læknaði konu, sem
hafði haft blóðlát í tólf ár.
Þessar frásagnir eru flestum
vel kunnar.
Jesús Kristur á engan sinn
líka í allri veraldarsögunni.
Enginn maður hefur haft
meiri áhrif á gang heimsins
mála en hann. Boðskapur hans
hefur mótað heiminn, hugsun-
arhátt mannkyns og jafnvel
þeirra, sem ekki hafa viljað við
hann kannast.
Sumir trúa því, að Jesús
Kristur hafi aðeins verið góður
maður, mjög góður, vitur og
stórkostlegur maður, en ekkert
þar fram yfir.
Vissulega var Jesús Kristur
allt þetta, en hann var líka
miklu meira og æðra, því að
hann var Guð sjálfur, sem
kominn var hingað til jarðar-
innar. Hann var sjálfur kom-
inn til þess að leiða okkur út úr
myrkviði alls hins illa í heim-
inum, sem allt of mikil völd
hefur yfir okkur. Guð var kom-
inn til að frelsa mennina, leysa
þá úr ánauð hins illa og gefa
þeim hlutdeild í hinu fyrir-
heitna ríki ljóssins, þangað
sem líf okkar skyldi stefna.
Jesús Kristur var frá Guði
kominn. Hann var sonur Guðs,
og þess vegna lögðu menn líf
sitt í sölurnar fyrir hann og
fyrir trú sína á hann og gera
enn í dag. Menn fundu sinn
sanna innri mann í trúnni á
Jesúm Krist. Hann var einmitt
kominn til að tendra ljós í sál-
um manna, svo að það mætti
loga skært, svo að menn
mættu lifa í birtu, en ekki
myrkri, svo að skærustu ljósin
mættu lýsa öðrum leiðina til
Guðs og jafnvel hið daufasta
ljós mætti gera sitt gagn í ríki
ljóssins.
Allir þeir, sem kynni höfðu
af Jesú Kristi fundu, að hann
var sannur, einlægur. Þegar
menn nálguðust hann, hvarf
allur vafi úr huga og sál, og
K&fOtf'KISÁ' Mlltf
Jólaplata
barnanna í ár
Skemmtilegar dýravísur
Fluttar af jDekktustu tónlistar-
mönnum Islands, s.s. Ragnhildi
Gísladóttur og Diddú. Lagahöfundur
Jóhann Helgason.
þeir fundu, að nú stóðu þeir í
návist Guðs, og kraftur Guðs
lék um þá og gerði allt nýtt og
fagurt í lífi þeirra. Þeir urðu
nýir menn, sterkir og hugrakk-
ir, óhræddir við hið illa í heim-
inum, reiðubúnir að takast á
við það og sigra, jafnvel þótt
það kostaði þá stundum lífið
og þeir virtust þá hafa beðið
ósigur eins og meistari þeirra
á krossinum forðum. Övinir
þeirra fögnuðu sigri, en
gleymdu upprisunni, gleymdu
eilífri dýrð í húsi föðurins á
himnum.
Þannig hafa mennirnir gef-
ist Guði af fúsum og frjálsum
vilja á öllum öldum og allt til
þessa dags. Það er ekkert, sem
þvingar þá til þess, því að Guð
vill ekki neyða neinn til að
trúa á sig og fylgja sér. Hann
vill leiða menn og laða til sín
Trúin
læknar
með kærleika sínum, svo að
þeir komi fúsir og með gleði.
Þannig laðaðist fólkið að
Jesú Kristi. Það fann, að hann
átti meira að gefa því en aðrir
menn. Það fann, að honum
mátti treysta skilyrðislaust.
Þess vegna fór forstöðumaður-
inn til fundar við Jesúm Krist,
þegar augasteinninn hans,
dóttir hans, var nýskilin við.
Hvert var hægt að leita, þegar
svo var komið, nema til Jesú?
Hið sama má segja um ves-
alings sjúku konuna. Hún var
búin að berjast við sjúkdóm
sinn í tólf ár og hafði kostað
miklu til, en árangurslaust.
Enginn mannlegur máttur gat
hjálpað þessum tveimur ör-
væntingarfullu manneskjum.
Það var fokið í öll skjól. Ekk-
ert var nú eftir, nema leita
ásjár hjá Jesú Kristi og láta á
það reyna, hvort hann gæti
hjálpað.
Og sannarlega komu þessi
tvö til Jesú í trú. Ef þau hefðu
ekki haft trú á honum, hefðu
þau varla farið að ómaka sig á
hans fund. Þau fóru ekki er-
indisleysu til Jesú Krists.
Þeim varð að trú sinni og kær-
leikur Guðs opinberaðist í
stórkostlegum kraftaverkum.
En hafa þessi atvik einhvern
boðskap að flytja okkur? Er
okkur ekki nóg að lesa um
þetta og gleðjast í hjarta
okkar vegna þessara mann-
eskja, sem var hjálpað. Þetta
er allt svo löngu liðið. Þarna
var Jesús Kristur nærstaddur.
Hann sá neyðina og hjálpaði
af hjartagæsku sinni.
En hvar er Jesús Kristur í
dag? Er hann einhvers staðar
nálægur í lífi þínu? Getur þú
snert fald yfirhafnar hans eins
og konan gerði eða kallað hann
þér til hjálpar eins og for-
stöðumaðurinn. Jú, vissulega
er Jesús Kristur nálægur þér.
Við skulum muna vel orðin,
sem hann sagði við konuna:
„Trú þín hefur gjört þig heila."
Þessi orð eiga líka við þig, kæri
lesandi. Jesús Kristur segir
þessi orð við þig. Ef þú trúir
honum og treystir á hann,
leggur allt líf þitt að fótum
hans eins og konan gerði, þá
mun þér vel farnast. Þá munt
þú eignast þann fjársjóð, sem
ekkert fær jafnast við.
Það er ekki víst, að þú eigir
við sjúkdóm að stríða, en kall-
aðu samt sem áður Jesúm
Krist inn í líf þitt og leyfðu
honum að halda í hönd þína og
leiða þig fram til farsældar og
gæfu í lifinu.
Platan ar gafln út af Dýraapftala Wataona til atyrktar Dýraspítalanum.
Dreifing Dýraapftall Wataons, afmi 78620.
FÆSTI
PLÖTUBÚÐUM
I
GENGI VERÐBRÉFA 21. NÓVEMBER 1982
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1970 2. flokkur
1971 1. flokkur
1972 1. flokkur
1972 2. flokkur
1973 1. flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1. flokkur
1975 1. flokkur
1975 2. flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1. flokkur
1977 2. flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. flokkur
1980 1. flokkur
1980 2. flokkur
1981 1. flokkur
1981 2. flokkur
1982 1. flokkur
Sölugengi
pr. kr. 100.-
9.560,67
8.378,56
7.265,81
6.153,39
4.435,98
4.086,92
2.820.78
2.317.78
1.746,09
1.653,48
1.322,55
1.226,94
1.024,42
831,86
654.43
551,71
426.44
313,10
246,02
211,38
157,00
142,61
Meóalávöxtun ofangreindra flokka um-
fram verðtryggingu er 3,7—5%...
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGD:
Sölugengi m.v. nafnvexti
(HLV)
12% 14% 16% 18% 20% 47%
1 ár 63 64 65 66 67 81
2 ár 52 54 55 56 58 75
3 ár 44 45 47 48 50 72
4 ár 38 39 41 43 45 69
5 ár 33 35 37 38 40 67
VEÐSKULDABRÉF
MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi nafn- Ávöxtun
m.v. vextir umfram
2 afb./ári (HLV) verötr.
1 ár 96,49 2% 7%
2 ár 94,28 2% 7%
3 ár 92,96 2Vs% 7%
4 ár 91,14 2%% 7%
5 ár 90,59 3% 7%
6 ár 88,50 3% 7 V.%
7 ár 87,01 3% 7V«%
8 ár 84,85 3% 7V?%
9 ár 83,43 3% 7Vi%
10 ár 80,40 3% 8%
15 ár 74,05 3% 8%
VERÐTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLAN RÍKISSJÓDS JKZ!
B — 1973 2,851,48
C — 1973 2.553,05
D — 1974 2.216,18
E — 1974 1.515,96
F — 1974 1.515,96
G — 1975 1.005,61
H — 1976 958,22
I — 1976 729,11
J — 1977 678,42
1. fl. — 1981 135,84
Seljum og tökum í umboössölu verötryggö spariskírteini Ríkis-
sjóös, happdrættisskuldabréf Ríkissjóðs og almenn veöskulda-
bréf.
Höfum víötæka reynslu í veröbréfaviðskiptum og fjármálalegri
ráðgjöf og miölum þeirri þekkingu án endurgjalds.
Verðbréfamarkaöur
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu 12 101 Reykjavik
lönaóarbankahusinu Simi 28S66
KAUPÞING HF
^ ' Veröbréfasala
Ávöxtun
Hefurðu gert þér grein fyrir að verðbréfakaup er
eitt það besta sem þú getur lagt peningana þína í?
Setjum okkur í spor þriggja manna sem áttu tuttugu
þúsund krónur hver fyrir ári síöan. Viö ávöxtun þess-
arrar upphæöar fóru þeir mismunandi leiöir: Einn
festi kaup á spariskírteinum ríkissjóös þar sem geng-
iö miðast viö 5% ávöxtunarkröfu. Annar lagöi inn á
verðtryggðan reikning í banka og sá þriöji lagöi sína
upphæö inn á sparisjóösbók. Staöa þessarra þriggja
Ávöxtunarlelö 1) Spariskírteini Staða 1/11/82 Ávöxtun íkr. Ávöxtun f %
ríkissjóös 2) Verötryggður kr. 34.839.- kr. 14.839.- 74%
reikningur kr. 31.740,- kr. 11.740,- 58,7%
3) Sparisjóösbók kr. 27.120,- kr. 7.120,- 35,6%
Auk spariskírteina ríkissjóös heföi einnig veriö unnt
aö fjárfesta í happdrættislánum ríkissjóðs eöa verö-
tryggðum og óverötryggðum skuldabréfum.
Kaupþing hf. annast tveröbréfasölu og veitir ókeypis
rágjöf á þessu sviöi.
Viö bendum á aö verðbréfakaup þurfa ekki og eiga
ekki aö vera sérréttindi hinna ríku eða stóru, t.d. má fá
spariskírteini ríkissjóös 2. flokk 1980 aö nafnverði
100 kr. keypt á 234 kr. miöaö viö gengi pr. 22/11
1982.
Tökum öll veröbréf í umboðssölu. Hjá okkur eru fáanleg
verðtryggö skuldabréf ríkissjóös, 2. fl. 1982.
KAUPÞING HF.
Húsi verzlunarinnar, 3. hæö, sími 86988.
Fastatgna- og veröbrétasala. lalgumtölun atvlnnuhúanœöls, f|árvarfla, pjóöhag-
frseöi-, rekstrar- og tölvuráögjöt
Metsölublad á hverjum degi!