Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Allan Simonsen Litli danski lagerstrákurinn sem öðlaðist heimsfrægð Danski knattspyrnumaðurinn Allan Simonsen er sá leik- maður af Norðurlöndum sem hvað lengst hefur náð í atvinnu- knattspyrnumennskunni. Hann hóf knattspyrnuferil sinn með Vejle Boldklub í heimalandi sínu og vakti fljótlega mikla athygli fyrir leikni sína með knöttinn. Árið 1972 var Simonsen í fyrsta sinn valinn í danska landsliðið og sinn fyrsta landsleik lék hann einmitt gegn íslandi á Laugardals- vellinum 3. júlí það ár. Skoraði hann eitt mark og átti mjög góðan leik. Sama ár léku Danir á Ólympíuleikunum í Miinch- en og var Simonsen þá með. Vakti hann mikla athygli þar og fljótlega eftir leikana gerðist hann atvinnumaður hjá Þýska stórliðinu Borussia Mönchengladbach. Þaðan hélt hann 1979 til Barcelona á Spáni, „ríkasta félags heims“, en þaðan er hann nú farinn til Charlton Athletic í Englandi, en liðið leikur í 2. deild. Ekki hafa þau félagaskipti gengið snurðulaust og virtist um tíma sem kaupin gengju til baka, en nú er búið að leysa þann hnút og Simonsen kominn til Charlton. „Ég hef nú leikið knattspyrnu þar sem hún gerist best í 10 ár og á hverju keppnistímabili hef ég verið hjá liði sem átt hefur vel- gengni að fagna. Nú lítur allt í einu út fyrir að í heilt keppnis- tímabil fái ég jafnvel ekkert að spila, og atvinnuknattspyrnumað- ur á erfitt með að sætta sig við slíkt, hvað þá að samþykkja það, og sérstaklega vegna þess að ferill minn með landsliðinu er í húfi. Sá tími er kominn að ég verð að hugsa alvarlega um framtíð mína hjá Barcelona." Þetta sagði Simonsen í ágúst í sumar, og kom þá bersýnilega í ljós að hann var ekki ánægður með þá stöðu sem hann var kom- inn í hjá félaginu. Bernd Schuster hafði einmitt — í fyrsta sinn eftir uppskurðinn sem þann gekkst undir leikið heilan leik „el Barca". Var það gegn 1. FC Köln frá Þýskalandi í Juan Gamper- keppninni, æfingakeppni sem fé- lagið tók þátt í, og varð Simonsen þá ljóst að Barcelona myndi nota Schuster og Maradona sem sína tvo útlendinga í vetur. Þrátt fyrir frábæra frammistöðu keppnis- tímabilið 1981—’82 komst Simon- sen ekki lengur að hjá Barcelona. Upphafið á endinum Félagaskipti Simonsens frá rík- asta knattspyrnufélagi heims, Barcelona, til Charlton Athletic, miðlungs 2. deildar liðs i Englandi er stórviðburður á knattspyrnu- sviðinu. l/f' f .'V / Nú er tíminn fyrir Multi-tabs - til öryggis! Hver tafla inniheldur 11 mismunandi fjörefni, járn og önnur steinefni. Fæst aóeins í lyfjabúöum. G'Olafsson h/f Grensásvegi 8, 125 Reykjavik Þessir ungu sveinar efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Krabbameinsfélag fslands í Torfufelli 18 Breiðholtshverfi. Söfnuðu þeir hátt í 500 kr. Strákarnir heita: Gestur Rúnar Stefánsson, Arnar Stefánsson, Vignir Steinþór Halldórs- son, Jón Hákon Halldórsson og Edvard Mortens. Þessar stöllur, sem heita Kristjana Björg Júlíusdóttir, íris Björk Gylfadóttir, Kolbrún Júlíusdóttir og Eva Dóra Hrafnkeisdóttir, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og söfnuðu þær tæplega 390 krónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.