Morgunblaðið - 21.11.1982, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.11.1982, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 45 Nú er að faerast fj#r i leikinn hjá Bryndisi og Mrti húsverði. Slundin okkar kl. 18.00: Jón spæjó, laxeldi og heimsókn í orgelskóla Hljóóvarp kl. 21.20: Mannlíf undir Jökli fyrr og nú í hljóðvarpi kl. 21.20 er dagskrár- liður er nefnist Mannlíf undir Jökli fyrr og nú. Fyrsti þáttur af fjórum: Straumar Snsefellsjökuls og Bárðar saga Snæfellsáss. Viðmælandi: Þórður Halldórsson frá Dagverðará. llmsjónarmaður: Eðvarð Ingólfsson. — í þessum fjórum þáttum verður grúskað í gömlum sögnum, sagði Eðvarð, — en undir Jökli var fyrsti vísir að þéttbýlismynd- un á Islandi. Auk þess verða sagð- ar skemmtisögur af mönnum sem lifað hafa á þessum stað og orðið landsfrægir þá eða síðar á ævinni og lesin ljóð og leikin tónlist eftir höfunda undan Jökli, lifandi og látna. Annað meginefni þessara þátta eru svo viðtöl. Við út- varpsmenn fórum í haust vestur í Breiðavíkurhrepp og Neshrepp utan Ennis og spjölluðum við fjöl- marga búendur þar, en sam- kvæmt gamalli skilgreiningu nær svæðið sem kallað er „undir Jökli" frá Arnarstapa að Rifi. Og um- ræðuefnið er kveðskapur, lífið og tilveran. í fyrsta þættinum verður fjall- að um það sem skrifað hefur verið um Snæfellsjökul í lausu og bundnu máli, auk þess sem Bárð- ar saga Snæfellsáss verður rakin, en það þótti ómissandi, þar sem sagt er að Bárður búi í jöklinum og sé verndari Snæfellsness. í framhaldi af þessu verður svo rætt við Þórð Halldórsson á Dag- verðará, sem löngu er þjóðkunnur fyrir störf sín sem listamaður, refaskytta, heimspekingur o.fl. o.fl. og hann fræðir okkur um það, Þórður á Dagverðará af hverju mannlíf sé betra og merkilegra undir Jökli en annars staðar. Þórður býr nú á Akureyri, en við tókum viðtalið við hann í gegnum lokaða línu milli Akur- eyrar og Reykjavíkur. Á dagskrá sjónvarps kl. 18.00 er Stundin okkar. Umsjónarmaður: Bryndís Schram. Stjórnandi upp- töku: Þráinn Bertelsson. Eftirfarandi efni verður í þætt- inum: 1. Jón spæjó: Nú er að færast fjör í leikinn hjá Bryndísi og Þórði húsverði. Þar sem svo margt furðulegt hefur gerst undanfarið, verður Þórður að ráða til sín leynilögreglumann. Jón spæjari mætir í stúdíó og rannsakar kist- una. Bryndís og Þórður ræða síð- an um ástand þessara dularfullu mála og kynna næstu Stund. 2. Laxeldi: í myndinni, sem tekin er austur í Hrunamannahreppi, í Fossá, er sýnt hvernig klak fer fram, til laxeldis. Loftur Hauks- son bóndi í sveitinni kreistir hrogn og svil og blandar þessu saman og hreinsar eftir öllum kúnstarinnar reglum. 3. Little Blue: Þáttur 2. Júlíus Brjánsson les. 4. Viðtal: Þeir Björn Kristjáns- son, Ari G. Bragason og Sigurður Arnarsson segja frá tilraunum sínum með kvikmyndagerð. 5. Jón bóndi: Því næst var mynd þeirra, sem fjallar um hetjuna Jón bónda (James Bond) sýnd. Myndin er ádeila á vissa tegund af bíómyndum. 6. Sófus II: Teiknimyndasaga, samin, teiknuð og lesin af Sverri Sigurðssyni. 7. Orgelskóli: Farið var í Orgel- skóla þeirra Guðmundar Hauks og Sigurbergs (Yamaha) og fylgst með orgelkennslu. 8. Jón spæjó II: Að lokum birtist Jón spæjó aftur í stúdíói og segir Þórði og Bryndísi þau gleðitíðindi að hann sé kominn á sporið. 9. Lokalag. Erlendur Jónsson Leikril vikunnar kl. 14.00: Líkræða — eftir Erlend Jónsson Á dagskrá hljóðvarps kl. 14.00 er nýtt leikrit, Líkræða, eftir Erlend Jónsson. Leik- stjóri: Klemenz Jónsson. Leik- endur: Margrét Ólafsdóttir og Steindór Hjörleifsson. Presturinn, séra Þorgrím- ur, kemur til ekkjunnar Helgu til að afla efnis í lík- ræðu yfir nýlátnum manni hennar. Samtal þeirra snýst þó ekki aðeins um hinn látna heldur um eigin hag og ann- arra sem við sögu koma. Verður fráfall mannsins til að ekkjan tekur eigið líf til endurmats. Flutningur leikritsins tek- ur rösklega þrjá stundar- fjórðunga. , Nú er rétti tíminn Fátt mun falla vinum og viöskiptamönnum erlendis betur en gjafaáskrift aö lceland Review 1983. Þú losnar viö allt umstangiö. Útgáfan sendir fyrir þig jólakveöjuna (gjafakort) og hvert nýtt hefti á næsta ári veröur sem kveöja frá þér (auk þess aö flytja heilmikinn fróðleik um land og þjóö). Fyrirhafnarlítiö, hagkvæmt — og vel þegið af vinum í fjarlægö. Láttu nú veröa af því. Þeim fjölgar stööugt, sem láta lceland Review flytja kveöju sína til vina um viöa veröld. ★ Nýrri áskrift 1983 fylgir árgangur 1982 í kaup- bæti, ef óskaö er. Gef- andi greiöir aðeins sendingarkostnaö. ★ Útgáfan sendir viötak- anda jólakveöju í nafni gefanda, honum aö kostnaöarlausu. □ Urdirritaöur kaupir .... gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1983 og greiöir áskriftargjald kr. 335 pr. áskrift aö viöbættum send- ingarkostnaöi kr. 60 pr. áskrift. Samt. kr. 395. □ Árgangur 1982 veröi sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn greiöslu sendingarkostnaöar, kr. 100 pr. áskrift. Ofangreind gjöld eru í gildi til ársloka 1983. Áskrift öölast gildi þegar greiösla berst. Nafn áskrifanda Sími Heimilisfang Nafn móttakanda ★ Hvert nýtt hefti af lce- land Review styrkir tengslin við vini í fjar- lægö. Hetmllisfang Nöfn annarra móttakenda fylgja meö á ööru blaöi. Sendiö til lceland Review Pósthólf 93, 121 Reykjavík, eóa hringiö í síma 27622.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.