Morgunblaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1982
55
Chrysler E-línan.
Dodge 600.
einkunn. Óneitanlega er mæla-
borð bílsins heldur „bandarískt“,
þ.e. ferkantaðir mælar, og er
borðið því fremur gamaldags.
Stýrishjólið er hins vegar óvenju-
lega sportlegt. Bíllinn kemur með
vökvastýri og vökvabremsum.
CHRYSLER E-LÍNA
Chrysler E-lína er mjög íburð-
armikill 5 manna bíll, sem fyrir-
tækið bindur miklar vonir við,
með auknum áhuga Bandaríkja-
manna á því sem þeir kalla „al-
vöru“ bíla, en er þó ekki of stór.
Bíllinn er framdrifinn eins og
Dodge 600 og verður í fernra dyra
„saloon“-útfærslu. Hann er 1.174
kg á þyng og lengd bílsins er 4.715
mm. Breiddin er 1.734 mm og
hæðin er 1.346, en hjólhaf er 2.618
mm.
Bíllinn kemur „standard" með
4 strokka, 2,2 lítra, 99 hestafla
vél, en verður ennfremur boðinn
með 4 strokka, 2,6 lítra, 100 hest-
afla vél, eins og Dodge 600. Báðar
vélarnar eru 2ja blöndunga. Bíll-
inn er með 3ja gíra sjálfskipt-
ingu.
Það er eins með Chrysler
E-línu, að mælaborðið er fremur
„bandarískt" og gamaldags.
Hann kemur „standard“ með
vökvastýri, sem er með stilli-
möguleikum. Þá eru vökva-
bremsur í bílnum.
íburður innandyra er mikill, en
bíllinn er með plussklæddum
skiptum sætum frammi í, sem
hafa hlotið góða dóma og siðan er
mikið bólstraður bekkur aftur í,
sem hægt er að skipta. Chrysler-
inn er með rafstýrðum rúðuupp-
hölurum og speglum, auk þess
sem hægt verður að fá hann með
miðstýrðri rafdrifinni læsingu.
Tvær vélarstærðir, 2,2 lítra og
2,6 lítra — Eru 5—6 manna meðal-
stórir og íburðarmiklir innandyra
Innrétting Chrysler E-línunnar er mjög íbúrðarmikil.
Chrysler E-linan er með veiustýri og rafdrifnum spegium og rúðuupphöl-
urum.
Chrysler E-lína og Dodge 600
tveir nýir frá Chrysler í ár
Bílar
Sighvatur Blöndahl
MIKILL uppgangur hefur verið hjá
bandarisku bílaverksmiðjunum
Chrysler á þessu ári, eftir erfiða
tíma á liðnum árum. Hefur verið
hagnaður af rekstri fyrirtækisins á
öllum ársfjórðungum í ár. A þessu
hausti, þegar kynntar voru nýjung-
ar af 1983-árgerðinni, komu fram
tveir nýir bílar, Dodge 600 og
Chrysler E-lína, sem báðir eru held-
ur stærri en þeir bílar, sem mest
áherzla hefur verið lögð á á síðustu
misserum, þ.e. K-lína fyrirtækisins.
DODGE 600
Dodge 600 er 5—6 manna til-
tölulega rúmgóður fjölskyldubíll,
sem Chrysler ætlar í samkeppni
millistærðarbíla. Bíllinn er fram-
drifinn og hægt er að velja um
tvær vélarstærðir, 4 strokka, 2,2
lítra, 99 hestafla og 4 strokka, 2,6
lítra, 100 hestafla vél, en báðar
eru vélarnar tveggja blöndunga.
Dodge 600 kemur „standard"
með 3ja gíra sjálfskiptingu, en
ekki er hægt að fá hann bein-
skiptan. Hins vegar kemur Dodge
600 ES „standard" með 5 gíra
beinskiptum kassa, en hann verð-
ur ennfremur hægt að fá með 3ja
gíra sjálfskiptingu. Um tvær út-
færslur er sem sagt að ræða,
Dodge 600, sem er fernra dyra
saloon-útfærsla, og síðan Dodge
600 ES, sem er sportlegri í útliti,
en eigi að síður fernra dyra.
Iburður innandyra er mikill og
er hægt að velja bílinn með skipt-
um sætum frammi í, eða þá með
bekk, þannig að bíllinn er ann-
aðhvort 5 eða 6 manna eftir
óskum hvers og eins. Bandarísk
bílablöð segja, að mjög vel hafi til
tekizt í hönnun bilsins og fær
hann yfirleitt mjög góða heildar-
Framsæti Ilodge 600 hafa hlotið lof fyrir hönnun.
Mælaborðið mjög „bandarískt" og gamaldags í Dodge 600.