Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983
51
Þýtt og
endursagt
úr Observer.
SIB.
mína ásamt tilheyrandi húsgögn-
um.“
Þar eð ekkjan fékk sjálfkrafa í
sinn hlut þriðjung eignanna sýnir
þessi viðbót ekki, að þetta rúm hafi
verið það eina sem hún átti að fá,
heldur, að hann vildi að hún fengi
þetta rúm fremur en annað í sinn
hlut.
New Place var staður af því tagi
sem tignir gestir gistu ef þeir fóru
þar um. Besta rúmið á bænum hef-
ur eflaust verið ætlað slíkum gest-
um. Næst besti beðurinn hefur að
öllum líkindum verið hjónarúm
Williams og Önnu og er það mjög í
samræmi við þá vandlega varð-
veittu dulúð sem hann umlukti
sjálfan sig með, að hann skyldi orða
hinstu ósk sína svo sérkennilega.
Mánuði eftir að hann undirritaði
aðra erfðaskrá sína var William
Shakespeare jarðsunginn í Þrenn-
ingarkirkjunni.
Tuttugasta og níunda júní 1613
kom upp eldur í miðri sýningu á
Hinriki áttunda og á innan við
klukkustund var Globe-leikhúsið
brunnið til kaldra kola. Undir
venjulegum kringumstæðum hefðu
leikhandritin verið geymd í leikhús-
inu, en ósennilegt er að menn hafi
hætt sér inn í eldhafið til að leita að
gömlum blöðum, fremur að reynt
hafi verið að bjarga dýrum búnaði
ýmsum.
Eiginlega hlýtur eina skýringin á
því að verk Shakespeares glötuðust
ekki, að vera sú, að handritin voru
ekki í leikhúsinu. Það er að minnsta
kosti mögulegt, að sum verka
Shakespeares hafi annað hvort ver-
ið skrifuð í New Place, eða altént
verið geymd þar. Það er ekki út í
hött að ætla að hann kunni að hafa
sýnt Anne leikrit sín, eða lesið þáu
fyrir hana.
Það liðu sjö ár þar til Hemminge
og Condell reistu skáldinu
merkasta minnisvarðapn. Fyrsta
Folíó útgáfan á verkum hans kom
út á þeirra vegum. í henni voru 36
leikrit og hafði helmingur þeirra
aldrei komið út áður. Það kann að
vera að þeir hafi ráðist í þetta til að
sporna gegn því hvernig William
Jaggard reyndi stöðugt að notfæra
sér vinsældir Shakespeares. Frá
1619 hafði hann sett upp fjölda af
stolnum verkum undir fölsku nafni.
En á hinn bóginn gæti einnig vel
verið, að ákveðin rík ekkja í Strat-
ford hefði látið útgefendurna vita
að hún væri með þetta efni í fórum
sínum og að hún gæti kostað útgáf-
una að hluta. Tími hennar sjálfrar
var senn á þrotum.
í ágúst 1623 lést þessi ósýnilega
kona, Anne Shakespeare, og var
grafin við hlið eiginmanns síns í
kór Kirkju hinnar heilögu þrenn-
ingar.
Vel kann svo að fara að við mun-
um aldrei komast að sannleikanum
um Anne Shakespeare. Margur lær-
dómsmaðurinn hefur bent á „illar"
sonnettur, eins og þá númer 145 og
fundið þar móðganir og gífuryrði og
tengt það persónu Anne Hathaway
með misjafnlega annarlegum að-
ferðum.
Þannig verður það því að vera.
Anne, kona Shakespeares, likt og
Xantippa, kona Sókratesar, er
óþekkt stærð. En viturlegri lesning
um hana en fræðibækurnar væri
„Vetrarævintýri" bónda hennar,
sem fjallar um enduruppgötvun
tryggðar eiginkonu eftir sextán ára
blekkingu. Það sem hin aldna
Hermione gerir fyrir Leontes og
Perditu í leik-kraftaverkinu, er gert
að frumkvæði Paulinu, hinnar
gömlu eiginkonu sem stýrir endur-
reisninni og afturhvarfinu til
skynseminnar.
Þessar persónur eru ekki ein-
stæðar, heldur aðeins þær síðustu í
langri röð af ástríðufullum, greind-
um og úrræðagóðum konum í leik-
veröld Shakespeares. Þær eru eina
verðuga minnismerkið um þá þöglu
konu, sem skáldið þekkti best.
Skíðakennsla
Dag- og kvöldnámskeiö.
Helgarnámskeiö.
Upplýsingar og innritunarsími 76740 eftir
kl. 17.00.
Skíöaskóli Sigurðar Jónssonar.
Endurskoðunarstofa
Hef opnað endurskoöunarstofu að Síðumúla 33, 3.
hæð, símar 86888 og 86868.
ívar Guðmundsson,
viöskiptafræöingur
og lögg. endurskoöandi.
ríý ^umarleyfishugmynd: England - meginlandið,
LUXUSSIQLING INNIFALIN
VIÐKOMUSTAÐIR
ERLENDIS
Sem gefur að skilja voru-við-
komustaðir m/s Eddu vand-
lega valdir, svo farþegar yrðu
sem best settir tíi að halda
áfram ferðinni.
Newcastle er miðsvæðis í Bret-
landi, og þaðan eru daglegar
ferjusiglingar til Noregs, Svi-
þjóðar og Danmerkur. Sjálf er
Newcastle stórborg og þar er
hvað best að versla í allri Evr-
ópu.
Hin rómaða ferðamannapara-
dís Vatnahéraðið (Lake Dist-
rict) er í örskots fjarlægð og í
norðri sjsosku hálöndin f suðri
eru allir ensku baðstrandabæ-
irnir (s.s. Brighton) og auðvitað
sjálf heimsborgin London.
Loks má geta þess að ekkert er
þvi til fyrirstöðu að sigla með
m/s Eddu til Newcastle og
koma með henni heim aftur frá
Bremerhaven.
Bremerhaven er ákjósanlegur
upphafsstaður Evrópuferðar.
Skammt undan eru borgir fjörs
og iðandi mannlffs t.d. Amster-
dam í suðri og Kaupmannahöfn
í norðri. Einnig er stutt á frægar
slóðir: Rínardal, Moseldal og
Alpana, svo dæmi séu tekin.
Akstur til Rivierunnar, ftaliu eða
Austurríkis er ekki meira mál en
milli Reykjavíkurog Egilsstaða.
f rauninni á ekkert að geta
takmarkað ferðafrelsið nema
lengd sumarfrisins, og farþeg-
um er frjálst að velja sér þá
heimferð með m/s Eddu sem
best hentar.
NÝTT SÍMANÚMER
2-51-66
Vinsamlegast
færið það Inn á
minnisbiað simaskiárinnar.
FARSKIP
Aðalstræti 7 Reykjavík
FARSKIP
Acnm
SUMARIÐ
1983
KOMU-OG
BRÖITFARAR-
TÍMAR
Til Reykjavikur miðvikudaga 20:00
Frá Reykjavík miðvikudaga 24:00
Tll Newcastle laugardaga 10:00
Frá Newcastle laugardaga 12:00
Til Bremerhaven sunnudaga 10:00
Frá Bremerhaven sunnudaga 14:00
Til Newcastle mánudaga 10:00
Frá Newcastle mánudaga 12:00
Næsta sumar heldur Farskip hf. uppi reglubundnum
siglingum milli íslands, Englands og meginlánds Evr-
ópu. M/S Edda fer frá Reykjavík hvern miðvikudag frá
1. júní til 17. september.
Edda getur flutt 900 farþega í
hverri ferð. Einnig rúmar hún
160 bíla, þannig að stór hluti
farþeganna getur tekið fjöl-
skyldubílinn með. Og það sem
meira er: Séu fjórir farþegar
eða fleiri saman um bílinn verð-
ur hann fluttur án gjaldtöku,
jafnvel þótt einhverjir hinna
fjögurra séu börn allt niður f 2ja
ára að aldri og ferðist á lægra
gjaldi en fullorðnir. Séu færri
farþegar saman um bílinn
greiða þeir flutningsgjald fyrir
hann og fer það eftir fjölda
þeirra. Einnig geta hópar lagt í
utanlandsferð og flutt
ferðabil með m/s Eddu.
hóp-
Erlendar viðkomuhafnir eru
Newcastle í Englandi og
Bremerhaven í Þýskalandi. Far-
þegar geta farið frá borði f ann-
arri þeirra og um borð þar aftur,
eða i hinni eftir eigin óskum.
Þannig geta þeir t.d. farið eins
konar hringferð um Bretland og
meginlandið. Að sjálfsögðu
ráða þeir einnig hve margar
vikur líða milli brottfarar og
heimkomu. Aðeins þarf að
gæta þess að panta allar ferðir
með nægum fyrirvara, því bú-
ast má við að margar ferðir
seljist upp löngu fyrir brottför.
Fargjald verður mjög hóflegt
þannig að það á ekki að verða
hindrun þess að menn geti veitt
sér ánægjulegt sumarfrí. Sé
bíllinn með er ekkert þvf til
fyrirstöðu að stinga tjaldinu og
eldunaráhöldunum f skottið.
Tjaldsvæði eru mjög fullkomin
ytra.
Hápunktur ferðarinnar getur þó
verið sjálf sjóferðin, lúxussigl-
ing á vel búnu lystiskipi. Ekki
spillir að útgerðin er islensk og
fslenskir peningar i fullu gildi
umborð, bæði innan landhelgi
og utan hennar sem í erlendum
höfnum.
M/S Edda er 7800 tonna lúx-
usferja byggð í Frakklandi
1972 skv. ströngustu kröfum
Lloyd's. Hún getur gengið 20
sjómílur á klukkustund og er
búin stöðugleikauggum.
Edda getur flutt í hverri ferð
900 farjiega og um 160 bíla.
í 200 farþegaklefum skipsins
rúmast 440 farþegar og 120 f
þotustólum, en þar að auki eru
seld þilfarspláss. ( meiri hluta
klefanna er hreinlætisaðstaða.
Um borð er bæði vandað veit-
ingahús og veitingabúð, einnig
þjónustumiðstöð þar sem er
banki og simstöð, verslanir,
þ.á.m. frihafnarverslun, kvik-
myndasalur, sundlaug og
saunaböð. Þá má nefna spila-
sveit skipsins leikur, og diskó-
tek sem jafnframt er nætur-
klúbbur. Barir eru 6 talsins. Sér-
stakt leiksvæði er fyrir böm og
barnagæsla er á staðnum.
Læknisþjónusta er auk þess í
skipinu.
Allar timasetningar hér að ofan
eru staðartimar.
Farþegar án ökutækja komi til
skips minnst 2 klst. fyrir brottför.
Akandi farþegar mæti við skip
minnst 1 'k klst. fyrir brottför.
Hópferðabifreiðar séu við skip
minnst 2 klst. fyrir brottför.
( Bremerhaven liggur m/s Edda
við Columbus Quay. Reglu-
bundnar jámbrautarferðir eru
milli skips og brautarstöðvarinn-
ar i Bremerhaven.
( Newcastle (North Shields)
liggur m/s Edda við Tyne
Commission Quay u.þ.b. 13 km
fyrir austan miðborgina. Beinar
vagnferðir eru frá skipshlið til
aðalbrautarstöðvarinnar.
( Reykjavík liggur m/s Edda við
Kleppsbakka í Sundahöfn.
m/s EDDA
víti, dansstað, þar sem hljóm-
U/H BORÐI CtSTISKIPI:
OPNAÐ
Skrifstofur í Aöalstræti 7.
Veitum allar upplýsingar um feröir
m/s Eddu, tökum viö farpöntunum
og gefum út farseðla.
Síminn er 25166.
FARSKIP
, VSWWO
19(11)8) FERÐASKRIFSTOFA FIB
Samvinnuferdir - Landsýn
N^omo6"*>-