Morgunblaðið - 16.01.1983, Side 8

Morgunblaðið - 16.01.1983, Side 8
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 Tekst tennisstjörnunni Borg að kom- ast aftur á toppinn eftir hvíldina? Hcimspressan beið. Blaöamenn gengu óþreyjufullir í kring- um marmarasúlurnar í móttökusal Tuborg-verksmiðjanna, litu á úrin sín, en einblíndu þess á milli á hurðina inn í salinn. Það var komið hálftíma framyfir tilsettan tíma þegar hinir óþolinmóðu menn gátu loks varpað öndinni léttar. Þarna kom hann. Loftljósin voru slökkt, en við tóku öflug Ijós sjónvarpsmyndatökumanna. Fyrstur kom skipuleggjandinn, Ole Fredriksen, en á hæla hans kom hann sjálfur, feiminn að vanda, og brosti út í annað munnvikið, gamla skábrosinu. Björn Borg var kominn aftur. Það má segja að hann hafi unnið þennan blaðamannafund, án þess þó að segja nokkuð — en tapaði síðan kvöldið eftir sínum fyrsta tennisleik í fjóra og hálfan mánuð, fyrir vini sínum Vitas Gerulaitis í KB-höllinni. Þetta var auðmýkjandi viðureign. Fyrir Gerulaitis var þessi leikur eins og létt æfing, og hann þurfti hálfvegis að rétta boltann upp í hendurnar á Borg til að leiknum lyki ekki hreint smánarlega snemma. Hefði hinn ameríski Gerulaitis tekið á í ieiknum myndi Borg að öllum líkindum hafa fengið flcstalla aðgöngumiðana yfir sig, eða samtals 3.000 stykki. ið á árunum 1975 til 1981 og sigrað sex sinnum í París og fimm sinn- um á Wimbledon. Til að öðlast þátttökurétt í þessum mótum var Borg gert að fara í nokkurs konar forkeppni, sem hann mótmælti harðlega, og varð til þess að hann fékk ekki að vera með. Krafa frá mótshöldurum, og þar með enda- lok hjá Birni Borg, sem gerði árið 1982 dapurt hvað varðar tennis- íþróttina. Björn Borg var orðinn þreyttur á tennis þegar hann á síðasta ári ákvað að taka sér langt frí. Þreyttur á að útlista sigra sína — og ósigra. Það er enginn vafi leng- Byrjað á aö hrapa Allir vildu vera viðstaddir endurkomu meistarans. í stað þess að sjá hann sigra urðu menn vitni að því að sjá Borg sendan niður á botninn, sjálfan snilling- inn sem átti að vera einn af 3—4 bestu tennisleikurum heimsins. Nokkuð sem menn áttu alls ekki von á, en komust hins vegar að raun um hið sanna er hann þrem vikum síðar tilkynnti að hann ætl- aði sér ekki að taka þátt í Wimble- don-leikunum né heldur hinu opna franska meistaramóti í Roland Gorros í París. Á þessum mótum hafði Björn Borg verið aðalnúmer- Nú hefur Björn Borg ákveðið að hefja keppni á nýjan leik og komast aftur í fremstu röð. Þeir sem þekkja til hans segja að honum takist það. Hann er engu líkur. Hann er bæði metnaðargjarn og skapmaður mikill. Hér má sjá kappann á fullri ferð með spaðann og víst er að enginn stenst honum snúning ef hann kemst aftur í sína bestu æfingu. Eiginkona Björns Borg, rúmenska stúlkan Marianna, fylgist með honum í hverri keppni. Hún er sjálf mjög góður tennisleikari. ur á því að þegar hann tapaði fyrir John McEnroe árið 1982 á Wimbledon-leikunum var stundin runnin upp. Hann var ekki lengur hinn ósigrandi, og þar með var ómannlegu fargi af honum létt. En samfara þessum létti missti Borg nokkuð af þeim eiginleikum sem þarf til að einbeita sér. Hann átti alla vega erfitt með að koma þessum eiginleikum á framfæri eftir þetta og tapaði leikjum sem hann annars hefði átt að vinna auðveldlega. í Hvíta húsinu Björn Borg dró sig til baka og settist að með Maríönnu í Monte Carlo. Nú átti að slappa af, taka sér tíma til að sinna þeim unaðs- semdum sem setið höfðu á hakan- um síðan hann var 14 ára. Þetta frí fór nú samt á annan veg en ætlað var. Dagarnir í lúxusíbúðinni í para- dís milljónamæringanna urðu fá- ir, en með hverjum deginum sem leið lengdist hins vegar listinn yfir þá er vildu fá Borg til sín í heim- sókn eða trufla hann á annan hátt. Eftir að hafa verið heiðursgestur í fjölmörgum stórkarlaveislum í Svíþjóð, Monaco og Bandaríkjun- um, heimsótti hann Ronald Reag- an í Hvíta húsið, tók þátt í góð- gerðarsýningum í fleiri löndum og margt fleira. Svo gerðis það að Maríanna varð veik. Reyndar var hún ekki eins alvarlega veik og fjölmiðlar skýrðu frá. Veikin lýsti sér sem nýrnasteinar, en í mildara lagi, og var unnið á sjúkdómnum með frekar lítilli aðgerð. Eigi að síður var þetta áfall þungur sálrænn baggi fyrir bæði að bera, og hefur án efa sett strik í reikninginn. Björn hafði einnig í hyggju að halda sér við með æfingum í þessu fríi, og hafði gert áætlun í því efni. Áætlun sú fór fyrir ofan garð og neðan. Fyrst og fremst átti að taka fyrir tennistímana, en hann gat heldur ekki skokkað né spilað íshokký eins og hann hafði vonað. Hins vegar gafst tími til að skrifa langar greinar í tennistímarit, og í einni þessara greina segir Borg m.a. af hverju hann leggur svo mikið uppúr íshokký í æfingum sínum. „Ungur maður sem er að byrja að spila ætti að æfa eitthvað annað en tennis með, og einmitt íshokký ættu menn að velja fram yfir allt annað. Persónulega er ég handviss um að ég hefði aldrei náð jafn langt og raun ber vitni, ef ég hefði ekki spilað t.d. íshokký eða fótbolta. Fyrir vikið fékk ég góða vöðva og mikla snerpu." Um keppendur í þungavigt hnefaleika er sagt að þeir stóru nái aldrei að snúa til baka eftir að þeir hafi tapað. Ef dæmi þessu er snúið upp á Björn Borg er fróðlegt að sjá hvað út kemur. Þegar hann var spurður árið 1978 eftir að hafa unnið Wimbledon-leikana þriðja árið í röð, hversu lengi hann reiknaði með að geta haldið sér á toppnum með stílhreinu spili. Hann svar- aði: „Þrjú ár, en í mesta lagi fimm.“ Síðan eru liðin fjögur ár og eitt er víst að Borg er ekki á toppnum. í dag segir Borg að hann reikni með að geta verið á toppn- um í minnst fimm ár í viðbót. Við þessi orð vill amerískur íþrótta- læknir bæta: „Ætli hann sér að verða á toppnum í fimm ár í við- bót verður hann að breyta stíl sín- um mikið, ella verður hann hreinn og beinn líkamlegur garmur." Fyrsta kastið mun Borg spila víða, en óneitanlega á afslappaðan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.