Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 55 Ein óbrigðul aðferð hefur að vísu alltaf verið til. ekki niður á gæðum þeirra, og átti þá við bragð sígarettanna og hversu meðfærilegar þær væru. Öryggiseftirlit með framleiðslu neyzluvarnings i Bandaríkjunum hefur lengi vel einblínt á þá vörn gegn eldsvoðum á heimilum sem felst í því að gera rúmföt og upp- stoppuð húsgögn óeldfim. Hús- gagnaframleiðendur hafa reynt ýmsar leiðir til að fara að tilmæl- um stofnunarinnar en að sjálf- sögðu eru gömul húsgögn jafneld- fim og áður. Þar að auki er gervi- efnið pólíureban, sem mikið er notað í kodda og púða i nýtízku- framleiðslu, afar hættulegt. Að vísu kviknar ekki auðveldlega í því út frá sígarettum, en ef eldur kemst í þessa plastkvoðu, brennur hún miklu hraðar en venjuleg uppstoppuð húsgögn og rúmfatn- aður. Hitinn verður ógurlegur og ýmis eiturefni leysast úr læðingi. Löggjafaþing í fimm bandarísk- um fylkjum fjölluðu á síðasta ári um frumvörp, sem leggja eiga framleiðendum þá skyldu á herðar að eldhætta stafi ekki af sígarett- um. Á þessu ári er gert ráð fyrir því, að sex fylki til viðbótar fjalli um svipaða löggjöf. — MICHAEL DECOURCY HINDS. Friðarsinnar: Oleg Popov og Yuri Orlov "OFSÓKNIR^™* Friðarsinnar hafa ekki frið fyrir yfiryöldum Sovéska friðarhreyfingin, sem stofnuð var í fyrra til að vinna að auknum skilningi milli Sovét- manna og Bandaríkjamanna, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Nú fyrir skemmstu hafði Tass-fréttastofan þau orð um frið- arhreyfingarmennina, að þeir væru „liðhlaupar og glæpamenn" en í þeirra hópi eru m.a. listamað- urinn Sergei Batovrin, sem nýlega var látinn laus af geðveikrahæli, og Yuri Medvedkov prófessor, sem nú er hafður í haldi í „stofnun fyrir andþjóðfélagssinnaða ein- staklinga". Medvedkov er land- fræðingur að metmt og hefur getið sér mikið orð fyrir kenningar sín- ar um sambúð manns og náttúru. Tass-fréttastofan var óvanalega harðorð í ummælum sínum um friðarhreyfinguna og líkti henni við andófsmenn, sem nú sitja á bak við lás og slá fyrir starfsemi sína. Friðarhreyfingin hafa hins vegar margtekið fram, að þeir séu ekki andófsmenn, heldur hafi þeir áhyggjur af kjarnorkuvopnunum og vígbúnaðarkapphlaupinu og vilji hafa samstarf við friðar- hreyfingar um allan heim. Frá því að friðarhreyfingin sov- éska birti stefnuskrá sína í júní sl., skömmu fyrir annan afvopn- unarfund Sameinuðu þjóðanna, hafa félagsmenn hennar sætt stöðugum ofsóknum. Sumir hafa verið fangelsaðir — ganga að vísu lausir nú — og aðrir hafðir í stofu- fangelsi um tíma. Þegar norrænar konur fóru um Moskvu í júlí sl. í friðarferð til nokkurra sovéskra borga, var þeim eindregið ráðið frá að reyna að hafa samband við sovésku friðarhreyfinguna. Sagt var, að þeir væru „mútuþegar vestrænna fjölmiðla og á mála hjá CIA“, bandarísku leyniþjónust- unni. Ein konan í hópnum lét sér þó ekki segjast, danska konan Dani- elle Grunberg, og tókst að ná fundi sex félagsmanna sovésku friðarhreyfingarinnar í íbúð Med- vedkovs. Eftir þann fund sagðist hún ekki efast um einlægan áhuga þeirra á afvopnun og bættum samskiptum þjóðanna. Tass-fréttastofan rússneska sagði einnig frá nokkrum andófs- mönnum, sem dæmdir hafa verið til langrar fangelsisvistar, en meðal þeirra er Yuri Orlov, for- maður Helsinki-nefndarinnar, sem árið 1978 var dæmdur í sjö ára vinnubúðavist og fimm ára út- legð að því loknu. Tass-fréttirnar munu vafalaust valda friðarsinnum í Evrópu og Bandaríkjunum vonbrigðum en þeir hafa verið að gera sér vonir um viðræður og gagnkvæm skoð- anaskipti jafnt við fulltrúa hinnar opinberu friðarhreyfingar í Sov- étrikjunum sem þeirrar óháðu. — JEAN STEAD ■6EN— Bretanum hefur tek- ist að rækta risamýs Breskir vísindamenn, svokallaðir erfðaverkfræðingar, hafa skap- að fyrstu risamúsina. Það gerðu þeir með því að splæsa saman sér- stakt músargen og annað, sem ýtir undir vöxt í rottum, og sprauta þessu síðan í frjóvgað músaregg. Útkoman var tröllamús, sem óx helmingi hraðar en systkini sín og vó að lokum tvöfalt á við þau. Þá var henni slátrað, tveggja vikna gamalli, til að vísindamennirnir gætu komist að því hvað hefði gerst innan í músinni. Igrædda genið hafði aukið mjög framleiðslu vaxt- arhormóna í líkamanum og þannig var það einnig með aðrar mýs, sem fengu sams konar meðferð. Þetta er í fyrsta sinn sem erfðum dýrs hefur verið breytt á svo rót- tækan hátt og eru nú menn að velta því fyrir sér hvort ekki megi nota svipaðar aðferðir við lækningu ým- issa sjúkdóma í mönnum. Framfarir í erfðaverkfræði ryðja einnig brautina fyrir erfðabúskap þar sem dýr, en ekki vélar, yrðu notuð til að framleiða mikilvæg efni eins og vaxtarhormón. Ef geng- ið er út frá því að þessari tækni megi beita við stærri dýr en mýs yrði þó fyrst hugað að því að nota hana við venjulegan búskap, t.d. nautgriparækt, og dýrin látin vaxa hraðar, verða stærri og mjólka bet- ur. Einnig mætti hugsa sér að skipt yrði um gen í mannsfóstri í til- raunastofum en dr. Jeffrey Willi- ams, erfðafræðingur, telur þó ólík- legt að til þess komi. Líklegra þykir honum, að þessi tækni verði notuð til að lækna erfðagalla í mönnum, t.d. dvergvöxt, með því að auka framleiðslu vaxtarhormóna í lík- amanum. - ANDREW VEITCH — ÁSTIN Elskendur eru eitur í þeirra beinum Innan tíðar verður ólöglegt fyrir fólk í Malaysíu að kyssast og sýna blíðuhót á almannafæri, því að ný siðgæðislöggjöf er þar í smíðum. Um þessa lagasmíð munu embætt- ismenn trúarlegra og veraldlegra yfirvalda í landinu sjá í samein- ingu. Ráðherra sá, sem ber ábyrgð á hinni nýju lagasetningu ætlar að leggja bann við kossum á almanna- færi, jafnvel í nafntoguðum ástar- lundum, svo sem í skrúðgörðum Ku- ala Lumpur. Lög þessi munu einnig ná yfir fólk, sem er „ósiðsamlega" til fara eða fáklætt, svo sem konur, sem eru berar að ofan á baðströndum, fólk, sem handtekið er í lastabælum og þá, er gerast svo djarfir að leggja kinn við kinn á aftasta bekk í kvikmyndahúsi. Þegar hefur verið rekið upp ramakvein gegn hinum væntalegu siðgæðislögum og erlendir sendi- fulltrúar segjast vera vantrúaðir á að þau nái tilgangi sínum. Einn þeirra sagði t.d.: „Það er einfaldlega ekki hægt að útrýma siðleysi með löggjöf." Sendifulltrúi frá Vestur-Evrópu- ríki, sem starfar í Kuala Lumpur segir að þessi væntanlega löggjöf sé fáránleg. „Ber að skilja þetta svo, að ég geti ekki lengur kvatt konu mína með kossi eða kysst hana í tilefni endurfunda á flugvellinum í borginni. Þessi lög munu verða til mikilla vandræða og óþæginda fyrir fjöldann allan af saklausu fólki, sem vinnur það eitt til saka, að sýna mökum sínum kærleiksat- lot.“ Framkvæmdastjóri bandarísks olíufyrirtækis var ómyrkur í máli er hann sagði: „Það er ferlegt, ef á að fara að halda aftur af mannlegu eðli á þennan hátt. Ætli verði svo ekki farið að grýta fólk til bana fyrir að hafa drýgt hór, eins og í forneskju." Allmörgum þykir sem ríkisstjórn Malaysíu sé ósamkvæm sjálfri sér. Á sama tíma og hún beitir sér fyrir sérstökum siðgæðislögum í anda Múhameðstrúar, hefur hún miklar tekjur af fjárhættuspili og áfengis- framleiðslu, en hvort tveggja er stranglega bannað samkvæmt trú- arbókstafnum. - ERROL DE SILVA ERMUM Næstu þrjá daga bjóðum við háum og stórum mönnum að líta við hjá okkur og skoða skyrtur sem hafa sérlega langar ermar og skyrtubol. STÓRGOTT VERÐ.. FYRER 1 MENN Sævar Karl Ólason Klæðskeri Laugavegi 51 Sími 13470

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.