Morgunblaðið - 16.01.1983, Page 29

Morgunblaðið - 16.01.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 73 VÉmucÁíiDi SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI m „Svona nokkuð get ég ekki skilið, hvers vegna fæðingarstyrkur er ekki í raun ein og sama upphæð til handa öllum konum, sem fæða af sér einstakl- inga fyrir þjóðarbúið ..." hvernig þær eru metnar þessar fáu húsmæður sem ekki er enn bú- ið að hrekja út af heimilinu? Svo er ég núna með barnabarn mitt sem er 11 mánaða gamalt.. Móðir þess vinnur á barnaheimili og þar eru margar deildir, m.a. vöggustofa. Hvernig er búið að þessari ungu móður af þjóðfélagskerfinu? Ja, hún vann þarna á þessari stofnun, á meðan hún gekk með þetta barn, en launin voru svo lág, að hún náði ekki lægsta skala fyrir láglauna- bæturnar, líklega vegna þess að hún vann ekki allt árið. En svo fæddist barnið, myndar- legur drengur, og hún fór aftur að vinna á barnaheimilinu. Nú hefði hún þurft að hafa litla barnið með sér á barnaheimilið. En hvað kem- ur í ljós? „Nei, þú færð ekki pláss fyrir hann, af því að þú ert í sam- búð.“ Svona nokkuð get ég ekki skilið, að stúlkum sé refsað, ef þær búa með barnsfeðrum sínum. Hún má drífa sig framúr rúmi og vekja litla barnið sitt 45 mín. fyrr á hverjum morgni en annars þyrfti, vegna þess að hún býr í austur- bænum, en ég í vesturbænum, og vinnan er í Langholtshverfi. Hún, láglaunamanneskjan, er talin það efnuð, þó að hún eigi ekki bíl og þurfi þess vegna að fara þetta allt i strætó, að hún er ekki talin þurfa á svona láglauna- scðlum að halda, en jafnvel þeir, sem í æðri stöðum eru en hún, hafa fengið svona blöð í hendur. Ég veit um einn mann, sem ekki hefir undir 15 þús. krónum á mán. og hans ektakvinna vinnur fyrir a.m.k. 10 þús. kr. á mánuði, en að mati stjórvalda eru þau svo illa stödd fjárhagslega að það var ómögulegt annað, svo að þau gætu nú haldið jólin hátíðleg, en út- hluta þeim á áttunda hundrað krónum, sem þau urðu alveg steinhissa á að fá. Þessi hjón, eins og margt annað útivinnandi fólk, geta borðað á sínum vinnustöðum og enginn þarf að borða heima á daginn. Eldhúsin geta staðið dauð og hrein allan daginn, ég tala nú ekki um sparnaðinn við að þurfa hvorki að kaupa í matinn né elda hann. Ég tala nú ekki um að kaupa og bera allt það heim, sem þarf til stórra heimila eins og er hjá mér. Og oft er þannig, að maður veit varla, hvort verið er að kaupa og elda fyrir 4 eins og opinber tala heimilisfólks er hjá mér, eða 6—8 manns. En að lokum: Ég þakka fyrir meðan ég finn að þörf er fyrir að ég veiti aðhald og öryggi, fyrir börn og barnabörn með því að vera „bara“ heimavinnandi hús- móðir. P.S. Fyrst ég er nú farin að hripa þessar línur á blað, þá get ég ekki látið hjá líða að minnast á eitt atriði, sem ég á svo bágt með að skilja og þar er enn eitt dæmið ljóslifandi um það hversu hús- mæður eru metnar sem 3. flokks verur. Það var víst ákveðið í sölum Alþingis. Hér á ég við fæðingarstyrkinn. Sem sagt: Ef ég bæri barn í þennan heim, ég sem ekki þigg laun og hef þar af leiðandi færri krónur milli handa en þær sem úti vinna, þá væri mitt framlag metið hjá því opinbera á kr. 3.300 á mán. í þrjá mán. Vinkona mín, sem ynni úti hálf- an dag og hefði því aðeins rýmri auraráð en ég, hún myndi fá mán- aðarlega úthlutað kr. 6.600 í 3 mán. Nú þær konur sem ynnu úti all- an daginn og hefðu þar með rýmst um hendur, þær fengju kr. 9.900 fyrir nákvæmlega sama verk og ég væri að inna af hendi fyrir þjóðar- búið. Svona nokkuð get ég ekki skilið. Hvers vegna er fæðingarstyrkur ekki í raun ein og sama upphæð til handa öllum konum, sem fæða af sér einstaklinga fyrir þjóðarbúið? Nóg heyrir maður um fóstureyð- ingar. Mér finnst að meta ætti alla þjóðfélagsþegna sem fæðast að jöfnu. Þessir hringdu Ábending til Sjónvarpsins Austfirðingur hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að koma á framfæri þakk- læti til Sjónvarpsins fyrir birtingu mynda af þorp- um í lok dagskrár í haust, og eins kirkjumyndum í jólamánuðinum. Þetta var svona spennandi getraun fyrir heimilisfólkið að geta upp á frá hvaða stað myndin væri. Væri ekki hægt að fá landslagsmyndir í dag- skrárlok á hverju kvöldi og birta ekki staðarnöfn fyrr en alveg í lokin, svo að áhorfendum gæfist tóm til að bera kennsl á staðinn? Ég veit að þessi siður var mjög vel þokk- aður hérna í kringum mig. Enn um Björn Pálsson fyrrv. alþingismann Magni Guðmundsson skrifar: „Velvakandi. Það hefir glatt mig að sjá, hversu margir hafa tekið eftir grein minni í Morgunblaðinu 2. des. sl. um Björn Pálsson fyrrv. alþingismann, og verðbólguvand- ann — og lagt orð í belg. Með sama áframhaldi verð ég senn álíka vinsæl persóna í dálkum Velvakanda og góðkunningi minn Árni Helgason í Stykkishólmi og dr. Benjámín H.J. Eiríksson. Einum pistilhöfundi, sem kall- ar sig Auðun Auðunsson, verður þó á í messunni. Hann vitnar í þessi orð mín: „Vissulega má eftir s2P S\G6A V/öGA Í 'íilveRAU Volvo, Cortina, Golf Það er Golf GTI (110 hestöfl). Nýlega innfluttur. Kom á götuna í júní 1977. Skoðaður 1983. Skipti hugsanleg. Ford Cortina 1,6 GL 1979. Ekinn 38 þúsund. Skipti hugsanleg km. Á sama staö er óskaö eftir Volvo ekki eldri en 1978. Upplýsingar í síma 17482. ýmsum leiðum tryggja peninga eldra fólks í bönkum og langtíma spariinnlán yfirleitt." Af þeim dregur hann þá ályktun, að ég sé á móti því „að greiða vexti af sparifé innlánseigenda" og á móti verðtryggðum lífeyri. Enginn maður með óbrenglaða skynsemi getur lesið slíkt út úr orðum mín- um. Ég hefi gagnrýnt almenna vaxta- og peningapólitík, sem hefir tvöfaldað verðbólgu á fáum árum, sligað atvinnurekstur og búið til kreppuástand í landinu. Um það efni hefi ég ekki mælt mitt síðasta orð. TOLVUFRÆÐSLA Bókhald með smátölvum Tilgangur námskeiðsins er að gefa L»»b«in«ndi: þátttakendum innsýn í og þjálfun við tölvuvætt fjárhags-, viöskiptamanna- og birgöabókhald og kynna hvaöa möguleikar skapast meö samtengingu þessara kerfa. EFNI: — Töluvæöing bókhalds og skrán- ingarkerfa. — Sambyggð tölvukerfi og möguleikar þeirra. — Æfingar og kennsla á tölvur. Námskeiöiö er ætlaö þeim aöilum er hafa tölvuvætt eöa ætla aö tölvuvæöa fjárhags-, viöskiptamanna- og birgða- bókhald sitt og einnig þeim sem vinna viö kerfiö á tölvurnar. Gert er ráð fyrir þekkingu í bókfærslu. Hilmir Hilmitton, viðskiptafraRðingur. Staöur: Ármúli 36, 3. hæö (gengiö inn frá Selmúla). Tími: 24.-26. janúar kl. 13.30—17.30. Ath: Fræöslusjóöur Verslunarmannafélags Reykjavíkur greiöir þátttökugjald félagsmanna sinna á þessu námskeiöi og skal sækja um þaö á skrifstofu VR. Kolbrún bórhalltdúttir Ritvinnsla II — Framhaldsnámskeið ETC-ritvinnslukerfiö Tilgangur námskeiösins er aö kynna til hlítar notkunarmöguleika ritvinnslu- kerfisins ETC meö þaö fyrir augum aö þátttakendur veröi aö loknu námskeið- inu færir um aö vinna flókin texta- vinnsluverkefni á ritvinnslukerfiö. Fariö verður yfir flókna eiginleika rit- vinnslukerfisins ETC, svo sem töflugerö og útreikninga innan þess texta sem veriö er aö vélrita. Námskeiðiö er ætlaö þeim sem þegar hafa sótt Ritvinnslu I og þeim sem nota ETC-ritvinnslukerfiö og vilja afla sér nánari þekkingar og þjálfunar á kerfiö. Ragna Sigurðardóttir Guöjohnsen Tími: 24.-27. janúar kl. 09.00—13.00. Staöur: Ármúli 36, 3. hæö (gengið inn fré Selmúla). Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags- ins í síma 82930. A STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS SIÐUMULA 23 SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.