Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 13
The Winds of War
Dýrustu þættir sem gerðir hafa verið
Þaö er sagt um ameríkana
að ráðist þeir í einhverjar
framkvæmdir, þá framkvæmi
þeir stórt. Þetta á óneitaniega
við um nýja framhaldsþætti,
sem sýndir eru þessa vikuna í
ABC-sjónvarpstöðinni í
Bandaríkjunum. Þeir eru sam-
tals um 18 klukkutíma langir,
og kostuðu í framleiðslu um
eða yfir 40 milljónir Banda-
ríkjadala. Sé þessi tala gerð
aö íslenskum krónum verða
þeir 760.000.000 að tölu. Til
samanburöar má geta þess,
að dýrasti togari Islendinga,
Hólmadrangur, kostaöi full-
búinn rúmlega 100.000.000 ís-
lenskar og þótti feikilega dýr.
Myndaflokkurinn dýri ber
nafnið „The Winds of War“, eöa
Vindar stríðsins í frekar ólist-
rænni þýöingu, og eiga að fá
ameríska sjónvarpsáhorfendur
til að stilla á ABC-stöðina
klukkan átta á hverju kvöldi sjö
kvöld vikunnar og ekki láta sér
detta í hug að stilla á aörar
stöövar. Því leikurinn er auövit-
að gerður til að laða áhorfend-
ur að ABC, sem hefur átt held-
ur á brattann aö sækja undan-
fariö hvað varðar áhorfenda-
fjölda.
Auglýsingar, sem settar
veröa inní þættlna kosta sitt.
Þannig kostar hálfrar mínútu
auglýsingatími 175.000 dollara,
Árásin á Pearl Harbor úr The Wlnds of War. Þættirnir aru sýndir
þessa viku (sjónvarpinu (Bandar(kjunum. Hvar þáttur tæpir þrfr
tímar að lengd.
en mínútan 350.000. Þaö þýöir,
að ef stööinni tekst að selja all-
an fyrirhugaöan auglýsingatíma
stendur hún uppi meö 32 millj-
ónir Bandaríkjadala. Þá vantar
8 milljónir enn til að fyrirtækið
borgi sig, en stöðin hyggst
næla í þær milljónir með endur-
sýningum þáttanna.
Handritið að þáttunum var
962 síður. I því var gert ráð fyrir
ekki færri en 1.785 atriðum,
285 hlutverkum og þúsundum
„stadista". Þættirnir voru teknir
á alls 267 stöðum i sex löndum
í tveimur heimsálfum. Þaö tók
þrettán mánuöi aö kvikmynda
þættina og tólf mánuöi aö
klippa þá, 50.000 búningar
voru saumaðir, þar af haföi
aðalleikarinn 112 föt til skipt-
anna. Þegar myndatökum var
lokið stóö leikstjórinn Curtis
uppi meö um 333.000 metra af
filmustrimlum, sem tæki 185
tíma aö rúlla í gegn á tjaldi.
Eftir klippingu var filman komin
í 27.000 metra lengd, sem tek-
ur 15 tíma að sýna, þrir tímar
fara í auglýsingar.
The Winds of War fjallar um
ameríska fjölskyldu, vini hennar
og kunningja í seinni heims-
styrjöldinni. Myndaflokkurinn
er gerður eftir samnefndri
metsölubók bandaríska rithöf-
undarins Hermans Wouk. Þaö
tók Wouk lungann úr sextán ár-
um að viöa aö sér efni í bókina
sína og aöra sem fylgdi í kjöl-
fariö, War and Remembrance.
Leikarar i þáttunum eru ekki
af verra taginu. Einn frægastl
kvikmyndaleikari Bandaríkj-
anna, Robert Mitchum, fer með
aðalhlutverkið. Hann leikur
Victor nokkurn Henry, yflrmann
Enginn má
sköpum
renna
Á mánudagskvöld verður
sýnd kanadísk sjónvarps-
mynd, Enginn má sköpum
renna (The Running Man).
Leiksjóri er Donald Brittain,
en í aðalhlutverkum Chuck
Shamata og Barbara Gord-
on. — Myndin lýsir vanda-
málum og hugarstríði kenn-
ara eins og fjölskylduföður
sem tekur kynbræður sína
fram yfir eiginkonuna. — Á
myndinni sem hér fylgir
með eru aöalleikendurnir,
Barbara Gordon og Chuck
Shamata.
MORGUNBLAÐIÐ, FöáTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
DAGANA
12/2-20
Jane í atvinnuleit
Sunnudagskvöldið 20. febrúar verður syndur þáttur í myndaflokknum Kvöldstund
með Agöthu Christie og nefnist hann Jane í atvinnuleit. I aðalhlutverkum eru Eliza-
beth Garvie og Andrew Bicknell. — Ungri stúlku býöst ævintýralegt starf og svimhá
laun — enda reynast vera maðkar í mysunni. — A myndinni er Elízabeth Garvie í
hlutverki Jane.
Loftfariö Zeppelin
Á laugardagskvöld í næstu viku verður sýnd bandarísk sjónvarpsmynd, Loftfarið
Zeppelin (Zeppelin), frá árinu 1971. Leikstjóri er Etienne Perier, en í aðalhlutverkum
Michael York, Elke Sommer, Peter Carsten og Marius Goring. — í fyrri heimsstyrjöld
er breskum liðsforingja af þýskum ættum falið að útvega upplýsingar um loftför
Þjóðverja. Hann verður leiðsögumaður um borð í Zeppelin-loftfari í ránsferð til
Skotlands.
ir klukkunum í Maríukirkju.
Þýðandi Jón O. Edwald.
23.35 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
13. febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja.
16.10 Húsiö á sléttunni.
Skrímslið í vatninu.
Bandarískur framhaldsflokkur.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.00 Listbyltingin mikla.
5. Þröskuldur frelsisins.
f þessum þætti fjallar Robert
Hughes um þrá mannsins eftir
óheftu frelsi og hvernig hún
fékk útrás í listsköpun með
súrrealismanum.
Þýðandi Hrafnhildur Schram.
Þulur Þorsteinn Helgason.
18.00 Stundin okkar.
Umsjónarmaður: Bryndís Schram.
Upptöku stjórnar Viðar Vík-
ingsson.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Glugginn.
Þáttur um listir, menningarmál
o.fl. Umsjónarmaður Aslaug
Ragnars.
21.35 Kvöldstund með Agöthu
Christie. 5. Hættumerkið.
Leikstjóri John Frankau.
bræður sína fram yfir eiginkon-
una.
Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
22.40 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDKGUR
15. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sögur úr Snæfjöllum
Barnamynd frá Tékkóslóvakíu.
Þýðandi Jón Gunnarsson.
Sögumaður Þórhallur Sigurðs-
son.
20.40 Á skíðum
Fyrsti þáttur.
Skíðakennsla ( þremur þáttum
sem gerðir voru í Kerlingarfjöll-
um í fyrrasumar.
Annar þáttur verður á dagskrá
Sjónvarpsins miðvikudaginn 23.
febrúar kl. 19.00.
22.05 Kjarabót láglaunamanna —
kaupauki hátekjumanna?
llmræðuþáttur ( beinni útsend-
ingu um láglaunabæturnar en
þær verða næst greiddar 1.
mars næstkomandi.
Umsjónarmenn: Erna Indriða-
dóttir og Rafn Jónsson.
Útsendingu stjórnar Sigurður
Grimsson.
23.10 Dagskrárlok.
AilÐMIKUDKGUR
16. febrúar
18.00 Söguhornið
Umsjónarmaður Guðbjörg Þór-
isdóttir.
18.10 Stikilsberja-Finnur og vinir
hans
Erjurnar enda
Framhaldsflokkur gerður eftir
sögum Mark Twains.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
18.35 Hildur
Fjórði þáttur. Endursýning.
Dönskukennsla í tíu þáttum.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Alsjáandi auga
Áströlsk heimildarmynd. Rakin
er saga njósna og eftirlits úr
lofti og gerð grein fyrir þv(
hvernig nú er unnt að fylgjast
með hverri hræringu á jörðu
niðri úr flugvélum og gervi-
hnöttum.
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
21.30 Dallas
Bandarískur framhaldsflokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.15 Landnám á Vesturbakkan-
um
Bresk fréttamynd um umsvif
ísraelsmanna á vesturbakka
Jórdan og áhrif þeirra á friðar-
Eldeyjarleiðangur
Sunnudagskvöldið 20. febrúar veröur sýnd kvikmynd sem hlotið hefur nafnið Eldeyjarleiðangur 1982. Þessi
kvikmynd er sú fyrsta sem gerð hefur verið um Eldey út af Reykjanesi. Sjónvarpið lét taka hana þegar Árni
Johnsen fór með leiöangur í eyna, m.a. skipaðan bjargmönnum úr Vestmannaeyjum. Leyfi Náttúruverndarráðs
þurfti til að klífa eyna þar sem hún er friðlýst. Þar er ein allramesta súlubyggð í heimi og eyjan sjálf merkilegt
náttúruundur, þverhnípt 70 m hátt standberg. Tilgangur fararinnar var auk kvikmyndunar vísindalegs eðlis. Tekin
voru jarðvegssýni og fjöldi súluunga merktur. Árni Johnsen samdi texta og er þulur. Kvikmyndun: Páll Reynisson.
Hljóð: Jón Arason. Umsjón og stjórn: Örn Harðarson.
horfur og framtíðarvonir Palest-
ínumanna.
Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
22.45 Dagskrárlok.
FOSTUDKGUR
18. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni
Umsjónarmaður Karl Sigtryggs-
son.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Prúöuleikararnir
Gestur ( þættinum er Chris
Langham, breskur spaugari.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.15 Kastljós
Þáttur um innlend og erlend
málefni.
Umsjónarmenn: Guðjón Ein-
arsson og Margrét Heinreks-
dóttir.
22.20 Hvað er svona merkilegt við
það ...?
(The $5.20 an Hour Dream).
Ný bandarísk sjónvarpsmynd.
Leikstjóri Russ Mayberry.
Aðalhlutverk: Linda Lavin og
Richard Jaeckel.
Myndin lýsir sókn einstæðrar
móður til jafnréttis við karl-
menn á vinnustað sínum í véla-
verksmiðju.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.55 Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
19. febrúar
16.00 íþróttir
llmsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.00 Hildur
Fimmti þáttur. Dönskukennsla
í 10 þáttum.
18.25 Steini og Olli
Konuríki. Skopmyndasyrpa
með Stan Laurel og Oliver
Hardy.
18.45 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður
Lokaþáttur
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
21.00 Loftfarið Zeppelin
(Zeppelin). Bandarísk sjón-
varpsmynd frá 1971. Leikstjóri
Etienne Perier.
Aðalhlutverk: Michael York,
Elke Sommer, Peter Carsten og
Marius Goring.
í fyrri heimsstyrjöld er bresk-
um liðsforingja af þýskum ætt-
Hvað er svona
merkilegt
við það ... ?
Á föstudagskvöld í næstu viku verður sýnd ný bandarísk
sjónvarpsmynd, Hvað er svona merkilegt við það ... 7
(The $ 5.20 an Hour Dream). Leikstjóri er Russ Mayberry,
en í aðalhlutverkum Linda Lavin og Richard Jaeckel. —
Myndin lýsir sókn einstæðrar móður tii jafnréttis við
karlmenn á vinnustaö sínum í vélaverksmiðju. — Á
myndinni hér fyrir ofan eru Linda Lavin og Richard Ja-
eckel í hlutverkum sínum.
16.00 Sunnudagshugvekja
Séra Jón Bjarman flytur.
16.10 Húsið á sléttunni
Hlöðubruninn
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.00 Listbyltingin mikla
6. Horft af brúninni
í þessum þætti fjallar Robert
Hughes einkum um expression-
ismann í málaralist.
Þýðandi Hrafnhildur Schram.
Þulur Þorsteinn Helgason.
18.00 Stundin okkar
Umsjónarmaður Bryndís
Schram.
Upptöku stjórnar Viðar Vík-
ingsson.
18.55 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
Umsjónarmaður Guðmundur
Ingi Kristjánsson.
20.50 Glugginn
Þáttur um listir, menningarmál
og fleira.
Umsjónarmaður Sveinbjörn I.
Baldvinsson.
20.30 Eldeyjarleiðangur 1982
Þessi kvikmynd er sú fyrsta
sem gerð hefur verið um Eldey
út af Reykjanesi. Sjónvarpið lét
taka hana þegar Arni Johnsen
fór með leiðangur í eyna, m.a.
skipaðan bjargmönnum úr Vest-
mannaeyjum. Leyfí Náttúru-
verndarráðs þurfti til að klffa
eyna þar sem hún er friðlýst.
Þar er ein allramesta súlubyggð
í heimi og eyjan sjálf merkilegt
náttúruundur, þverhnípt 70
metra hátt standberg. Tilgangur
fararinnar var auk kvikmynd-
unar vfsindalegs eðlis. Tekin
voru jarðvegssýni og fjöldi súlu-
unga merktur.
Árni Johnsen samdi texta og er
þulur.
Kvikmyndun: Páll Reynisson.
Hljóð: Jón Arason.
Umsjón og stjórn: örn Harðar-
son.
22.10 Kvöldstund með Agöthu
Christie
6. Jane (atvinnuleit
Aðalhlutverk Elizabeth Garvie
og Andrew Bicknell.
Ungri stúlku býðst ævintýralegt
starf og svimhá laun — enda
reynast vera maðkar f mysunni.
Þýöandi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.05 Dagskrárlok.
Robert Mitchum fer moð aðal-
hlutverkið ( þáttunum Tha
Wind of War og fær eina millj-
ón dollara fyrir viKið.
í bandaríska flotanum. Ali
MacGraw leikur gyöingastúlku
aö nafni Natalie Jastrow, Jan-
Michael Vincent leikur son
Henrys, John Houseman leikur
föður Nataliu og þannig mætti
lengi telja. Mjög viöurkenndir
leikarar fara með hlutverk
stríðsherranna Hitlers, Stalíns,
Roosevelts, Mussolinis og
Churchills. Howard Lang heitir
reyndar sá sem leikur þann síö-
astnefnda, en hann þekkja ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur úr
geysivinsælum þáttum um
Onedin-skipafólaglð. Lók hann
þar kaptein Baines, rustalegan
stýrimann hjá Onedin.
Það hlýtur að vera nokkur
áhætta aö ráðast í gerö svona
rándýrra sjónvarpsþátta og
viðurkennir forstjóri ABC-
stöðvarinnar, Fred Pierce, það
SJONVARP
Ali MscGraw, fymim kona
Steva McQueen, far mað atórt
hlutverk í myndaflokknum.
fúslega. Hans mesta áhyggju-
efni þessa vikuna er eflaust þaö
hvort sjónvarpsáhorfendur í
Bandaríkjunum muni dunda sér
við að horfa á eitthvað annað í
sjónvarpinu á kvöldin. Kannski
horfa þeir eftir allt á gamla
góöa Dallas eöa Magnum, Pl
hjá CBS, eöa Hill Street Blues
hjá NBC. Kannski kveikir fólkið
bara á myndbandinu sínu og
horfir á gamla bíómynd eða fer
í myndbandaleiki. Kannski
grípur þaö bók í hönd, þá
gjarna Ijóöabók, þó þaö finni
ekki hina rennandi mýkt stuöla
og höfðustafa í neinum af sín-
um kverum.
Þá má forstjórinn, herra
Pierce fara aö naga á sér negl-
urnar.
Arnaldur Indriðaaon.
um falið að útvega upplýsingar
um loftfor Þjóðverja. Hann
verður leiðsögumaður um borö (
Zeppelin-loftfari ( ránsferð til
Skotlands.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.40 Taglhnýtingurinn
(11 conformista) Endursýning.
ítölsk bfómynd frá 1970 géfð
eftir skáldsögu Albertos Mora-
via.
Handrit og leikstjórn: Bernardo
Bertolucci.
Aðalhlutverk Jean Louis Trint-
ignant.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
Áður sýnd ( Sjónvarpinu 16.
desembier 1978.
00.30 Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
12. febrúar
16.00 íþróttir.
Umsjónarmaó!!!- Bja,,n Felix-
son.
18.00 Hildur.
Fjórði þáttur.
Dönskut unsla áu þáttum.
18.25 Steini (>ili.
Dáðadrengir.
Skopmyndasyrpa með Stan
Laurel og Oliver Hardy.
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
18.45 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður.
Bandarískur gamanmynda-
fíokkur.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.00 Danskeppni í Duisburg.
Heimsmeistarakeppni áhuga-
manna í samkvæmisdönsum
1982.
(Evróvísion — Þýska sjónvarp-
ið.)
22.00 Hringjarinn frá Notre Dame
(The Hunchback of Notre
Dame).
Bandarísk sjónvarpsmynd frá
1982 eftir skáldsögu Victors
Hugo. Leikstjóri Michael
Tuckner. Aðalhlutverk: Anth-
ony Hopkins, Derek Jacobi,
Lesley-Anne Down og John
Gielgud.
Sagan gerist í París á 15. öld og
segir frá heyrnarlausa kryppl-
ingnum Q^asimodo, sem hring-
Þegar Dermot West sér fyrir
sér rauða merkið er ævinlega
hætta á ferðum — jafnvel lífs-
hætta.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.25 Vínartónlist.
Sinfóniuhljómsveit íslands leik-
ur Vínarlög. Stjórnandi Páll
Pampichler Pálsson. Einsöng-
vari Sieglinde Kahmann. Upp-
töku stjórnaði V'iðar Víkings-
son. 23.05 Dagskrárlok.
AlhNUD4GUR
14. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Tommi og Jenni
20.40 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
21.15 Já, ráðherra
Annar þáttur. Opinber heim-
sókn.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sjö þáttum um raunir nýbakaðs
ráðherra.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.45 Enginn má sköpum renna
(The Running Man)
Kanadi.sk sjónvarpsmynd.
Leikstjóri Donald Brittain.
Aðalhlutverk Chuck Sharoata
og Barbara Gordon.
Myndin lýsir vandamálum og
hugarstríði kennara eins og fjöl-
skylduTöður sem tekur kyn-
SUNNUD4GUR
20. febrúar
GUÐAÐ Á SKJÁINN