Alþýðublaðið - 20.08.1931, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.08.1931, Blaðsíða 3
A&feSÐUBfcAÐlÐ Ræhtnnarmál og menning borgarbúa. IV. Kolonigarðar eða félagsgarðar. Kolonigarðar eru ræktuð lands- svæði í útjaðri borganna. Bæjar- félögin brjóta landið, girða, leggja í pað vegi og ræsa pað fram. Siðan er landinu sk:ft í reiti ca. 20X20 m. og hver reitur leigður fjölskyldu. sem annars á engan kost á að hafa lsndssvæði til um- ráða, sér til nytja og heilbrigðis. Um síðustu aldamót fóru ná- grannapjóðir vorar að koma á fót félagsgörðum við borgir og bæi. Þessum görðum fjölgaði brátt, og nú er svo komið að nær hver bær á fleiri félagsgarða- hverfi. Við félagsgarðana eru starf- ræktir barnaleikvellir. í görðum pessum dvelur heimilisfólkið sum- ar langt, Býr par í iitium húsum eða tjöldum. Mæður og börn, dvelja par all- an daginn sumarlangann, en heimilisfaðirinn og annað starfandi heimilisfólk, er vinnur í borginni flýtir sér pangað út í frístundum sínum og teigar hreint loftið inn- an um grænar jurtir. Félagsgarðahverfin setja sinn svip á bæinn og bæjarlífið, og mörgum ferðalanginum hefir farið svo, að honum hefír fundist fél- agsgarðahverfið vera unaðslegasti staður borgarinnar. Nú vill pað svo til, að einmitt um sama leyti og skriður fer að komast á skólagarðamálið erlend- is var félagsgarði mælt út lands- svæðí hér í Reykjavik. E>að var um siðustu aldamót og mátti pað teljast vonum fyr. Garðurinn var nefndur Alda- mótagarður. Hann er ca. 21/* h. a, að stærð og honum er skift í 60 reiti. Garðinum var valið hið ágæt- asta hvað legan og jarðveg svert- ir. Hann var vel skipulagður. E>ar var gert ráð fyrir vegum og sæmi- legri girðingu. E>essi stofnun Aldamótagarðsins bar vott um skilning og atorku ráðandi manna á pessum tíma. En síðan eru liðin rúm 30 ár, og pað væri synd að segja að Aldamötagarðurinn haf átt sjö dagana sæla, öll pessi árhvaðað- búnað bæjarfélagsins snerti. Nú er garðurinn hinn óásjáleg- asti, og biður engin skilyrði til að laða að sér leigendur, og gera peim veru sína í garðinum hug- ljúfa Girðingin utan um garðin er Ijótari og lélegri en girðing gerist nú alment á harðbala koti upp í afdal. Engir vegir og ónög fram- ræsla. En fuít er par af auðvirði- lega lélegum og ljótum milli- girðingum. Rétt er pað að öll pessi ár hef- ir verið í mörg horn að líta fyrir bæjarsjóðinn, enda hefir Aldamóta- garðurinn sennilega verið hafður á hakanum. Svo búið má ekki lengur standa. Bærinn verður að leggja riflega fjárupphæð til pessarar pörfu en vanræktu stofnunnar. Hér skulu leidd nokkur rök fyr- ir nauðsyn pessarar stofnunar og tilveruréttar hennar. Nú er loksins farið að byggja verkamannabústaði, og nú fyrst er farið að byggja ánægjuleg og fögur borgarhverfi, s. s. Sólvellina, hverfið suðvestan í Skólavörðu- holtinu sunnan til, og fleiri slík. En um ófyrirsjáanlega framtíð mun fólk verða að búa áfram við götur eins og Haðarstíginn, Njarðargöt- una, Grettisgötuna, Njálsgötuna og allar pessar mörgu götur sem byggt var við af skammsýni og flónsku. E>að er skylda bæjarfélagsins að bæta fyrir brot sín við petta fólk, sem búa verður í pröngum hverfum í lélegum sólarlitlum ibúðum prátt fyrir pótt aðrir flytji í Verkamannabústaði og nýtízku borgarhverfi. V. Bæjarfélagið á pví pegar í stað að gjöra Aldamótagarðinn að nýtízku félagsgarði, 12—15 pús- undir mundu hrökkva langt til girðingar og vegalagninga. E>ann kostnað mundi garðurinn endur- greiða að einhverju leyti með öllum sínum grjóthrúgum og görðum Síðan pyrfti bærinn að láta smíða 60 smá hús úr timbri, sem hvort um sig væri 3X4 m. 1 her- bergi og lítið eldarúm, og eitt gott almennings tojlett og pvotta- hús. Hvort pessara litlu húsa myndi ekki kosta bæjarfélagið meira en 5—6 hundruð krónur, væri hag- sýni gætt og pau smiðuð öll á sama tíma. Kostnaðurinn við allar bygging- arnar yrðu pá ekkí meiri en 30— 40 púsundir króna. Húsin, girð- ingin og vegirnir mundu pá ekki fara fram úr 60 púsundum eða pá hver reitur uppkominn með litlu sumarhúsi 1000,00 krönur. Væri nú reiturinn leigður á 60 kr. yfir alt sumarið, virtist bæjarfélag- ið fá nægar rentur af pví fé sem lagt væri í petta menningar fyrir- tæki. En hvað gæfi svo stofnun pessi bæjarbúum í beinan og óbeinan arð. Beini arðurinn, sem fengist með aukinm ræktun garðávaxta mundi svara rentum af miklum hluta höfuðstölsins, en hinn óbeini arðnr yrði ömetanlegur. E>ess skal og gætt að mestur hluti af útlögðum eyri fyrir bæjar- félagið yrði vinna, en meginið af vinnunni s. s. smíði mætti vinna að vetri er annars er skortir á atvinnu. Gjörum ráð fýrir að 5 manna fjölskyldur kæmu til með að njóta hvers reits, fengi 300 manns betri lífsskilyrði en nú hafa peir til auk- innar menningar — meira sólar- ljós, meiri lífsgleði. — Auðvitað er petta ekki mikill fjöldi fólks, en petta yrði að eins fyrsta fél- agsgarðahverfið, og ef horfið yrði að pessu ráði, myndi brátt rísa stór svæði pvi lík suður í Foss- vogi, par sem skilyrði fyrir félags- garðarækt hin allra ákjósanleg- asta. VI. Greinabálk penm hefi ég ritað fyrst og fremst vegna minnar eig- in stéttar, alpýðufólksins í pessum bæ. Alpýðufólkið verður harðast úti hvað allan útbúnað snertir, og fyrir alpýðuna yrði mestur fengur til menningarauka ef starfræktar yrðu slíkar stofnanir er ég hefi lýst í greinum pessum. Bakkabræður reyndu forðum að bera sólarljósið inn til sin í húf- unum. Þegar sólin nær ekkl að skína inn til vor, flytjum við út á jörðina og út í sólskinið. Byggjum par ungbarnagarða, leikuelli, skölagarða og félags- garða. E>essi mál, eins og öll önnur umbótamál alpýðunnar, eru henn- ar eigin mál. Alpýðan sjálf ber pau fram til sigurs og enginn ann- ar en hún, öðrum getur hún ekki treyst. Arngrímur Kristjánsson. H. G. Wells: .HugleiSlngar nm skóna'. [Það sýnist ekki vera mikið sam- hengi milli skónna okkar og hug- sjóna jafnaðarstefnunnar. Það myndi ekki öllum pykja -trúanlegt, að hægt væri að finna mikil rök fyrir pví, hvort skynsamlegra sé og réttlátara einstaklings-„framtak“ og eignarrétt- ur eða ríkiseign og ríkisrekstur, með pví að virða fyrir sér skakka, snúna og botnlausa skó fátæklinganna. En pað, sem séð er, fer eftir augunum, sem sjá. Um hinn viðfræga, sænska jafnaðarmannaforingja Hj. Branting var einhvern tima sagt, að hann sæi alla hluti gegnum stækkunargler jafnaðarstefnunnar. Enska stórskáldið H. G. Wells hefir horft gegnum pað gler á skóna okkar, og raeð pað fyr- ir augunum hefir hann skrifað „agi- tations“-rit sitt um jafnaðarstefnuna, sem frægt er orðið. Hér fer á eftir útdráttur úr bókinni og iausleg pýðing á sumum köflum hennar] Fyrst lýsir Wells öllum peim kvölum, sem skórnir geta valdið: eymslum í tábergi, aflöguðum tám, líkþomum, óþægindunum við að ganga á skökkum hæluim eða á nöglum, sem koma upp úr sólunum, o. s, frv. Ölfu þessu lýsir hann svo vel, að hinn lærð- asti sikósmiður myndi tæplega bomast þangað með tærnar, sem Wells hefir hælana. En hann er fljótur að komast að niðurstöðu um það, að ekki þurfa allir að búa við skókreppu eða hða skó- íatnaðarkvalir. Hann veit, að það eru þeir fátæku, sem oftasl verða að ganga með skó, sem ekki eru þeim mátulegir, „og bíða þess með heimspekiligri auðmýkt fá- tæktarinnar, að Jieir sjálfir verði mátulegir fyrir s.kóna“. Hann veit ofur vel, að það eru ekki allir, sem þjásit af slæmum skóm eða skóleysi, — að það eru að eins þeir,sem lent hafa forsælumegin í heimi, þar sem þjióðbúskapurinn er illa rekinn. „Og það, sem ég hefi sagt um sfcóna, á hka við um alla aðra smámuni í lífinu. Ef konan þín ofkælist vegnia þess, að skórnir hennar draga vatn, eða hún kvíðir fyrir að láta sjá sig á götunni vegna þess, hve tötraleg hún er, — ef börnin þín líta óþriflega út vegna þess, að þau eru bólgin í framan af tannpínu, eða af því, að fötin þeirra eru óhrein, gömul og fara illa, — ef þú ert önuglyndur og hættir við að raiðast af öllu vegna þess, að þig skortir hollar skemtanir eða hreint andrúms- loft, — láttu þá ekkert augnablik blekkja þig til að trúa því, að þetta sé ömurlegt hlutskifti allra mamm. Segðu aldrei: „Svona er lífið!“ Þá víkur Wells að því, hvernig bæta megi úr þessu ástandi, og fsiegir: „Gerðu þér í hugarlund að þú sjálfur vildir fara að skipu- leggja eins konar ókeypis útbýt- ingu á skóm, og hugsaðu þér alla þá erfiðleika, sem þú myndir mæta. Þú myndir byrja á að skygnast um eftir miklu af skinn- um. Imyndaðu þér áð þú snérir þér til Suður-Ameríku og byrj- aðir á að láta slátra þar dýrum og flá þau. En þá er tekið fram fyrir hendurnar á þér. Hér kemur fyrsta hindrunin í mynd og lík- ingu manns, sem segir þér, að skepnurnar og skinnin séu eign hans. Þú útlistar fyrir honum, að skinnin séu nauðsynleg fyrir fólk heimia í þinu landi, sem ekki; eigi almennilega skó. Hann svarar, að hann kæri sig ekki baun um til hvers þú ætlir skinnin, en áður en þú fáir þau, verðir þú að gera svo vel og borga þau, því skinnin séu einkaeign hans,, hjarðirnar séu það líka og engin, þar sem þær séu á beit. Þú spyrð hvað mikið hann vilji fá fyrir þau og hann beimtar nákvæmlega eins mikið og hann getur látið þig borga imest. . . , fmyndaðu þér að þú segir við hann: „Hvernig hafið pér komist yfir þessar engj- ar og þennan fénað, svo að þér getið tekið yður stöðu milli þeirra og fófksins, sem þarf þeirra með, og heimtað þennan ágóða.“ Annað hvort myndi hann Jtoma með langa orðafiækju, eða, og það er miklu siennilegra, reið- ast og neita að rökræða. . . . Nú, seinna yrðir þú aö fá skinnin þin hingað ög þú yrðir að flytja þau með járnbraut og skipi. Og nú myndir þú aftur rekast á menn, sem ekki hefðu minstu löngun til að hjálpa fyrir- tæki þínu, menn, sem standa i vegi fyrir þér, ákveðnir í að

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.