Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 61 hvert viðamesta verkefni hennar er í sambandi við úthlutun ör- yrkjabifreiða, .þar fer einnig fram margskonar upplýsinga- og þjónustustarfsemi við öryrkja, er til skrifstofunnar leita, ásamt fyrirgreiðslu og aðstoð við þá, sem i íbúðum bandalagsins búa. Lögfræðiþjónusta ÖBÍ hefur verið starfrækt af Halldóri S. Rafnar í 7 ár. Þar er öryrkjum veitt ókeypis ráðgjöf og aðstoð. Aðalmál lögfræðiþjónustunnar eru skattamál og tryggingamál. f skýrslu formanns stjórnar hússjóðs kom fram að hússjóður hefur nú byggt þær 250 leigu- íbúðir, sem ákveðið var 1966 að byggðar yrðu. íbúðir hússjóðs eru í fjórum háhýsum, þrem við Hátún 10, 10A og 10B með 209 íbúðum og einu í Fannborg 1 í Kópavogi með 41 íbúð. Auk þess á hússjóður nokkrar íbúðir í íbúðarhverfum í Reykjavík. All- ar íbúðir hússjóðs eru leigðar ör- yrkjum eða öldruðum. Aðal- Viðfangsefnum Öryrkjabandlags- ins fjölgar og störfin ört vaxandi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Öryrkjabandalagi íslands: Aðalfundur Öryrkjabandalags íslands var haldinn seint á síð- asta ári að Fannborg 1, Kópa- vogi. Aðildarfélög bandalagsins eru: Blindrafélagið, Blindravinafé- lagið, Félag heyrnarlausra, For- eldra- og styrktarfélag heyrn- ardaufra, Geðverndarfélag ís- lands, Gigtarfélag fslands, Heyrnarhjálp, Samband ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, Sjálfsbjörg, Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra og Styrktarfé- lag vangefinna. Tilgangur Öryrkjabandalags- ins er, samkvæmt lögum þess: 1. að koma fram fyrir hönd ör- yrkja gagnvart opinberum að- ilum, 2. að reka skrifstofu fyrir ör- yrkja er veiti þeim upplýs- ingar og félagslegra aðstoð, 3. að eiga hlut í félögum, sem hafa viðráðanleg verkefni handa öryrkjum, 4. að koma á samstarfi við fé lagasamtök erlendis, er vinna á líkum grundvelli og hagnýta reynslu þeirra í þágu banda- lagsins, 5. að vinna að öðrum sameigin- legum málum öyrkja. Á aðalfundinum flutti formað- urinn, Arinbjörn Kolbeinsson, skýrslu stjórnar. Þar kom fram að viðfangsefnum Öryrkja- bandalagsins fer fjölgandi ár frá ári og störfin þar af leiðandi ört vaxandi. í því sambandi má nefna störf í nefndum og ráðum er varða á einn eða annan hátt réttindi fatlaðra svo sem endur- hæfingarráði, umferðarráði, samstarfsnefnd um atvinnumál fatlaðra, stjórnarnefnd um mál- efni þroskaheftra, ferlinefnd, alfanefnd, öldrunarráði, starfs- hópi um náms og endurhæfingu fatlaðra og fleira mætti til- greina. Mikið starf hefur verið unnið í sambandi við frumvarp til laga um málefni fatlaðra, þá er og mikið starf unnið í sam- bandi við sjálfseignarstofnanir bandalagsins, hússjóð og vinnu- stofusjóð. í skýrslu skrifstofunnar, sem er að stjórnað af Ásgerði Ingi- marsdóttur, kom fram að eitt- framkvæmdaverkefni hússjóðs ÖBÍ á tímabilinu milli aðalfunda hefur verið bygging svonefndrar tengiálmu; bygging, sem er kjall- ari og hæð, er tengir saman íbúðarhúsin þrjú í Hátúni 10. Á hæð tengiálmunnar, sem er 165 fm, verða öryrkjavinnustofur bandalagsins, skrifstofur, ým- iskonar þjónustuaðstaða, bóka- safn, lesstofur, heilsuræktar- aðstaða og fleira. Ætla má að verulegur hluti tengiálmunnar verði tekinn í notkun á þessu ári og mun þá starfsaðstaða banda- lagsins stórbatna og þjónustu- rými fyrir íbúa háhýsanna aukast til mikilla muna. Anna Ingvarsdóttir, fram- kvæmdastjóri vinnustofunnar Örtækni, flutti skýrslu um ör- yrkjavinnuna. 26 öryrkjar vinna að jafnaði á tæknivinnustofunni. Auk framleiðslu á gjaldmælum fyrir leigubifreiðir er jafnan unnið að verkefnum fyrir önnur rafeindafyrirtæki og nú er unnið að náinni samvinnu allra raf- eindafyrirtækja í landinu og stendur til að hlutur Örtækni verði stór í þeirri samvinnu sem samsetningaraðili. Auk raf- eindaiðnaðarins, er jafnan unnið að hreinsun og viðgerðum á simatækjum fyrir Landsíma ís- lands. Þetta verkefni fyrir Landsímann er bandalaginu ómetanlegur styrkur vegna at- vinnuöryggis, en verkefnaskort- ur háir oft öryrkjavinnustofum. Þess hefur áður verið getið að á fyrra ári gáfu hjónin Ingibjörg Hallgrímsdóttir og Björn Guð- mundsson Öryrkjabandalaginu saumastofu í fullum rekstri. Sú saumastofa er nú rekin af ÖBÍ, en mun flytja í nýtt húsnæði í tengibyggingunni fyrir mitt þetta ár. Vigfús Gunnarsson, formaður ferlinefndar flutti greinargóða skýrslu um störf nefndarinnar og framtíðarviðfangsefni, en Carl Brandt, annar ferlinefndar- maður, sýndi myndir þar sem vel mátti greina aðgengisörðugleika fatlaðra um eldri byggingar. I umræðum um skýrslur kom fram þakklæti til starfsfólks fyrir frábært vinnuframlag í þágu bandalagsins. Fram kom að þrátt fyrir ótvíræðan árangur af ári fatlaðra, þá væri langt í land að markmiðum ársins væri náð. Þörf væri stórátaks í ferli- málum, mennta- og atvinnumál- um öryrkja, svo nokkuð sé nefnt. JÖFUR HF. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 Amerískur og um það þarf ekki fleiri orö. 6 manna lúxus bíll Fulltverðkr. 462.380.- Sérstakurafslátturaf árg. 1982 88.210.- gengi 01.03. '83 374.170.- Litir: silfurgrár - dökkgrænn sanseraöur - drapplitur - dökkblár Framdrif - Vél 2200cc - Sjálfskipting - Aflstýri - Aflhemlar - Hituð afturrúöa - Electronisk kveikja Deluxe innrétting - Digital klukka - Fjarstýrður hliðarspegill - Litað gler

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.