Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 71 Steypuiðjan og Set með nýjungar í plast- slöngugerð hérlendis VERKSMIÐJURNAR Steypuiðjan sf. og Set hf. á Selfossi eru um þessar mundir að hefja framleiðslu á ýmsum gerðum af plastslöngum, sem hafa hingað til verið fluttar inn, að sögn Einars Elíassonar, framkvæmdastjóra beggja fyrirtækjanna. Hann sagði að framleiddar yrðu einfaldar glærar PVC-slöngur, nylon-ofnar þrýstislöngur fyrir loft, garðslöngur og fleiri gerðir. „Við byrjuðum framleiðslu á þess- um slöngum í desember sl. í nýj- um vélum, sem keyptar voru inn frá Ítalíu og hefur hún gengið von- um framar. Við munum því setja vöruna á markað á næstu dögum," sagði Einar. Þá sagði Einar að stefnt væri að því, að nægar birgðir lægju fyrir í vor til að fullnægja eftirspurn og reyndar væri stefnt að því að anna algerlega innlendri eftirspurn í framtíðinni. Slöngurnar verða framleiddar undir vöruheitinu SET-slöngur. Steypuiðjan sf. og Set hf. fram- leiða einnig PVC-raflagnarör í 6 víddum, einangruð hitaveiturör og tilheyrandi fylgihluti, steinrör og brunna til holræsalagna, PEH- hlífðarrör og fleira. Eins og áður sagði er Einar Elí- asson, framkvæmdastjóri beggja fyrirtækjanna, en framleiðslu- stjóri er Bergsteinn Einarsson. Hjá fyrirtækjunum vinna að stað- aldri 15—20 starfsmenn. Ritvinnslutæknin fer stöðugt meira inn í fyrirtæki og stofnanir Stjórnunarfélagið býður nú kennslu á 5 ritvinnslukerfum STJÓRNUNARFÉLAG íslands hefur undanfarna mánuði m.a. lagt ríka áhcrzlu á kcnnslu í ritvinnslu og hefur félagið, að sögn Árna Gunnarsson- ar, framkvæmdastjóra þess, komið sér upp fjölbreyttum búnaði og getur nú boðið kennslu og kynningu á 5 ritvinnslukerfum, sem í boði eru hérlcndis. „Mjög fer nú í vöxt, að fyrirtæki og stofnanir taki ritvinnslutækn- ina í notkun, enda eru á ferðinni byltingarkenndar breytingar á meðferð og vinnslu skjala. Mikilli hagræðingu má koma til leiðar og sparast mörg handtökin við endurritun bréfa og skýrslna. Nú er að ljúka á vegum félags- ins 5 námskeiðum í ritvinnslu, sem sérstaklega eru haldin fyrir embætti ríkisskattstjóra, en emb- ættið hyggur á notkun ritvinnslu á skrifstofum sínum um allt land. Kennt er á ritvinnslukerfið Scripsit II, en frágangur náms- gagna og kennslu á námskeiðun- um var í höndum Kolbrúnar Þór- hallsdóttur, ritvinnslukennara Stjórnunarfélagsins," sagði Árni Gunnarsson. Að sögn Árna fer það í vöxt að haldin séu sérsniðin námskeið fyrir félög og stofnanir. „Með slík- um námskeiðum næst oftast betri árangur en af opnum námskeið- um, þar sem hægt er að leggja megináherzlu á þarfir viðkomandi hóps og taka tillit til sérverkefna hans.“ á árinu 1981 og 13,1% á árinu 1980. Hlutur afurða skreiðarverkunar rýrnaði verulega á síðasta ári, eins og flestum er eflaust kunnugt um, en hann var um 4,5%, borið saman við 13,9% á árinu 1981 og 8,3% á árinu 1980. Hlutur landana veiðiskipa var um 4,7% á síðasta ári, borið sam- an við 3,1% á árinu 1981 og um 4,9% á árinu 1980. Þá má nefna afurðir hvalvinnslunnar, en hlut- ur þeirra á síðasta ári var um 1,5%, borið saman við 1,2% árið 1981 og 1,1% árið 1980. Hlutur landbúnaðarafurða rýrnaði á síðasta ári, þegar hann var um 1,3% borið saman við 1,4% árið 1981, en hann hafði þá rýrnað frá árinu 1980 úr 1,7%. Hlutur íslenzkra iðnaðarvara jókst nokkuð á síðasta ári, þegar hann var um 20,4%, borið saman við 18,3% á árinu 1981. Hlutur ís- lenzkra iðnaðarvara var á árinu 1980 um 20,6%. Stærsti hlutinn er afurðir álvinnslu, en hlutur þeirra var um 10,0% á síðasta ári, borið saman við c 7% á árinu 1981 og um 12,2% a árinu 1980. Hlutur afurða ullarvinnslunnar var á síðasta ári 4,6% og hafði vaxið úr 3,8% á árinu 1981. Hlutur afurða ullarvinnslunnar var um 3,6% á árinu 1980. Þá má nefna hlut kísiljárns, sem var um 2,9% á síðasta ári, en var til samanburðar 1,7% á árinu 1981 og um 1,8% á árinu 1980. Loks má nefna, að hlutur svo- kallaðra „ýmissa vara“ var á síð- asta ári um 1,4%, en var til sam- anburðar um 1,1% á árinu 1981 og um 1,7% á árinu 1980. Yitzak Navon forseti ísraels ræðir við Menachem Begin forsætisráðherra, eftir að sá fyrrnefndi kom úr heimsókn til Bandaríkjanna á dögunum. * Israel: Navon hættir sem forseti — fer hann í formannskjör hjá Verkamannaflokknum? YITZAK NAVON, forseti ísraels, hefur tilkynnt, að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs í embætti forseta. Þessi frétt gefur byr undir báða vængi vangaveltum um, að Navon hyggist snúa sér aö stjórnmálum. í skoðanakönnun sem ísraelska blaðið Jerusalem Post birti, áður en Navon kunngerði ákvörðun sína, kom í Ijós að innan Verkamannaflokks- ins nýtur Navon margfalt meira fylgis en Shimon Peres, núverandi formaður og keppinautur hans Yitzak Rabin. í skoðanakönnuninni sögðust 48,9 kjósendur Verkamanna- flokksins myndu styðja Navon, 27,8 sögðust styðja Rabin og Peres fékk 9,5 prósent fylgi. Þá hefur einnig flogið fyrir, að Shimon Peres muni vera fáan- legur að víkja úr formennsku- starfi fyrir Yitzak Navon, sem mikillar lýðhylli nýtur, þótt Per- es hafi ekki verið fáanlegur að fallast á að Rabin tæki við. Hins vegar hefur þetta ekki verið staðfest og enn er óljóst, hvernig Rabin myndi bregðast við, þ.e. hvort hann myndi sætta sig við að Navon tæki við formennsku Verkamannaflokksins. Yitzak Navon hefur verið býsna áber- andi í embætti forseta ísraels á kjörtímabilinu og aflað sér mjög almennra vinsælda og trausts. Fréttaskýrendum ber saman um að það yrði Verkamannaflokkn- um mjög til framdráttar ef Nav- on tæki við formennsku flokks- ins eftir „forystumannavanda- mál“ þar árum saman, sem hefur orðið til að veikja hann mjög. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.