Tíminn - 10.08.1965, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 10. ágúst 1965
iÞROTTIR
TÍMiNN
ÍÞRÓTTIR
13
Tækifærin sköpuðust fyrir
tilviljanir - ekki saæleik
— bitlaus framiína ísl. liðsins. island-írland skildu jöfn 0:0 í gærkvöidi
Alf—Reykjavík. —í gærkvöldi hafSi íslenzka landsliSið í
knattspyrnu alla möguleika á aS vinna sinn 8. landsleikja-
sigur, þegar þaS mætti írska áhugamannalandsliSinu. En
því miSur tókst þaS ekki, — til þess voru sóknarmenn okkar
okkar alltof linir. Þeir áttu ótal tækifæri til aS skora mark,
tækifæri, sem urSu til fyrir tilviljanir, en ekki samleik,
en brást alltaf bogalistin. írska MSiS var ekki upp á marga
fiska, og er óhætt aS fullyrSa, aS þaS sé eitthvert veikasta
erlent landsliS, sem (eikiS hefur hér. Þess vegna var synd,
aS leiknum lauk meS jafntefli, 0:0, því aS þaS er svo sjaldan,
sem viS höfum tækifæri til aS sigra. AS mínum dómi hefSi
ekki veriS ósanngjarnt, aS ísland hefSi unniS í gærkvöldi
meS 3:1.
Veður til keppni . var prýðilegt
í gærkvöldi, sunnan gola, en held
ur kalt. Þegar leikurinn hófst var
sólin tekin að síga á vesturhimin
um og var setzt, þegar áhorfendur,
sem hafa verið u. þ. b. 6 þúsund,
tóku að tínast heim. Áður en leik
urinn hófst, voru þjóðsöngvar
landanna lei'knir, og hedsuðust
fyrirliðarnir, Ríkharður Jónsson,
og írski fyrirliðinn, WiUie Brown.
íslenzka liðið lék undan golunni
á nyrðra ■ markíð í fyrri hálfleik
og strax á 7. mínútu myndaðist
hætta upp við írska markið. Bald-
vin Baldvinsson fékk sendingu,
þar sem hann stóð fyrir miðju
marki í vítateignum, en var held
ur seinn að átta sig og missti
knöttinn.
Nær allan fyrri hálfleikinn sótti
íslenzka liðið að írska markinu og
átti ótal tækifæri tU að skora.
Þannig leit minnisblaðið út:
Á 8. mínútu á Gunnar Felixson
skot að marki, en framhjá. Á
sömu mínútu renndi Baldvin góð
um bolta fram miðjuna +il Karls
Hermannssonar, sem óð áfram
með knöttinn, en írski markvörð
urinn, McCormack náði knettin
um.
Á 21. mínútu var tekin horn
spyrna frá hægri, sem Gunnar
Felixson framkvæmdi. Knötturinn
sveif hátt fyrir markið og Bald
vin kom aðvífandi og skallaði, en
yfir mark.
,Á 22. mínútu náði Baldvin knett
inum af írsku varnarleikmönnun
um, sem léku hættulega inni í
eigin vítateig. Baldvin náði að
skjóta að marki, en framhjá.
Og þannig er hægt að telja
áfram. En það var greindegt, að
knötturinn vildi ekki í írska mark
ið. frska vörnin, með Willie
Brown, míðvörð, sem sterkasta
mann, var hörð, í horn að taka
og gaf ísl. sóknarmönnunum
sjaldan frið. Baldvin komst nokkr
um sinnum í hættulegt færi, en
eftir því, sem lengra leið á leik
inn, náði Brown betri og betri
tökum á honum. Baldvin gerði
þá skyssu að reyna ekki að draga
síg út á annan hvorn kantinn og
reyna með Því að opna miðjuna. í
þau fáu skipti, sem Baldvin reyndi
þetta þó, lágu bæði Ríkharður og
Eyleifur það aftarlega, að þeir
náðu ekki að ógna.
Á 25. mínútu leiksins skeði það
óhapp, að Árni Njálsson varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla,
sem hann hlaut í návígi við Kea
ting, v. útherja írska liðsins. Þor
steinn Friðþjófsson kom innn á
fyir Árna og lék nú sinn fyrsta
landsleik.
Eyleifur og Brown kljást þarna.
Baldvin og írski markvörSurinn berjast um knöttinn.
I fyrri hálfleiknum áttu írarn
ír sárafá tækifæri, sem kváðu að,
en á fyrstu mínútunni brunuðu
þeir upp og sköpuðu ringulreið
við ísl. markið.
Fyrri hálfleikurinn var illa
leikinn og áhorfendur greinilega
ekki ánægðir. En hvernig myndi
síðari hálfleikurinn verða? Því
miður varð hann að sama skapi
lélegur, en þá áttu líka írarnir
hættulegri tækifæri og tvisvar
sinnum small knötturinn í slá
ísl. marksins.
Strax á 3. mínútu skapaðist
hætta upp við írska markið, Þeg
ar Eyleifur Hafsteinsson lék á
þrjá varnarmenn og skaut að
marki, en skotið geigaði.
Á 17. mín. áttu írar fyrra skot
ið í slá, en skotið var ekki sér
lega fast.
Á 22. mínútu áfti ísl. liðið sitt
hættulegasta tækifæri. Baldvin
gaf fastan bolta út á Hægra kant
til Gunnars Fel., sem lék áfram
út að endamörkum og lék þar
á varnarmann. frski markvörður
inn kom hlaupandi út, en áður en
hann næði til Gunnars, gaf Gunn
ar knöttinn aftur út á Baldvin,
sem skaut strax að opnu mark
inu, en skotið smaug framhjá
stöng. Þarna rann gidlið tækifæri
til að skora út í sandinn.
Á 28. mínútu skaiiaöi miðherji
írska liðsins, Connor að ísl. mark
inu. Heimir var úr „ballans“ og
náði ekki tíl knattarins. Sem
betur fór, hafnaði hann ekki í
netinu, heldur small í slánni.
Mínúturnar liðu ein af annarri,
en ekkert mark var skorað og
tvö stór núll blöstu við á marka
töflunni, þegar danski dómarinn,
Poulsen, flautaði til leiksloka.
Leikur ísl. liðsins í gærkvöldi
olli nokkrum vonbrigðum. Mót-
herjarnir voru ekki af sterkari
endanum og það hefði á+t að
vera hægur vandi að yfirbuga
þá. En leikur ísl. liðsins var
allt of skipulagslaus til þess að
það tækist, sérstaklega framlínan,
en það vantaði broddinn í hana.
Hún átti tækifæri, en þau urðu
fremur til fyrir tilviljun en sam
■eik. Beztu menn ísl. liðsins voru
án efa framverðirnir, Ellert
Schram og Magnús Jónatansson.
Eg held, að það hafi ekki verið
hyggilegt,- aíl láta Ellert draga sig
tii baka, og Magnús leika framar,
eins og skeði í gærkvöldi. Ellert
getur ógnað bæði með langskot
um og hættulegum skalla, t. d. í
hornum. f framlínunni bar mest
á Eyleifi og Gunnari. Karl Her
mannsson ,,hvarf“ og það sama
skeði með Baldvin, sérstaklega,
þegar Iíða tók á leikipn, en Bald
vin hafði sterkasta mann íranna
gegn sér. Ríkharður, sem nú lék
sinn 33. landsleik, tókst ekki sem
bezt upp, en öðru hverju brá þó
fyrir skemmtilegum spyrnum.
Aftasta vörnin slapp sæmilega
frá leiknum, enda reyndi lítið á
(Tímamyndir GE)
hana. Högni gerði sinni stöðu
góð skil. Sama er að segja um
Árna, þann tíma, sem hann var
inn á. Jón og Þorstemn börðust
vel, en léku sig stundum út úr
stöðunni. í markinu stóð Heimir
fyrir sínu. Þegar 2 mín. voru eftir
yfirgaf Heimir markið og Helgi
Daníelsson kom inn á og ,,fékk“
sinn 25. landsleik. Helga var vel
fagnað af áhorfendum.
Eins og fyrr segir, var þetta
írska áhugamannalandslið ekki
sterkt — líklega veikasta lands
lið, sem sótt hefur okkur hingað
upp. Aðeins einn leikmaður vafcti
verulega athygli, fyrirliðinn W.
Brown.
Dómari var Poulsen, danskur,
og dæmdi léttan leik vel.
Rfkharður, fyrirliði, og írski fyrirliðinn, Brown, heilast. Hjá þeim
stendur danski dómarinn Poulsen.
I