Tíminn - 10.08.1965, Qupperneq 14

Tíminn - 10.08.1965, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 10. ágúst 196! 14 RAHMAN Framhald af 16. síðu. um í Siirgapore. Bretar, Ástralíu- menn og Nýsjálendingar hafa á liSnu ári sent herlið til varnar Malaysíu, en Indonesar hafa hald- ið uppi árásum á landið um nokk- urt skeið. Fregnin vakti mikla ánægju í Indónesíu, og Subandríó utanrík- isráðherra lýsti þegar í stað yfir, að Indónesíustjórn mundi viður- kenna hið nýja riki, og taka upp stjórnmálasamband við það. í Lundúnum er það haft eft.ir opinberum heimildum, að sam- bandsslit Malaysíu og Singapore séu ógnun á áætlanir ríkisstjórn- ar Wilsons um að auka jafnvægi í málefnum Suðaustur-Asíu, og verði brezka stjórnin nú að end- urskoða varnaráætlanir sinar þar. Fréttin um sambandsslitin kom ekki á óvart í Washington, og er bent á, að þau hafi farið frið- samlega fram. Bandarískir stjórn- málamenn búast við, að Singapore efli nú tengsl sín við Indónesíu. Sovézka fréttastofan Tass segir, að sambandsslitin sýni, að Malay- síu-sambandið hafi verið gerviríki, búið til af erlendum aðilum, og séu viðburðir síðustu daga mikið áfall fyrir nýlendustefnuna. Rahman, forsætisráðherra Malay síu hélt ræðu á þingfundi í dag, og sagði meðal annars, að draum- ur sinn um Malaysíu væri nú að engu orðinn. Forsætisráðherra Singapore, Lee Kuan Yew, var í slíkri geðshræringu, er hann ræddi við blaðamenn í dag og skýrði þeim frá sambandsslitun- um, að hann varð að hvíla sig f stundarfjórðung áður en hann gat lokið yfirlýsingu sinni. Það var á laugardag, að hann fór til Kuala Lumpur til við- ræðna við stjórn Malaysíu um framtíð Singapore. Rahman segist hafa átt um tvo kosti að velja: annars vegar að grípa til aðgerða gegn Singapore eða veita borg- inni sjálfstæði. Fólk í Malaysíu er furðu lostið yfir þróun málanna, og hafði eng- inn búizt við sambandsslitum. 70 af hundraði íbúanna í Singapore greiddi á sínum tíma atkvæði með því að sameinast Malaysíu. Kuan Yew sagði á blaðamannafundinum í dag, að Abdul Rahman hefði neytt Singapore til þess að segja sig úr sambandinu, en Rahman kveðst ekki hafa getað gert ann- að, þar ógerlegt hefði verið að vinna lengur með hinni vinstri sinnuðu stjórn í Singapore. Sambandsslitin eru alger, en samt munu ríkin vinna saman á ýmsum sviðum, meðal annars verða varnar- og verzlunarmál sam eiginleg. Singapore er nú full- valda ríki með eigin utanríkis- þjónustu og mun sækja um aðild að Sþ. Margir stjórnmálamenn í Kuala Lumpur fagna þessari þróun mála, SKIPAÚTGCRB RÍKISINS M.s. Esja fer austur um land í hringferð 14. þ.m. en sagt er að ríkisstjórnin þar óttist, að Singapore geti orðið ný Kúba. Kínverjar í Singapore fögnuðu fréttunum um sjálfstæði með því að skjóta flugeldum, og virtist íbú- um borgarinnar hafa létt við tíð- indin. f Canberra, höfuðborg Ástralíu, er sagt, að ekki komi til mála, að Ástralíumenn kalli heim herlið það, sem þeir hafa sent til að- stoðar Malaysíu. Franska blaðið Le Monde segir um sambandsslitin, að þau sýni hve erfitt sé að reyna að koma á samstarfi í Suðaustur-Asíu, og valdi þar mestu um hinar innri mótsetningar, sem þar ríkja. Japansstjórn hefur lýst yfir, að hún sé reiðubúin að viðurkenna hið nýja ríki. GLUGGAGÆGIR Framhald af bls. 1 við mann á rölti í kringum hús þar í nágrenninu. í einu tilfellinu sást til manns sem búinn var að opna kjallaraglugga og farinn að færa gluggatjöldin frá. Kall að var til hans úr næstu hús um, en hann anzaði ekki og fór ekki burt fyrr en honum sjálfum sýndist. í þeim tilfellum, sem hér um getur, var ekki kallað á lögreglu. Hér er ekki verið að halda því fram, að þeir vesalingar, sem hanga á gluggum fólks hafi einhver illvirki í huga en fólki getur orðið ákaf- lega bilt við, og það hlýtur að vera krafa, að slíkir men nséu ekki látnir ganga lausir, eða þeir læknaðir af þessari ástríðu. ÞJÓÐHÁTÍÐ Framhald af 16. síðu ferðirnar, en einnig þrjár Dakota vélar. Munu flugvélarnar Hafa flutt um 1500 farþega þjóðhátíðar dagana. Sveinn Sæmundsson blaða fulltrúi, sagði, að á föstudaginn hefði verið sett nýtt farþegamet hjá Flugfélaginu en þá hefði verið flogið með um 1200 farþega. Þar af fóru 600' til Eyja, 300 til ann- arra staða innanlands og 300 milli landa. í gærkvöldi lokaðist flug- völlurinn i Eyjum vegna þoku, þannig að margir urðu að bíða flugfars þangað til í morgun, en þá hófust ferðir að nýju með Blikfaxa og þrern Dakotavélum Eyjaflug hafði í dag flutt lið- lega 1000 manns til og frá Eyjum í sambandi við þjóðhátiðina, og átti á hádegi í dag eftir að flytja um 500 farþega, sem vonir stóðu til, að hægt væri að fljúga með fyrir kvöldið. Hafði Eyja- flug fimm vélar í förum. Þjóðhátíðin fór ágætlega frám og samkvæmt áætlun í blíðskap- arveðri. Nokkuð var um ölvun alla dagana og venjulega fullt í fangageymslunni í Eyjum. Þá að- stoðaði hjálparsveit skáta í Herj- ólfsdal þjóðhátíðargesti, og munu um 140—150 hafa leitað hjálpar þeirra. Var yfirleitt um smávægi- leg slys að ræða, en einn fót- brotnaði. Læknir var í dalnum allan tímann. TRÍÓIÐ Framhald af 16. síðu. ilsdóttur frá Gröf í Hruna- mannahreppi og Björgu Inga- dóttur úr Reykjavík og svo hinn góðkunna danslaga- og textahöfund Jón Sigurðsson. Þær stöllurnar hafa báðar stund að nám i Leikskóla Ævars Kvaran og þær ákváðu að freista gæfunnar við að „troða upp“ með skemmtiþætti í sum ar og leituðu til Jóns og báðu hann um að koma i félag við sig. Og Jón stóðst ekki mátið og lái honum hver sem vill. TÍMINN — Við byrjuðum á skemmt un hjá Framsóknarfélögunum á Hótel Sögu, 1. apríl í vor, sagði Jón okkur, og síðan höf um við komið fram á ýmsum skemmtunum hér í Reykjavík og úti á landi, m. a. á tvennum héraðshátíðum hjá Framsóknar mönnum úti á landi. Við syngjum gamanvísur og flytj um grinþætti. Dagskráin hjá okkur er alls um 40 mínútur, og við tvískiptum henni. — Og það þarf varla að spyrja að því hver sé höfund urinn. — Hún er að mestu leyti eft ir mig, hvað textunum viðvík ur, og einnig tvö laganna. — Og hvað er tekið til með ferðar? — Auðvitað einkum dægur málin. Við reynum að fjalla um þau í léttum stíl, en það er ákveðin regla hjá okkur að forðast allt klúrt orðbragð. Ef við getum ekki skemmt fólk- inu öðruvísi teljum við okkur ekki eiga neitt erindi fram fyr ir það. Niðurlagsorð kynningar söngsins okkar eru okkar eink unnarorð: „því lífið verður bjartara og léttist lundin þín, ef líturðu á allt sem gerist eins og saklaust grín“. — Og hvað með undirleik- inn? — Þar sem píanó er til leik ég á það, annars spila ég á nikkuna. SÍLDIN Framhald af 2. síðu NK 700, Vonin KE 900, Jörund ur II RE 1200. Síldaraflinn frá því kl. 7 á sunnu dagsmorgun til kl. 7 á mánudags- morgun. Raufarhöfn: Jörundur III RE 1800 mál og tn. Heimir SU 1500 mál Súlan EA 1550 mál SáeúlfUr BA 880 mál Héðinn ÞH 480 mál. Þórsnes SH 500 mál Guðbjörg GK 950 mál NÁTTFARI ÞH 1600 mál Anna SI 800 mál Helgi Flóents- son ÞH 800 mál Björgvin EA 1100 TN. Bjarmi EA 1000 tn. Loftur Baldvinsson EA 1400 tn. Víðir II. GK 350 tn. Dalatangi: Rifsnes RE 1100 mál og tn. Hólmanes SU 1200 mál og tn. Sigurfari SF 250 mál og tn. Reykjaborg RE 500 mál og tn. Gissur hvíti SF 700 mál og tn. Skarðsvík SII 850 tn. Gullver NS 1000 tn. Gullfaxi NK 600 tn. Árni Geir KE 700 tn. Ásbjöm RE 1100 tn. FRÍHAFNARMALIÐ Framhald af bls. 1 tímann. Hún nær aðeins yfir hluta af starfrækslutímabili frí- hafnarinnar, sem hefur verið rek- in frá árinu 1959 a.m.k. Er sú endurskoðun umfangsmikið verk, þegar haft er í huga, að hver vín- afgreiðsla er skráð á nótu og við- skiptin geta numið 3—500 nótum á sólarhring. Tveir opinberir aðilar áttu að fylgjast n/!ð viðskiptum fríhafn- arinnar, en það virðist ekki hafa dugað til. Þar sem fríhöfnin er ekki tollsvæði, er hún undir eftir- liti tollvarða, og komi í ljós við rannsókn, að vín hafi stöðugt ver- ið að hverfa úr fríhöfninni á und anförnum árum, þá er lítið hægt að færa það án þess að gerast brot legur gagnvart tollinum. Þá átti ríkisendurskoðunin að fylgjast með öllum reiðum fríhafnarinnar á mánaðarfresti. Það mál, sem nú er upp sprottið. sýnir. hvernig sú endurskoðun hefur verið. Málsrannsóknm beinist enn að- eins að birgðavöntun á hluta þess tímabils. sem fríhöfnin hefur starfað. Það er svo á valdi setu- dómara í málinu, hvort allt starfs tímabil fríhafnarinnai verður tek ið til endurskoðunar En varla verður hjá þvj Komizt úr þessu Eins og fyrr segir, þá er það gíf- urlega mikið verk, sem ekki hefur þótt ástæða til að inna af hendi ennþá, enda þegar komið nóg til að framhjá rannsókn verður ekki komizt. Frá 1. apríl virðist ekkert hafa skort á fulkomið eftirlit með frí- höfninni, og hefði betur fyrr ver- ið. TÆKNISKÓLINN Framhald af 16. síðu * sér raunhæfrar verklegrar. þjálf unar, eftir nánari ákvæðum, og verður að telja sveinspróf traust ustu undirstöðuna að því leyti, en í framtíðinni er áformað, að verk legrar þjálfunar verði fyrst og fremst aflað á svonefndum verk stæðisskólum. Undirbúningsdeild undir tækninám er starfrækt á Akureyri og í Reykjavík á vegum T.Í., og verður umsækjandi að hafa lokið iðnskólaprófi eða full gildu gagnfræðaprófi og hafa afl að sér a. m. k. 12 mánaða raun- hæfrar verklegrar þjálfunar. Þeir, sem luku prófi^ nú í fyrsta sinn í T.Í., voru: Ásgeir F. Grant, Ásmundur J. Jóhannsson, Bjöm H. Jóhannsson, Garðar Björnsson, Gestur Einarsson, Grét ar Ólafsson, Gunnar Ólason, Jó- hann Gilbertsson, Jón Guðbjörns son, Magnús Siguroddsson, Stein grímur Dagbjartsson, Sævar Bald ursson. Einn hlaut ágætiseinkunn, Gunnar Ólason, átta hlutu I. eink- unn, og þrír II. einkunn. Um leið og Helgi Gunnarsson lætur af stjórn T.Í., tekur Ingvar Ingvarsson við, en hann hefur feng ið skipun sem skólastjóri T.í. SÍLDARBÁTAR Framhald af 2. síðu Hólmanes, Eskifirði 8.895 Hrafn Sveinbj., III, Grindav. 7.686 Hrönn, ísafirði 4.060 Huginn II, Vestmannaeyj. 2.993 Hugrún, Bolungarv. 10.578 Húni II, Höfðákaupstað 3.444 Hvanney, Hornafirði 1.798 Höfrungur II, Akranesi 8.485 Höfrungur III, Akranesi 11.933 Ingiber Ólafsson II, Keflavík 9.572 Ingvar Guðjónsson, Hafnarf. 6.084 ísleifur IV, Vestmannae. 3.202 Jón Eiríksson, Hornaf. 4.163 Jón Finnsson, Garði 4.749 Jón Gunnlaugs, Sandgerði 1.524 Jón Jónsson, Ólafsvík 1.330 Jón Kjartansson, Eskif. 19.570 Jón á Stapa, Ólafsvík 9.511 Jón Þórðarson, Patreksf. 9.828 Jörundur II, Reykjav. 15.169 Jörundur III, Reykjav. 17.510 Kambaröst, Stöðvarfirði 4.212 Keflvíkingur, Keflavík 13.159 Kristján Valgeir, Sandg. 3.509 Krossanes, Eskifirði 17.805 Loftur Baldvinsson, Dalv. 11.250 Lómur, Keflavík 12.274 Margrét, Siglufirði 10.26C Mímir, Hnifsdal 4.516 Mummi, Garði 1.541 Náttfari, Húsavík 7.751 Oddgeir, Grenivík 11.320 Ólafur Bekkur, Ólafsfirði 3.976 Ólafur Friðbertsson, Suðure. 8.814 Ólafur Magnússon, Ak. 15.799 Ólafur Sigurðsson, Akran. 1.211 Óskar Halldórsson, Reykjav. 8.102 Otur, Stykkishólmi 4.769 Pétur Jónsson, Húsav. 5.204 Pétur Sigurðsson, Rvk 10.779 Reykjaborg, Reykjav. 18.756 Reykjanes, Reykjav. 1.619 Rifsnes, Reykjavík 4.595 Runólfur, Grundarf. 4.019 Sif, Suðureyri 4.375 Siglfirðingur, Sigluf. 7.403 Sigrún, Akranesi 3.818 Sigurborg, Siglufirði 9.477 Sigurður, Sigluf. 6.506 Sigurður Bjarnason, Ak. 16.554 Sig. Jónsson, Breiðdalsv. 9.771 Sigurfari, Hornafirði 2.544 Sigurkarfi, Njarðvík 1.185 Sigurpáll, Garði 3.758 Sigurvon, Reykjavík 10.310 Skagfjrðingur, Ólafsfirði 4.897 Skálaberg, Seyðisfirði 4.021 Skarðsvík, Hellissandi 7.396 Skírnir, Akranesi 7.449 Snæfell, Akureyri 13.355 Snæfugl, Reyðarfirði 6.147 Sólfari, Akranesi 8.958 Sólrún, Bolungarvík 9.410 Stapafell, Ólafsvík 2.021 Stefán Árnason, Fáskr.f. 2.324 Steinunn, Ólafsvík 4.984 Stígandi, Ólafsfirði 2.564 Straumnes, ísafirði 2.918 Stjarnan, Reykjavík 2.840 Súlan, Akureyri 14.198 Sunnutindur, Djúpavogi 10.906 Svanur, Reykjavík 1.912 Svanur, Súðavík 3.398 Sveinbj. Jakobss., ÓHfsf. 6.125 Sæfari, Tálknafirði 1.267 Sæfaxi II, Neskaupstað 4.390 Sæhrímnir, Keflavík 4.941 Sæúlfur, Tálknafirði 5.388 Sæþór, Ólafsfirði 8.220 Viðey Reykjavík 4.753 Víðir II, Sandgerði 8.598 Vigri, Ilafnarfirði 6.812 Vonin, Keflavík 9.320 Þorbjöm II, Grindavík 13.922 Þórður Jónasson, Akureyri 18.094 Þorgeir, Grindavík 1.550 Þorlákur, Þorlákshöfn 2.796 Þorleifur, Ólafsfirði 2.636 Þórsnes, Stykkishólmi 3.533 Þorsteinn, Reykjavík 18.709 Þráinn, Neskaupstað 6.236 Æskan, Siglufirði 2.634 Ögri, Reykjavík 12.646 ÞAKKARÁVÖRP Öllum þeim, sem glöddu mig meS heimsóknum, gjöfum og skeytum á sjötugsafmæli mínu 3. júni s.l. færi ég mínar innilegustu þakkir. Guðjón G. Sigurðsson, Mjóabóli, Dalasýslu. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðaiför móður okkar og tengdamóður Hólmfríðar Imsland Ásta og Albert Imsland Ina og Börge Bildsöe-Hansen Svava og Haraldur Jóhannsson Kristján Steingrímsson Hjartans þakkir til allra nær og fjær, sem vottuðu samúð og vin- áttu við útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, Guðríðar Þórðardóttur Jaðri Þykkvabæ. Ólafur Friðriksson, ísafold Ólafsdóttir, Þóra Ó. Fannberg, Ölver iFannberg^ Ólafur Fannberg. Vörumóttaka á þriðjudag og miðvikudag til Fáskrúðsfjarð- ar, Re yðarfjarðar, Eskifjarð- ar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar. Akureyrar. Farseðlar seldir á miðviku- dag. M.s. GuSmundur qóði fer til Rifshafnar, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykkishólms, Flateyjar, Skarðsstöðvar Króks fjarðarness og Hjallaness á fimmtudag. Vörumóttaka á miðvikudag.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.