Morgunblaðið - 08.06.1983, Blaðsíða 1
pJny0MwMu!*i!>
Midvikudagur 8. júní - Bls. 33-64
MADRII)
leikhús heimsins
„Frá Madrid til himna", segir orð-
Ueki Madrid-búa, en þrátt fyrir að í
borginni úi og grúi af helgum bygg-
ingum, er vegurinn til himins vand-
fundinn, til hins fræga himins Madr-
idborgar í upphafi aldarinnar, him-
ins Baroja, sem var heiðblár að degi
til og á nóttunni djúpblár eins og
sjórinn og alstirndur. Götur Madr-
id-borgar minna á skipulagslaust
völundarhús, þær geyma sögu liðins
tíma og skáldskapar, en borgin er
nýtízkuleg og heiðin og líkist í engu
helgum stað.
Nafnið Madrid er komið af iatn-
eska orðinu „matrice" og arabískri
útgáfu þess „Mayrit", og mun
borgin hafa verið nefnd móður-
kviður því hún fói vatn í iðrum sér
og nýttu Arabarnir sér þetta vatn
til áveitu.
í hinni hálfu veröld slagorð-
anna, sem einkum ferðaskrifstof-
um hættir til að viðhafa um borg-
ir, sjáum við að Amsterdam er
blómaborgin, Kaíró er borg mark-
aðanna og Reykjavík borg lit-
skrúðugra húsaþaka, rétt eins og í
París, Lundúnum eða Múnchen
væru ekki til blóm, markaðir eða
máluð húsaþök. En hver eru ein-
kenni Madrid-borgar? Á árunum
1580 til 1680, eða á gullaldartím-
um Spánverja, hafði Madrid þau
áhrif á íbúa sína, að þeir gátu eng-
an veginn gert sér ljóst hvort
leikhúsið var lífið sjálft eða lífið
leikhús. Allt sem gerzt hefur í
Madrid í gegnum aldirnar hefur
verið sett á svið: konungleg brúð-
kaup, konungakrýningar, nautaöt,
El Palacio de Oriente (Austurlandahöllin). Bygging þessi, sem í fyretu var reist sem varðturn (Atalaya), síðar virki (Alcázar) og loks konungshöll (Palacio
Real) gnæfir yfir Manzanaresána og Campo del Moro.
Parque del Retiro. Palacio de CristaL Kristalshöllin er ein af töfrum Retiro-
garðsins. Hún stendur við gosbrunn og andatjörn og í henni speglast
morgunsólin, sem Madridbúar þekkja svo vel.
dans á götum úti, aftökur. Allt frá
árinu 1621, þegar sýnd var aftaka
sakamanns á Plaza Mayor að við-
stöddum fjölda áhorfenda, hafa
einnig önnur svæði og torg borg-
arinnar verið notuð sem leiksvið
fyrir harmleiki, gamanleiki og allt
þar á milli. Við skulum líta á
nokkra þessara staða:
El Palacio de Oriente
(Austurlandahöllin)
Bygging þessi, sem í fyrstu var
reist sem varðturn (Atalaya), síð-
ar virki (Alcázar) og loks kon-
ungshöll (Palacio Real) gnæfir yf-
ir Manzanares-ána og Campo del
Moro. Höllin var arabiskur varð-
turn til forna, og var það Múham-
eð 1., hinn eiginlegi stofnandi
Madrid-borgar og 5. sjálfstæði
emír Córdoba, sem lét reisa hann
á árunum 852 til 886. Vígi þetta
var nauðsynlegt Múhameðstrúar-
mönnum því Mayrit var herfræði-
lega mikilvægur staður og þaðan
gátu þeir fylgst með ferðum hinna
kristnu herja, sem fóru yfir fjöllin
í nágrenninu.
Með árunum breyttist turninn í
kastala fullan af verðmætum
munum. Árið 1734 varð byggingin
eldi að bráð, en var smámsaman
endurbyggð undir handleiðslu it-
ölsku arkitektanna Juvara og
Sachetti og árangurinn varð hin
fagra höll í barrokk-stíl sem
stendur enn þann dag í dag. Nú er
byggingin almenningssafn þar
sem er fjöldinn allur af herbergj-
El Rastro (Flóamarkaðurinn). Hann stendur vlð Ribera de Curtidores, þar
sem áður var austurlenzkt markaðstorg. Þangað flykkjast Madridbúar og
ferðamenn á frídögum og sunnudagsmorgnum. Þarna úir og grúir af sölutj-
öldum þar sem boðið er upp á allt frá fornminjum af vafasömum uppruna til
nýjustu plastframleiðslu Hong Kong-búa.
um og verulega merkum munum,
þarna er t.d. að finna „Galdra-
herbergið", „Konunglega vopna-
safnið“ og „Súlnasalinn".
El Templo Egipcio de Deboh
(Egypzka hofið frá Debóh)
Egypzka stjórnin færði Spán-
verjum það að gjöf fyrir að hafa
tekið þátt í að bjarga fornleifum í
Abu Simbel, í suðurhluta Egypta-
lands, þar sem Aswan-stíflan var
reist til að breyta farvegi Nílar-
fljótsins. Debóh-hofið, sem stóð
nálægt Filae-eyju, var helguð guð-
inum Amon, en pílagrímar á leið
til Filae-eyju til að votta gyðjunni
Isis virðingu sína, fóru alltaf þar
framhjá og brátt varð hofið að til-
beiðslustað hennar.
Fagur almenningsgarður var
gerður þar sem hofið skyldi
standa á Príncipe Pío-fjalli, og þar
gnæfir það yfir Manzanares-
árdalinn og Casa de Campo-garð-
inn.
Hofið er sannkallaður gim-
steinn í egypzkri list og liggur
leiðin upp að hliðum þess yfir til-
búna tjörn. Inni i hofinu er kap-
ella, skreytt myndum þar sem
faraóinn færir Amon og öðrum
goðum gjafir. Úr kapellunni liggur
leiðin svo að „sancta sanctorum“,
en þar stendur altari til minn-
ingar um, að einmitt á þeim stað
fékk Isis fæðingarhríðir er hún
var á leið til Filae-eyjar.
La Plaza Mayor
(Aðaltorgið)
La Plaza Mayor er við hliðina á
SJÁ NÆSTU SÍÐU