Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 37 Ný vönduð bók um fjalla- mennsku komin á markað Höfundar hinnar nýju vöndudu bókar um fjallamennsku, fv. Magnús Guð- mundsson, Hreinn Magnússon og Ari Trausti Guðmundsson, glugga í bók- ina- Ljósmynd Mbl. Ól.K.M. Sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi FJALLAMENNSKA heitir ný vönd- uð bók, sem Bókaútgáfan Órn og Örlygur hefur gefið út. Höfundar bókarinnar eru þeir Ari Trausti Guð- mundsson og Magnús Guðmunds- son, en auk þess hefur Hreinn Magnússon tekið fiestar myndir f bókinni. Á blaðamannafundi, sem boðað var til í tilefni útkomu bókarinn- ar, kom fram hjá höfundum, að gróft mætti skipta bókinni í tvo hluta, annars vegar umfjöllun um almennar fjallaferðir og svo hins vegar umfjöllun um sérhæfða fjallamennsku og klifur, en báðir þessir þættir njóta mjög ört vax- andi vinsælda hér á landi. Útkoma þessarar bókar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, er mikið ánægjuefni fyrir alla þá sem leggja stund á fjalla- mennsku og útiveru almennt. Mjög er til bókarinnar vandað. í henni eru tæplega 200 myndir og uppsetning efnisins er mjög að- gengileg fyrir lesendur. í bókinni segir, að ferðaslóðir íslenzkra fjallamanna heima við liggi um hálendi, sem er að mörgu leyti einstakt í heiminum. „Ræður þar mestu lág snælína, eldvirkni og rakt og kalt loftslag. Jöklar eru stórir, berg molnar auðveldlega, gróður er fremur lítill og frost- þensla í jarðvegi mikil, að ógleymdum mörgum stríðandi vatnsföllum." í bókinni er að finna 10 heilræði til fjallamanna, en þau eru eftir- farandi: 1) Gerið ferðaáætlanir með hliðsjón af landakortum og leiðalýsingum. 2) Takist ekki á við of erfið verkefni of snemma. Reynið erfiðari ferðir eða klifur smám saman, með aukinni reynzlu. 3) Ferðist í félagi við aðra. Haldið hópinn. Veitið ekki hópi forystu fyrr en nægileg reynzla er fengin. Einn maður ætti ekki að vera í forystu fyrir meira en 10 mönnum. 4) Búið ykk- ur ávallt undir hið versta. Skór skulu vera hlýir. Hafið meðferðis regnföt, hlý föt, varafatnað, næg- an mat handa öllum, landakort, flautu, áttavita, neyðarblys, sjúkratösku og álpoka. 5) Ætlið ykkur nægan tíma og haldið sem jöfnustum hraða. Flýtir er óþarf- ur, slór sömuleiðis. 6) Veltið ekki grjóti. Kynnið ykkur og fylgið reglum Náttúruverndarráðs. 7) Fylgist með veðri. Haldið ekki áfram skeytingarlaust ef það versnar. 8) Reynið ekki kletta-, snjó- og ísklifur án reynzlu eða án forystumanns eða leiðsögumanns. 9) Ef þið villist, flanið ekki að neinu. Ihugið stöðuna, haldið hóp- inn og leitið vandlega að góðri leið úr ógöngunum. 10) Skiljið eftir skilaboð um áætlaða leið, varaleið og áætlaðan tíma. Ef út af bregð- ur, látið þá vita af ykkur. Annars er að finna í bókinni ýmis heilræði og leiðbeiningar um útbúnað, leiðaval og margt fleira, sem kemur að góðum notum, sér- staklega fyrir þá sem þekkja fjallamennsku lítið. Eftir að hafa lesið bókina er því óhikað hægt að mæla með henni fyrir alla áhuga- menn um fjallamennsku. — sb. NC plast þakrcnnur norsk gæóavara NC plast-þakrennur eru sérhannaðar fyrir breytilegt veðuríar og standa því auðveldlega aí sér harða íslenska vetur. Sérlega létt og einlöld uppsetning gerir þér kleift að ganga írd rennunum sjdlíur dn mikillar fyrirhafnar. KfCl IIRI Kllr NC plast-þakrennur eru skynsöm fjárfesting GLERBORG HF DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 53333 Listamennirnir Ásgerður Búadóttir, Magnús Tómasson og Gunnar Örn. Norræn listasýn- ing í Helsinki Fyrir skömmu var opnuð nor- ræn listasýning í Konsthallen í Helsinki undir nafninu „Borealis — norrænar myndir 83“. Sýningin er á vegum Norrænu listamið- stöðvarinnar í Sveaborg og eru á henni verk þriggja listamanna frá hverju Norðurlandanna og Fær- eyjum. íslensku listamennirnir eru Ásgerður Búadóttir, Gunnar Örn og Magnús Tómasson. Sví- inn Tage M. Hörling valdi myndirnar á sýninguna í sam- vinnu við þjóðardeildir norræna myndlistarbandalagsins. Sýn- ingin verður í Helsinki fram í júlí, þaðan fer hún til Danmerk- ur, Noregs og Færeyja. Hún verður sett upp á Kjarvalsstöð- um næsta sumar og lýkur í Sví- þjóð haustið 1984. Fer mn á lang flest heimili landsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.