Morgunblaðið - 08.06.1983, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 08.06.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 39 nokkurn tímann leiðst. — Kross- inn og upprisan eru þessar tvær andstæður. Á krossinum tók Kristur á sig mannleg kjör. Hann afneitaði ekki þessum kjörum, heldur gekk hann inn í skuggatil- veruna sem markast af hinum neikvæðu þáttum allrar tilveru. En hann hélt frá krossinum til upprisunnar og braut okkur þann- ig leið úr myrkrinu til ljóssins, Það er nauðsynlegt, að börn alist upp í slíku andrúmslofti endurlausn- arinnar; að þau fái frið til að upplifa hinar raunverulegu hliðar lífsins, skuggann og birtuna, og læri að gleðjast við birtuna, af þvi að hún hrekur burt myrkrið í skapandi og endurleysandi starfi leiks og já- kvæðra samskipta við önnur börn og við fullorðna. Fyrirgefningin Eitt af því sem stendur næst rótum allrar hugsunar í helgum bókum er sú afstaða milli manna og milli Guðs og manna sem markast af hugtakinu fyrirgefn- ing. Raunhæf skoðun mannlegs lífs gerir beinlínis ráð fyrir því að meðal hrösulla manna verði einatt ófriður, illdeilur, misklið, sáttrof og ill verk. Menn verða sekir um illsku hver gagnvart öðrum og gagnvart Guði. Þessi raunhæfa skoðun styðst við reynslu jafn- gamla mannkyni. I uppeldi barna verður þessi vitund um hið raun- verulega eðli lífsins að koma fram með þeim hætti, að menn verði ekki furðu lostnir, ef barnið gerir eitthvað af sér. Jafnvel meðal barna er illskan og eigingirnin partur af „náttúrlegu" lífi. En jafnmikil talið mikilvægt er það, að andrúmsloft friðþægingar og fyrirgefningar ríki. Áð fyrirgefn- ingin sé lífsstíll á borð við and- rúmsloftið sem menn anda að sér. í dæmisögum Jesú og fjölmörg- um köflum öðrum i ritningum helgum, er um þetta efni fjallað frá öllum hliðum. Þetta er eins og grunntónn i Biblíunni og ætti að vera í kristinni kenningu og lífi. Það væri fásinna að ætla að gera þessu efni skil hér, einhverju hinu stærsta í samanlagðri guðfræð- inni. Að „friðþægja" er að koma á friði, og fyrirgefning er forsenda alls, hún er það „andrúmsloftu er mótar alla vitund um mannleg samskipti. En fyrirgefning hefur að forsendu sinni iðrun, að játa bresti sína, ganga í sjálfan sig, auðmýkja sjálfan sig fyrir þeirri staðreynd, að rangt hafi verið gert. Þetta er þungt skref, því að „sæmdin" er ríkur þáttur í sálar- lífi hvers barns jafnt sem fullorð- ins. Og þá er það oft ekki léttari þraut að veita fyrirgefningu, að láta af þeirri tilhneigingu sem all- ir menn hafa, að ná fram hefnd- um, að halda fram sæmd sinni. — Hér hvílir að baki kristin „sálar- fræði“ sem er í því fólgin að skoða mann og barn sem þátt í samneyti einstaklinga er stefnir að friði og jafnvægi, kærleika og skilningi, m.ö.o. heilbrigðum samfélagsháttum í barnahópnum. Einstaklingnum er þannig búinn „rammi", skynsam- leg mörk, umgerð utan um líf hans, sem er samfélag og ábyrgð, en innan þessara marka er ein- staklingurinn frjáls. Frelsið Annað kristið meginhugtak er frelsið. Til frelsis frelsaði Kristur oss. Sannleikurinn mun gera yður frjálsa. Og svo mætti lengi telja. „Frelsi Guðs“ er ákaflega mik- ilvægt hugtak. Hann hefur frelsi til þess að „miskunna þeim sem hann vill miskunna". Hann er ekki bundinn af tæknilegum lögmálum efnasambanda né lögbundinni hringrás eðlisfræði. Kraftaverkið er tákn um frelsi Guðs, og því er kraftaverkið í lífí barnsins, — þetta óvænta sem leiðir í Ijós dulin mögn í sálarlífi og tilveru — einn megin- þátturinn í frelsinu. Frelsið er undirstaða og forsenda sköpunar- innar, hinnar listrænu sköpunar í litum og formum í leik barnsins sem og í lífi Guðs skapara og endurlausnara. En frelsið er ekki taumleysi. í raun er frelsi sköpun- arinnar í listum (og í föndri barnsins) háttbundið og hnitmið- að við t.d. eðli efnis þess sem unn- ið er úr, en einnig ríkir frelsi ein- ungis innan „ramma* eða innan marka þeirra laga sem eiga við um hið fagra, um hlutföll og hrynj- andi. Uppeldi til frelsi í listsköpun er því um leið uppeldi til ögunar undir efniviðinn og lögmál fegurðar- innar. Þannig er einnig háttað frelsinu í mannlegum samskiptum. Frelsið er tamið við lögmál ábyrgðarinn- ar. Spurningunni nafntoguðu, Á ég að gæta bróður míns?, ber að svara játandi. Hver maður er ábyrgur. Hann nýtur frelsis ein- ungis innan marka ábyrgðar gagnvart náunganum, öðrum manni eða öðru barni, og ábyrgðar gagnvart lífstilgangi sínum, gagn- vart Guði. Þannig er Kristur bæði frelsi og lögmál. Líf í Kristi er líf í frelsi, en frelsið á aðeins við innan marka kærleikslífsins, kristslífs- ins. — Þannig er það mikilsvert að barnið fái að njóta frelsis og fái að njóta þess að vera það sjálft. Á börn má ekki leggja ánauðarok um hegðun né um viðhorf sem eru þeim óeðlislæg í þeim skilningi að þau hamli eðlilegum þroska og vellíðan. Á hinn bóginn þarf barn- ið að alast upp við þess háttar frelsi sem er jákvætt gagnvart öðrum, tekur tillit til annarra og viðurkennir rétt þeirra, — að einn- ig önnur börn hafí rétt til þess að vera þau sjálf. Þannig á allt kristið uppeldi barna að stefna að frelsi innan ramma áyrgðar og fúsleika til fyrirgefningar. Takmarkið er einstaklingur sem lifir í heillyndu og heilbrigðu samneyti við um- hverfi sitt, Guð, aðra menn og náttúruna. Landið Samneytið við landið, tunguna og söguna á að vera snar þáttur í uppeldi barna jafnt sem í sjálfs- þroska hvers einstaklings. Sköpun og friðþæging, sátt og sáttargjörð í helgum bókum stefnir að alls- herjar sátt dýra, náttúru og manna (Hósea 2.21—23). Að elska tunguna, landið og fólkið í landinu felur í sér að rækta. Alþjóðaorðið er merkir menningu (cultura) er dregið af sögninni að rækta. Litlir gróðurreitir í skólagörðum barna kenna þeim að elska og rækja kraftaverkið í náttúrunni, er lífið brýst fram í frelsi sínu. Og gleði- leikur barnsins stefnir að þessu sama marki. „Hjálpaðu mér til þess að vera góður íslendingur" er efni í kvöld- bæn barna. — Og það vekur hug- ann um, hvað það er að vera góður íslendingur. Það er að elska Guð og náungann, landið sitt og líf þjóðarinnar. Að rækja það sem fegurst vex af jarðargrösum i landinu og lífgrösum hins kristna þjóðlífs. Bænaversin og sálma- stefin, sem liðnar kynslóðir hafa skilað oss í arf, skrýðast nýju skrúði í huga barnsins. Hvort for- eldrar og forráðamenn barna rækja þau með börnum sínum, sker úr um það, hvort þau, foreldr- arnir, eru góðir íslendingar. Þórír Kr. Þórðarson er prófessor rið guðfræðideild Hiskólans. HlTACHI Staðlaðar stærðir ganga ekki alltaf! — Hér er Karitas verkstjóri að máta galla á Pétur Guðmundsson körfuknattleiksmann. Guðrún Pétursdóttir afgreiðahistjóri á lager fyrirtækisins. Lára Indriðadóttir, einn sjötíu starfsmanna sem nú vinna við framleiðslu á Henson-fatnaði. þar sem samkeppnin er hörð við hvers konar þjónustustofnanir hins opinbera, sem keppa um sama vinnuaflið. Laun fólks á saumastofum eru því miður ekki há, en það kemur meðal annars til af því að við erum að keppa við erlenda aðila, sem láta framleiða fyrir sig í Asíu og víðar þar sem ódýrt vinnuafl er fyrir hendi. Við reynum þó að gera eins vel fyrir okkar starfsfólk og hægt er, og ég hef átt því láni að fagna að hafa sama starfsfólkið árum sam- an. Hér vinna enn konur sem voru í fyrirtækinu við stofnun þess eða rétt á eftir, og sumar eru komnar á áttræðisaldur." Nær engin yfir- bygging — Mikil eftirspurn eftir fram- leiðslunni er væntanlega forsenda velgengni fyrirtækisins, en er þó ekki erfitt að reka fyrirtæki við þá óvissu sem ríkir og ríkt hefur í íslensku efnhagaslífi? „Ja, erfitt og erfitt eru ekki erf- iðleikar til að sigrast á? Vaxtamál og skortur á rekstrarfé háir okkur að sjálfsögðu eins og öðrum, og gerði það verulega á þeim tíma sem fyrirtækið keypti nýtt hús- næði í Skipholti og unnið var að endurbótum á því. I þessum erfiðleikum hefur það hins vegar hjálpað okkur mjög mikið, að yfirbyggingin í fyrirtæk- inu er nær engin. Hér er einn starfsmaður sem sér um allt bók- hald og launaútreikninga, og ég er starfandi í hönnun og ýmsu öðru, auk framkvæmdastjórnar. Þetta skiptir miklu máli, ekki síst ef fer að harðna í dalnum; þá hafa fyrir- tæki hreiniega ekki efni á að hafa margt fólk á launum við skrif- stofustörf og útréttingar, fram- leiðslan stendur ekki undir slíku nema að mjög takmörkuðu leyti. Þetta hefur komið sér vel hjá okkur og okkur hefur tekist að þrauka, þrátt fyrir neikvæða þróun í íslenskum fataiðnaði. Ég get nefnt sem dæmi, að á þeim 14 árum sem Henson hefur starfað, hafa tíu til fimmtán fyrirtæki í fataiðnaði hætt, og engin ný hafa komið í staðinn. Við slíkar að- stæður er bara nokkuð gott að hafa haldið velli, og við höfum gert heldur betur. Velgengni fyrirtækisins hefur oltið á þessum atriðum sem ég hef nefnt; lítilli yfirbyggingu, frábæru starfsfólki, varan hefur líkað vel. Og síðast en ekki síst get ég þakk- að konu minni, Esther Magnús- dóttur, sem hefur verið hér allt í öllu með mér, vakin og sofin í fyrirtækinu, margt. Án þess gengi þetta ekki,“ sagði Halldór að lok- um. _ AH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.