Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 9

Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 41 1. ársfjórðungur 1983: Tekjur Volvo-samsteyp- unnar jukust um 99% — Söluaukning samsteypunnar var um 58% HEILDARTEKJUR Volvo-samsteyp- unnar sænsku, fyrir skatta, nsr tvö- földuðust á 1. ársfjórðungi þessa árs, þegar þær voru samtals um 1,03 milljaröar sænskra króna, boriö saman við 516 milljónir sænskra króna á sama tíma í fyrra. Pehr Gyllenhammer, aðalfor- stjóri Volvo, sagði á fundi með blaðamönnum, að þessar tölur, sem sýndu fram á 99% tekjuaukn- ingu, væru þær beztu á einum ársfjórðungi frá upphafi. Hann sagði, að tekjur samsteypunnar hefðu aukizt á öllum vígstöðvum, nema í dótturfyrirtækinu Scand- inavian Trading Co., sem varð fyrir áföllum í olíuviðskiptum fyrstu mánuði ársins. Heildarsala Volvo-samsteyp- unnar jókst á 1. ársfjórðungi um liðlega 58%, þegar hún var sam- tals að upphæð um 26,63 milljarð- ar sænskra króna. Gyllenhammer sagði, að mest söluaukning hefði orðið í bíladeild og orkusöludeild samsteypunnar, eða um 89% sam- tals. Á blaðamannafundinum sagði Gyllenhammer, að Volvo-menn væru ekki of bjartsýnir á efna- hagsbata í iðnríkjunum á þessu ári. „Við munum áfram vinna á tiltölulega veikum mörkuðum. Við myndum taka of mikla áhættu færum við að færa út kvíarnar meira en orðið er í bili. Við mun- um því fara okkur hægt á næstu mánuðum," sagði Pehr Gyllen- hammer, aðalforstjóri Volvo. Framfærslu- kostnaður hækkaði um 0,7% í Dan- mörku í apríl Framfærslukostnaður hækkaði um 0,7% f aprílmánuði sl. í Danmörku, samkvæmt upplýsingum dönsku hag- stofunnar, sem sagði jafnframt, að hækkun framfærslukostnaðar síðustu 12 mánuði væri um 7,7%. t>essi aukning í aprfl kemur í kjölfar tvcggja mánaða, þegar framfærslu- kostnaður lækkaði nokkuð, aðallega vegna lækkandi verðs á orku, þ.e. olíu, benzíni, rafmagni og gasi á alþjóða- markaði. Þess má geta, að tóbaksvörur hækkuðu um 6,6% í aprílmánuði vegna skattahækkana ríkisins og sömu sögu er að segja af póst- og símagjöldum, sem hækkuðu um 2,2% í aprílmánuði. Samkvæmt upplýsingum dönsku hagstofunnar lækkaði verð um 0,1% á olíu, gasi og rafmagni á alþjóða- markaði, sem kom sem mótvægi við hækkanir innanlands. V öruskipta jöfnuöur neikvæður um liölega BMW 3231 um af tæknilegum ástæðum. „Við höfum þegar hafið byggingu nýrra verksmiðja, en þær komast ekki í gagnið fyrr en á árunum 1985— 1986. Eftirspurn eftir 3- og 5-línu fyrirtækisins hefur vaxið gríðar- lega undanfarið, en við getum hreinlega ekkert gert í málinu. Okkur tókst með herkjum að auka framleiðsluna um 3% á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs, en það er líka allt og sumt,“ sagði Kuenheim. 388,5 milljónir Vöruskiptajöfnuður fslendinga var neikvæður um liðlega 388,5 milljónir króna fyrstu fjóra mánuði ársins, en hann var til samanburðar neikvæður um liðlega 646,4 milljónir króna á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýs- ingum Hagstofu íslands. Verðmæti útflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 4.467,5 milljónir króna, en verðmæti innflutnings var hins vegar 4.856,0 milljónir króna. Ef litið er á vöruskiptajöfnuðinn f aprílmánuði kemur í ljós, að hann var neikvæður um liðlega 198,3 milljónir króna, en var til saman- burðar neikvæður um liðlega 82,6 milljónir króna á sama tíma f fyrra. Verðmæti útflutnings í aprílmánuði var liðlega 1.201,3 milljónir króna, króna en verðmæti innflutnings hins vegar liðlega 1.399,6 milljónir króna. Útflutningur á áli og álmelmi var að verðmæti tæplega 881,8 milljónir króna fyrstu fjóra mánuði ársins, en var til samanburðar að verðmæti tæplega 279,5 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Verðmæti kísil- járnsútflutningsins fyrstu fjóra mánuðina var tæplega 63,3 milljónir króna, en var til samanburðar lið- lega 51 milljón króna á sama tíma í fyrra. Innflutningur fyrir fslenzka álfé- lagið vegur þyngst, en verðmæti hans var tæplega 500 milljónir króna, borið saman við tæplega 125,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Við samanburð við utanríkisverzl- unartölur 1982 verður að hafa í huga, að meðalgengi erlends gjald- eyris í janúar-april 1983 er talið vera 89,8% hærra en það var í sömu mán- uðum 1982. Mercedes Benz 190 E ódýrujxjjaNegu Hafa-baöskáparnir úr furu eru komnir aftur. Fást í 3 litum. Verö aöeins 2140.- VALD. POULSEN f Suöurlandsbraut 10. Sími 86499. Innréttingadeild 2. hæö. Er móða rúðunum hjá þér? Ef einangrunarrúöa veröur óþétt myndast meiri eða minni móöa á innri hliö ytra glersins. Þetta fer versnandi og smám saman verður útfelling á salti á yfirboröi glersins. Saltiö hefur tærandi áhrif og eftir nokkurn tíma myndast hvítir taumar eöa flekkir á glerinu og rúöan verður ónothæf. Þegar svo er komiö er ekki um annað aö velja en aö skipta um rúöu og þaö getum viö gert fyrir þig. En ef lekinn og móöan sem honum fylgir eru ný- lega til komin getum viö boðið upp á aöra lausn og lengt þannig um nokkur ár endingartíma óþéttra einangrunarrúöu. Aöferöin er í stuttu máli þessi: Boruö eru tvö göt á ytra gler hinnar óþéttu rúöu, í honum efst og neöst. Síöan er sprautað meö há- þrýstidælu inn í rúöuna og hún þannig þvegin og síöan skoluð aö innan. Vatninu er síöan dælt úr rúöunni og hún þornar á 1—2 vikum (eftir veöri). Götunum er síðan lokaö meö gegnsæjum plast- ventlum. Sem viömiðun má nefna aö kostnaður viö slíka viðgerð er nálægt 25% af veröi nýrrar rúöu (án ísetningar) en aö sjálfsögöu fer veröiö nokkuð eftir fjölda rúöa og öörum aðstæöum. Viö bjóöumst til aö koma í heimsókn og gera tilboö í viðgerö á þeim rúöum sem viö teljum aö hægt sé aö gera viö. Tilboð gerum viö þér aö kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga af þinni hálfu. Við veitum frekari upplýsingar og tökum á móti pöntunum í símum: 91-42867, 79846, 79420, 93-7369 og 96-22308. FJÖLTAK HF. Dalalandi 6 — 108 Reykjavík t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.