Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 10

Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Lítill pistill um vísindi og heimilislækningar eftir Guðstein ÞengUsson lœkni Á laugardaginn fyrir hvíta- sunnu birtist í Morgunblaðinu greinargerð frá sérfræðingum og framkvæmdastjórn Hjartavernd- ar. Greinargerðin virðist eiga að vera svar við fréttatilkynningu frá Félagi íslenskra heimilislækna, þar sem látið var að því liggja, að þær umfangsmiklu rannsóknir, sem fram færu á vegum Hjarta- verndar, væru ekki til neins gagns fyrir einstaklinginn og kæmu ekki að neinum vísindalegum notum heldur. Þess vegna heitir greinar- gerðin í heild sinni: „Eru tilvísanir heimilislækna gagnslausar?" Henni fylgir mynd, sem ég fæ ekki séð að standi í neinu sambandi við þær rannsóknir sem fara fram hjá Hjartavernd. Mér virðist greinargerð Hjarta- verndar standa talsvert skáhallt við það, sem heimilislæknar voru að gagnrýna. Þess vegna get ég ekki stillt mig um að skrifa um þetta fáein orð. Þau eru að sjálf- sögðu ekki að neinu leyti rituð á vegum Félags íslenskra heimilis- lækna, þeir skýra sín sjónarmið betur, ef þeim finnst ástæða til. Ég hef aðeins áhuga á málinu sem gamall heimilislæknir. í greininni er ágætt yfirlit yfir störf Hjartaverndar. Ég held, að það hafi ekki farið fram hjá mörg- um, sem um þessi málefni hugsa á annað borð, hve mikilvægu hlut- verki stofnunin hefur gegnt þau ár sem hún hefur starfað, ekki síst vegna rannsókna á tíðni hjarta- og æðasjúkdóma og hverjir séu helstu áhættuþættirnir við mynd- un þeirra hér á landi. Þetta starf er vel unnið og hefur geysimikla vísindalega þýðingu, enda vakið athygli vísindamanna erlendis og aukið hróður íslenskrar læknis- fræði. Hjartavernd er því stofnun, sem við getum öll verið stolt af. Það er rétt að benda á, að sá hópur manna, sem rannsakaður er, hefur verið valinn með tölfræðilegum og skýrslufræðilegum aðferðum þannig, að þessi hópur er rétt sýn- ishorn af heildinni. Jafnframt þessari starfsemi hefur verið nokkuð um það, að fólk hefur fengið tilvísanir til Hjarta- verndar og gengið gegnum sams konar rannsóknakerfi og hópur- inn, sem valinn var til hinnar vís- indalegu könnunar. Þessar tilvís- anir eru flestar þannig til komnar, að tilvísunarhafa hefur langað til að „láta rannsaka sig virkilega nákvæmlega" og ganga þannig fyllilega úr skugga um, að ekkert væri athugavert við heilsufar hans. Oftast er þetta fólk, sem hefur engin sérstök sjúkdómsein- kenni. Stundum hefur tilvísandi læknir viljað notfæra sér þá þjón- ustu, sem Hjartavernd býður upp á og senda þangað til rannsókna Guðsteinn Þengilsson sjúklinga sem höfðu einkenni er bent gátu til sjúkdóma í hjarta eða æðum. Sjálfur hefur hann þá e.t.v. ekki haft aðstöðu til að láta gera þessar rannsóknir á eigin vegum. Það er um þessa hópa, sem ágreiningurinn virðist vera milli heimilislækna og Hjartaverndar. Eins og ég vék að áðan, koma menn oft til heimilislækna og biðja um tilvísun til Hjartavernd- ar. Meðan aðstaða heimilislækna til rannsókna var lélegri en nú er, var það að sjálfsögðu kjörið að fá „Ég tel ekki rétt að segja, að það sé gagnslaust að senda fólk með tilvísanir til Hjartaverndar, því fer mjög fjarri. En ég held fram, að það sé óþarft, því að heimilislæknar geti annast allar nauðsynlegar rannsóknir á skjótari og hagkvæmari hátt...“ svo margar athuganir gerðar á einum stað, enda sparaði það læknum mikla vinnu. Nú hefur þessi aðstaða víða gjörbreyst til batnaðar hin síðari ár. Á heilsugæslustöðvum, þar sem meinatæknar eru við höndina er unnt að taka daglega sýnishorn af blóði og þvagi o.s.frv. Sumt er rannsakað á staðnum en annað, s.s. öll blóðefnafræði, fer fram á stærri rannsóknastofum á sjúkra- húsunum eða í Domus Medica. Þangað senda sumir heimilislækn- ar öll sýnishorn beint. Með þessu móti getur heimilislæknirinn gert eða látið gera undir sinni umsjá sams konar rannsóknir og þær sem fram fara hjá Hjartavernd. Þetta hefur ýmsa kosti fram yf- ir það að senda fólk með tilvísanir til Hjartaverndar. Heimilislækn- irinn hefur allar niðurstöður I höndum a.m.k. þrefalt fyrr en ef hann biði eftir niðurstöðum frá Hjartavernd. Það sparar sjúkl- ingnum mikinn tíma og rannsókn- in í heild kostnaðarminni bæði fyrir sjúklinginn og þjóðfélagið, Éf niðurstöður benda til þess að sérfræðilegrar meðferðar sé þörf, er þegar leitað til sérfræðings, t.d. í hjartasjúkdómum, og athuganir hans og meðferð koma því miklu fyrr til framkvæmda en ef hin seinlegri leið væri farin. Benda má á það, að oftast líða 3 vikur frá því að sjúklingur fer til Hjartavernd- ar og þar til niðurstöður berast heimilislækni, og er þá ekki með- talinn biðtíminn frá því að sjúkl- ingurinn fær tilvísun og þangað til hann kemst að til rannsóknar. Sá tími getur að sjálfsögðu verið mis- langur eftir aðstæðum. Ég tel ekki rétt að segja, að það sé gagnslaust að senda fólk með tilvísanir til Hjartaverndar, því fer mjög fjarri. En ég held því fram, að það sé óþarft, því að heimilislæknir geti annast allar nauðsynlegar rannsóknir á skjót- ari og hagkvæmari hátt, bæði fyrir sjúklinginn og þjóðfélagið. Niðurstöður mínar í þessu rabbi eru því þessar: 1) Gildi Hjartaverndar sem vís- indalegrar rannsóknastofnun- ar er hafið yfir allan vafa. Starfsemi hennar er ómetanleg og er okkur íslendingum til mikils sóma. 2) Tilvísanir til Hjartaverndar í því skyni að rannsaka einstaka sjúklinga og „gera allsherjar úttekt á heilsufarinu" tel ég óþarfar með öllu eins og að- stæðum er háttað nú. Heimil- islæknirinn getur annast þess- ar rannsóknir á hagkvæmari, skjótvirkari og markvissari hátt. Guðsteinn Þengilsson Hvorn tekjuskatt- inn á að afnema? eftir dr. Magna Guðmundsson Við höfum tvo tekjuskatta í þessu landi: stighækkandi tekju- skatt og útsvar, sem er flatt. Báðir eru beinir skattar, en svo nefnast skattar, sem greiddir eru af ein- staklingum eða fyrirtækjum til gjaldheimtu beint. Báðir falla á tekjur af vinnu eða eignum og eru því tekjuskattar. Það þykir ekki góð pólitík að hafa tvo eða fleiri skatta á einn og sama skattstofninn. Annan nefndra tveggja skatta ætti að af- nema. Spurningin er aðeins: hvorn þeirra? Einnig þarf að athuga, hvernig fá megi ríkissjóði eða sveitarsjóðum annan tekjustofn í staðinn. Þess er fyrst að geta, að báðir þessir beinu skattar hafa þá ótví- ræðu yfirburði yfir óbeina skatta, sem leggjast á eyðslu eða útgjöld (sbr. söluskatt), að þeir hækka ekki vöruverð eða þjónustu og auka því ekki verðbólgu. Tekjuskatturinn, sem er stig- hækkandi, er sjálfvirkt hagstjórn- artæki. Þegar tekjur vaxa al- mennt, eykst skattheimtan vegna stighækkunarinnar hlutfallslega meira en tekjurnar og kemur fram sem tekjuafgangur hjá ríki. Með þessum hætti dregur úr kaupgetu að tiltölu, og vöxtur ráðstöfunar- tekna verður minni en vöxtur þjóðartekna. Neyzla og eyðsla minnkar að sama skapi, og það stuðlar að jafnvægi. Þegar tekjur almennt eru aftur á móti fallandi, minnkar skattheimtan vegna s*ig- lækkunar skattsins niður tekju- stigann hlutfallslega enn meira, þannig að lækkun ráðstöfunar- tekna verður mun minni en ella hefði orðið. Þjóðfélagið má illa án þessa sjálfvirka hagstjórnartækis vera. Af þeirri ástæðu stendur nær að fella brott útsvarið, sem er flatur tekjuskattur og hefir því ekki þessar verkanir. Útsvar er nú 11,88% á brúttótekjur með fáein- um undantekningum, en veittur er afsláttur (lækkun), kr. 1159 á mann. Það jafngildir því, að byrj- að sé að reikna útsvar á brúttótekj- ur, sem nema tæpum kr. 10 þús. Hins vegar leggst tekjuskattur á nettótekjur. Þrep eru þrjú: 25%, 35% og 50%. Tekjuskattsafsláttur er kr. 17.351, sem jafngildir því, að byrjað sé að reikna skattinn á nettótekjur, er nema tæpum kr. 70 þús. Það má því ljóst vera, að út- svar kemur mun þyngra niður á lágtekjum og miðlungstekjum en tekjuskatturinn gerir. Éf það er rétt, að þessir tveir skattar séu ranglátir vegna lélegr- ar skattheimtu, ef þeir eru í fram- kvæmd nánast launaskattar, ber „Það þykir ekki góð pólitík að hafa tvo eða fleiri skatta á einn og sama skattstofninn.“ hiklaust að afnema útsvarið, en gera tekjuskattinn um leið skap- legri. Tekjuskatt á ekki að leggja á tekjur, sem duga aðeins fyrir nauðþurftum. Á tekjur ofar því lágmarki (= persónufrádrætti) komi stighækkun í mörgum þrep- um, með jöfnum halla, þó þannig að í efsta þrepi sé ekki tekið meira en nemur 50% tekna. Persónufrádráttur er heppi- legra form en persónuafsláttur (skattafsláttur). Hinn síðarnefndi gerir skattútreikning mun flókn- ari og erfiðari. Ein af grundvall- arreglum skattfræðinnar er ein- faldleiki. Sérhver skattþegn á rétt á því og kröfu til þess að vita og geta fundið út með einföldum hætti, hvað honum ber að greiða í skatt. Ef sveitarfélögin geta ekki án útsvarsins verið, ber að reikna það með öðrum hætti. Það ætti að koma sem álag (%) á innheimtan tekjuskatt — og mætti gjarnan vera breytilegt innan marka, eins og hvert skattumdæmi kynni að óska. Slíkt myndi skapa heilbrigða samkeppni milli héraða, sem gæti á ýmsan hátt orðið gagnleg. Enn betri lausn fyrir sveitarfé- lögin væri að fá til ráðstöfunar síðasta stig virðisaukaskatts (smásölustigið), þegar sá skattur verður upp tekinn. Alfred Guðmundsson og starfsmenn NeUgerðarinnar að störfum. Netagerð Thorbergs flytur í Grandaskála NETAGERÐ Thorbergs Einarssonar og Netagerð Alfreðs Guð- mundssonar hefur nú verið steypt saman í eitt fyrirtæki og hefur starfsemin öll verið flutt í Grandaskála í Reykjavík. Netagerð Thorbergs Einars- sonar var stofnuð 1931 og er því meðal elstu fyrirtækja sinnar tegundar í landinu. í febrúar á þessu ári voru færð undir sömu stjórn Netagerð Thorbergs og Netagerð Alfreðs Guðmundsson- ar. Nú hefur hið nýja fyrirtæki, sem ber nafn Thorbergs Einars- sonar, flutt í nýtt húsnæði í Grandaskála í Reykjavík. Fyrir- tækið annast framleiðslu og við- gerðir á hvers kyns veiðarfærum fyrir skip af öllum stærðum, s.s. botnvörpu, snurvoð og rækju- troll, auk þess sem það framleið- ir allan nauðsynlegan búnað til fisk- og laxeldis. Nýja húsnæðið er u.þ.b. 1000 fermetrar að stærð og skiptist jafnt í vinnupláss og nóta- geymslur. Helstu eigendur fyrirtækisins eru Alfreð Guðmundsson, sem jafnframt er framkvæmdastjóri, og Þórður Þorfinnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.