Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 12

Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Spjallað um útvarp og sjónvarp „Tomin komið fyrir sem næturverði í dýragarði“ Fyrir utan tíðindin frá Grímsvötnum af eldsumbrotum er minnisstæðast úr fréttum síð- ustu viku, er kom til handalög- mála nýlega á milli tveggja stjórnmálamanna í beinni út- sendingu sjónvarpsins í Brasilíu. íslenska sjónvarpið sýndi at- burðinn síðastl iðið föstudags- kvöld 27. maí. Stjórnmálamenn- irnir voru á öndverðum meiði um stjórnmál í landi þar sem ekki ósjaldan kemur til póli- tískra víga á götum úti. Sem bet- ur fer tókst stjórnanda útsend- ingarinnar að stilla til friðar áð- ur en stjórnmálamennirnir rifu fötin utan af hvor öðrum. Það var aftur rólegra og af- slappaðra andrúmsloft í þætti Jónasar Jónassonar, „Kvöldgest- ir“, sem var á dagskrá útvarps- ins um miðnætti. Jónas tilkynnti í lok þáttarins að þetta væri síð- asti þátturinn og eru það sorgar- tíðindi. Þáttur Jónasar hefur notið almennra vinsælda út- varpshlustenda, hann hefur ver- ið frábærlega vel heppnaður frá fyrstu tíð og er full ástæða til þess að skora á Jónas að byrja með þáttinn á ný á haustmánuð- um í upphafi vetrardagskrár. Gestir Jónasar í þessum þætti síðastliðið föstudagskvöld voru séra Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi þjóðkirkjunnar, og Þorgerður Ingólfsdóttir, tónlist- armaður, sem bæði voru góðir gestir. Þorgerður hefur nýlega fengið svonefnd bjartsýnisverð- laun sem veitt eru einu sinni á ári Norðurlandabúa að loknum fundi í Kaupmannahöfn og nor- ræn samstarfsnefnd veitir í við- urkenningarskyni fyrir afrek á sviði lista og vísinda. Þau verð- laun á hún fyllilega skilið. Fram- lag hennar til íslenskrar tónlist- ar er mikið og lofsvert. Séra Bernharður Guðmundsson hefur reynst íslensku þjóðkirkjunni góður fulltrúi og unnið gott starf í fræðlu- og útbreiðslumálum kirkjunnar. Hann sagði í þættin- um „Kvöldgestir" frá starfi sínu að trúmálum í Afríku og spjall- aði um líf sitt og starf í þágu kristinnar trúar. Þorgerður Ing- ólfsdóttir rakti nokkuð ítarlega framlag sitt til Hamrahlíðar- kórsins sem hún byrjaði að stjórna fyrir um það bil fimmtán árum. Kórinn hefur vakið al- þjóða athygli fyrir fagran söng og þáttur Þorgerðar Ingólfsdótt- ur í þjálfun kórsins mikill og at- hyglisverður. Skemmtiþáttur Bandaríkja- mannsins Sammy Davis jr. og breska háðfuglsins Bruce For- syth í sjónvarpinu laugar- dagskvöldið 26. maí, var frábær og-er ég mikið ósammála nafna mínum Friðrikssyni sem í DV gefur þessum þætti lægstu eink- unn og segir hann leiðinlegan. Sammy Davis er þrátt fyrir hvað hann er ófríður og lítill fyrir mann að sjá, skemmtikraftur á heimsmælikvarða og með ólík- indum hvað sá maður er fjölhæf- ur. Hann hefur mikla eftir- hermugáfu og leikur auk þess á fjölmörg hljóðfæri og er ágætur söngvari þegar honum tekst best upp eins og í þessum þætti. Ég saknaði þess að Sammy steppaði líið sem ekkert, en í þeirri göf- ugu íþrótt er hann í allra fremstu röð. Þeir félagar Sammy og Bruce skemmtu sjónvarpsáhorfendum í klukku- stund með ærslum og sprelli og hermdu meðal annars eftir Frank Sinatra, hinum kunna glaumgosa og leiðtoga í Holly- wood, „borg gleðinnar". „Stiklur", þáttur ómars Ragn- arssonar, var á dagskrá sjón- varpsins sunnudagskvöldið 29. maí eftir fréttir og auglýsingar. Að þessu sinni var ómar í heim- sókn hjá Vilhjálmi Hjálmars- syni, fyrrverandi bónda, alþing- ismanni og menntamálaráð- herra. Vilhjálmur fylgdi ómari um heimabyggð sína í Mjóafirði og þeir röltu um túnfótinn heima hjá Vilhjálmi á Brekku og Vilhjálmur sagði frá búskap í Mjóafirði og framtíð hans. Vilhjálmur klæddist íþrótta- fatnaði og ekki að sjá að þar færi tæplega sjötugur maður, hann var léttur í spori og hljóp um túnin eins og tvítugur unglingur. Þessi þáttur var eins og fyrri þættir Ómars fróðlegur og skemmtilegur og kostir þáttanna helstir að þeir eru góð kynning á landi og þjóð auk þess sem myndataka og öll úrvinnsla tæknimanna er frábær. „Óvinir ríkisins" heitir bresk sjónvarpsmynd sem sýnd var í sjónvarpinu síðastliðið mánu- dagskvöld og lýsir sannsögu- legum atburðum. Það mun hafa verið árið 1977 sem 243 mennta- menn, rithöfundar og blaðamenn í Tékkóslóvakíu undirrituðu mannréttindayfirlýsingu í anda Helsinki-sáttmálans. Þeir stofn- uðu hreyfinguna Charta 77 og urðu að þola ofsóknir og hand- tö'kur af hálfu sósíalískra yfir- valda í Tékkóslóvakíu. Myndin lýsir örlögum eins þessara manna, heimspekikennarans Julius Tomin og fjölskyldu hans. Heimspekikennarinn var sviptur öllum mannréttindum. Julius Tomin var komið fyrir sem næt- urverði í dýragarði. Eiginkona Tomin, Zdena, ritaði frásögn af atburðum eftir að þau hjónin Eilíf umræða Bókvitið og askarnir Opið bréf til Árna Gunnarssonar, skrifstofu- stjóra í menntamálaráðuneytinu, og Ingvars Gíslasonar, fyrrverandi menntamálaráðherra, frá Hallgrími Hróðmarssyni, kennara við MH Því miður hefur dregist nokkuð að ég kæmi því í verk að skrifa ykkur þetta bréf. Það er mjög bagalegt af því að nú eruð þið báð- ir komnir úr ykkar fyrri störfum. En vonandi eruð þið samt tilbúnir að ræða við mig opinberlega um samskipti mín við ráðuneyti menntamála að undanförnu. Breytingin skiptir litlu í þínu til- viki, Árni Gunnarsson, þar sem þú ert nú kominn í ábyrgðarmeira starf innan ráðuneytisins. Og þó þú, Ingvar Gíslason, sért laus úr embætti ráðherra þá ertu ekki laus undan þeim ákvörðunum sem þú hefur tekið sem slíkur. Umsókn um árs- orlof hafnað Það sem mig langar til að ræða í bréfinu því arna er umsókn mín um ársorlof næsta skólaár og að þið ráðuneytismenn skulið hafna henni. Ég er skipaður kennari í eðlisfræði og stærðfræði við Menntaskólann við Hamrahlíð og hef kennt það lengi að ég á rétt á orlofi (starfsaldur 13 ár). Ég er með BA-próf í eðlisfræði, stærð- fræði og efnafræði (frá 1972). En síðasta vetur stundaði ég nám við Háskóla íslands í almennri bók- menntafræði jafnframt kennsl- unni. Ég lauk þar prófi í 10 eining- um og hyggst taka haustpróf í 5 einingum til viðbótar. í umsókn minni gat ég þess að ég hefi áhuga á að halda áfram námi mínu í bókmenntafræðum við háskólann í Kaupmannahöfn. Þið ráðuneyt- ismenn höfnuðuð umsókn minni og gáfuð þá skýringu: „að umsókn yðar miðast við orlof til að stunda háskólanám í grein sem ekki teng- ist kennslusviði yðar, og það telur ráðuneytið ekki samrýmast gild- andi ákvæðum um orlofsveitingar til kennara".(1) Þá fullyrðingu að almenn bók- menntafræði tengist ekki mínu kennslusviði ætla ég að ræða síðar í bréfinu. En víkjum aðeins að „gildandi ákvæðum". f lögum um menntaskóla (nr. 12/1970) segir svo í 12. grein: „Nú hefur kennari gegnt embætti í 10 ár og óskar að hverfa frá störfum í eitt ár til að efla þekkingu sína og kennara- hæfni og skal hann þá senda yfir- stjórn skólanna beiðni um orlof ásamt greinargerð um, hvernig hann hyggst verja orlofsárinu. Ef ráðuneytið telur þá greinargerð fullnægjandi, getur það veitt kennaranum árslorlof með fullum launum. Engum kennara skal þó veita slíkt orlof nema einu sinni. Beiðni um orlof skal senda með ársfyrirvara. Yfirstjórn skólanna veitir kennurum er þess óska, leiðbeiningar um, hvernig orlofs- ári skuli varið, en allir verða þeir að gefa henni fullnægjandi skýrslu um störf sín a orlofsári loknu, að viðlögðum launamissi fyrir það ár. Yfirstjórn skólanna setur nánari reglur um fram- kvæmd orlofs kennara. Skal þess gætt, að það trufli ekki störf skól- ans eða torveldi þau.“ í reglugerð um menntaskóla (nr. 12/1971) er nánast sama orðalag í 57. grein nema að þar hefur yfirstjórn skól- anna fengið heitið menntamála- ráðuneytið. í þessum lögum og reglugerð er skýrt talað um að kennarinn hverfi frá störfum til að efla þekk- ingu sína og kennarahæfni — og það er einmitt það sem ég hafði í huga. I sérkjarasamningum Hins ís- lenska kennarafélags og fjármála- ráðherra frá 1. ágúst 1982 segir: „Framhaldsnám: 13.1. Um leyfi til framhaldsnáms félaga í HÍK skulu eftir því sem við getur átt gilda ákvæði reglugerðar nr. 62 frá 17. mars 1975.“ Þessi reglugerð er reyndar um orlof til grunn- Hallgrímur Hróðmarsson skólakennara og þessvegna er þetta sérstaka orðalag notað. En í reglugerðinni er lýst hver skilyrði eru fyrir orlofum, hvernig eigi að raða umsækjendum í forgangsröð og fleira. Of langt mál er að tí- unda þetta plagg hér, en ég leyfi mér að fullyrða að ekkert ákvæði í því mæli gegn orlofsveitingu til mín. Þetta eru þau „gildandi ákvæði“ sem þið hafið að styðjast við og i þeim getið þið ekki fundið neitt sem mælir gegn því að veita mér ársorlof. Enda er það athyglisvert að þið hafið ekki reynt að visa beint til neinna skriflegra ákvæða sem styðja mál ykkar. Hér er því um að ræða túlkanir ykkar á því hvernig fara eigi eftir „gildandi ákvæðum". Umsókninni hafnað þrátt fyrir viðbótarupplýs- ingar og rökstuðning í apríl á þessu ári lá fyrir að nokkrir af þeim 10 kennurum á framhaldsskólastigi sem fengu orlof gætu ekki þegið það af ýms- um ástæðum. Og var þá leitað til þeirra umsækjenda sem næstir voru í röðinni í starfsaldri. Ekki var haft samband við mig þó enn ætti eftir að úthluta einu orlofi. Þess í stað var auglýst eftirt við- bótarumsóknum og bárust nokkr- ar. Þar sem ég taldi umsókn mína enn í fullu gildi sendi ég inn við- bótarupplýsingar um nám mitt í vetur og væntanlegt nám mitt næsta vetur. í bréfi mínu til ráðu- neytisins segir: „Ef ég fæ orlof næsta ár er mjög líklegt að ég geti lokið 30 einingum í bókmennta- fræði til viðbótar (og hef þá 45 einingar). En eins og kunnugt er þarf 30 einingar til þess að grein sé metin sem aukagrein til BA- prófs og 60 einingar til að hún sé metin sem aðalgrein. Ég tel að eft- ir árið eigi ég stutt í að geta hafið kennslu í þessari grein. En jafn- framt tel ég að hæfni mín sem kennara muni stóraukast. Ekki síst í öllu innra starfi skólans því mikil nauðsyn er að kennarar fái nasasjón af því sem kollegar þeirra eru að gera.“(2> Ég sendi einnig inn umsögn Álf- rúnar Gunnlaugsdóttur, eins af kennurum mínum við HÍ, um þessa orlofsbeiðni mína, en þar segir: „Ég vona að haft verði í huga, þegar fjallað verður um um- sókn hans, að nám í bókmenntum veitir mönnum ekki aðeins starfs- menntun, heldur nær til fleiri þátta og skilar sér því aftur á óbeinan hátt og ekki alltaf áþreif- anlegan í uppeldi, mannlegum samskiptum og ekki síst við að koma hugmyndum áfram milli kynslóða." (3> Einnig fylgdi bréfi mínu um- sögn Örnólfs Thorlaciusar, rektors MH, en þar segir m.a.: „I kennslu- fræðum er nú talsvert fjallað um samþættingu námsgreina, en í framkvæmd strandar slík sam- þætting, a.m.k. í framhaldsskól- um, oftast á þröngri fagþekkingu kennara. Það hlýtur því að teljast kostur að hafa meðal kennara í framhaldsskóla menn sem lagt hafa stund á ólík fræði, jafnvel þótt kunnátta þeirra nýtist ekki beinlinis til fagkennslu í öllum þessum fræðum." (4> í framhaldi af þessu var síðan gerð eftirfarandi samþykkt í stjórn Hins íslenska kennarafé- lags þann 19. apríl sl.: „Stjórn HlK mælir með því að Hallgrímur Hróðmarsson, kennari við MH, fái orlof það sem enn er óúthlutað. Losni fleiri orlof leggur stjórnin til að umsækjendur komi til greina í þessari röð:“ — og síðan kemur upptalning nafna. Én allt kom fyrir ekki — umsókn minni var hafnað og kennurum með minni starfsaldur að baki var veitt orlof. Þó í umsögn Álfrúnar sé vikið að almennu gildi menntunar er ráðuneytið ekki tilbúið að fallast á að það nýtist mér á mínu „kennslusviði" á framhaldsskóla- stigi. Þó í umsögn minni og örn- ólfs sé vikið að innra starfi skól- ans og samþættingu námsgreina þá er ráðuneytið enn við sama heygarðshornið. — Þetta getur ekki nýst þér, Hallgrímur, á þínu „kennslusviði“ á framhaldsskóla- stigi. Ög það sem merkilegra er: ann- ar þeirra manna sem hafnar um- sókn minni og neitar að viður- kenna gildi bókmennta sem al- menns þekkingartækis, er sjálfur menntaður í bókmenntafræði. Tengsl bókmennta og raungreina — “I can’t believe that,“ said Alice. “Can’t you?“ the Queen said, in a pitying tone. “Try again: draw a long breath, and shut your eyes.“ Alice laughed. “There’s no use trying," she said: “One can’t believe impossible things." “I dare say you havn’t had much pract- ice,“ said the Queen. “When I was your age, I always did it for halfan-hour a day. Why, sometim- es I’ve believed as many as six impossible things before break- fast.“ Margir kannast eflaust við text- ann hér að ofan. Þetta er úr sög- unni um Lísu í Undralandi eftir Lewis Caroll. En hvar ætli ég hafi síðast rekist á hann? — Jú, það var í kennslubók í eðlisfræði „Patterns in Physics", í kaflanum sem fjallar um þá ótrúlegu stað- reynd að hraði ljóssins mælist alltaf sá sami hver svo sem mæl- andinn er og hvar svo sem hann er. Þannig hafa menn um langan tíma reynt að tengja það besta sem við eigum í bókmenntum okkar því sem við erum að fást við hverju sinni. En lítum á tvö dæmi úr íslensk-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.