Morgunblaðið - 08.06.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.06.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 47 I morgen Mario Jóhanna Kristjónsdóttir I morgen Mario, eftir Grete Roulund. Útg. Foriaget Rhodos Dálítið óvenjuleg bók og skondin. Danskur höfundur lýsir lífi portúg- alska betlarastráksins Mario. En mér skilst að Grete Roulund hafi áður leitað fanga í bækur sínar utan heimaslóða, á Spáni og í Kan- ada. Tónninn í I morgen Mario er mjúkur og mildur. Sögusviðið er Madeira. Sagt er frá samskiptum betlarastrákanna innbyrðis; þeir hafa sín föstu siðalögmál og frá þeim má ekki víkja. Mario vinnur fyrir ungum systrum sinum og hann er í rauninni tákn þess ein- staklings sem yfirvinnur erfiðleik- ana og lætur aldrei bugast þrátt fyrir að allt er honum andstætt — að minnsta kosti ef velferðarkvarði okkar er notaður. Það er eiginlega alveg óhjákvæmilegt að lesara fari að þykja vænt um Mario, svo mann- eskjulegur er hann f stolti sínu, auðmýkt og reisn. Grete Roulund sendi frá sér smá- sagnasafnið Verdito árið 1981 og mun þá hafa fengið góða dóma. Hún þykir hafa nokkra sérstöðu meðal danskra höfunda og þótt ég hafi ekki lesið fleiri bækur eftir hana en I morgen Mario þykist ég geta skilið það, að efnistök hennar, afstaða hennar til persóna og at- burða, er býsna fjarri stíl og skrif- um margra danskra kollega hennar, sem enn eru á kafi í vandamálabók- um, sem sumar hverjar hafa svo sem engan tilgang annan en vera eins konar skýrsla. Blackhawk kom út í fyrra og hlaut einnig ágætar undirtektir. I morgen Mario er splunkuný. Eitt af verkum Evu á sýningunni I Ásmundarsal. Eva í Asmundarsal Myndlist Valtýr Pétursson Ung listakona heldur nú sem stendur sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal við Freyjugötu. Þar getur að líta rúmlega fimmtíu myndir, gerðar á ýmsa vegu: coll- age, olíumálverk, vatnslitir og akríl. Sumt er gert á pappír, ann- að á striga. Það er óneitanlega dá- lítið þröngt á þingi þarna í Ás- mundarsal, og ég er ekki í neinum vafa um, að betur hefði farið á veggjum ef svolítið hefði verið grisjað og hefði sýningin í heild ekki beðið tjón af. Það er alltaf gott að láta hlutina hafa það rými, sem skapar þeim andrúmsloft, sem svo oft er nauðsynlegt til að listaverk geti talað sínu máli til fulls. Það er hressilegur blær yfir þessum verkum Evu Benjamíns- dóttur. Hún hefur visst áræði og notfærir sér myndflötinn á leik- andi hátt, þar sem litur og form fær að spila saman í órofa sam- hengi. Það er viss spenna í sumum þessara verka, sem fyrst og fremst vitna um litameðferð af hinu góða, ef svo mætti til orða taka. Eva virðist hafa meira til málanna að leggja í byggingu litarins en í sjálfu forminu. Það er lausara og um leið léttara í sér og verður því ekki eins sannfærandi og litbygg- ing flestra þessara verka. Þau eru að mínum dómi nokkuð persónu- leg og hafa lipurt yfirbragð, sem vitnar um lífsfjör og leikandi hug- arfar þessarar listakonu, sem er að hefja feril sinn sem málari. Hún er búsett utanlands eins og stendur og ekki á verri stað en sjálfri Boston. Þar eru ágæt lista- verk í söfnum og margir starfandi góðir listamenn, og er ekki að efa, að Eva Benjamínsdóttir hefur komizt í kynni við ýmislegt á þeim slóðum. Það er ágætt að fá áhrif frá fleirum en einum stað í mynd- iist okkar. Að undanförnu hefur Holland verið þar allsráðandi, og nokkuð held ég, að séu skiptar skoðanir um þann kunningsskap. Hér kemur ung listakona með nýj- ar hugmyndir, og því ber sannar- lega að fagna. Þessar hugmyndir koma úr nágrenni New York- borgar, en það er nú álitið nafli myndlistar af mörgum, en þess má einnig geta til gamans, að Boston-fólk hefur alla tíð þótt nokkuð íhaldsamt. Ef Evu Benja- mínsdóttur tekst að blanda nokk- urs konar hanastél úr þessum tveimur andlegu veigum, já, þá ætti allt að vera í lagi. Það var skemmtilegt að sjá þessi verk, og þau voru eins og ég hef þegar sagt, nokkuö hressileg. Þau koma fólki í gott skap og nán- ari viðkynning verður að skera úr um varanlegt gildi þeirra. Þetta er fyrsta sýning listakonu, sem lofar ágætu, og svo skulum við sjá hvað setur, og óska henni góðs gengis. Valtýr Pétursson LAWN-BOY GARÐSLÁTTUVÉLIN Þaö er leikur einn aö Rafeindakveikja. sem slá meö LAWN-BOY tryggir örugga gang- garðsláttuvélinni, setningu. enda hefur allt verið Grassafnari, svo ekki gert til aö auövelda þér verkið. 1 þarf aö^raka. 3,5 hö, sjálfsmurð tvi- gengisvél, tryggir lág- marks viðhald. Hljóölát. Slær út fyrir kanta og alveg upp aö veggjum. Auöveld hæöarstilling. Ryðfrí. Fyrirferðalitil, létt og meðfærileg. o VELDU GARÐSLÁTTUVÉL, SEM GERIR MEIR EN AÐ DUGA. HITAMÆLAR \ V® i SöyiDllaiiM®(yir JJ(?»(rQ©®©[Ri & (S(q) Vesturgötu 16, sími13280. Fer inn á lang flest heimili landsins! Gleðilegt Nýtt! eiðaeigendur Bílkó auglýsir nýja smunstöö Fyrst af öllu! Pú nefnir olíutegundina o. s. frv. og viö sinnum bílnum aö kostgaefni, seljum olíusíur og loftsíur í flestar tegundir bíla. Á meðan! Pú færð þér kaffi á efri haeð og lítur í blööin. ÍBarnaleikherbergi á haeðinnil. Að sjálfsögðu! Að auki! Bílaþjónustan Kópavogi s/f SmiÖjuvegi 56 - 200 Kópavogur @7 91 1 O OpiÖ yfin sumarmánuðina mánudaga — föstudaga 8°° — 1 9°° laugandaga S°° — 1 6°° # Gufuþvottur, utan dyra # Sala og ásetning á sílsalistum, aurhlífum og grjóthlífum. # Seljum ýmsa smáhluti til viögeröa. # Tökum aö okkur aö þrífa og bóna bíla. Eins og veriö hefur geta viðskiptavinir komiö og þrifið, bónað og gert við bíla sína sjálfir, í rúmgóöu, hreinlegu og björtu húsnaeði að Smiðjuvegi 5G Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.