Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 18

Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Öryggið er goðsögn Er Stóri dóm- ur orðin tóm? eftir Jakob S. Jónsson Njósnasögur hafa sjaldnast hlotið sérstaka athygli bók- menntagagnrýnenda, eins og unn- endum slíkra sagna er kunnugt; yfirleitt eru þær álitnar nauðsyn- legar bókaútgáfufyrirtækjum til að kosta útgáfu á lítt seljanlegum góðbókmenntum, og að öðru leyti eru þær afþreying, stundargaman undir svefninn eða hvíld frá dags- ins önn og amstri. Allt annað en bókmenntir, eins og það orð er skilið í merkingunni „vel skrifaðar bækur“. Þó hafa margir ágætir höfundar fengist við njósnasagnaskriftir með prýðilegum árangri; skrifað bækur, sem hafa sitthvað meira að færa lesendum sínum en stund- argamanið eitt og sér. Einn slíkur höfundur er nýkom- inn fram á ritvöllinn hér í Svíþjóð. Sá er tæplega sextugur og hefur ekki fengist við skriftir áður, en lifað býsna ævintýralegu lífi áður fyrr, unnið sem bréfberi, járn- brautastarfsmaður, sjómaður, biblíusali, fasteignasali og blaða- maður, svo fátt eitt sé talið; hann trúir ekki á öryggið, sem er sam- félagsleg goðsögn að hans mati, velur sér njósnasöguformið af því að lífið er þannig — og hann held- ur því fram að öll afbrot hafi ein- herja orsök; mikilvægasta orsökin er sú, að valdhafarnir krefjast hlýðni, valdsins vegna. Og hann skipar sér ekki á bekk með stjórn- málamönnum eða hugmyndakerf- um. Hann heitir Kjell-Olof Borne- I GÆR hélt Karlakór Akureyrar hljómleika í hinni gömlu Nikulásar- kirkju í miðborginni í Kaupmanna- höfn við hinar beztu undirtektir áheyrenda, sem að stærstum hluta voru íslendingar. Nikulásarkirkjan var aflögð sem sóknarkirkja fyrir nokkrum árum og er nú notuð sem sýningarsalur og til tónleikahalds. Karlakórinn er í söngför um Danmörku og Noreg og mun syngja á kóramóti í Álasundi, en hér sá íslendingafélagið í Kaupmanna- höfn um fyrirgreiðslu fyrir hann. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Jóhannsson, en undirleikari Ingi- mar Eydal, og einsöngvarar þeir mark, og bók hans „Legat till en trolös" — „Arfur til svikuls manns" — hlaut mikla athygli og verðskuldaða þegar hún kom út á árinu sem leið, og hún aflaði ný- lega höfundi sínum tveggja viður- kenninga: Sænska leynilögreglu- akademían veitti henni viðurkenn- ingu sem besta nýliðaverk á leyni- lögreglusagnasviðinu og Sher- lock-verðlaun Stokkhólmsdag- blaðsins Expressen féllu Borne- mark í skaut. „Arfur til svikuls manns" segir frá miðaldra njósnara, Greger Tragg, sem starfar fyrir austur- þýsku leyniþjónustuna. Þar er enginn annars vinur í raun, frem- ur en í leyniþjónustum yfirleitt; launráð og svik eru njósnaranum nálæg og þrúgandi áhyggjuefni. Þegar að því kemur að Greger Tragg fær kost á að velja á milli efnahagslegs öryggis á efri árum eða áframhaldandi starfs undir „verndarvæng" leyniþjónustunn- ar, velur hann fyrri kostinn, þótt það val geti skiljanlega kostað hann lífið, þar sem hann þarf að gerast tveggja þjónn um nokkurn tíma. Eins og njósnasagna er vandi, gengur sagan ekki þrauta- laust fyrir sig. Án þess að Ijóstra upp of miklu, er óhætt að segja að atburðarásin er ágætlega hröð og ber Greger Tragg og kumpána hans miklli ótal staða: Stokk- hólms, Berlínar, Basel og írlands, og svo auðvitað í nánd við tak- mörk lífs og dauða eins og vera ber. Bornemark tekst ágætlega að draga upp trúverðuga mynd af Guðmundur Stefánsson, Hreiðar Pálmason og Óskar Pétursson. Voru þeir allir klappaðir upp og varð kórinn að syngja nokkur auka- lög. Fagur og tær tenór Óskars Pét- urssonar frá Álftagerði vakti ein- kum athygli mína, en bræður hans tveir sungu nýlega dúett með Karlakórnum Heimi í söngför til Reykjavíkur. Á söngskránni voru einkum íslenzk lög sem vera ber f slíkri för, en einnig söng kórinn tvö lög á norsku. f vandaðri og myndskreyttri söngskrá er rakin saga Karlakórs Akureyrar, en hann var stofnaður 1929, og þar er einnig ávarp bæjar- Kjell-Olof Bornemark hræringum og átökum í alþjóðleg- um heimi njósna; frásögn hans er eðlileg og lipur og blessunarlega laus við alla ævintýralega tilgerð. Fyrir vikið gæti maður freistast til að trúa því að atburðir eigi sér stað einmitt á þann hátt sem hann lýsir: í hversdagslegu umhverfi hins ofurvenjulega samfélags- þegns, og í hópi þess fólks, sem hefur verið treyst fyrir lýðræðinu og til að gæta réttar hins venju- lega manns. Það er ekki laust við að óttablandinn hroll setji að manni við lesturinn og að hugur- inn fyllist efa um heilindi þeirra er sitja í raunverulegum valda- stólum. Og þá er að mínu viti til- ganginum náð með frásögunni, henni tekst að verða njósnasaga sem stendur við öll fyrirheit þess sagnaflokks um spennu og æsir lesandann. f blaðaviðtali lýsti Kjell-Olof Bornemark þeirri skoðun sinni, að margt hefði farið úrskeiðis í vel- ferðarríkinu Svíþjóð. Hann kveður bilið vera að aukast milli stétta og á góðri leið með að verða enn stærra en þegar hann sjálfur var að komast til þroska á tímum kreppunnar; lögreglan beitir ofbeldi af minnsta tilefni; og skrifræðið hefur tekið á sig hlægi- lega mynd í og með því að tölvum er betur treyst en lifandi fólki. Og Kjell-Olof Bornemark kveðst segja frá í bók sinni þeirri sömu sviksemi og hann sjái í samfélag- inu alll í kringum sig. — jsj stjóra Akureyrar, Helga Bergs. Út- dráttur ljóðanna á norsku er ritað- ur með þeim og eykur það áreiðan- lega athygli frænda okkar á Norð- urlöndum á íslenzkum söng og sér- kennum laganna. í lok hljómleikanna afhenti for- maður kórsins, Eggert Jónsson, for- manni íslendingafélagsins, óttari Ottóssyni, fána karlakórsins í þakklætisskyni og Óttar afhenti kórnum blómvönd frá dönskum að- dáanda. Áður en leiðir skildust var þjóðsöngurinn sunginn og héldu kórfélagar og gestir þeirra síðan í skoðunarferð í Jónshús. G.LÁsg. eftir Þórhall Steingrímsson Það er oft sagt að á kjördegi kveði kjósendur upp sinn Stóra dóm yfir valdhöfum landsins. Sá dómur verði ekki vefengdur og honum verði ekki áfrýjað. Með þetta í huga fara kjósendur inn í kjörklefana til að leggja sitt af mörkum við dómgæsluna. Nota réttinn til að hafa áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn er um marga hluti til fyrirmyndar öðr- um flokkum á íslandi. Hann tók snemma upp val á framboðslista og síðan opið prófkjör. En próf- kjör er einna mikilvægasta atriðið fyrir almenna kjósendur í flokkn- um til að hafa áhrif, í rauninni ekki síðra en sjálfur kosningarétt- urinn. Þannig hefur sjálfstæðis- fólki verið tryggður réttur til að velja fólk í framboð fyrir sig og síðan að velja eða hafna listanum sínum eftir ástæðum hverju sinni. Þetta eru dýrmæt réttindi þó okkur þyki þau sjálfsögð. Þetta er lýðræðið í framkvæmd. 1 síðasta prófkjöri vegna alþing- iskosninga í Reykjavík röðuðu kjósendur Sjálfstæðisflokksins frambjóðendum á lista hans. Þessi niðurstaða prófkjörsins var að langmestu leyti höfð í heiðri við endanlegan frágang á framboðs- listanum og speglaði því vilja flokksmanna. 1 sjálfum kosning- unum kaus sjálfstæðisfólk í Reykjavík síðan listann og kvað um leið upp endanlegan dóm sinn yfir frambjóðendum flokksins á listanum. Sá dómur var svo hljóð- andi: Sex efstu menn og konur á lista flokksins í Reykjavík sitja á alþingi næsta kjörtímabil. Ná- kvæmlega sex einstaklingar en hvorki fimm eða sjö. Þetta var stóri dómur kjósenda í Reykjavík og löglega upp kveðinn. Nú er með þessum dómi verið að velja fólk til setu á alþingi og ekki gefst ráð til að svara fleiri spurn- ingum á þessum kjörseðli enda er ekki um fleira spurt, berum orð- um. En hins vegar hlýtur það að vera vilji kjósenda að þessir sex kjörnu fulltrúar móti starfið á al- þingi fyrir hönd sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þar með talið að semja við aðra stjórnmálaflokka um ríkisstjórnir og önnur mikil- væg mál. Það brýtur því algerlega í bága við réttlætistilfinningu kjósenda í Reykjavík þegar manni sem ekki er í hópi kjörinna full- trúa Reykvíkinga er falin stjórn- armyndun fyrir Sjálfstæðisflokk- inn og um leið forysta fyrir þing- mönnum Reykjavikur. Til hvers erum við þá að velja fólk til setu í „En hins vegar hlýtur það að vera vilji kjós- enda að þessir sjö kjörnu fulltrúar móti starfið á alþingi fyrir hönd sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þar með talið að semja við aðra stjórnmálaflokka um ríkisstjórnir og önnur mikilvæg mál.“ æðstu valdastofnun landsins, ef þeir eiga síðan að lúta forystu utanaðkomandi manna í mikil- vægustu málum þjóðarinnar? Þó svo að skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins nái ekki að girða fyrir óhöpp af þessu tagi, þá er það eingöngu vegna þess að ekki er gert ráð fyrir þessum möguleika, en ekki vegna þess að hann þyki ofur eðlilegur kostur. Þetta er tvímælalaust í andstöðu við hugsun og vilja kjósenda sem kom fram í síðustu kosningum, síðasta Stóra dómi fólksins. Undir þennan leka verður að setja á næsta landsfundi Sjálfstæðis- flokksins. Og hann á að halda eins fljótt og auðið er. Á sama hátt og kjósendum er boðið að velja sér þingmannsefni í röð og síðan þingmenn, þá ætlast kjósendur til að sá sem flest at- kvæði hlýtur sé í forsvari fyrir hina. Að minnsta kosti á meðan kjósendur fá ekki að velja slíka forsvarsmenn á þingi með beinni kosningu. Það er að öllu leyti eðli- legri ráðstöfun en að leita út fyrir þingflokkinn eftir leiðtoga fyrir þingmenn. Þetta er brennandi spurning um virðingu og sjálfs- virðingu alþingismanna, ekki síð- ur en heimastjórnin var íslend- ingum og síðan stofnun lýðveldis- ins. En með þeim hætti sem nú hef- ur verið valinn er verið að hrinda Stóra dómi kjósenda og fyrir bragðið verða kosningar ekki teknar jafn alvarlega í framtíð- inni á íslandi. Þórhallur Steingrímsson er versl- unarmaður í Matvörubúðinni í Grímsbæ. Karlakór Akureyrar í söng- för um Danmörku og Noreg Bókar getió eftir Bergsvein Skúlason „Hér land og þar land og nóg er allt Island.“ Gott fólk gaf mér einhvern tíma í vetur stóra og vel útgefna bók eftir dr. Harald Matthíasson kennara á Laugarvatni. Hún heit- ir hvorki meira né minna en Land- ið og Landnáma. Örn og örlygur er útgefandi. Bókin er eins konar ferðasaga, samin í þeim tilgangi að kynna öllum almenningi á að- gengilegan hátt hin fornu land- nám fyrstu norrænu landnáms- mannanna og takmörk þeirra. Merkilegt og frumlegt framtak. Síðan hef ég öðru hvoru verið að rölta með höfundinum um landið og haft gagn og gaman af. Ekki veitti mér af að rifja upp það litla sem ég vissi um Landnámu og það sem hún fjallar um. Haraldur er yfirlætislaus og skemmtilegur förunautur meðan hann fylgir hinni gömlu bók sem fastast, en þegar hann grípur til getspekinnar, eða hefur ekki gefið sér nægan tíma til að kynna sér nógu vel þá staði sem hann fjallar um, er það eins og verða vill hjá leikum og lærðum, að ekki geta allir verið á sama máli. Hann segir réttilega, að Þránd- ur mjóbeinn hafi numið eyjar fyrir vestan Bjarneyjaflóa og búið í Flatey. En svo vill hann bæta við landnám karlsins og segir: „Sjálf- sagt hefur hann einnig numið Bjarneyjar og þær eyjar, er þar liggja til.“ Þetta er hugdetta höf- undarins. Eins og allir kunnugir vita, eru Bjarneyjar sunnan Bjarneyjaflóa en ekki vestan, og því alls ekki í landnámi Þrándar. Er það skýrt tekið fram í gömlu Landnámu, og óþarfi að vera að skekkja því á neinn hátt. Sagan ber það með sér, að þeir félagar, Geirmundur heljarskinn og Þrándur mjóbeinn, koma hingað síðla Landnámsaldar. Er þá orðið þröngt um menn, að „Þótt ég hafi gert þess- ar léttvægu athuga- semdir við bók Haralds Matthíassonar, er hún góð og stórfróðleg. Og hin þarflegasta mun hún vera öllum almenn- ingi, er einhverju lætur sig varða landnámið og sögu þess.“ þeirra tíðar hætti, í sunnanverð- um Breiðafirði. Sennilega eru Bjameyjar fullsetnar og búið að draga þar marga feita fiska á land, þegar Þrándur kemur til skjalanna á þessum slóðum. Fram hjá þeim hefur hann því siglt á leið sinni til Flateyjar. Líklega séð þar reyki stíga til lofts úr lágum kofum, og því látið hólmana eiga sig. — Hitt er sennilegra, og að því lætur Haraldur liggja, að í land- námi Þrándar auk Flateyjar og Hergilseyjar, hafi verið eyjar sem við gamlir menn af þessum slóð- um nefnum Inneyjar, og eru Svefneyjar, Hvallátur, Skáleyjar og Sviðnur, þótt það sé allsendis óvíst. Hallsteinn goði Þórólfsson á Hallsteinsnesi í Þorskafirði mun hafa verið á sveimi um Breiða- fjörð nokkru á undan Þrándi mjó- beini, og þá stungið við stafni og kynnt sér staðhætti og landslag í Inneyjum, ef trúa má sögunni um saltvinnslu þræla hans í Svefneyj- um, þótt aldrei byggi hann úti í eyjum sjálfur. Og víst má telja, að vel hafi hann þekkt til í Sviðnum og vitað af hinum sjálfgerða gálga þar við sjóinn, er svo auðvelt var að hengja menn í. Annars hefði hann að líkindum stútað þrælum sínum í Svefneyjum, þegar hann taldi sig ekki hafa þörf fyrir þá lengur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.