Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 20

Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Aðbúnaður starfsfólks til fyrirmyndar VIÐSKIPTAFRÆÐINEMAR á 4. ári við Háskóla ís- lands efndu til námsferðar til Bandaríkjanna í endað- an janúar síðastliðinn. Lagt var upp 22. janúar og komið aftur hingað til lands 6. febrúar. 45 viðskipta- fræðinemar tóku þátt í ferðinni og fararstjóri með þeim var dr. Ingjaldur Hannibalsson, sem kennir við háskólann. Ferðakostnaðinn greiddu þeir sjálfir og var ýmislegt gert til að afla tekna til ferðarinnar. Meðal annars voru seld jólakort og gefið út auglýsingablað og sögðu viðskiptafræðinemarnir að af ferðinni hefði ekki orðið nema vegna stuðnings fyrirtækja, stofnana og ein- staklinga. Ingjaldur sagði að ferðin hefði í alla staði tekist vel og gengið samkvæmt áætlun. Heimsótt voru meðal annars fyrirtæki, alþjóðastofnanir og skólar í Banda- ríkjunum og fer hér á eftir frásögn nokkurra þeirra sem þátt tóku í ferðinni af heimsóknum til helstu fyrirtækja og stofnana. Dr. Ingjaldur Hannibalsson Vidskiptafrædinám á Is- landi ber af frá þekking- arlegu sjónarmiði „VIÐ heimsóttum og kynntum okkur tvo háskóla í Bandaríkjunum, Georgetown University í Washing- ton og New York University í New York,“ sagði Jón Gunnar Borgþórs- son. „Okkur voru kynntir skólarnir og uppbygging graduate-náms þar í viðskiptafræðum. Það er um þrenns konar leiðir að ræða sem viðbót við námið hérna, MS-nám, MBA-nám og framhaldsnám í verslunarfræðum. Háskólinn í Washington var fyrst heimsóttur. Þetta er skóli sem jesúítar settu á stofn og þar eru margar sögu- frægar byggingar. Það bar þó alls ekki á því að trú væri mikilvæg í skólahaldinu. Við sátum í tímum, heimsóttum sameiginlegar vist- arverur stúdenta, skoðuðum stórt og mikið bókasafn og margt fleira. MBA-náminu er einkum ætlað að ala upp stjórnendur og forsvars- menn fyrirtækja. Nemendum er kennt að temja sér ákveðni og að taka ákvarðanir, enda urðum við vitni að ofsalegum fundi með kennurum og stúdentum, þar sem verið var að kenna þetta. Áhrifin sem skólinn hafði á mig voru þau, að hann væri vel skipulagður og auðugur með glæsilegum bygging- um. Það var nokkuð áberandi að það var verið að reyna að selja Jón Gunnar Borgþórsson okkur skólann með því að auglýsa kosti hans, kannski úr hófi. Við fórum svipaða skoðunarferð um New York University, hlýdd- um á fyrirlestra og var fylgt um húsnæði og byggingar skólans. Viðmótið þar var aftur á móti mannlegra og bar ekki eins mikið á því að reynt væri að selja okkur skólann. Heildaráhrifin af þessum heim- sóknum og þau not sem við höfð- um af þeim eru þau helst, að okkur varð ljóst hversu mikill reg- inmunur er á uppbyggingu fram- haldsnáms í Bandaríkjunum og hér á landi. Munurinn er hvorki alfarið jákvæður né alfarið nei- kvæður, þ.e.a.s. eingöngu öðru landinu í hag. í Bandarikjunum er, a.m.k. í þessu MBA-námi, greinilega lögð miklu meiri áhersla á að búa til stjórnendur fyrirtækja, byggja upp sjálfs- traust hjá þeim og þjálfa þá í að taka ákvarðanir, heldur en á aka- demískt nám. Fólkið í þessu námi virtist vera „aggressívt", eins og það vildi sífellt vera að taka ákvarðanir. Og það er einmitt frá hinu þekkingarlega sjónarmiði, sem hið íslenska nám stendur því bandaríska miklu framar. Til að mynda höfðum við haft nasasjón af flestu því, sem þau virtust vera að læra, og það er ótrúlegt hvað hægt er að ná út úr íslenskum kennurum, miðað við þær aðstæð- ur sem þeir búa við. Skólagjöldin eru há, nema frá 7—15 þúsund dollarum og það var talað um að annað eins þyrfti maður að hafa með sér til að lifa þarna þokkalegu lífi, svo að framhaldsnám þarna er spurning um talsverðar fjár- hæðir," sagði Jón Borgþórsson að lokum. „Við heimsóttum höfuðstöðvar Pepsi Cola fyrirtækisins 4. febrúar, daginn áður en við fórum heim og uppbyggingin þar kom svo sannar- lega á óvart," sagði Katrín Atladótt- ir. „Maður þekkir fyrirtækið ein- göngu af gosdrykkjunum, en það er langt í frá að það takmarki sig við þá framleiðslu. Fyrirtækinu er skipt í fímm deildir, og fyrir utan gosdrykk- ina eru skyndibitaframleiðsludeild, veitingahúsarekstur, íþróttavöru- deild og flutningadeild. Sérhver deild fyrirtækisins er fremur sjálf- stæð og vinnur sínar eigin rekstrar- áætlanir. Fyrirtækið selur nú gos til 147 landa og hefur orðið mikil aukn- ing á markaðshlutdeild, einkum í SA-Asíu, en þar var á síðastliðnu ári 6. stærsti markaður Pepsi Cola. Þá á fyrirtækið svo dæmi sé tekið 5300 veitingahús víðs vegar um Bandaríkin. Pepsi Cola fyrir- tækið framleiðir Wilson íþrótta- vörur og er þar einkum um tenn- isspaða og golfvörur að ræða. Okkur var sagt að þeir hefðu að undanförnu lagt mikla áherslu á þennan þátt framleiðslunnar, bæði með þjálfun starfsfólks og ýmsum söluhvetjandi aðgerðum í því sambandi. Þá voru stofnuð dótturfyrirtæki í Frakklandi og Þýskalandi. Árangurinn lét ekki á sér standa því að salan á íþrótta- vörum jókst um 20%. Flutningadeildin heldur uppi flutningum um Bandaríkin, eins og nú er milli 20 ríkja og eru eink- um fluttar búslóðir. Almennt kom fram hjá þeim sem sáu um að kynna okkur fyrir- tækið, að það hefur verið í mjög örum vexti. Dæmi um það er að framleiðsluverðmætið jókst um 412 milljónir Bandaríkjadollara árið 1981, en þá var heildarveltan um 7 billjónir dollara. Markaðsmál fyrirtækisins ein- kennast af gengdarlausu auglýs- ingastríði. Við fengum að kynnast auglýsingastefnu Pepsi frá upp- hafi og mátti sjá að mikil vinna er lögð í auglýsingar, enda skiptir miklu máli hvernig til tekst. Til dæmis er veltan á gosdrykkja- markaðnum í Bandaríkjunum ein- um 27 billjónir dollara, svo það munar mikið um hvert prósent- Katrín Atladóttir ustig í söluhlutdeild. Það er her- deild af sérfræðingum sem vinnur að því að búa jafnvel til eitt slag- orð og vörurnar eru auglýstar þannig í Bandaríkjunum að þær höfða til frítíma fólks, en í Sovét- ríkjunum til dæmis verður að aug- lýsa þær þannig að þær höfði til fólks í vinnunni. Það er því bundið löndum og menningarsamfélögum hvaða auglýsing er notuð í það og það skiptið og í þeim er reynt að hafa eitthvað einkennandi fyrir þjóðlífið í hverju landi. Skipt er um auglýsingar á þriggja ára fresti. Höfuðstöðvar fyrirtækisins standa á stóru landflæmi, 144 hektörum og allur aðbúnaður starfsfólks er til fyrirmyndar. Til að mynda eru á svæðinu sundlaug- ar, tennisvellir og heilsuræktar- stöðvar fyrir starfsfólkið. Það var hreinlega með ólíkindum hvað bú- ið var vel að starfsfólkinu, en þeir hjá fyrirtækinu töldu að það borg- aði sig og að ekki væri hægt að ofmeta það að hafa gott og ánægt starfsfólk. í garðinum fyrir framan aðal- stöðvarnar er mikið safn högg- mynda alls staðar að úr heiminum og það gladdi okkur að fá að sjá að ein höggmyndin var eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara, þ.e. „Gegnum hljóðmúrinn“,“ sagði Katrín að lokum. Almannatryggingar í Bandaríkjun- um mjög mismunandi eftir fylkjum „FYRSTA heimsóknin sem var á dagskrá í ferðinni, var heimsókn í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna," sögðu þeir Finnur Ingólfsson og Haf- þór Helgason, sem stunda nám í þjóð- hagskjarna. „Það vakti óneitanlega athygli okkar að þar stóðu yfir mótmælað- gerðir þegar okkur bar þar að garði, vegna stefnu Bandaríkjanna í Mið- Ameríku. Þegar inn var komið var vel tekið á móti okkur og haldinn fundur með starfsmanni ráðuneyt- isins, sem sérhæft hafði sig í ís- lenskum málefnum. Okkur fannst það koma nokkuð greinilega fram hjá honum og þeim sem þennan fund sátu að þjóðir geti ekki ætlast til þess aö Bandaríkjamenn fari um allan heim til að verja þær, án þess að eitthvað komi á móti og þeir virtust telja að framlag íslendinga til NATO í því tilliti væri herstöðin sem staðsett er hér á landi. Annars einkenndi þennan fund svipaður áróður og maður heyrir í sífellu, hjá hvoru stórveldinu sem er, um mikið verri stöðu hvað vígbúnað snertir miðað við hinn aðilann. Úr utanríkisráðuneýtinu var haldið til Brooking-stofnunarinnar, sem er sjálfstæð stofnun í utanrík- is- og efnahagsmálum. Þar eru stundaðar óháðar rannsóknir á þessum sviðum og hittum við þar tvo ráðgjafa að máli, annan í efna- hagsmálum og hinn í utanríkismál- um. Það var ekki mikið nýtt sem fram kom í umræðunum um utan- ríkismálin, en það spunnust skemmtilegar og gagnlegar umræð- ur um efnahagsmál. Ráðgjafinn i efnahagsmaalum var langt í frá að vera bandamaður stefnu Reagan- stjórnarinnar í efnahagsmálum, því að hann gagnrýndi stefnu hennar og var óhræddur við að láta í ljósi persónulegar skoðanir sínar, eins og raunar einnig utanríkismála- ráðgjafinn. Þessi efnahagsráðgjafi var sérhæfður í almannatrygging- um og sagði okkur talsvert af al- mannatryggingabótum í Bandaríkj- unum, meðal annars það, að þær «r Finnur Ingólfsson eru mjög mismunandi eftir fylkj- um. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn voru einnig heim- sóttir og vorum við frædd um starf- Hafþór Helgason semi þeirra. Hvort tveggja var stofnað 1944, i þeim tilgangi að minnka óróa á gjaldeyrismörkuð- um. Að stofnuninni stóðu 29 rfki en í dag er meðlimafjöldinn orðinn 143 og þar á meðal erum við íslend- ingar. Það er ráð 22 ríkja sem hefur stjórn sjóðsins með höndum. Norð- urlöndin hafa einn fulltrúa sameig- inlega og skiptast þau á um sætið á tveggja ára fresti og kemur það því í hlut íslendinga á tíu ára fresti að sitja í stjórn sjóðsins. Samkvæmt reglum sjóðsins má ekki breyta gengi um meira en 1% án þess að óska eftir leyfi og hefur aldrei stað- ið á leyfisveitingum til okkar ís- lendinga, þó oft hafi verið eftir leyf- inu leitað, enda skipta gengisbreyt- ingar okkar gjaldmiðils ákaflega litlu í heildarjafnvæginu. Alþjóða- bankinn lánar f sérstök uppbygg- ingarverkefni og hefur að undan- förnu legið undir gagnrýni, vegna þess að lönd hafa ekki getað endur- greitt lán hans vegna harðra endur- greiðslureglna. Þá sóttum við einnig Sameinuðu þjóðirnar heim og verðbréfamark- aðinn í New York og kynntumst eðli hans og starfsemi," sögðu þeir Haf- þór og Finnur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.