Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983
55
Stjórn Rauðakrossdeildarinnar á Dalvík ásamt bílstjórum fyrir utan nýja sjúkr&bflinn.
Nýr sjúkrabíll tekinn
í notkun á Dalvík
Dalvík 2. júní.
FYRIR skömmu kom til Dalvíkur
nýr sjúkrabfll sem er í eigu Rauða-
krossdeildarinnar. Bfllinn er af gerö-
inni Chevrolet-Starline og er búinn
öllum fullkomnasta búnaði til al-
mennra sjúkraflutninga og getur
flutt 2 sjúklinga í einu.
Sjúkrabíllinn er búinn að vera
lengi á leiðinni en nú er liðið nær
1 xk ár frá því hann var pantaður.
Hann átti að flytjast hingað til
lands beint frá Bandaríkjunum en
í brotsjó sem flutningaskipið fékk
á sig skemmdist bíllinn mikið. Er
hingað til lands var komið var
innréttingin tekin úr bílnum og
flutt yfir í annan bíl sem innflytj-
andinn átti óráðstafaðan. Kaup-
verð bílsins er nú orðið kr. 750.000
en var kr. 300.000 þegar hann var
pantaður. Að sögn Rögnvaldar
Friðbjörnssonar, sem annast hef-
ur þessi kaup deildarinnar, réðst
deildin í þessi kaup á sínum tíma
þar sem hún taldi sig auðveldlega
geta fjármagnað þau en deildin
átti tvo bíla fyrir og hefði söluverð
þeirra þá farið langt með að fjár-
magna þessi kaup. Bílarnir 2 voru
óhagkvæmir í rekstri og sameinar
þessi eini bíll kosti hinna tveggja.
Þar sem kauðverð bílsins hafði
hækkað um 150% frá því hann var
pantaður varð deildin að leita til
Rauðakross íslands um fjárstuðn-
ing. Sagði Rögnvaldur það mjög
erfitt fyrir deildina áð sinna
Bflstjórar nýja sjúkrabflsins, f.v.: Eirfkur Helgason og Einar Arngrímsson.
endurnýjun og viðhaldi sjúkra-
bifreiða með þeirri gjaldtöku sem
nú væri fyrir sjúkraflutninga og
yrði því deildin að leggja fram fé
til þeirra hluta sem hún aflaði
með ýmsu móti.
Sjúkrabíllinn er notaður fyrir
Dalvíkurlæknishérað sem nær yf-
ir Dalvík, Svarfaðardal, Ar-
skógsströnd og Hrísey og greiðir
það laun bílstjóra. Bíllinn er vel
búinn til aksturs í snjó og ófærð
eins og nauðsynlegt er í snjóþungu
læknishéraði, en hann hefur drif á
öllum hjólum.
Sunnudaginn 29. maí var bíllinn
almenningi til sýnis og komu
margir Dalvíkingar til að skoða
hann en jafnframt stóð Rauða-
krossdeildin fyrir kaffisölu til
fjáröflunar.
í Rauðakrossdeildinni á Dalvík
eru 180 félagar og er nýkjörinn
formaður Helga Þórsdóttir á
Bakka í Svarfaðardal.
Fréttaritarar.
Neytendasamtökin:
Neytendum meinað að
kaupa ódýra búvöru
STJÓRN Neytendasamtakanna sam-
þykkti einróma eftirfarandi ályktun á
fundi 5. júní.
Neytendasamtökin benda á, að
undanfarna daga hefur komið skýrt
í ljós að samtök framleiðenda bú-
vara hafa þá stöðu á markaðnum
vegna úreltra lagaákvæða og styrks í
stjórnkerfinu, að þau geta farið sínu
fram án tillits til hagsmuna neyt-
enda eða smásöluaðila. Þessu valdi
sínu hafa samtök framleiðenda beitt
með þeim hætti að ekki verður við
það unað. Síðustu verðhækkanir á
búvörum eru óeðlilegar miðað við
launahækkanir. Neytendum er
meinað að kaupa ódýra búvöru
vegna þess að samkeppnishömlum er
beitt. Áformað er að koma á einok-
unarsölu á eggjum sem stríðir gegn
hagsmunum neytenda. Neytendum
er boðið upp á stórgallaðar kartöflur
sem fyrsta flokks vöru. Innflutning-
ur og sala á grænmeti er óviðunandi
enda hneppt í viðjar einokunar og
úreltrar tollalöggjafar. Samtök
framleiðenda á búvörum fá mikla
styrki frá hinu opinbera, meðan
stuðningur hins opinbera til sam-
taka neytenda er óverulegur.
Neytendasamtökin krefjast þess í
ljósi framangreindra atriða að úrelt
verðlagningarkerfi á búvörum verði
afnumið;
— að samkeppnishömlur á fram-
leiðslu og sölu búvara verði afnumd-
ar, þannig að smásalar geti fengið
ódýra jógúrt eða aðra framleiðslu til
sölu óháð því hvar verslunin er stað-
sett;
— að landbúnaðarráðherra setji
ekki reglur um einokunarsölu á eggj-
um;
— að neytendum standi jafnan til
boða ætar kartöflur, þannig að inn-
flutningur kartafla hefjist áður en
óviðunandi ástand skapast;
— að farið verði eftir mats- og
gæðareglum um kartöflur;
— að neytendum séu tryggðir
valkostir með því að smásalar geti
haft á boðstólum fleiri en eina teg-
und af kartöflum;
— að einokun á innflutningi á
grænmeti verði afnumin;
— að stjórnvöld styrki kynn-
ingarstarf neytenda á sama hátt og
þau styrkja samtök framleiðenda til
að jafnræði ríki með markaðsaðil-
um.
Neytendasamtökin ítreka ábend-
ingar um, að flestar landbúnaðaraf-
urðir, sem framleiddar eru innan-
lands eru háðar einokunarsölu og
framleiðslustjórnun, sem tekur fyrst
og fremst mið af hagsmunum fram-
leiðenda. Staða neytenda hér á landi
er í þessu efni veikari en í nágranna-
löndum okkar. Það er óviðunandi að
samtök framleiðenda skuli geta beitt
geðþóttaákvörðunum algerlega í
andstöðu við hugmyndir um eðlilega
viðskiptahætti.
Koparkranar fyrir vatn, gufu og
olíu, ávallt fyrirliggjandi.
VALD. POULSEN!
Suöurlandsbraut 10,
sími 86499.
úarðhúsgögn
i f i A\l i i ivt/oli
EIB
nwi
Bláskógar
í fjölbreyttu úrvali.
Góöir
greiösluskilmálar
Hagstætt verð.
ARMULI 8
SÍMi: 86080
Karlmannaföt
frá kr. 1.795,00
Terylenebuxur, nýkomnar
Gallabuxur
Flauelsbuxur
Gallabuxur, kvensnið
Stretch-gallabuxur
Regngallar o.m.fl. ódýrt
kr. 475,00
kr. 315,00 og kr. 365,00
kr. 330,00
kr. 330,00
kr. 525,00
kr. 585,00
Andrés, herradeild,
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Péglers