Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 24
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983
XJOTOU'
iPÁ
HRÚTURINN
Í|V 21. MARZ—19.APRIL
ÞetU er tilvalinn dagur til þess
ad stunda verlsun og viðskipti.
Þú ert hraustur og duglegur í
dag og nýtur þess ad sýna hvad í
þér býr. Þú skalt taka þátt í
keppni ef þér býðst tækifæri.
NAUTIÐ
20. APRÍL-20. maI
Þú ættir að taka til hjá þér í
dag, fara í gegnum dót sem þú
geymir inni í skápum og henda
því sem þú notar aldrei. Auka-
vinna eða nýtt áhugamál er það
sem þú þarft á að halda.
W/A TVÍBURARNIR
WvS 21. maI—20. JÚNl
þú þarft á einhverri tilbreytingu
að halda, reyndu að fara á nýjar
slóðir og hafðu nóg að gera í
dag. Þú ert aldrei ánægður
nema að þú hafir nóg að gera.
KRABBINN
<9* 21. JÚNÍ—22. JÚLl
Þú skalt vera með í því að vinna
að málefnum þeirra sem eru
minnimáttar. Þú hefur gott af
því að starfa með öðrum og sér-
staklega ef málefnin eru trúar-
leg eða andlegs eðlis.
ÍSjlUÓNIÐ
ð%»^23. JÍILl—22. ÁGÚST
Taktu þátt í félagsmálum á
vinnustað þínum. Þetta er góður
dagur til þess að sameina vinnu
og skemmtun. Hugmyndir þínar
eru mjög góðar og þú verður lík-
lega kosinn til þess að vera í
forystu.
MÆRIN
23. ÁGÚST-22. SEPT.
Þér verður vel ágengt ef þú
þarft að fara í ferðalag tengt
starfi þínu í dag. Þú ert mjög
áhugasamur og duglegur. Þú ert
viljasterkur og vinnur á öllu
mótlæti.
WU\ VOGIN
VifiTé 23.SEPT.-22.OKT.
Heppnin er með þér í fjármálum
í dig. Trúin getur einnig orftið
þér til mikillar hjálpar. Þú ert
mjög áhugasamur og spenntur
fyrir að prófa eitthvaó nýtt.
Gerðu áætlanir fyrir framtíðina.
DREKINN
______23. OKT.-21. NÓV.
Þú ert heppinn í dag, það virðist
allt ganga vel sem þú tekur þér
fyrir hendur. Sérstaklega ertu
heppinn í ástamálunum og fjár-
málunum. Notaðu Uekifærið og
gerðu þá samninga sem þú þarft
fyrir þennan mánuð.
fil BOGMAÐURINN
22. NÓV.-21. DES.
Þú átt gott með að vinna með
öðrum í dag. Félagsstörf og allt
sem þeim viðkemur er tilvalið
fyrir þig. Þú mátt samt ekki
gleyma þínum nánustu og þú
skalt ætla þér einhvern tíma til
að vera með þeim.
m
STEINGEITIN
22. DES.-19.JAN.
Þú skalt einbeita þér að því að
bæta ástandið á vinnustað þín-
um. Bæði sambandið við vinnu-
félagana og starfsaðstöðuna.
Hugsaðu um heilsuna, þú þarft
að bæta mataræðið og hreyfa
þig meira.
VATNSBERINN
20. JAN.-18.FEB.
Vertu með fjölskyldunni, það er
margt sem þarf að laga á heimil-
inu og þú getur vel gert það
sjálfur. Þú ert mjög duglegur og
jákvæður í dag og átt gott með
að fá aðra til samstarfs.
!< FISKARNIR
19. FEB.-20. MARZ
Kallaðu fjölskylduna saman til
skrafs og ráðagerða. Þú þarft að
taka meiri þátt í félagsmálum
og skemmtunum. Ef eitthvað
þarfnast viðgerða á heimilinu,
skaltu reyna að gera við það
sjálfur
CONAN VILLIMAÐUR
---------------------—-------------•--- 7 "
DYRAGLENS
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
Furðulegt.
En kurteist.
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sjö lauf í N-S er rólegur
samningur með öllu nema
spaða út. Það er nóg að tígl-
arnir séu 3-2.
Norður ♦ Á642 ▼ 54 ♦ ÁK76542
Vestur ♦ - Austur
♦ G873 ♦ K1095
▼ 9876 ▼ KD32
♦ D10 ♦ G98
♦ 1083 ♦ 62
Suður ♦ D ▼ ÁG10 ♦ 3 ♦ ÁKDG9754
Og jafnvel með spaða út er
spilið ekki vonlaust. Það er
hægt að trompa spaða heim og
spila upp á kastþröng í rauðu
litunum. Sami andstæðingur-
inn verður að eiga þrjá tígla
og hjónin í hjarta.
Allt gott og blessað. En
samningurinn er óvart 7 grönd
með hjarta út! Þar með er
samgangurinn slitinn fyrir
einfalda þvingun i tígli og
hjarta. Það er nefnilega nauð-
synlegt að vera búinn að taka
spaðaásinn til að kastþröngin
virki. En það er ekki hægt með
hjarta út því þá er engin inn-
koma á suðurhöndina.
En spaðadrottningin er ekki
alveg nýtt spil. Laufunum er
spilað og þetta er staðan þegar
eitt lauf er eftir:
Norður
♦ Á
V -
♦ ÁK76
+ -
Vestur Austur
♦ G87 ♦ K
▼ - ▼ K
♦ D10 ♦ G98
♦ - ♦ -
Suður
♦ D
VG10
♦ 3
♦ 4
Spaðaásinn er látinn fjúka í
lauffjarkann og samgangs-
stíflan þar með rofin. Austur
gerir best í því að henda
spaðakóngnum en þá er kast-
þröngin endurtekin með
spaðadrottningunni.
Umsjón: Margeir
Pétursson
Nýlega lauk í Netanya í
ísrael íþróttahátíð, þar sem
m.a. voru nokkur skákmót á
dagskrá. í aðalmótinu kom
þessi staða upp í viðureign
stórmeistaranna Vladimirs Lib-
erzon, ísrael, sem hafði hvítt
og átti leik, og Miguels Quint-
eros, Argentínu.
42. Re6! — Hxe6 (Eða 42. -
Dd2, 43. Hxh6+! - Bxh6, 44.
Df6+, Kg8,45. Dg6+ - Kh8, 46.
Dxe8+ - Kh7,47. Df7+ - Kh8,
48. Df6+ og næst 49. g5) 43.
Df8+ — Kh7, 44. DI7+ — Kh8,
45. Dxe6 og Liberzon vann.