Morgunblaðið - 08.06.1983, Side 25

Morgunblaðið - 08.06.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 57 félk í fréttum Þrjér af aðalparsónunum ( „Dynaaty". Fallon, dóttirin, Steven, sonurinn, og Alexis, fyrrverandl oiginkona Blakes. Blake sjálfan vantar á myndina. Dynasty 55 Sjónvarpsþátturinn sem gerir „Dallas“ að hreinu barnagamni Blake Carrington heitir maft- urinn, sem fær Ewing-fjölskyld- una í Southfork til aö Ifta út sem saklausan sunnudagaskóla, og hann er ættarhöföinginn ( sjón- varpsmyndaflokknum „Dyn- asty“, sem slegift hefur út „Dall- as“ bæöi ( Bandaríkjunum og Bretlandi. „Dynasty" fjallar eins og „Dall- as“ um fólk, sem oröiö hefur auöugt á olíuvinnslu, og gerist myndin í Denver í Colorado. Blake, sem John Forsyth leikur, er kvæntur hinni ungu og fallegu Krystle (Linda Evans) en hann lætur hjónabandiö ekki hindra sig í aö lyfta sér upp meö ööru kvenfólki. Ekki vantar heldur konurnar í kringum hann og hann á þaö sammerkt meö J.R. í Dallas, aö hann hefur kynþokka, vald, peninga og takmarkalausan metnaö. Um samanburöinn viö Dallas segir John Forsyth: „Dynasty fjallar um þaö sama en hefur þó meira af öllu — kynlífi, baktjalda- makki og taugaáfalli. Auk þess er handritiö betur skrifað." j myndinni á Blake sér dóttur, Fallon aö nafni, vergjarna í meira lagi, og er hún leikin af Pamelu Sue Martin, sem er ekki síður vinsæl vestra en J.R. Ástarævin- týri hennar falla þó fööur hennar ekki alltaf vel í geö og síst af öllu þegar hún tekur upp á því aö sænga meö erkióvinum hans í olíubraskinu. Sonur Blakes, Steven (Lloyd Bochner), er ekki heldur neinn augasteinn fööur síns. Steven botnar hvorki upp né niöur í olíu- viöskiptunum og raunar ekki í viöskiptum yfirleitt og auk þess er hann ekkert líkur fööur sínum meö kvensemina. Hann er hrifn- ari af sínum eigin kynbræörum. Slangan í Edensgaröi Carr- ington-fjölskyldunnar er þó Alex- is (Joan Collins), fyrrverandi eig- inkona Blakes, sem er staöráöin í aö ná sér niöri á honum og beit- ir til þess öllum brögöum. Sagt er aö „Dynasty" hafi orö- iö til þess aö Joan Collins skildi við manninn sinn, Ron Kass. Jo- an á aö hafa veriö oröin svo heill- uö af persónunni Alexis og tvö- feldninni og bellibrögðunum, sem hún beitir i myndinni, aö hún hafi verið farin aö koma fram viö hann á sama hátt. Þaö endaöi aö sjálfsögöu meö skilnaði. COSPER COSPER 22.JÚNI Ætlarðu í sumarfrí? Ef svo er þá er 3ja vikna ferðin til Benidorm 22. júní ódýrasti kosturinn. — Hreint ótrúlega lágt verð. Mjög góð gisting - Sértilboð á Don Miguel II 50ABARNA AFSIÁTTUR Meðalverð fyrir hjón með 2 börn Kr. 13.875.- TAKMARKAD FRAMBOÐ KYNNIÐ YKKUR GREIÐSLUKJÖRIN SPUNNŒ) UM STAIÍN eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN rýna í fréttaskeytin, punkta niður hjá sér og skrifa það, sem fyrir hann er lagt. Hann sér forsíðuna fyrir sér með andlátsfrétt Stalíns. Hugsar um, hvaða áhrif dauði hans hafi á þróun mannlífs á jörðinni. Dregur úr stríðshætt- unni? Verður saminn friður í Kóreu? Hvernig skyldu leppríkin bregðast við? Skyldi flóttamannastraumurinn frá Austur-Þýzkalandi minnka? Hann er ákveðinn í að fara þangað og kynna sér ástandið. Hann veltir fyrir sér, hvort ólgan eigi eftir að koma upp á yfirborðið, sýnileg og lífshættuleg eins og glóandi hraun. Hann leggur frá sér skeytin. Hvað skyldi vera að marka þessar fréttir? Hann trúir ekki öllu, sem hann er að lesa, t.a.m. ekki hvenær og hvernig Stalín veiktist. Veit að félagar hans laga það í hendi sér. Leggja áherzlu á það eitt, sem kemur þeim vel. Bezt getur hann trúað því, að þeir hafi eitrað fyrir hann. En hann getur ekki skrifað það. Hann verður að halda sig við staðreyndir þessara fréttaskeyta, sem eru þó kannski ekki meira virði en gróusögur hasarblaða. Þeir segja Malenkov, Bería og Búlganin verði eftir- menn Stalíns, einhver þeirra eða allir. Það er að vísu ekki ólíklegt. Skyldi Voroshíloff verða forseti Sovétríkjanna, eins og sagt er? Sumir segja Molotov taki aftur við embætti utanríkisráðherra af Vyshinsky. Eða Búlganin? Hefur hann herinn á bak við sig? Reynir Bería gagnbylt- ingu með öflugar hersveitir öryggislögreglunnar á bak við sig? Það kemur óbragð í munninn á unga blaðamanninum, þegar hann les, að arftakar Stalíns muni halda áfram friðarstefnu hans, eins og komizt er að orði í tilkynningu sovézkra stjórnvalda. Og guð hjálpi heiminum, ef satt er að Rússar séu að hefja fjöldaframleiðslu á kjarnorku- vopnum. Enginn veit á þessari stundu, hverjum líkaböng glymur. Enginn. En eitt er þó nokkurn veginn víst: Stalín verður nú kallaður fyrir þann dóm, sem engum þyrmir. Nú getur hann ekki áfrýjað frekar en þeir félagar hans, sem hann gekk milli bols og höfuðs á. Blaðamaðurinn hefur sjálfur mestan áhuga á samskiptum Sovétríkjanna og Kína. Hann veltir fyrir sér, hvað Mao-Tse-Tung muni gera. Hann hefur dálitla von um, að hann losni undan sovézka okinu. Og þó! Hvað skyldi uppáhaldsdálka- höfundur hans, Edward Crankshaw, segja um það? Hann hefur oft þýtt greinar eftir hann og finnst hann merkastur þeirra, sem skrifa um heimsmálin. Bezt að sjá, hvort ekki hefur komið grein frá honum. Blaðamaðurinn stendur upp, gengur inn í næsta herbergi, spyr. Jú, ný grein frá Observer. Öll réttindi áskilin. Skrifuð í tilefni af fráfalli Stalíns, óleyfilegt að birta hana, fyrr en tilkynnt hefur verið um dauða hans. Blaðamaðurinn tekur grein Crankshaws, ber hana aug- um: Stalín er fæddur í fimm fermetra herbergi í skúr með einum glugga . . . Þar var lítið borð, stóll, trérúm, annað ekki ... Grimmd hans á rætur í siðlausu þjóðlífi Kákasus .. hálfsvalt I prestaskólanum ... hungurverk- föll . . pyntaður og sendur í útlegð fyrir byltingar- starfsemi . .. tók líkamlegum refsingum með jafnaðar- geði margir byltingarmanna, þ.á m. Lenin, leituðu hælis undan ofsóknum í Vesturlöndum, en Stalín flýði aldrei úr landi ... varð félagi í bolshevikaflokknum 1903 .. . talsmaður NEP-stefnunnar í efnahagsmálum, sem veitti einkarekstri örlítið olnbogarými um skeið til að vinna bug á hungursneyð . . . Búkharin vildi halda lengur í þessa efnahagsstefnu en Stalín .. . var því grunaður um kapítalískar tilhneigingar . . . Stalín trúði því einlæglega, að sú stefna Trotskys að láta heimsbyltinguna hafa for- FRAMHALD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.