Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 30

Morgunblaðið - 08.06.1983, Síða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Q4U á leiö með sína aðra plötu Tiltölulega stutt er síöan Q4U sendi frá sér sína fyrstu plötu. Sala á henni hefur gengið bærilega, ekki hvaö síst þegar tekið er tillit til allra þeirra erfiöleika, sem íslensk plötuútgáfa á við aö etja þessa dagana. Sveitin er ekki aldeilis af baki dottin og aö sögn Árna Daníels, hljómborðsleikara flokksins, er þess að vænta að hljómsveitin haldi í hljóöver áöur en langt um líður til þess aö taka upp litla plötu, hugsanlega þriggja laga. Fimmti maðurinn að ganga í Egó? Þær fregnir bárust Járnsíö- unni til eyrna fyrir nokkrum dögum, að ekki aðeins væri ein breyting væntanleg á liösskipan Egó, heldur tvær. Þegar er Ijóst, að ungur trommuleikari úr hljómsveit- inni BG tekur sæti Magnúsar Stefánssonar. Nú hefur það heyrst aö Gunnar Rafnsson, sem síðast var í Kikk, sé nýgenginn eöa um þaö bil aö ganga til liös viö Egó. Gunnar lók á hljómborð í Kikk og vitaö er aö Egó hefur haft augastaö á hljómborös- leikara um nokkurt skeiö. Ekki selt dýrara en keypt var. Valgeir og Bjólan saman á breiðskífu Þessa dagana eru þeir Val- geir Guöjónsson, Stuðmaður með meiru, og Siguröur Bjóla Garðarsson að leggja síöustu hönd á breiöskífu sem þeir hafa verið aö vinna aö undan- farið. Þrátt fyrir tiiraunir i þá áttina hefur ekki tekist aö hafa uppi á Valgeiri, enda maöurinn ekki í símaskránni. Eftir því sem næst veröur komist á þessi plata þeirra aö vera mjög í anda Stuðmanna, þannig aö aö- dáendur þeirra ættu aö fá eitthvaö fyrir sinn snúö. Fimmtán í sex mánaða fangelsi Ekki er langt síöan skýrt var frá því á Járnsíöunni, aö ít- alskir aödáendur Eric Clapton heföu fariö hamförum fyrir utan tónleikahöll, þar sem hann var aö leika, af einskær- um vonbrigöum yfir því að fá ekki miöa á tónleika hans. Ekki uröu lætin minni þegar Joni Mitchell tróö upp í Mílanó í síöustu viku. Þar upphófst hraustlegt grjótkast aödáenda hennar er lögreglan reyndi aö bola þeim burt frá tónleikahöll- inni, þar sem þeir létu ófriölega vegna skorts á miðum. Ekki færöist ró yfir svæöiö fyrr en lögregla haföi handtekiö fjölda manns. Fimmtán voru dæmdir í hálfs árs fangelsi og sækja því væntanlega ekki tónieika á því tímabili. Morgunblaöiö/EBB. Fimmmenningarnir í Deild I. Frá vinstri: Björgvin, Ásgeir, Sigurgeir, Eiríkur og Richard. Deild 1 — áður Puppets — í Járnsíðuspjalli: „Sendum ekkert annað en gott frá okkur“ - stefnt að breiðskífuútgáfu með haustinu Talsvert langt er nú oróið um liðið frá því fyrst var skýrt frá hljómsveitinni Puppets. Þegar fyrstu fregnir fóru af staö voru þeir Eiríkur Hauksson, Sigurgeir Sigmundsson, Rúnar Erlingsson, Kristján Edelstein og Oddur nokkur, fyrrum trommari Tappa Tíkarrass, í myndinni. Þetta var langt í frá aö vera endanleg mynd. Áöur en hljómsveitin lék loksins opinberlega fyrir nokkrum vikum höföu oröiö býsna margar breyt- ingar. Kristján hætti alfariö og er reyndar aö mestu kominn út úr „bransanum", Oddur hætti einnig í hljómsveitinni og reiöarslagiö kom síöan er Rúnar Erlingsson hætti. „Hann sagöi alltaf viö okkur, aö hann kæmi aftur þegar hann væri búinn í stúdíóinu meö Egó. Ég taldi mig vita betur og sagöi viö hann, aö úr því hann tæki þetta verkefni aö sór yröi ekki aftur snúiö. Þaö varö og raunin," sagöi Eiríkur Hauksson, er Járnsiöan heimsótti hijómsveitina Deild 1, sem áöur hét Puppets. Björgvin í slaginn Núna er Deild 1 skipuö þeim Ei- ríki, Sigurgeiri og þeim Richard Korn, bassaleikara, Ásgeiri, fyrrum trommara Purrks Pillnikks, og Björgvin Gíslasyni, sem bættist i hópinn fyrir rúmri viku. Fari þaö eitthvaö á milli mála er rétt aö skýra frá því, aö Eiríkur er söngvari sveitarinnar, en Sigurgeir annar gítarleikara hennar. „Ástæöan fyrir því aö Björgvin gekk í hópinn," sagöi Eiríkur og hélt svo áfram: „var aöallega sú, aö upphaflega ætluöum viö aö vera sem „back-up“-sveit hjá hon- um við kynningu á nýju plötunnl hans. Þegar viö fórum aö kynnast betur kom í Ijós, aö hann „fílaöi“ bandiö vel og þaö varö aö sam- komulagi fyrir nokkru aö hann yrðl fimmti meölimurinn í Deild 1." Aö sögn Eiríks mun hljómsveltin fyrst um sinn leika blandaö pró- gramm fyrri laga Puppets, laga Björgvins svo og nýrra vinsælla laga. Hins vegar hefur stefnan ver- iö tekin á plötuupptöku meö haustinu. Munnlegt vilyröi fyrir samningi liggur fyrir frá Steinum hf„ en ekki hefur veriö gengiö frá honum skriflega. „Eins og þróunin hefur veriö hjá okkur á undanförn- um mánuöum kæmi þaö mér ekki á óvart þótt ekkert þeirra laga, sem Puppets var aö æfa, kæmi fram á. plötu hljómsveitarinnar í haust.“ Metnaðarmál „Þaö er okkur mikiö metnaö- armál aö skila af okkur góöri plötu í haust. Viö ætlum okkur aö gefa okkur góöan tíma í þessa plötu og hljótum aö stefna á erlendan markaö. Geröum viö þaö ekki stæöum viö ekki í þessu. Þaö er bara asnalegt aö láta sig ekki dreyma um slíkt. Þetta hefur sýnt sig vera möguleiki,“ sagöi Eiríkur. „Þaö er líka mikiö mál aö kom- ast erlendis til þess aö kynnast ööru fólki, ööru andrúmslofti,“ bætti Sigurgeir viö. Deild 1 er þannig hljómsveit, aö vegni henni ekki vel er ekki hægt aö álasa meölimum hennar fyrir getuleysi. Eiríkur hefur um langt skeiö veriö talinn einn allra besti rokksöngvari landsins og saman mynda þeir Sigurgeir og Björgvin traust gítarpar. Richard Korn er nokkuö óskrifaö blaö í poppinu enn sem komiö er, en ef marka má tilþrif hans í þeim lögum, sem um- sjónarmaöur Járnsíöunnar fékk aö heyra á æfingu á sunnudag, þarf enginn aö óttast aö hann skili ekki sínu þegar á reynir. Sjálfur segir Eirikur, aö þeim hinum hafi fundist allt, sem þeir höföu veriö aö gera, handónýtt þegar Korn gekk til liös viö þá meö sina Sinfóníureynslu. Þá er aöeins eftir aö geta Ásgeirs, sem sannast sagna viröist geta spilaö hvaöa tónlist sem er. Eftir aö hafa dregiö fimmmenn- ingana út úr æfingasvæöinu og í síödegissólina i Grjótaþorpinu hófst garnareksturinn. Þeir félagar voru fyrst aö því spuröir hvaö heföi valdiö því aö hljómsveitin kom ekki miklu fyrr „á götuna“ en raun bar vitni. Hver úr sinni áttinni „Þaö spilaöi svo margt inn í. Fyrir þaö fyrsta komum viö hver úr sinni áttinni og þurftum tíma til aö kynnast og ekki bættu manna- breytingarnar úr skák.“ Þaö eru einkum Eiríkur og Sigurgeir, sem hafa orð fyrir þeim félögum. Björgvin situr og hlustar meö at- hygli. Hinir tveir mega ekkert vera aö þvi aö standa i viötali og um- ræðurnar fara fyrir ofan garö og neöan hjá þeim. — Kom aldrei upp neinn ótti hjá ykkur um aö hljómsveitin kæmist e.t.v. aldrei á legg? „Vafalítiö höfum viö einhvern tímann fyllst efasemdum, en eftir því sem á leið geröum viö okkur betur grein fyrir þvi aö ekki skipti svo miklu máli hvort viö yröum vik- unni fyrr eöa seinna á feröinni. Aö- almáliö var aö leyfa sveitinni aö smella almennilega saman áöur en fariö yröi af staö. Hún er reyndar ekki ennþá fullmótuö þvi Björgvin er svona smám saman aö komast inn í hlutina.“ „Þaö tekur svona hljómsveit talsveröan tíma aö slípa sig sam- an,“ segir Björgvin. „Hljómsveit fær engan karakter fyrr en hún hefur náö aö spila nokkrum sinn- um opinberlega og þessi hljóm- sveit hefur lítiö gert af slíku.“ Skýringin á því aö leitað var til Richard Korn þegar Rúnar bassa- leikari hætti var sú, aö þeir Eiríkur, Richard og Sigurgeir léku saman um nokkurra vikna skeiö í hljóm- sveit, sem aldrei kom fram nema einu sinni. Þá lék Sigurgeir meö Richard og Graham Smith viö kynningar á plötu þess siöast- Ódýr ferð á tónleika Bowie í Stokkhólmi Flestum er nú oröið Ijóst, aö ekkert gat orðið af komu Davíd Bowie hingað til lands í sumar. En íslendingar eru þekktir fyrir annað en að leggja árar í bót og nú hafa Samvinnuferðir/Land- sýn í samvinnu viö einkaaöíla ákveðiö að efna til hópferðar á tónleika Bowie á Ullevi-leik- vanginum í Stokkhólmi þann 12. júní næstkomandi. Farið veröur út þann 11. og kostar feröin um 8.000 krónur og er þá innifalinn miöi á tónleikana. Meö kænsku og réttum sam- böndum tókst að útvega 50 miöa á tónleikana þótt löngu væri uppselt og veröur þátttaka í ferö- ina að sjálfsögöu miöuö viö þann miöafjölda. Þeir, sem hafa áhuga á þessari ferö, ættu aö hafa hraðan á því miöafjöldinn er takmarkaður. Þátttakendum í feröinni veröur gefinn kostur á aö koma heim þriöjudaginn 14. júní eöa ein- hvern tíma síöar og þá frá Stokkhólmi eöa Kaupmanna- höfn. Hótel er ekki inni í þessum „pakka“ og geta því þeir sem eiga ættingja eöa vini í Stokk- hólmi eöa nágrenni væntanlega fengið aö liggja þar fyrir lítiö.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.