Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 5 Sjónvarp kl. 18.10 „Stundin okkar“ Ása H. Ragnarsdóttir mætir að vanda til leiks, ásamt Þor- steini Marelssyni, kl. 18.10 í dag í Stundinni okkar. Sitthvað verður á boðstólum í þættinum, m.a. sýnir brúðuleikhúsið leik- ritið „Átján barna faðir í Álf- heimum". Þá bregða Smjatt- pattarnir á leik og fluttur verð- ur seinni hluti teiknimyndasög- unnar „Krókópókó og hjálpsem- in“. Þá verður farið út fyrir sjónvarpssal og fylgst með barnahópi í fjöruferð og að lok- um flytja fjórar stúlkur leik- þætti. Guðrún Eðvarð Birgisdóttir Ingólfsson Hljóövarp kl. 20.00 „Utvarp unga fólksins“ Á dagskrá útvarpsins kl. 20.00 í dag er þátturinn Útvarp unga fólks- ins, en hann er í umsjón þeirra Guð- rúnar Birgisdóttur og Eðvarðs Ing- ólfssonar. „Þetta verður síðasti þátturinn í umsjón okkar beggja," sagði Guð- rún Birgisdóttir, “því Eðvarð hyggur á nám í Háskólanum í vet- ur. í þættinum verður gestur okkar að þessu sinni Jóhann Helgason, sem nýlega er kominn til landsins eftir að hafa tekið þátt í tónlist- arkeppni með góðum árangri. Lokahrinan í spurningakeppninni verður einnig í þættinum og eigast við þau Ólafur M. Björnsson og Una Björk Ómarsdóttir. Síðan fer fram verðlaunaafhending. Nú við ætlum að hringja í stúlku á Djúpavogi til að fá fréttir þaðan og eins hringjum við í gullsmið og hyggjumst kanna hvernig trúlof- unarhringamálin standa í dag. Tónlist verður síðan inn á milli ef tími gefst til,“ sagði Guðrún Birg- isdóttir að lokum. „Já ráðherra“ Á dagskrá sjónvarpsins á morgun, mánudag, verða þeir Appclby og Jim Hacker mættir til leiks í ráðuneytinu í þættinum „Já ráðherra". Þátturinn nefnist að þessu sinni „Gamall uppvakningur" og að vanda reynir Sir Humphrey Appelby að knýja blessaðan ráðherrann til að framkvæmda eftir sínu höfði — eða réttara sagt engra fram- kvæmda. Hljóðvarp kl. 16.20 „Með fulltrúum fjögur hundruða milljón manna“ „MEÐ fulltrúum fjögur hundruð manna" nefnist þáttur séra Bem- harðs Guðmundssonar frá heims- þingi Alkirkjuráðsins og er á dagskrá útvarpsins kl. 16.20 í dag. Er það síðari þátturinn frá þinginu. „í þessum síðari þætti er frá- sögn haldið áfram af heimsþingi Alkirkjuráðsins, sem haldið var í Kanada á liðnu sumri,“ sagði séra Bernharður. „Þingið sóttu um 1000 manns frá yfir 100 löndum, en þing sem þetta er haldið á átta ára fresti. í útvarpsþættinum verða nú viðtöl við þrjá Islendinga sem sátu þingið, þau herra Pétur Sigur- geirsson, biskup, Sólveigu Ás- geirsdóttur og Pétur Þorsteinsson. Þá mun ég greina frá hinum um- ræddu ályktunum þingsins varð- andi mannréttindamál, annars vegar vegna íhlutunar Banda- ríkjamanna í Mið-Ameríku og ekki síður vegna aðgerða Sovét- manna í Afganistan, gerð nokkur grein fyrir því hvað veldur því jafnvægisleysi sem ríkir á milli austurs og vesturs. Þá segi ég frá merkilegri skýrslu sem lögð var fram á þing- inu. Hún er árangur af starfi guð- fræðiriga úr öllum kirkjudeildum og er stórt skref til aukinnar ein- ingar kirkjunnar, en sem kunnugt er getur fólk úr vissum kirkju- Séra Bernharður Guðmundsson deildum ekki átt saman heilaga máltíð, eins og málin standa í dag. Um þau mál ræði ég svo við dr. Einar Sigurbjörnsson," sagði séra Bernharður Guðmundsson að lok- um. S 'M \KIH'SI X I HOLLANDI m ★ Óbreytt verd frá 1983 ★ S-L ferðaveltan dreifir greiðslum á yfir 20 mánuði ★ Eemhof-Kempervennen stóraukið sætaframboð ★ Fjölskylduferðir í algjörum sérflokki Nú fylgjum við glæsilegu sumri í hollensku sumarhúsunum eftir og hefjum strax sölu á sumarferðunum 1984, - og það á óbreyttu verði frá árinu 1983. í sumar var uppselt í allar ferðir, biðlistar mynduðust og margir urðu frá að hverfa. Við gengum því strax frá samningunum fyrir næsta sumar og opnum þannig öllum fyrirhyggjusömum fjölskyldum leið til þess að tryggja sér heppilegustu ferðina tímanlega og hefja strax reglubundinn spamað með Eemhof Sumarhúsaþorpið sem sló svo rækilega í gegn á sl. sumri. Frábær gisting, hitabeltissundlaugin, fjölbreytt íþrótta-, leikja- og útivistaraðstaða, veitingahús, verslanir, bowling, diskótek, tennis, mini-golf, sjóbretti o.fl. o.fl. o.fl. Endalaus ævintýri allrar fjölskyldunnar. Vetrarsalan opnar þér greiðfæra leið Vetrarsala Samvinnuferða-Landsýnar á hollensku sumarhúsunum er okkarað‘^J þess að opna sem allra flestum v.ðraðanlega „a ereiðfæra leið í gott sumarfr. með alla fiölskvlduna. í eriiðu efnahagsastand. er ómetanlegt að geta tryggt sér hárréttu ferðma með góðum fyrirvara og notfært sér obreyt verð frá árinu 1983, SL-ferðaveltuna og SL-kjörin til þess að létta á kostnað. og dreifa greiðslubyrðinni á sem allra lengstan tima. SL-ferðaveltunni. í henni er unnt að spara í allt að 10 mánuði og endurgreiða lán jafnhátt sparnaðinum á 12 mánuðum eftir heimkomu. Þannig má dreifa greiðslum á yfir 20 mánuði og gera fjármögnun ferðalagsins miklum mun auðveldari en ella. Og enn munum við bjóða SL-kjörin. Með þeim má festa verð ferðarinnar gagnvart gengisbreytingum og verjast þannig öllum óvæntum hækkunum. Þetta er okkar leið til þess að gera Hollandsævintýrið 1984 að veruleika hjá sem allra flestum fjölskyldum. Kempervennen Nýtt þorp, byggt upp í kjölfar reynslunnar í Eemhof og af sömu eigendum. Öll aðstaða er sú sama og í Eemhof og í Kempervennen er síðan bætt um betur og aukið enn frekar við stærð sundlaugarinnar, veitingastaðanna og sameiginlegrar þjónustu auk þess sem bryddað er upp á ýmsum spennandi nýjungum fyrir börnin. Fyrirhyggja í ferðamálum - einföld leið til lægri kostnaðar og léttari greiðslubyrði Nýr Hollandsbæklingur á skrifstofunni oghjá umboðsmönnum um allt land Samvinnuferóir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.