Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
29
GLITRANDI
VERÖLD COPPOLA
Krancis Coppola á blaðamannafundi sem hann hélt eftir frumsýninguna.
Frannie (Teri Garr) og Ray (Raul Julia) dansa inn í nóttina.
FRANCIS er enit við sama
heygarðshornið. Hann slapp
naumlega við gjaldþrot árið
1979 þegar „Apocalypse
Now“ var sýnd. Honum var
ráðlagt að fara varlegar í sak-
irnar með næsta verkefni
sitt, en Coppola fer ekki
troðnar slóðir. Hans næsta
mynd átti að vera sérstök.
Coppola fjármagnaði „Svarta
folann“ (sem Tónabíó hefur
sýnt að undanförnu við mikla
aðsókn) en leikstýrði sjálfur
„One From the Heart“, gam-
aldags (er það neikvætt?)
ástarsögu sem gerist í róm-
antísku og súrrealísku um-
hverfi.
Þegar Coppola hugsar, hugsar
hann stórt. Þegar hann þarfnast
peninga, þarfnast hann stjarn-
fræðilega hárra upphæða. „Apoca-
lypse Now“ kostaði 32 milljónir
dollara á verðlagi 1979. „One From
the Heart“ kostaði 26 milljónir
dollara árið 1981. Reiknað í ís-
lenskum krónum gerir það um 730
milljónir. Atómstöðin, dýrasta
kvikmynd sem íslendingar hafa
gert, kostar 10 milljónir.
„One From the Heart" var til-
búin til sýningar í janúar 1982. í
ágúst árið áður hafði aðstoðar-
framleiðandinn, „Paramount",
sýnt kvikmyndahússeigendum
ófullgerða útgáfu af myndinni og
með því kallaði fyrirtækið yfir sig
reiði Coppola.
Coppola þráskallaðist við að af-
henda myndina dreifingaraðilan-
um, því hann var alltaf að breyta
henni á elleftu stundu. Coppola
lagði blessun sína yfir verkið rúm-
um sólarhring fyrir auglýstan
frumsýningartíma, en hætti svo
við og var að fíngera hljóðið nótt-
ina fyrir frumsýningardaginn.
COPPOLA TIL SÖLU
En þá kom óvæntur leikur hjá
Coppola. Hann lét forráðamenn
Paramount ekki vita þegar hann
leigði Kadio City Music Hall á eigið
eindæmi og sýndi myndina 6000
manns. Það kostaði hann 20.000
dollara og heilsíðuauglýsing i
sunnudagsblaði New York Times
kostaði hann 24.000 dollara
(700.000 ísl. krónur).
Stjórnendur dreifingaraðilans
Paramount, en þeir björguðu
Coppola frá gjaldþroti þegar leik-
stjórinn var hálfnaður með mynd-
ina, brugðust ókvæða við. Þeir
tóku „One From the Heart“ út af
dreifingaráætlun fyrirtækisins.
Coppola sat því einn uppi með
rándýra kvikmynd og engin trygg-
ing var fyrir að myndin borgaði
sig. Coppola samdi þess vegna við
Columbia, sem gerði heiðarlega
tilraun til að koma myndinni fyrir
almenningssjónir, en það tókst
ekki. Fólk í Bandaríkjunum hafði
ekki áhuga á henni.
Kvikmyndaver Coppola, draum-
ur hans og framtíð, Zoetrope Stud-
ios, varð gjaldþrota. „Svarti fol-
inn“ (sem Coppola framleiddi, en
leikstýrði ekki eins og margir
halda), náði hylli almennings, en
hagnaðurinn af henni nægði ekki
til að borga skuldir Coppola. Á
sama tíma fjármagnaði Coppola
þrjár aðrar myndir; Svarti folinn
snýr aftur, Undankomusnillingurinn
(The Escape Artist, um Houdini)
og Hammet, sem Werner Herzog
gerði. Þá annaðist hann dreifingu
á maraþonmynd Hans Júrgen
Syderberg, Hitler, og 50 ára gam-
alli mynd Abel Gance, Napoleon.
Zoetrope Studios var auglýst til
sölu, en á ýmsu hefur gengið. Lán-
ardrottnar Coppola hafa marg-
sinnis gefið honum greiðslufrest.
Þegar síðast fréttist var Coppola
enn ekki laus úr klípunni. En á
meðan skuldasúpan kraumaði í
pottum fyrirtækisins, tók Coppola
að sér að gera myndina Utangarðs-
drengirnir (The Outsiders) fyrir
Warner-bræðurna og framhaldið
af þeirri mynd Rumble Fish. Þær
kostuðu örfáa dollara miðað við
fyrri myndir kappans og „Utan-
garðsdrengirnir" náði talsverðum
vinsældum í Bandaríkjunum. Bíó-
höllin sýndi myndina í sumar og
sýnir „One From the Heart“ þessa
dagana.
GLITRANDIVERÖLD
Las Vegas glitrar og glansar.
Himinninn svartur, blár og bleik-
ur. Karlinn í tunglinu í róman-
tísku skapi. Ástin blómstrar í
henni veröld. En ekki hjá Hank og
Frannie. Þau rífast. Leiðir skilur.
Frannie heldur til Las Vegas með
aleiguna í ferðapinkli. Einhvers
staðar í mannþyrpingunni, innan
um ljósaskilti í regnbogans litum,
bíður Ray, blóðheitur.
Tom Waits blúsar og Crystal
Gayle syngur.
Leila er á flótta. Sirkusdama í
gullnum kjól. Kynæsandi og
frjáls. Óskadama Hanks, veruleik-
anum ofar. Eða eins og Laxness
sagði: Dáið er allt án drauma og
döpur veröldin.
Þegar Francis Coppola hefst
handa, safnar hann í kringum sig
úrvals fólki. Leikararnir í „One
From the Heart" eru að vísu ekki
stærstu nöfnin í heimi kvikmynd-
anna; Teri Garr leikur Frannie,
Frederic Forrest Hank, Nastassia
Kinski Leilu og Raul Julia Ray.
Þekkt nöfn vestanhafs þó svo að
Nastassia Kinski eigi þeirra
mestra vinsælda að fagna hér-
lendis.
Fyrir utan Coppola sjálfan, eru
það tveir menn sem bera hita og
þunga myndarinnar. Dean Tavoul-
aris hannaði allar hinar marg-
flóknu sviðssetningar, sem var
viðamesti kostnaðarliður myndar-
innar. Verk Tavoularis vakti
mikla athygli og er sagt valda
byltingu í heimi sviðshönnuða.
Dean hefur unnið með Coppola
allar götur síðan 1971, þegar
Coppola gerði óðinn um mafíuna,
Guðföðurinn. Vittorio Storaro hinn
ítalski stillir linsurnar, en hann er
virtasti og eftirsóttasti kvik-
myndatökumaðurinn í dag. Stor-
aro kvikmyndaði meðal annars
„Apocalypse Now“ og hlaut óskar-
inn, sem og „Rauðliða" Warren
Beattys og sjónvarpsmyndaflokk-
inn Wagner.
HJÓ
Hundaeigendur og
aðrir vinir hunda
Sýnum samtakamátt og sameinumst um áhugamál okkar
í öflugu félagi
Hundaræktarfélag Islands er félag þeirra sem vilja óskoruö
réttindi til aö njóta félagsskapar hundsins:
• stuöla að hreinræktun þeirra kvnja sem til eru í landinu,
• bæta meðferð og ögun hunda,
• fræða um eðli hundsins, og
• sýna ræktarsemi öllum hundum.
Við þurfum á aðstoö ykkar aö halda til að ná settu marki.
Þú getur aðstoðað okkur meö því að gerast félagi.
Tekið á móti innritunarbeiönum í félagið í símum:
91-31529 skrifstofan, 91-44984 Guðrún, 91-45699 Sigríö-
ur, og hverfastjórnin um land allt.
Hausttilboð
STÓRKOSTLEG
verðlækkun
Allt að
50%
verðlækkun
Fyrsta flokks hjól
frá Peugeot, Winther,
Kalkhoff, S.C.O.
og Everton.
.. Reidhjolaverslunin __
ORNINN
Spitalastig 8 vió Oóinstorg