Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 45

Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 45 burð vaknaði á ný umræða um öryggisaðbúnað, og rifjaðist við það upp að áður hefur verið reynt að stika vegartroðninginn þarna uppeftir og leggja síma en hvorugt fékk að vera i friði. Það var þó ljóst að við svo búið mætti ekki standa. Var ráðist í það einn laugardaginn að reisa vörður af háheiðinni þar sem háspennulín- an krossar þjóðveginn, og í há- norður beint yfir heiðina að fyrsta skálanum. Mættu um hundrað manns til að taka þátt í vinnunni, voru það dróttskátar, foreldrar, hjálparsveitir, eldri skátar og velunnarar. Gekk verkið vel og voru reistar rúm- lega fjörutíu vörður, en þessi vegalengd er 2 kílómetrar. Einn- ig var vegartroðningurinn upp- eftir, sem er 5 kílómetra langur stikaður. Síma stendur til að leggja þarna uppeftir og tengja sjálfvirka kerfinu og ætti þá ör- yggi þarna að vera orðið nokkuð gott, og vonandi verða ekki fleiri slys.“ tíma til að hafa áhyggjur þegar það gerðist, því það var ekki fyrr en um það bil sem leitinni af hin- um drengnum var að ljúka að upp- götvaðist að Þór væri týndur líka. Við höfðum þá strax samband við lögreglu og þeir létu halda leitinni áfram þar til Þór fannst skömmu síðar. Það var allt í lagi með hann, hann hafði uppgötvað það tiltölu- lega fljótlega að hann væri villtur og gróf sig þá í fönn og dúðaði sig í öll fötin sem hann hafði meðferð- is og skriðið ofan í svefnpokann sinn. Svo þessi vörðuhleðsla var virkilega þarft verk og gott fram- tak. Það var líka mjög gaman að þessu, við fengum einstakt veður til vinnunnar og þegar henni var lokið fórum við í kaffi upp í Jötun. Strákarnir fóru með okkur og líka sá eini sem ekki er í skátunum, annars vil ég meina að þessi skátaáhugi gangi í ættir, allavega hefur það gert það í þessari fjöl- skyldu," sagði Jóna en hún er sjálf gamall skáti. Lagakennsla á Islandi í 75 ár LAGADEILD Háskóla íslands hélt formlega upp á 75 ára afmæli laga- kennslu á Islandi 1. október sl. Var hátídin haldin í hátíöarsal Háskóla íslands ad viöstöddum fjölda gesta, en heiöursgestur var frú Ragnhild- ur Helgadóttir, menntamálaráö- herra. Björn Þ. Guðmundsson, forseti lagadeildar setti samkomuna og rakti í ávarpi sínu framgang lagakennslu á íslandi frá upp- hafi, en Lagaskólinn tók hér til starfa þann 1. október árið 1908. Skólinn starfaði í þrjú ár og urðu nemendur hans fimmtán talsins. Enginn brautskráðist þaðan og árið 1911 gengu nemendur inn í Háskóla íslands og luku fyrstu laganemar prófi þaðan ári seinna, 1912. Þá fluttu ávörp þeir dr. Guð- mundur K. Magnússon, rektor Háskólans, Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstaréttar íslands og prófessor Arnljótur Björnsson, formaður Lögfræðingafélagsins. Skýrði Arnljótur frá þeim gjöfum sem lagadeildinni hafa borist vegna afmælisins. Nefndi hann fyrst peningagjöf að fjárhæð kr. 120.000 sem tryggingaskóli Sam- bands íslenskra tryggingafélaga, Lögmannafélag Islands, Lög- fræðingafélag íslands og aðrir aðilar sem ekki vildu láta nafns síns getið, gáfu deildinni. Þá sagði hann frá bókagjöf sem börn Sveinbjörns Jónssonar, hæsta- réttarlögmanns færðu deildinni í minningu hans. Er þar um að ræða danskt dómssafn í 57 bind- um, sem hefur að geyma dóma og dómsúrskurði í málum á sviði skaðabóta og vátryggingaréttar. rætt við Jóhannes Eðvaldsson á „The Mermaid Bar " í Glasgoxv Jóhannes Eðvaldsson sagði í samtali við undir- ritaðan fyrir nokkrum ár- um að draumur hans væri að setjast að í Glasgow og reka þar veitingasölu, eða „pub“ eins og Bretarnir kalla það. Hinn 11. marz sl. lét Jóhannes drauminn rætast er hann keypti pubbinn „The Mermaid Bar“. Það lá því beint við að heimsækja Jóhannes á barinn þegar tækifæri gafst til í Skotlandsferð fyrir nokkru. „Þetta hefur verið mjög strembið hjá mér síðan ég keypti m * B i 1 [ 4 ^v A Jóhannes afgreiðir bjórinn. „Sömu mennirnir koma kvöld eftir kvöld“ barinn," sagði Jóhannes. „Nýr bareigandi þarf að vinna sér traust fastra viðskiptavina og ég hef því verið hér sjálfur eins mikið og ég hef getað. Auk þess sé ég um öll innkaup sjálfur og annast bókhald og þegar við bætast knattspyrnu- æfingar og leikir með Mother- well vill vinnudagurinn verða langur. En ég kvarta ekki, fasta- kúnnarnir hafa haldið áfram að sækja staðinn og það sýnir að þeir eru ánægðir." Knattspyrnan skipar heið- urssess hjá viðskiptavinum bar- anna í Glasgow og menn skipt- ast í tvo hópa eftir trúmálum og knattspyrnu, kaþólikkar sem styðja knattspyrnufélagið Celtic og mótmælendur, sem styðja Rangers. The Mermaid Bar er staðsettur í hverfi mótmælenda og barinn sækja því eingöngu aðdáendur Rangers og mátti sjá þess merki á veggjum hans. En hvernig var það fyrir fyrrum leikmann Celtic að kaupa og reka bar í hverfi mótmælenda? „Það var auðvitað viss tor- tryggni ríkjandi fyrst en mér tókst alveg að eyða henni. Mér tókst að ná góðu sambandi við viðskiptavinina og það er fyrir öllu. Samkeppnin milli baranna er mikil og ef eitthvað er í ólagi þýðir það ekki nema eitt, barinn fer á hausinn. Ég get nefnt sem dæmi að hér skammt frá var mjög huggulegur og flottur bar en hann gekk ekki engu að síður, eigandinn var kaþólskur og karl- arnir verzluðu því ekki við hann.“ Þegar hér var komið sögu í viðtalinu þurfti Jóhannes einu sinni sem oftar að þjóta frá til að afgreiða viðskiptavin. Greini- legt var að hann snerist í kring- um þá og lét aldrei neinn bíða eftir afgreiðslu. Hann ræddi við þá í léttum tón og greinilegt var að karlarnir voru þarna á heimavelli. Þetta var að kvöld- lagi, komið nálægt lokun og ýmsir inni á barnum orðnir vel þéttir. Þeir drukku stíft og pönt- uðu gjarnan tvö hálfs líters glös í einu. „Þessir menn koma hingað nánast á hverju kvöldi allan árs- ins hring. Hér hitta þeir vini sína og kunningja og ræða um heima og geima, en aðallega þó knattspyrnu. Þessir menn eru aldir upp við „pubina" og þekkja ekki annað," sagði Jóhannes. Jóhannes hafði orð á því að hann ætlaði að gera ýmsar lag- færingar á barnum, það væri ekki komið á dagskrá ennþá. Barinn var kominn í niðurníðslu þegar Jóhannes keypti hann og endurbætur nauðsynlegar. „Ég byrjaði smátt og ætla að fikra mig áfram. Ég hef áhuga á því að vinna áfram á þessu sviði og draumurinn núna er að eign- ast lítið og huggulegt hótel hérna í Skotlandi, helst nálægt golfvelli," sagði Jóhannes að lok- um. Ef íslendingar hafa áhuga á því að líta inn hjá Jóhannesi er heimilisfangið: The Mermaid Bar, 161 James Street, Glasgow. — SS. Fastagestir á Mermaid-bar benda stoltir á merki Glasgow Rangers. MorKunbladid/Jón Gunnlaugsson. Me1 ** T \ ' | M r?T % / |j^\ * JT M\%. -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.