Morgunblaðið - 21.10.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTXJDAGUR 21. OKTÓBER 1983
37
þann, sem býr í litlu þjóðfélagi aö
svara spurningum um slík mál. Vió
spyrjum Asgeir hvort honum finnist
hlutverkaskipting karla og kvenna
ennþá í mjög fðstum skoröum.
„Já, því er ekki hægt aö neita.
Þaö er til dæmis ennþá ætlast til
þess, aö viö karlmennirnlr séum
haröir í horn aö taka, sterkir og lát-
um ekki tilfinningar okkar í Ijós. En
viö höfum ekkert síður þörf fyrlr það
en konur aö sýna blíöu og hreln-
skilni. Ég hef þó oröiö var viö aö
þetta er aö breytast og konur kunna
betur aö meta slíka eiginleika t fari
karla."
En kunna karlar sjálfir eins vel aö
meta þessa nýju ímynd?
„Við karlmennirnir eigum hálf erf-
itt meö aó staösetja okkur og eigum
eiginlega eftir aó finna okkur nýjan
staó í samræmi viö breytta stööu
konunnar."
Myndir þú ef til vill vilja skipta um
hlutverk viö konuna þína og vinna
heima?
„Ég gæti vel hugsaö mér þaö. Ég
get ekki séö aó þaö skipti neinu
máli, hvort þaö er konan eöa maöur-
inn, sem vinnur fyrir heimilinu. Þessi
nýja upplýsingaöld, sem vlö llfum á,
býöur upp á nýtt samlífsmunstur,
sem getur þýtt, að viö getum ef til vill
unniö heima hjá okkur og verió hjá
börnunum um leiö. Ég gæti vel hugs-
aó mér aö stjórna fyrirtækinu úr
stofunni heima hjá mér. En ég tel
þaö mikilvægt aö fólk sé sveigjan-
legt í þessum efnum sem öörum og
passi sig á því aö festast ekki um of
í ákveónum hlutverkum."
Ert þú ekki oröinn fastur i hlut-
verki ábyrgóarfulls atvinnurekanda?
„Mitt starf hefur krafist þess að ég
liföi fastmótuöu og öguöu lífi, ég hef
því þurft aö sparka í sjálfan mig ööru
hvoru, til aó festast ekki alveg. i
minni atvinnugrein má maöur ekki
staöna og því varla um aö ræöa aö
slaka á taumunum. Varöandi mína
eigin ímynd, þá ákvaö ég einu sinni
aö breyta algjörlega um ytri ímynd.
Ég lét klippa mig mjög stuttri pönk-
klippingu, rakaöi af mér yfirvarar-
skeggió, setti gráu buxurnar, skyrt-
urnar og bindin inn í skáp og mætti í
leöurgalla." Ásgeir viröist nokkuð
ánægöur meö þetta uppátæki, því
hann brosir hæglátlega.
Hvað geröist?
„Ég fann aó fólk missti traust á
mér ..., “ hann hugsar sig um. „Það
var skrítiö aö upplifa hvernig um-
i
Þaó er efcki auðvelt að
reka fyrirtæki nú á ís-
landi. Margir hafa gef-
ist upp á því og aðrir
vilja ekki taka áhatt-
una. Við rákumst á
ungan framkvæmda-
mann, sem ekki hefur
látið deigan síga, þrátt
ffyrír þungan róður. Og
nú er fyrirtæki hans,
Rafrás hf., að setja á_
markaðinn ffyrstu ís-
lensku tölvurnar. Þessi
maður er Ásgeir _______
Bjarnason. Hann á
fleiri ahugamál, eitt
þeirra er bygging______
svokailaðra kúluhúsa;
er hann fformaður ffé-
lagsskapar, sem
hyggst byggja 10 slík
húsj Graffarvoginum á
næsta ári. Okkur lék
fforvitni á að kynnast
þessum unga fram-
kvæmdamanni og við-
horfum hans til lífsins
og tilverunnar.
hverfið brást við þessum breytta
búningi, því sjálfur breyttist ég ekk-
ert innra meö mér og ég fór aö
spyrja sjálfan mig; yröi ég eitthvaö
verri stjórnandi ef ég væri pönkari?“
Þú hefur svo látiö undan þrýstingi
frá umhverfinu og farió aftur í
skrifstofugallann?
„Ég hafói þörf fyrir þaö á þessu
tímabili, aö stokka sjálfan mig upp
með þessu móti og þegar þeirri þörf
var fullnægt, þá færöist ég ósjálfrátt
yfir í fyrra horf, reynslunni ríkari,...
en þetta var óneitanlega sérstasð
upplifun."
Á boröinu fyrir framan Ásgeir sjá-
um viö teikningar af hvolfþakshús-
um. Þessar byggingar stinga óneit-
anlega í stúf viö ferhyrndu húsin
okkar. Allar línur eru ávalar og mjúk-
ar og hafa húsin á sér framandi svip.
Eins og vió sögöum hérna í upphafi
þá er Ásgeir formaöur Byggingar-
samvinnufélags hvolfþaksbyggj-
enda, sem telur 130 félaga. Einar
Þorsteinsson arkitekt er hugmynda-
fræöingur félagsskaparins.
„Mig hefur lengi langaö til aö búa
í pýramída, og varö kúluhúsiö eins
konar málamiölun," segir Asgeir og
hlær afsakandi, eins og honum
finnst þetta of sterk ályktun.
„Hvernig eru húsin uppbyggö?
„Kúlan sjálf er byggö úr trégrind,
sem klædd er dúkefni úr sarnafll.
Síöan er sett einangrun og loks er
húsiö klætt meö plötum aö innan og
koma þar ýmsir möguleikar til
greina."
Á teikningum af húsunum, sem
eru raóhús, sést aö töluvert gler er í
efri hluta þeirra.
„Á suöurhliöi þeirra er ansi mikill
glerveggur. Hef ég áhuga á aö aö fá
þar gler, sem veltir útfjólubláum
geislum sólarinnar inn og nýta þann-
ig betur orkuna. En einn af hvötun-
um aö þessum nýja byggingarstíl er
aö skapa manninum náttúrulegra
umhverfi. Þaö er sagt aö fólk veröi
stressaöra á því að búa í málmgrind
og steypu, okkur sé hollara aö búa í
húsi úr lifandi efnum eins og tré, því
rafsviö jaröar fái ekki eins vel leikið
um okkur ef viö erum í afskermuöu
búri úr málmgrind.
Annar hvati aö hvolfþakshúsunum
er sá aö þessi byggingarstíll er um
20% ódýrari, en taliö er aö 170 fer-
metra hús muni kosta fokhelt 1V4
milljón króna.“
Hve mörg hús hyggist þiö byggja
að þessu sinni?
„Fyrst veröur gerö tilraun meö 10
hús. Ef hún reynist vel fylgja fleiri í
kjölfariö. Upphaflega sóttum viö um
óskipulagt byggingarsvæöi, sem viö
viljum skipuleggja sjálf á okkar
kostnaö, því okkur henta ekki fer-
hyrndar lóöir. Höföum viö áhuga á
aö byggja einbýlishús á þessum lóö-
um en vildum hafa þann möguleika
opinn aö hægt væri aö byggja fleiri
kúluhús vió þetta eina. Til dæmis ef
ungt fólk væri aö byrja aö byggja og
heföi takmörkuö fjárráö, þá gæti
þaó byrjað smátt en stækkaö svo
viö sig. Gert var ráö fyrir aö kúlurnar
tengdust saman með tengibyggingu.
Önnur hugmynd var sú, aó fá lands-
lagsarkitekt til aö vinna meö íbúun-
um aö umhverfismótun. En til aö yf-
irvöld tækju okkur alvarlega en
héldu ekki aó þetta væri bara létt
geggjun, þá höföum viö húsin í
hefðbundara formi aö þessu slnni."
Ef þaö er talin létt geggjun aó
byggja kúluhús, hvaó finnst ykkur þá
um hugmyndina aó setja á stofn raf-
eindafyrirtæki uppi á tvö hundruö
metra hárri bjargbrún þar sem lund-
ar og fleiri fuglar eiga heima? En
þessa hugmynd fengu þeir hjá
byggöadeild Framkvæmdastofnunar
árið 1977. Þá var Loranstöðin á
Reynisfjalli lögö niöur og viö þaö
misstu 12 menn atvinnu sína. Það
var þá sem Rafrásarmenn hófu
könnun á því hvort rafiönaöarfyrir-
tæki væri mögulegt á þessum staö.
„Við eyddum tveim árum í aö
kanna þennan möguleika," segir Ás-
geir, „en útkoman varö sú, aö þetta
gat ekki gengiö þá.
Ég ákvaö þá aó kaupa hús í þeirrl
von að þetta gæti breyst í framtíð-
inni. Húsiö var tiltölulega nýtt en þaö
var byggt '68 og litiö notaö, 360 fer-
metrar aö flatarmáli.
Þarna er ákaflega fallegt og sést
vitt, þegar heiðskírt er og þarna er
mikiö fuglalíf. Nú nota ég þennan
staö sem eins konar afþreyingar-
staö, þegar ég og vinir mínir vilja
slaka á.
Ég eyddi til dæmis síóustu jólum
þarna, þ.e.a.s. ég slökkti á jólunum
eöa by passeraöi (tengdi fram hjá ),
eins og þaö er orðaö á tölvumáli. Ég
var nefnilega þreyttur eftir veturinn
og, þegar maður á svo allt í einu aö
fara aö standa í veisluhöldum og
breyta þannig eölilegum rythma, þá
er eins og fólk fari frekar úr jafn-
vægi.
Annars hefur húsiö veriö allt of
lítiö notaö. Þaö mætti nýta þaö bet-
ur á sumrin, til dæmis fyrir starfs-
menn Rafrásar, sem gætu fariö í
vinnuferöir þangaö til aö leysa verk-
efni, sem krefjast einbeitingar og
frióar, því þarna eru ansi magnaöir
kraftar.
Þaö er greinilegt aö Ásgeir hefur
ekki aöeins trú á raforkunni heldur
einnig þeirri orku, sem manninum
hefur ekki ennþá tekist að mæla.
„Ég trúi á lífsorkuna," segir hann.
Hvað er lífsorka?
„Það er erfitt aö koma oröum yfir
hana, en þetta er einhver drifkraftur,
einhver orka, sem sumt fólk hefur
aögang aö umfram aöra. Sumir hafa
leitast viö aö tengjast þessum krafti
til dæmis með hugleiöslu."
Stundar þú hugleiöslu?
„Ég iökaói hugrækt hjá Sigvalda
Hjálmarssyni um skeiö. Þá var ég í
hugleiósluhóp, sem naut handleiöslu
indverska jógans sir Chinmoy, sem
kom hingaö frá New York, en meðal
áhangenda hans er Carlos Santana.
Þá fengum við John Mc Laughlin
hingað, en hann er þekktur tónlistar-
maöur og lærisveinn sir Chinmoy."
Leiö þér betur meöan þú stund-
aöir hugleiöslu?
„Mér leið afar vel, maöur þarf aö
halda heilanum og vitundinni viö
ekkert síöur en öörum hlutum líkam-
ans. Ég held líka aö hugleiöslan sé
jákvaað leiö til slökunar og okkur
kaupsýslumönnum veitir ekki af
slíku.“
En þú ert hættur hugleiöslunni?
„Já, þaó kom tímabil þar sem var
mikiö aó gera og fannst mér ekki
timi til hugleióslu, en þaö er auövitaö
rangt gildismat, aö láta allt annaö
ganga fyrir sjálfum sér. Og svo þeg-
ar maöur er orðinn 45 ára þá er
maður kominn meö kransæöastiflu
eöa einhverja aöra sjúkdóma, sem
rekja má til kyrrsetu og streitu."
Þú hlýtur aö hreyfa þig svolítið?
„Ég syndi og hef stundaö líkams-
rækt hjá Gústa í Kjörgaröi síóastlióin
tvö ár og svo á ég tíu gíra reiöhjól,
sem ég hjóla á. Og í vetur ætla ég á
skíði.“
En er ekki erfitt aö finna tíma og
orku til aö sinna öllu því, sem viö
höfum rætt um?
„Mín skoðun er sú, aó maöurinn
geti þaö sem hann vill og ætlar sér,
en þaö veröur líka aö skipta hann
máli.“