Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 63 Eyssen aðmíráll í brú þýzka hjálp- arbeitiskipsins „Komet“. Hann er að senda fyrirmæli til Weyher skip- herra á „Orion“ í sambandi við elt- ingarleik við kaupskip Bandamanna. Kurt Weyher, skipherra á „Orion“. „Orion“ á siglingu á hafínu á milli fslands og Grænlands, dulbúið sem sovézkt viðgerðaskip. Fallbyssa leynist í smáhýsinu fremst á þiljunum. Gervi- björgunarbátur er notaður til að fela aðra fallbyssu. Enn velta menn vöngum yfir þess- ari miklu ráðgátu, einni hinni mestu í sjóhernaðarsögunni, eink- um í Þýzkalandi, Astralíu og Bretlandi. Hvers vegna fannst til dæmis lík aðeins eins manns af áhöfn- inni? Hvers vegna varð reyndri áhöfn skipsins á sú ótrúlega skyssa að sigla upp að óþekktu kaupskipi með þeim afleiðingum að „Kormoran" fékk færi á því að koma herskipinu í opna skjöldu og gat fært sér þá yfirburði í nyt, gert fallbyssurnar skotklárar og orðið fyrri til að skjóta? Enn meiri heilabrotum veldur að þegar nokkrir mannlausir björgunarbátar frá „Sydney" fundust voru þeir sundurskotnir. Skotið hafði verið á þá með vél- byssum, en Þjóðverjar héldu því fram að þeir hefðu aðeins skotið á aðra hlið beitiskipsins. 1 nýrri bók, „Hver sökkti Syd- ney“ („Who Sank the Sydney", Leo Cooper/Secker, £11.95), reynir Michael Montgomery að svara nokkrum þeim spurningum, sem málið hefur vakið. Hann er sonur brezks sjóliðsforingja, sem ástr- alski sjóherinn hafði fengið að láni og var siglingafræðingur skipsins. í bók sinni kemur hann fram með nokkrar spennandi vís- bendingar um það sem kann að hafa gerzt 19. nóvember 1941. JAPANSKUR KAFBÁTUR Meðal þess sem fannst í sumum björgunarbátum „Kormoran", sem margir af áhöfninni komust á land í, nokkur hundruð mílum fyrir norðan Perth, voru japanskar mjólkurflöskur, þótt vitað sé að skipið kom aldrei í japanska höfn. Montgomery telur að árásar- skipið hafi haft nána samvinnu við japanskan kafbát og kafbátur- inn hafi gert tundurskeytaárás á „Sydney" þegar herskipið var hjálparvana. Hann telur einnig að það liggi í augum uppi að japanski skipherrann hafi umfram allt vilj- að tryggja að ekkert ástralskt vitni kæmist lífs af og segði frá slíku atferli Japana á sama tíma og þeir áttu í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn á dögum und- irbúnings árásarinnar á Pearl Harbor. Hann dregur einnig í efa þá ástæðu, sem Bandaríkjamenn sögðu opinberlega að hefði orðið til þess að endi var bundinn á við- ræður við Japani um hernaðarlega Ljósmyndari „Life“ tók þessa mynd af „Atlantis“ í dulargervi skömmu eftir árásina á „Zamzam“ sem þýzka skipið sökkti. Bandaríkjamönnum sem voru í „Zamzam“ var bjargað um borð í „Atlantis" og seinna voru þeir fíuttir til Frakklands. Þessi mynd af „Atlantis" var seinna notuð þegar brezka beitiskipið „Devonsbire" sökkti þýzka víkingaskipinu. Eitt fórnarlamb þýzku ræningjaskipanna. Ljósmyndari „Life“ tók einnig þessa mynd sem sýnir „Zamzam“ hallast og björgunarbáta halda til „Atlantis". mikilvæg hráefni einni viku síðar. Hermálaráðherra Bandaríkj- anna, Henry Stimson, sagði að ástæðan hefði verið sú að 25. nóv- ember hefði borizt símskeyti frá Winston Churchill, forsætisráð- herra Breta, þar sem sagt var frá brezkri leyniþjónustuskýrslu um ferðir japanskra liðsflutninga- skipa við strönd Kína. Bókarhöfundur telur að þetta hafi ekki verið nógu gild ástæða til þess að slíta viðræðunum. Og hann dregur þá ályktun af nokkr- um eyðum, sem er að finna í opinberum brezkum skjölum frá þessum tíma, að sá þáttur, sem Japanir áttu í því að sökkva „Syd- ney“, hafi verið sá raunverulegi prófsteinn, sem sannfærði Frank- lin D. Roosevelt forseta um að Japanir væru fastákveðnir í því að leggja út í styrjöld. Hinn 7. desember 1941 gerðu Japanir árásina á Pearl Harbor. Hinn 10. desember bárust þær ótrúlegu fréttir að nýjasta orr- ustuskipi Breta, „Prince of Wales“, og orrustubeitiskipinu „Repulse", sem Churchill hafði sent til fjarlægari Austurlanda í nóvember til að fyrirbyggja árás á Singapore, hefði verið sökkt í jap- anskri loftárás. Þar með misstu Bretar yfirráð sín á hafinu í þess- um hluta heims. Hinn 11. desem- ber sögðu Þjóðverjar og ítalir Bandaríkjamönnum stríð á hend- ur, í samræmi við Möndulsáttmál- ann og að beiðni Japana. NÝTT „SYDNEY“ Skip Konunglega ástralska sjó- hersins höfðu tekið virkan þátt í stríðinu að heita má frá byrjun, bæði á Miðjarðarhafi og Atlants- hafi. Þau létu mikið að sér kveða í brottflutningnum frá Grikklandi og Krít og í flutningum til og frá Tobruk. Þegar Japanir hófu út- þenslu sina færðu þau sig nær heimaslóðum og tóku þátt í orrustunni á Kóralhafi, fyrstu árás Bandamanna á Solomon- eyjar og hinum mörgu aðgerðum á sjó, landi og úr lofti á suðvestan- verðu Kyrrahafi. Systurskipi „Sydney", „Perth", var sökkt í marz 1942. Alls missti ástralski sjóherinn þrjú beitiskip, fjóra tundurspilla og 13 smærri skip í stríðinu, en í stríðslok réð hann þó yfir þremur beitiskipum, níu tundurspillum og 53 korvett- um. Eftir heimsstyrjöldina eignuð- ust Ástralíumenn í fyrsta skipti raunverulegt flugvélamóðurskip og kölluðu það „Sydney". Það var tekið í notkun 1949 og var fyrst í stað búið orrustuflugvélum af gerðinni Sea Fury og árásar- könnunarflugvélum af gerðinni Firefly. Með tilkomu þess viðurkenndu ástralskir stjórnmálamenn að flugstöðvar á landi nægðu ekki til að tryggja Ástraliu nægilega öfl- ugar loftvarnir. Vegna mikilla fjarlægða reyndist lífsnauðsyn- legt fyrir Ástralíumenn að ráða yfir flugvélamóðurskipi. „Sydney" tók þátt í Kóreustríð- inu og leysti af hólmi brezka flugvélamóðurskipið „Glory". Það kom á vettvang í þann mund er ástralska freigátan „Murchison" og önnur skip SÞ áttu börðust í návígi við fallbyssuskyttur komm- únista við Hanfljót. í janúar 1952 höfðu flugvélar „Sydney" farið 270 árásarferðir, aðallega gegn iðnaðarskotmörkum og járnbrautakerfi óvinarins. „Sydney" útvegaði einnig nokkr- um skipum, sem send voru til skotárása, könnunarflugvélar, þar á meðal ástralska tundurspillin- um „Tobruk". GH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.