Morgunblaðið - 08.04.1984, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.04.1984, Qupperneq 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 Salvador Dali; Ég er að deyja úr ástarsorg Frá Hetgu Jónsdóttur, fréttaritura Mbl. í Burgos, Spáni. Þessa mynd tók vinur Dali, Robert Decharmer, þar sem listmálarinn situr hjá nýjasta listaverki sínu. í kastala einum, umkringdur hjúkrunarfræóingum og örfáum vinum, heyr Salvador Dali dauða- stríð sitt. Dali vill kveðja þennan heim sem skjótast. Frá því að kona hans, Gala, lést, hefur lífið á þessu jarðríki enga þýðingu fyrir lista- manninn. Hann neytir varla matar; þyngd hins 1,80 m háa líkama er tæp 48 kflógrömm. Dali er fullur angistar. Eftir dauða Gala hefur listamaðurinn lítið starfað. Þó hef- ur hann unnið með mikilli um- hyggju að einu málverki síðustu vikurnar; það á að tákna dauða hans sjálfs. Dali hefur grafíð sig lifandi í Púbol-kastala, sem hann hefur gert að musteri gyðjunnar Gala. Salvador Dali, 79 ára, frægast- ur allra lifandi Spánverja, snill- ingur súrrealisma, dulspakur, umdeildari en nokkur annar listamaður; sá er mestu hneyksli hefur valdið, hæðinn, sérdrægur, hefur enga löngun til þess að líta dagsins ljós. Þegar listamaðurinn er spurð- ur hvernig honum líði, svarar hann: „Verr, mér líður verr með hverjum deginum. í sannleika sagt: mér líður mjög illa.“ Dali hefur lokað sig frá öllu, frá umheiminum. Hann vill ekki sjá neinn. Hann vill ekki fá heimsóknir. Stjórnmáia- mönnum, listamönnum, auðug- um kaupsýslumönnum, gömlum vinum hefur ekki verið hleypt inn fyrir dyragætt kastalans í marga mánuði. Dali vill ekki að neinn sjái sig. Síðasta heimsókn- in sem hann leyfði var þegar bandaríski stærðfræðingurinn Thomas Banchoff dvaldist í kastalanum þ. 22. mars á síðasta ári. Hann er höfundur kenninga um fjórðu víddina, sem Dali hef- ur gert að þráhyggju sinni. Robert Descharner, ævisagna- ritari og annar af tveimur vinum Dali sem hann kærir sig um að sjá, segir um lisfamanninn: „Dali hefur ætíð verið og er sið- samur. Leikur hans og látalæti eru hluti af honum sjálfum. Hann er ekki að sýnast. Hann er raunverulegur. Fáir listamenn standa eins lifandi og einlægir fyrir framan verk sín. Hann er ekki heldur brjálæðingur. Hann er snillingur." Dali talar ekki lengur um viðskipti; hann ákveður ekki lengur verð á verkum sínum. Auðkýfingur frá Saudi-Arabíu vildi eignast tvö nýjustu verk hans. Höfundi var boðið að setja upp það verð er hann kærði sig um. En svar Dali var aðeins „Nei, ég hirði ekki um smá- muni.“ Arturo, ráðsmaður og bílstjóri Dali, hefur þjónað listamannin- um dyggilega í 35 ár. „Hvort mér þyki vænt um hann? Vitaskuld, þau eru orðin mörg árin sem lið- ið hafa við hlið herra míns.“ Dali treystir Arturo fyrir leyndar- málum sínum og áhyggjum. Hinn dyggi ráðsmaður hug- hreystir dapran húsbónda sinn. Dali er þrár. Hann neitar að fara eftir fyrirmælum lækna sinna. Hann vill ekki taka inn töflurnar sem þeir ráðleggja honum. Dali kvartar yfir kulda. Þó er miðstöðvarofninn stilltur á það hæsta. Hann vill að þeir sem hjá honum dvelja taki allan tím- ann eftir sér. Þannig var hann strax í æsku. f skóla gerði hann allt til þess að vekja eftirtekt kennara og skólafélaga. „Það virðist vera erfitt verk fyrir mig að deyja,“ stynur Dali. Antonio Pitxot, hinn einkavinur Dali sem listamaðurinn hefur valið til þess að eyða með sér síðustu ævidagana, síðustu stundirnar (að sögn Dali), svar- ar: „Það er engin vinna að deyja. Það er ekki það sama og að mála mynd. Dauðinn kemur án nokk- urrar fyrirhafnar. Dauðinn kem- ur þegar stundin rennur upp. Ég sjálfur, þegar ég sný heim í kvöld á bílnum mínum, get lent í „ALLT fyrir gluggann“ ... meiriháttar listaverk. — Úrval af stórisefnum, þ.á.m. spönsku ódýru efnin. — Trékappar, gardínustangir og ömmustangir í úrvali. „Allt fyrir gluggann". Kœru vinir Hcifid hjartans þakkirfyrir yjafir oy kveöjur, mér send- ar á sjötuysafmwli mínu 1. þessa mánaöar. Páll Pálsson frá Hnífsdal. Villadseris Utanhúss þak- og veggklæðning Frá Jens Villadsens Fabriker bjóöum við PIR (poly- isocyanurat) utanhússeinangrun, viöurkennda og prófaða af bruna- og byggingaeftirliti Danmerkur. Mjög hátt einangrunargildi miöaö viö aðra einangr- un sömu þykktar. Á þök: Meö hinum þekkta lcopalasfalt PVC og PF filter- pappa. Á veggi: Fyrir ný og gömul hús sem þarfnast endur- einangrunar og lokunar vegna sprunguskemmda. Ytra- byrði frá Byggingarvöruverslun Kópavogs, svo sem Steni-plötur, múrsteinsflísar eöa gipskvarts-múrhúöun meö grófperlu-áferö. Einnig viöurkennt af bruna- og byggingaeftirliti. PIR-einangrun fæst einnig meö álþynnu sem endanleg klæðning í loft gripahúsa, verksmiöja, verkstæöa o.fl. Plöturnar eru háþrýstiprófaðar (25kp/cm2) meö vél- þvottahreinsun í huga. Allar upplýsingar veitir undirritaöur í síma 91-26790. Fulltrúi Villadsens lcopal á islandi, Sigvaldi Jóhannsson, þaklagningameistari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.