Morgunblaðið - 08.04.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.04.1984, Blaðsíða 36
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 H AFA New Line Sænskar baöinnréttingar í sérflokki sem henta inn á öll baðherbergi. Fáan- legar af lager. Vald Poulsen Suðurlandsbraut 10, sími 86499. Kennari og nemandi. Kristín Þorsteinsdóttir er líklcga fyrsta íslenska stúlk- an sem lærir að spila á kongur, en það krefst þess að menn hafi tilfinningu fyrir tónlistinni. Morgunblaöiö/GunnlauKur. „Vantar meira líf í íslenska tónlist“ Boreal er nýstárleg veggklæðning, frum- leg, falleg og notadrjúg, framleidd úr finnsku úrvalsbirki af heims- þekktum framleiðanda. Gæöi fara aldrei úr tfsku KRlSTJÁn SIGGGIRSSOn HF. LAUGAVEGI 13, REYKJAVIK. SÍMI 25870 — segir Marokkómaðurinn Abdou, sem búsettur er hérlendis „Heimurinn er lítill... er ég var við myndlistarnám í Montpellier í Frakklandi fyrir nokkrum árum kynntist ég íslenskri stúlku, Ás- rúnu Láru Jóhannsdóttur og við fórum að búa saman. Er hún hafði lokjð sínu námi héldum við saman til íslands og því er ég hér,“ sagði Marokkómaðurinn Abdou Dhour aðspurður hvers vegna hann væri kominn til lands þar sem allra veðra er von, frá landi þar sem 45 gráðu hiti er ekki óalgengur. Ræddi blaöamaður Morgunblaðs- ins við hann um hugmyndir, sem hann hefur í sambandi við tónlist- arlífið hérlendis, en Abdou þykir mjög fær ásláttarhljóðfæraleikari og hefur spilað með ýmsum ís- lenskum hljómsveitum á hljóðfæri, sem lítt hafa verið notuð af ís- lenskum hljómlistarmönnum. „Draumur minn er að stofna hljómsveit með ásláttarhljóð- færaleikurum, og ég er reyndar byrjaður að æfa dálítið með nokkrum mönnum vegna þessa. Það þarf marga í svona hljóm- sveit og hérlendis er erfitt að finna fólk, sem kann að spila á slagverk. Einnig þekkja íslenskir hljómlistarmenn lítt til latin- og afrískra takta, en það verður að- al þessarar hljómsveitar. Afrísk tónlist er mjög auðug af ýmis- konar töktum og það eru til þús- undir tilbrigða. Eiginlega eru trommur eina vinsæía ásláttar- hljóðfærið hérlendis, en mig langar að kynna íslendingum hljóðfæri, sem gefa meiri „fíl- ing“. Kongur til dæmis gæða tónlist meira lífi en trommur og laða fram töfra takstsins. Það er einmitt það sem mér finnst vanta í ísienska tónlist. Það er alltof algengt að spilað sé sam- kvæmt venju, einn, tveir, þrír, fjórir og aldrei tekið hliðarspor. Það skreytir tónlistina og gefur henni líf að taka hliðarspor- in ...“ sagði Abdou. „Ég kem frá Casablanca, þar sem fólk lifir og hrærist í takt- mikilli tónlist og ég tek því kannski frekar eftir því hvernig íslensk tónlist er. Það má segja að þetta sé í blóðinu, en ég hef aldrei .verið í tónlistarskóla, hvorki Berkley né öðrum ...“ sagði Abdou brosandi. „Ég ólst upp við tónlist á heimili mínu í Afríku, móðir mín vann mikið heima og söng við vinnuna, en hún óf litrík teppi, sem líklega höfðu þau áhrif að ég byrjaði einnig að teikna og mála. Fór ég í myndlistarnám í Tetuan í Mar- akkó og síðan hélt ég áfram Evrópuleiðtogi Hjálpræð- ishersins hér á landi EVRÓPULEIÐTOGI Hjálpræðis hersins, Anna Hannevik, mun dvelja hér á landi á næstunni. í fylgd með henni er umdæmisstjóri Noregs, Færeyja og íslands, Martin Hög- berg. Anna Hannevik er fædd í Kína þar sem foreldrar hennar störfuðu sem trúboðar. Hún fluttist til Indlands fimm ára og kom til Nor- egs tíu ára gömul þar sem hún dvaldist þangað til hún fluttist til Lundúna. Hannevik varð foringi 1947 og hefur síðan starfað í Nor- egi og Englandi. í Reykjavík verða almennar samkomur með gestunum í dag, sunnudaginn 8. apríl, kl. 11.00 og kl. 20.30, og fimmtudaginn 12. apr- íl kl. 20.30. Á Akureyri verða sam- komur 10. og 11. apríl. (FrétUtilkynning.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.