Morgunblaðið - 25.04.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRlL 1984
Hringormahreinsun:
Kostar fiskverkunina
200 milljónir árlega
Selastofninn veiöir meiri fisk en tveir tugir togara
Varlega áætlað er beinn kostnað-
ur frystingarinnar vegna hringorma-
hreinsunar í þorski, löngu, ufsa og
karfa um 100 milljónir króna árlega,
sagði Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, á Alþingi í gær. I>á
er áætlað að það kosti saltfiskverk-
unina um 80 m. kr. árlega að hreinsa
fisk af ormi. Samtals er beinn kostn-
aður fiskverkunar vegna hringorma
á bilinu 180—200 m.kr. Þar að auki
er óbeinn kostnaður sem felst í
markaðslegu óhagræði og lélegra
hráefni. Að meðaltali eru 10 hring-
ormar í þorski og 70% fiska eru sýkt.
Aukning ormasýkts fisks hefur verið
9% árlega, næstliðin ár, og 90%
hringmorma í þorski eru selormar.
Aukning hringorms telst afleiöing
stækkandi selastofna við landið.
Þessar upplýsingar komu fram í
svari ráðherra við fyrirspurnum
frá Gunnari G. Schram (S) um
tjón af völdum hringorma. Fyrir-
spyrjandi taldi selastofna eta fisk
hér við land sem svaraði afla 23
togara 1983. Á þeim tíma sem
fiskafli gengi svo mjög saman
skipti máli, hvern veg væri tekið á
þessu máli. Ráðherra sagði við-
brögð fyrst og fremst þau að bæta
ormahreinsun. Að auki myndi
hringormanefnd starfa áfram, en
ekki væri unnt að draga verulega
úr þessum vanda nema stemma
stigu við fjölgun sela.
Selveiðilaun:
Fyrst og fremst
greitt fyrir kjötið
HRINGORMANEFND hefur nú
ákveðið að breyta greiðslu veiði-
launa fyrir sel á þessu ári. Verður
þá fyrst og fremst greitt fyrir inn-
lagt kjöt, 10 krónur á kfló, en 200
krónur að auki ef kjálki fylgir
með.
Björn Dagbjartsson, formaður
Hringormanefndar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að eins og
áður færi kjötið í loðdýrafóður
og þar sem búin tækju ekki við
kjötinu beint vigtuðu frystihúsin
á stöðunum kjötið inn. Síðastlið-
ið ár hefðu tæplega 5.000 selir
veiðzt og væri það svipaður
fjöldi og árið áður en mun meira
hefði verið veitt af fullorðnum
sel í fyrra en áður.
Björn sagði, að heildarkostn-
aður af störfum nefndarinnar í
fyrra hefði verið um 4,7 milljón-
ir króna og væri mestur hluti
þess vegna veiðilauna. Ráð væri
fyrir því gert, að kostnaður á
þessu ári yrði svipaður. Það
væru samtök fiskverkenda og út-
flutningsfyrirtækin, sem
greiddu kostnað nefndarinnar.
Landamæri Nígeríu lokuð:
Ekki áhrif á skreiðarsöluna
Að lokinni vígslu séra Sigurðar Árna Þórðarsonar í Dómkirkjunni. Við
hlið hans er eiginkona hans, séra Hanna María Pétursdóttir.
ljósm. Mbl./Ól.K.M.
Fyrstu prestvígðu hjónin
ÍSLENSKA kirkjan fékk í sína þjónustu fyrstu prestvígðu hjónin, þegar
Sigurður Árni Þóröarson, guðfræðingur, var vígður til prestsþjónustu í
Ásaprestakalli í Skaftártungu á skírdag. Séra Sigurður Árni er settur
prestur þar frá 1. maí nk. en eiginkona hans, séra Hanna María
Pétursdóttir, sem hefur þjónað Ásaprestakalli til þessa, hefur fengið
lausn frá sama tíma. Á nýafstaöinni páskahátíð fermdi séra Sigurður
Árni sín fyrstu fermingarbörn í sókninni og við sömu guösþjónustu
skírði séra Hanna María.
Vígsla séra Sigurðar Árna fór Pétursdóttir, sem lýsti vígslunni.
fram í Dómkirkjunni í Reykja- Sem fyrr segir er séra Sigurð-
vík. Biskup íslands, Pétur Sigur- ur Árni settur prestur frá 1. maí
geirsson, vígði og voru vígslu- nk. en kosningu í embættið hefur
vottar þeir séra Fjalarr Sigur- Verið frestað fram í júnímánuð.
jónsson, prófastur, dr. Einar Er það samkvæmt beiðni sókn-
Sigurbjörnsson, prófessor, séra arbarna um að hún fari ekki
Þórir Stephensen, dómkirkju- fram fyrr en að sauðburði lokn-
prestur og séra Hanna María Um.
Framsóknarmenn deila um
sölu Iðnaðarbankahlutabréfa
LANDAMÆRUM Nígeríu hefur nú
verið lokað vegna myntskipta og
eignakönnunar, sem nú fer fram í
landinu. Talið er að það hafi ekki
ÁKVEÐIÐ hefur verið að úthluta 80
einbýlishúsalóðum í öðrum áfanga
íbúðarskipulags borgarinnar í Graf-
arvogi í sumar. Koma lóðirnar til út-
Skákþing íslands:
*
Askell vann
áskorendaflokk
ÁSKELL Ö. Kárason frá Akureyri
sigraði í áskorendaflokki á Skákþingi
íslands, sem lauk annan dag páska.
Hann hlaut T/i vinning í 9 umferðum.
í öðru sæti varð Lárus Jóhannesson,
TR með 7 vinninga.
Georg Páll Skúlason sigraði í
opnum flokki. Hann hlaut 7'A
vinning í 9. umferðum. Annar varð
Magnús Kærnested með 7 vinn-
inga.
áhrif á viðskipti okkar við Nígeríu-
menn.
Einar Benediktsson, sendiherra
íslands í Nígeríu með aðsetur í
hlutunar mun fyrr en áætlaö haföi
verið. í Ijósi lítillar eftirspurnar eftir
lóðum á þessu svæði á síðari hluta árs
í fyrra hafði ekki verið gert ráð fyrir
að úthluta þyrfti einbýlishúsalóðum í
ár. Lóðirnar 80 eru allar ofan Kjall-
konuvegar.
Að sögn Guðmundar Hjaltason-
ar, fulltrúa á skrifstofu borgar-
verkfræðings, hefur aukin eftir-
spurn komið skipulagsyfirvöldum
nokkuð á óvart. Sagði hann, að við
henni hefði ekki verið búist. Guð-
mundur sagði, að brugðist hefði
verið skjótt við og stæðu vonir til
þess að hægt væri að úthluta lóð-
unum einhvern tíma í sumar.
Skipulagsnefnd hefði þegar sam-
þykkt lóðaúthlutunina og hún var
kynnt í borgarráði á þriðjudag.
Byggist hann við, að vinna við
gatnagerð á svæöinu hæfist í næsta
mánuði.
London, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fréttir frá Nígeríu
væru fremur óljósar, en þó virtist
sem ferðafrelsi fólks hefði verið
takmarkað vegna myntskiptanna
og eignakönnunarinnar. Þetta
ætti hins vegar ekki að hafa áhrif
á utanríkisviðskipti þjóðarinnar
og skreiðarkaup þeirra héðan.
Skreiðin hefur verið seld til Níg-
eríu fyrir dollara og því skiptir
myntbreytingin ekki máli í þeim
viðskiptum. Ólafur Björnsson,
stjórnarformaður Samlags skreið-
arframleiðenda, og Matthías Á.
Mattiesen, viðskiptaráðherra,
töldu einnig, í samtali við Morg-
unblaðið, að þetta hefði ekki áhrif
á skreiðarsölu okkar til Nígeríu.
ÁGREININGUR er innan þing-
flokks Framsóknarflokksins um
sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Iðn-
aðarbankanum. Formaður þing-
flokksins, Páll Pétursson, sagði í
viðtali við Mbl. rétt vera að ekki
væru aliir inn á þessu máli í þing-
flokknum og að þar væri ekki búið
að ganga frá því formlega.
Páli sagöi skoðanir manna
skiptar í þingflokknum. Hann
sagði ennfremur: „Það er ýmis-
legt óklárt þarna. Það eru opin-
berir sjóðir í varðveizlu Iðnaðar-
bankans og ef þetta verður einka-
banki þá eiga þeir ekki heima þar
lengur og þeirra er ekki getið sér-
staklega í frumvarpinu."
Hann nefndi sem dæmi Iðn-
lánasjóð en bætti því við, að vel
mætti hugsa sér að setja honum
serstaka stjórn. Hann vildi ekk-
ert fullyrða að svo stöddu um
hver niðurstaða málsins yrði í
þingflokknum og sagði aðspurður
í lokin, að þingflokkurinn væri
ekki kominn svo langt að ræða þá
verðlagningu, sem iðnaðarráð-
herra, Sverrir Hermannsson, hef-
ur upplýst opinberlega að hann
hafi ákveðið á hlutabréfin.
Grafarvogur:
80 einbýlishúsalóö-
um úthlutað í sumar
Bifreið alelda
á svipstundu
IIJÓN með börn sín tvö áttu fótum
fjör að launa þegar eldur kom upp í
bifreið þeirra fyrir utan Krumma-
hóla 2 á skírdag. Eigandinn hugðist
setja bifreiðina í gang og skipti þá
engum togum, að bifreiðin varð al-
elda á svipstundu. Tvær bifreiðir
sem lagt var til hliðar við FIAT-inn
skemmdust þegar eldur komst í
þær.
Slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að á vettvang og gekk greiðlega að
slökkva eldinn.
Morfrunblaðið/Júlíus.
Skákmót í New York:
Jóhann og Helgi hlutu 5 v.
JÓHANN Hjartarson og Helgi Ólafsson tóku þátt í alþjóðlegu
skákmóti í New York um páskana. Báðir hlutu þeir 5 vinninga í 8
umferðum. Vegna misskilnings mættu þeir ekki til leiks í 3. umferð
mótsins fyrr en of seint og töpuðu því skákum sínum. Bandaríkja-
maðurinn Spragget sigraði á mótinu, hlaut 7 vinninga. I 2.—4. sæti
urðu Yasser Seirawan, Sederowicz og Bisguier með 6V2 vinning.
Mótið var nokkurs konar Ungverjalandi, Bent Larsen,
upphitunarmót fyrir þá félaga. Danmörku, Walter Browne,
í dag hefst feikisterkt skákmót USA, Gennadi Sosonko, Hol-
í New York og er reiknað með landi, Ljubojevic, Júgóslavíu,
um 30 stórmeisturum til leiks. og Larry Christiansen og Sam-
Þeirra á meðal Lajos Portisch, uel Rehsevsky, Bandaríkjunum.
t(*« a
#.»* « • « #•*•»»«*«••••*#••( *#•* •-•