Morgunblaðið - 25.04.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
5
Tíminn
í nýjum
búningi
TÍMINN kom í gær út í nýjum bún-
ingi og meö nýju nafni, NT. Þar með
hefur blaðið tekið að hluta þeim
breytingum, sem boðaðar voru þegar
hiutafélagið Nútíminn tók við rekstri
blaðsins af Framsóknarflokknum um
síðustu mánaðamót. í opnugrein í NT
er greint frá stefnu biaðsins og
markmiðum og m.a. sagt að útgáfan
sé „bylting í íslenskum blaðaheimi".
Blaðið var 32 síður, prentað með
bláum og gulum aukalitum á útsíð-
um og í opnu. Aðalfrétt þess fyrsta
daginn fjallaði um það er Albert
Guðmundsson, fjármálaráðherra,
„stoppaði í gatið“; rimpaði saman
gat á ullarsokk, sem blaðamenn
blaðsins höfðu fært honum.
Á sama hátt og DV býður NT
lesendum sínum að stinga fréttum
að blaðamönnum slnum gegn eitt
þúsund króna þóknun fyrir hverja
birta frétt og tfu þúsund króna
verðlaunum fyrir „frétt mánaðar-
ins“. NT hyggur á samkeppni við
DV á síðdegismarkaðinum á mánu-
dögum, því blaðinu er ætlað að
koma út undir hádegið á mánudög-
um en aðra daga vikunnar verður
NT morgunblað eins og Tíminn hef-
ur alla jafna verið.
Ýmsir efnisþættir i blaðinu eru
hinir sömu og voru í Tímanum en
nöfnum hefur verið breytt og veru-
legar breytingar hafa verið gerðar
á útliti. Erlendar fréttir, með sim-
sendum fréttamyndum, hafa verið
teknar upp og verulega bætt í
íþróttaumfjöllun. Fleiri nýir og
breyttir efnisþættir eru boðaðir á
næstu vikum.
Halldór Gunn-
laugsson látinn
HALLDÓR Gunnlaugsson, cand.
teol. og fyrrum hreppstjóri og
bóndi á Kiðjabergi, lést í Reykja-
vík í gærmorgun, 24. apríl, á
nítugasta og öðru aldursári.
Hann var fæddur á Kiðjabergi
20. september 1892 og átti þar
ætíð heimili. Hann var hrepp-
stjóri Grímsneshrepps í meira en
40 ár og heiðursborgari Grímsnes-
inga.
Seldu 163
Fíat-bfla
„VIÐ erum ákaflega ánægðir með
árangurinn og þetta er að sjálf-
sögðu metdagur hjá okkur,“ sagði
Sveinbjörn Tryggvason, forstjóri
hjá Agli Vilhjálmssyni, í samtali við
blm. Mbl. í gærkvöldi. Sveinbjörn
hafði ástæðu til að vera kampakát-
ur því fyrirtæki hans seldi í gær
163 bíla af tegundinni Fíat Panda.
Bílarnir voru auglýstir í Morg-
unblaðinu á skírdag en þegar í
gærmorgun hófust linnulausar
fyrirspurnir til umboðsins og
þegar dagurinn var á enda voru
allir bílarnir, sem fyrirtækið
hafði fengið, uppseldir. Verð bíl-
anna var um 155.000 krónur. Að
sögn Sveinbjarnar var salan í
gær meiri en sala allra Fíat-bíla
hér á landi 1980.
Halldór Gunnlaugsson
Gustaf Petrén Spencer Williams
Fyrirlestrar á vegum lagadeildar:
Tveir dómarar tala
I PASKAVIKUNNI halda tveir er-
lendir lögfræðingar fyrirlestra við
lagadeild Háskóla íslands.
Miðvikudaginn 25. apríl kl.
17.15 flytur Spencer Williams,
dómari í Kaliforníu, fyrirlestur,
sem hann nefnir Social Change
and the Court.
Fundurinn verður haldinn á
vegum lagadeildar Háskóla ís-
lands og Lögfræðingafélags ís-
lands.
Fimmtudaginn 26. apríl kl.
17.15 flytur dr. Gustaf Petrén,
dómari í æðsta stjórnsýslu-
dómstól Svía (Regeringsrátten),
erindi um Stjórnsýsludómstóla í
Svíþjóð með hliðsjón af dóm-
stólaskipan annars staðar á
Norðurlöndum.
Fyrirlestur þessi er á vegum
lagadeildar Háskóla íslands,
Dómarafélags Íslands og Lög-
fræðingafélags fslands.
Báðir fundirnir verða í stofu
201 (á 2. hæð) í Lögbergi, húsi
lagadeildar og eru báðir kl. 17.15
síðdegis, eins og áður getur.
Öllum er heimill aðgangur.
(Frá lagadeild Háskóla íslands)
Breytt og ennþá betrikjör
Stórkostlegar breytingar hafa verið gerðar á
Safnlánakerfinjj þér í hag svo að segja má að um nánast
NYTT SAFNLAN sé að ræða.
Lengri endurgreiðslutími
Endurgreiðslutími láns eykst því lengur sem sparað er.
Spamaður 3-6 mán. Endurgr. 3-6 mán.
Spamaður 7-12 mán. Endurgr. 9-15 mán.
Spamaður 13-18 mán. Endurgr. 18-27 mán.
Hærri vextir:17% og 19%
Nú eru vextir af þriggja til fimm mánaða reikningum 17% og fara
upp í 19% ef spamaðurinn nær yfir 6 mánuði eða lengur.
Hærra lánshlutfall
Lánshlutfallið með Safnlánakerfinu verður mun hagstæðara eftir
því sem lengur er sparað.
Eftir 3-6 mánaða sparnað 100%
Eftir 7-12 mánaða spamað 125%
Eftir 13-18 mánaða spamað 150%
Hámarks upphæð sem veitir lánsréttindi er nú 10.000 kr. á mánuði.
Að öðru leyti má spara hvaða upphæð sem er.
Hag þínum er vissulega betur borgið með þessum breyt-
ingum á Safnláninu.
Leitaðu upplýsinga og fáðu bækling í næsta Verzlunarbanka
UCRZlUNflRBflNKINN
Taktu Safnlán - því eru lítil takmörk sett.
Bankastræti 5 Grensásvegi 13 Umferðarmiðstöðinni Vamsnesvegi 14, Keflavík Húsi verslunarinnar,
Arnarbakka 2 Laugavegi 172 v/Hringbraut Þverholti, Mosfellssveit nýja miðbænum
AUK hf. Augiýsingastofa Kristínar 43.63