Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRlL 1984
7
Peningar, bíll og íbúö
úti á landi eru í boöi, í skiptum fyrir litla íbúð á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Tilboð sendist augl.
deild Mbl. merkt: „Stórkostlegt tækifæri — 1000“.
VERTU í TAKT
VIÐ itMANN
LETTAÐU HL
FAGMANNSINS
Nú hafa félagsmenn Úrsmiðafélags íslands
sett upp félagsmerki sitt, í verslunargluggana.
Par sem merkið er, getur þú notfært þér
þekkingu og reynslu fagmannsins
þegar kaupa á fallegt og vandað úr.
Úrsmiðurinn tryggir einnig
varahluta- og viðgerðarþjónustu.
MERKI URSMIOAFÉLAGS ISLANDS
TRYGGIR GÆOI OG PJONUSTU
Mf-RKí URSMIOAFELAGS ISLANDS
TRYGGIR g/eoi og DJONUSTU
lyfti-
vagnar
ijfv Eigum ávallt fyrirliggjandi
hina velþekktu BV-handlyfti-
vagna með 2500 og 1500
kílóa lyftigetu.
: Útvegum einnig allt sem
lAgmúus. 105REYKJAVIK
SlMI: 91- 8S222
PÓSTHÚLF: 887, 121 REYKJAVlK
Hmwnw
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og
Þórarinn Þórarinsson
Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar:
Síöumúli 15, 105 Reykjavik.
Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300.
Kvöldsimar: 86387 og 86306
Verð i lausasölu 20 kr. en 22 kr. um helgar
(2 blöð). Áskrift 250 kr.
Srtnmg og umtorot TakntdoM Timan* Prentun Bltoðaprent hl
Samvinnu
söluboð
Auglýsing eða
gólfþurrka?
Síöasta forystugrein Gamla Tímans
var eins og SÍS-auglýsing! Fór vel á því
aö hann fjallaði um Leni-salernispappír,
Maarud-skrúfur og DDS-sykur í „sam-
vinnusöluboöi SÍS“. Vert er aö minna á
aö SÍS braut engan ís í stórmarkaös-
verzlun á höfuöborgarsvæðinu, heldur
drattaöist í kjölfar annarra, eftir að
verðsamkeppni KRON-verzlana var end-
anlega afskrifuö sem sigurstrangleg.
Síöasti leiöari
gamla Tímans
Hér fer á eftir síðasti
leiðari gamla Tímans (Þór-
arins Ihírarinssonar) sl.
fimmtudag:
„l»að er viðurkennt, að
samvinnuhreyrmgin hefur
gert stórt átak í verzlun-
armálum höfuðborgarinn-
ar, þar sem Mikligarður er.
Andstæðingar sam-
vinnuhreyfingarinnar hafa
reynt að nota þetta átak
hennar í höfuðborginni til
að ala á þeim misskilningi,
að minna sé hugsað um
verslunina utan höfuð-
borgarsvæðisins.
Vissulega er þessu ekki
þannig varið. í byrjun
þessa mánaðar hófst nýr
þáttur í starfsemi sam-
vinnuhreyfingarinnar, sem
hlotið hefur nafnið Sam-
vinnu-söluboðið. I>að er
fólgið í því, að í kaupfélög-
unum verða seldar vissar
vörur með lægra verði um
hálfsmánaðar skeið. I*egar
því er lokið, hefst sala á
öðrum tilteknum vörum
með la'gra verð.
I>að er innflutningsdeild
SÍS, sem hefur hér forust-
una og tekur á sig mest af
þessari verðlækkun, sem
hér er um að ræða. Að
sjálfsögðu leggja svo kaup-
félögin fram sinn skerf.
I’yrsta Samvinnu-sölu-
boðið hófst 4. þ.m. og lauk
því í gær. Næsta Sam-
vinnu-söluboð er að hefj-
asL Þannig heldur þetta
áfram koll af kolli hálfs-
mánaðarlega.
í fyrsta söluboðinu voru
eftirtaldar vörur: Juvel
hveiti 2 kg, DDS sykur 2
kg, Flóru smjörlíki, Leni
salernispappír, Maarud
skrúfur og Mónu páskaegg
nr.8.
Ákveðnar hafa verið vör-
ur í næsta söluboð og
verða þá: Leni eldhúsrúll-
ur, íva þvottaefni, l>vol
þvottalögur, Slotts sinnep,
Slotts tómatsósa og Korni
hrökkbrauð.
Stefnt er að þvi, að í
hverju Samvinnu-söluboði
verði 4—6 vörutegundir
hverju sinni, aðallega mat-
væli og hreinhetisvörur.
Það verður leitast við að
hafa verðið sem allra lægst
og kappkosta að alltaf
verði áhugaverðar vöruteg-
undir í söluboðinu.
f kynningarriti segir svo
um þennan nýja þátt í
starfscmi Samvinnuhreyf-
ingarinnar:
„Þið kannizt við kjörorð
okkar vinnum saman og
vitið hve mikilvæg góð
samvinna er til að ná
árangri á hinum ýmsu svið-
um, svo sem í íþróttum,
leiklist, tónlist o.s.frv., og
ekki sízt í verslun og við-
skiptum. Samvinnu-sölu-
boðið, sem hér verður
kynnt, byggist á þessu.
Kins og nafnið bendir til,
merkir það að hér hafi
margir lagt sitt af mörkum
til að lækka vöruverðið.
I>eir, sem hér leggja hönd
á plóginn, eru framleiðend-
ur, flutnings- og dreifingar-
aðilar, og loks seljendur.
Og það eru neytendurnir,
sem njóta góðs af, við-
skiptavinir kaupfélag-
anna.“
Geymslugjald
og söluþóknun
SÍS kemur víðar við
sögu með „samvinnusrilu-
tilboð“ en á Króni. Búvöru-
deild SfS er langstærsti og
nær eini útflytjandi kinda-
kjöts úr landi. Samkvæmt
verzlunarskýrslum var verð
pr. kfló á sl. ári mismun-
andi eftir löndum, lægst
kr. 28,26 en hæst kr. 73,00,
enda kjötið mismikið unn-
ið á erlendan markað. Með
hverju kflói var síðan greitt
af skattfé almennings kr.
58,62 (dilkjakjöt) og kr.
38,00 (ærkjöt). SÍS tók síð-
an 2% söluþóknun af þessu
útflutta dilkakjöti, ekki al
söluverði, sem var allt
niður í kr. 28,00 á kfló
heldur af reiknuðu heild
söhiverði, svokölluðu, sem
var kr. 75,62 á sl. ári en kr.
129,32 frá I. október sl.
SfS tók því „söluþóknun"
af útflutningsbótum, auk
söluverðs í markaðslönd-
um. „Samvinnusölutilboð-
in“ koma því ýmsum að
gagni. Þar við bætist að
geymslugjald kindakjöts
hjá milliliðnum SfS er það
„gott“, að einn þingmaður
komst svo að orði, er
„samvinnusölutilboð"
kjöts bar á góma í þinginu,
„að það sé mciri gróðaveg-
ur að gcyma kjöt en selja
það á Islandi".
I>að er gagnrýnisvert að
Búvörudeild SÍS hefur
nánast einokun á útflutn-
ingi kjöts. Kf aðrir telja sig
geta selt kjöt gufar það
gjarnan upp, þó talað sé
um kjötfjall í annan tíma.
Keglur um söluþóknun,
sem ekki eru miðaðar við
raunverð til kaupanda,
verka heldur ekki hvetj-
andi til að fá sem hæst
verð fyrir vöruna erlendis,
né vinna hana í ncytcnda-
umbúðir, er falli kaupend-
um betur í geð. Birgir fs-
leifur (íunnarsson, þing
maður Keykvíkinga, sagði í
þingræðu að jafnvel sé
„frekar drcgið úr þessari
hvöt því eins og háttað er
verði fyrir geymslu á kjöt-
inu i frystigeymslum liggur
við að frekar borgi sig fyrir
aðilana að geyma það sem
lcngst í frystigeymslum en
selja það erlendis og reyna
að ná fyrir það sem beztu
verði".
Kjartan Jóhannsson,
formaður Alþýðuflokksins,
komst enn harðar að orði,
varðandi „samvinnusölu-
tilboð" útfiutts kjöLs: „Ég
vil einungis staðfcsta að
það var réttur skilningur
hjá l’áli l’éturssyni," sagði
Kjartan, „að í orðum mín-
um áðan varðandi geymslu
kjötsins og geymslugjald
fólst aðdróttun. I»að fyrir-
komulag sem menn hafa á
f þessum efnum býður upp
á misnotkun og þau dæmi
sem við höfum í höndun-
um, um hvað hvernig kjöt
virðist geta horfið þó að
það eigi að vera mikið t
birgðum, gefur fyllsta til-
efni til að ætla að hér eigi
sér stað misnotkun. I*ess
vegna er það rétt sem þing-
maðurinn sagði að í orðum
mínum fóLst aðdróttun."
Það er hvorki ( þágu
hænda, sem framleiðenda,
né skattgreiðenda, sem
borga útfiutningsbætur á
„samvinnusöluboð" kjöts
út í heim, að óbreytt SfS-
kerfi á útflutningi kjöts
haldlst. Það þarf „nýjan
tíma“ í þetta kerfi, ekki
einungis að útlitinu til,
heldur innihaldi ekki síður.
IHfttgtniMiifrft
Metsölublaó á hverjum degi!
Ferming í
Bolungarvík
Fermingarbörn í Bolungarvfk
annan páskadag. Prestur sr. Jón
Ragnarsson.
Ari Hólmsteinsson,
Traðarlandi 18.
Ásta S. Halldórsdóttir,
Hlíðarvegi 18.
Benedikt G. Egilsson
Traðarstíg 7.
Björgvin Valdimarsson,
Þjóðólfsvegi 9.
Borgar Antonsson,
Heiðarbrún 4.
Dagbjört Ásgeirsdóttir,
Völusteinsstræti 20.
Guðbergur Arnarsson,
Þuríðarbraut 7.
Hrefna Gylfadóttir,
Hlíðarstræti 20.
Jakob Elías Jakobsson,
Traðarstíg 9.
Jónas Magnússon,
Hjallastræti 26.
Margrét Eygló Karlsd.
Miðstræti 3.
Símon Þór Jónsson,
Hjallastræti 34.
Sjöfn Vilhelmsdóttir,
Höfðastíg 18.
Sóley Sævarsdóttir,
Traðarstig 14.
Valgerður Margrét Gunnarsd.,
Holtabrún 3.
Ægir Finnbogason,
Holtastíg 20.