Morgunblaðið - 25.04.1984, Qupperneq 20
20
' MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUPAOUR 25: APRlL 1984
Slitþols-
prófun
áklæóa
HúsgapiahöH
af húsgögnum
Nú getur þú aftur fariö aö kaupa vönduö húsgögn á
hagstæöu veröi því viö höfum
artur -
Audo1984
QDSOAGN&
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK ® 91-81199 og 81410
j
V-Þýskaland:
Mótmæli
á páskum
Frankfurt, 24. aprfl. AP.
FJÖLDI manna fór í mót-
mælagöngur gegn kjarnorku-
vopnum í Vestur-Þýskalandi,
um páskana. Segja skipu-
leggjendur mótmælanna það
sýna hver vilji þjóöarinnar er
en aðrir hafa kallað þátttak-
endurna „nytsöm fífl“.
Á blaðamannafundi með for-
svarsmönnum mótmælanna
sögðu þeir, að um páskana hefði
þýska þjóðin sýnt, að hún væri
ósammála stjórnunum í Wash-
ington og Bonn og afleiðingun-
um af stefnu þeirra. Þeir, sem
andvígir eru mótmælunum, hafa
kallað þátttakendurna „nytsöm
fífl“ og mikinn happadrátt fyrir
Sovétríkin.
Friðarhreyfingarnar höfðu
gert ráð fyrir að um 800.000
manns myndu mótmæla NATO-
eldflaugunum um páskana en
segja nú að þeir hafi verið
600.000. Lögreglan í Vestur-
Þýskalandi segir hins vegar, að
ekki nema 200.000 manns hafi
mætt í göngurnar um allt landið.
Grænland:
Vinstrimenn á
móti olíuleit
Kaupmannahöfn, 24. aprfl. Frá N J. Bruun, Crænlandsfréttaritara Mbl.
ALLT útlit er nú fyrir að stjórn-
málaástandið í Grænlandi verði
mjög erfitt eftir kosningarnar 6.
júní nk. Veldur því flokkurinn
Uinuit Ataqatigiit, sem er mjög
vinstrisinnaður, en hann hefur
sett það skilyrði fyrir hugsanlegu
samstarfi um landsstjórnina, að
hætt verði allri olíuleit í Græn-
landi í a.m.k. fimm ár.
Þótt flokkurinn hafi aðeins
fengið tvo menn kjörna í síðustu
kosningum hefur hann lykilstöðu í
stjórnmálunum þar sem hinir
flokkarnir tveir hafa jafn marga
menn, 12 hvor. í leiðara blaðsins
Grænlandspóstsins sagði hins
vegar, að með afstöðu sinni til
olíuleitarinnar væri flokkurinn að
dæma sig til pólitískrar eyðimerk-
urgöngu. Hvorugur hinna flokk-
anna tekur í mál að hlusta á kröfu
Inuits og þykja nú auknar líkur á
að þeir muni ná saman eftir kosn-
ingar.
Montreal:
Rætt um öryggi
farþegaflugvéla
Montreal, 24. apríl. AP.
FULLTRÚAR 152 þjóða sitja nú
fund Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar, ICAO, í Montreal í Kan-
ada en til hans var fyrst og
fremst efnt vegna þess atburðar
á síðasta ári þegar Sovétmenn
skutu niður suður-kóreska far-
þegavél með 269 manns innan-
borðs. Er það umræðuefnið á
fundinum hvernig unnt er að
gæta öryggis farþegavéla, sem
villast af leið.
Fundurinn er haldinn að kröfu
Frakka, sem hafa lagt til, að allar
þjóðir verði hvattar til eira venju-
legum farþegavélum þótt þær
fljúgi yfir bannsvæði. Sovétmenn
hafa svarað tillögu Frakka með
annarri þar sem lögð er áhersla á
„algjör yfirráð ríkis yfír lofthelgi
sinni“.
Stjórn ICAO, sem skipuð er 33
mönnum, samþykkti í fyrra mán-
uði að fordæma árás Sovétmanna
á suður-kóresku farþegavélina og
einnig það, að Sovétmenn skyldu
ekki fást til að gefa rannsakend-
um stofnunarinnar upplýsingar
um atburðinn.
íbúö óskast
íbúö meö 2 svefnherbergjum, búin húsgögnum,
óskast fyrir erlenda sérfræöinga sem starfa munu í
Borgarspítalanum nú í vor. íbúöin óskast frá lokum
apríl í ca. 11/2 mánuö. Æskilegt aö íbúöin sé i ná-
grenni spítalans.
Nánari upplýsingar í síma 81200/366 á mánudag
19/4.
BORGARSPÍTALINN