Morgunblaðið - 25.04.1984, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýhug viö andlát og úttör móöur
minnar,
ÞÓRUNNARÓLAFSDÓTTUR.
Tryggví Guömannsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og útför
ARNAR Ó. JOHNSON.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki og læknum Borgarspítalans
fyrir góöa aöhlynningu. Einnig stjórn og starfsfólki Flugleiöa hf.
fyrir virðingu og hlýhug.
Margrét Þorbjörg Johnson,
örn Johnson, Ásthildur Johnson,
Helga Petersen, Othar Örn Petersen,
Sofía Johnson, Jón Ólafsson,
Ólafur H. Johnson, Borghildur Pétursdóttir,
Margrét Þ. Johnson, Ásgeir Óskarsson,
barnabörYi og aórir vandamenn.
Minning:
Sigurhjörtur
Jónsson skipstjóri
Þegar mér barst sú harmafregn
á fögrum og sólbjörtum pálma-
sunnudegi að góðkunningi minn,
Sigurhjörtur Jónsson, væri allur
— hefði hnigið niður örendur í
miðri skíðaparadísinni ísfirzku —
neitaði ég í fyrstu að trúa. Aðeins
örfáum dögum áður höfðum við,
ásamt eiginkonum okkar, átt sam-
an notalega síðdegisstund. Þá
hafði Sigurhjörtur geislað af lífs-
gleði og hreysti og ekkert virtist
honum fjær en dauðinn. En svona
skipast veður skjótt í lofti, og ís-
kaldan raunveruleikann fær eng-
inn umflúið.
Sigurhjörtur Jónsson var fædd-
ur á ísafirði 20. febrúar 1940, son-
ur hjónanna Jóns Jóhannessonar,
sjómanns og Guðrúnar Guð-
mundsdóttur. Var hann fimmti í
röð ellefu systkina. Snemma
hneigðist hugur hans að því sem
síðar átti eftir að verða hans
starfsvettvangur, fiskveiðum og
sjósókn. Innan við fermingu var
hann farinn að vinna við línubeit-
ingu, og von bráðar réðst hann svo
til starfa á sjónum. Síðar settist
hann í Stýrimannaskólann og afl-
aði sér þar skipstjórnarréttinda.
Upp frá því var hann við skip-
stjórnarstörf á fiskibátum, eink-
um línubátum, en um skeið var
hann og við rækjuveiðar á báti,
sem hann átti og rak í félagi við
annan.
Náin kynni okkar Sigurhjartar
hófust fyrir 13 árum, er hann
réðst til skipstjórnarstarfa á
Aður en þú byrjar að byggja í vor
skaltu kynna þér
JL byggingalánin og JL voruúrvalið
Þaðsem er mikilvægast fyrir þann sem er að
byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar-
hraðinn.
J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum
kleift að byggja með fyrsta flokks vörum á
sérstökum J.L.-lánakjörum,
J.L. Byggingalánin eru þannig í fram-
kvæmd:
Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí-
unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar
yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og
allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex
mánaða. Þannig er þetta framkvæmt koll af
kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök
J.L.-lán, sem miðast t.d. við útborgun líf-
eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar-
lána. Þannig getum við verið með frá byrj-
un.
Iðnaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini
okkar þurfa ekki að leita annað í efniskaup-
um. Um leið og búið er að grafa grunninn
geta smiðirnir komið til okkar og fengið
fyrstu spýturnar. Og í framhaldi af því fæst
allt byggingarefnið hjá okkur.
Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur
ef þú ert að byggja.
JL
I BYGGlWGflVÖRURl
HRINGBRAUT 120’ M**«n9»vörurogvefklaM. 28-605
iiniivuunnui Fl.sar og hre.nlæt«læk. 28-430
Bygg.ngavorur 28 600 So»usl(On
GomeppadeikJ 28-603 Skr.lstofa
Timburdeild 28-604 Harðv.ðarsala
28-693
28-620
28-604
viðskiptabátum Hraðfrystihússins
Norðurtanga hf., fyrst á m/b Guð-
nýju og síðar á m/b Víkingi III.
Mér sýndist strax að þarna færi
traustur maður og góður, og brátt
sannfærðist ég um að þetta mat
mitt var rétt. Við höfðum mikið
saman að sælda í sambandi við
okkar daglegu störf, þótt á ólíkum
vettvangi væri. Hann glímdi við
úfið úthafið á meðan ég sat í landi
í kontórlogninu. En frístundir átt-
um við líka saman margar og ljúf-
ar. Var þá stundum lyft glasi á
góðri stund, eða ferðast saman um
fjarlæg og framandi lönd. En
hvort heldur sem var í leik eða
starfi, þá bar aldri skugga á sam-
band okkar.
Sigurhjörtur var afar farsæll
skipstjóri. Hann var kappsfullur
og metnaðargjarn, en kunni þó þá
gullnu reglu mörgum betur, að
láta kappið aldrei bera forsjána
ofurliði. Honum tókst líka ávallt
að stýra fleyi sínu heilu í höfn,
sem þó er ekki alltaf heiglum hent
á harðsóttum Vestfjarðamiðum.
En hann var ekki einungis farsæll
í störfum sínum, heldur og í
einkalífinu. Árið 1963 gekk hann
að eiga eftirlifandi eiginkonu sína,
Helgu Breiðfjörð. Var hjónaband
þeirra ástríkt og traust, og eignuð-
ut þau þrjú mannvænleg börn,
Snorra f. 1963, Guðrúnu f. 1965 og
Sigrúnu f. 1969. Er nú þungur
harmur að þeim kveðinn við hið
óvænta og ótímabæra andlát
heimilisföðurins.
Fyrir tæpum tveimur árum tók
Sigurhjörtur þá ákvörðun, að
vandlega yfirveguðu máli, að
hætta til sjós. Að eigin sögn vildi
hann vera búinn að hasla sér nýj-
an völl og aðlaga sig breyttum
starfsháttum, á meðan hann væri
enn á góðum aldri. Ekki hvarf
hann þó ýkja langt frá sjónum, því
hann réðst til starfa hjá Netagerð
Vestfjarða hf. Ávann hann sér þar
brátt traust og vinsældir sam-
starfsmanna og yfirboðara, og er
ekki að efa að áralöng reynsla
hans sem sjósóknara hefur oft
komið sér vel í þeim störfum.
Aldrei slokknaði þó gamli sjó-
mannsneistinn, og þegar við hitt-
umst seinast kvaðst hann hafa
mikinn hug á að mega leysa af á
bátunum á komandi sumri. Var
það að sjálfsögðu auðsótt mál og
fastmælum bundið á stundinni.
Eftir að Sigurhjörtur hætti
skipstjórn fækkaði samfundum
okkar nokkuð. Oft hittumst við þó
á förnum vegi, og ávallt var við-
kvæði okkar hið sama: Við yrðum
endilega að taka upp á ný gamla
góða þráðinn og hittast oftar. En
enn einu sinni hefur sýnt sig, að
því, sem mann Iangar til að gera
og getur gert strax, má ekki slá á
frest, því fyrr en varir getur allt
orðið um seinan.
Með Sigurhirti Jónssyni er
genginn mætur og góður þjóðfé-
lagsþegn, sem skiiaði dýrmætu
lífsstarfi, án þess þó að viðhafa
nokkru sinni hávaða eða glamur-
yrði. Ef ég ætti, að leiðarlokum, að
gefa honum einkunn, yrði hún á
þá leið, að hann var drengur góð-
ur. Mér þykir fengur að því að
hafa mátt eiga með honum sam-
leið, sem þó varð allt of stutt.
Við hjónin sendum Helgu og
börnunum dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Blessuð sé minning Sigurhjart-
ar Jónssonar.
Hans W. Haraldsson