Morgunblaðið - 25.04.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
47
Kamilla
Pedersen
— Kveðjuorð
Mjög kom það mér á óvart er
mér barst fréttin um lát Kömmu
systur minnar. Það er ekki langt
síðan við vorum saman glaðar og
hressar. En hennar tímaglas er
tæmt og hún hefur lokið sínu lífs-
verki. Hretviðri lífsins, sjúkdómar
og mótlæti hafa skollið yfir okkur
og þreytan segir til sín. Þannig
var því farið með Kömmu systur.
Oft hefur mér þótt sem hún væri
blómið sem berst í stormi og
kulda, lítið veikt blóm. En eftir að
dimmustu élin voru liðin hjá
minnti hún iíka á blóm sem þá
reisti sig á ný mót birtu og yl. Það
var von okkar systranna, sem
búum hér í Noregi að hún myndi
verða það hress á sumri komanda
að hún gæti komið í heimsókn til
okkar. En þetta hefur farið á ann-
an veg. Hún lagði upp í hina
hinstu för yfir móðuna miklu.
Ég óska og vona að þar hafi hún
hitt fjölmennan hóp vina og
vandamanna, sem tekið hefur á
móti henni og leiðbeint á nýjum
vegum í nýjum heimi. Við systur
hennar í Noregi munum í hugan-
um standa við gröf hennar á út-
farardaginn.
Við þökkum Kömmu systur okk-
ar fyrir svo ótal margt. Minningin
um hana mun lifa í brjóstum
okkar um ókomin æviár.
Anna Ingebertsen,
Noregi.
íslandsmótið í bridge:
• •
Oruggur
sigur sveit-
ar Jóns
Hjalta-
sonar
SVEIT Jóns Hjaltasonar sigraði
með yfirburðum í úrslitakeppni
íslandsmótsins í bridge sem lauk
á páskadag. Hlaut sveitin 115
stig af 140 mögulegum. í öðru
sæti varð sveit Runólfs Pálsson-
ar með 93 stig og þriðja varð
sveit Þórarins Sigþórssonar með
sama stigafjölda.
í sveit Jóns eru ásamt hon-
um: Símon Símonarson, Þórir
Sigurðsson, Hörður Arnórsson
og Jón Ásbjörnsson. Sveitin
vann alla leiki sina í undan-
keppninni sem lauk fyrir
nokkru og tapaði aðeins einum
leik í úrslitakeppninni en það
var við sveit Þórarins Sigþórs-
sonar sem varð íslandsmeist-
ari í fyrra.
Nánar verður sagt frá úr-
slitakeppninni í bridgeþætti.
LADJ&Ql kynnt á 21 stað
[dagana 27. - 30. apríl
Suður- og austurland: Norðurland:
föstudagur 27. apríl v/söluskálann Vík kl. 12—14
laugardagur 28. apríl v/hóteliö í Höfn
á Hornafiröi kl. 10—12
Djúpivogur síðdegis
Breiödalsvík síðdegis
Stöðvarfjörður síðdegis
Fáskrúðsfjörður síðdegis
sunnudagur 29. apríl Norðfjörður kl. 10—12
Eskifjörður kl. 14—15
Reyðarfjörður kl. 16—18
mánudagur 30. apríl Seyðisfjörður kl. 10—12
Egilsstaðir kl. 16—20
föstudagur 27. apríl Blönduós
laugardagur 28. apríl Sauðárkrókur
sunnudagur 29. apríl Akureyri
mánudagur 30. apríl Húsavík
Vesturland:
laugardagur
sunnudagur
mánudagur
kl. 16—20
kl. 14—16
kl. 10—16
kl. 16—20
28. apríl Borgarnes kl. 13—15
29. apríl Búðardalur kl. 10—12
Stykkishólmur kl. 15—17
30. apríl Grundarfjörður
Ólafsvík
Hellissandur
Komið og skoöið og reynsluakið hinum frábæra Lada LUX sem þegar
nýtur mikílla vinsælda á íslandi.
★ Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki.
Verð viö birtingu auglýsingar kr.
213.000,-
Lán 6 mán 107.000,-
Þér greiðið 106.600,-
Verdlisti yfir Lada-bifreiöar
fyrir handhafa örorkuleyfa:
Lada 1200 kr. 106.600
Lada 1200 station kr. 113.600
Lada 1500 station kr. 124.300
Lada 1500 Safir kr. 118.100
Lada 1600 Canada kr. 128.000
Lada Lux kr. 135.400
Lada Sport kr. 216.600
Stfelld þjónusta
landbúnaðarvélar hf.
Suðurlandsbraut 14, sími 38600 Söludeild sími 31236